Dagur - 21.10.1994, Page 7

Dagur - 21.10.1994, Page 7
HVAÐ ER A£> C E RA5T? Föstudagur 21. október 1994 - DAGUR - 7 á Hótel KEA Hljómsveitin Bergmál leikur fyrir dansi á Hótel KEA á Akureyri annaö kvöld. Danspar frá Dansskóla Heiðars Astvaldssonar, Kolbrún og Olafur, sýna suóræna dansa. Hótel KEA minnir á tilboð kvöldsins, sem saman- stendur af púrtvínsbættri melónusúpu, grísalund, hjúpuó með íslenskum kryddjurtum, heslihnetu og Amaretto- sósu og súkkulaðifrauði Grand Mami- er. Verð kr. 2.600. Mask í Borgarbíói Mask hefur slegið rækilega í gegn eins og kom fram í Degi í gær. Þessi vinsæla mynd verður sýnd í Borgar- bíói um helgina kl. 21 og 23. í hinum salnum kl. 21 veróur The Paper, sem er mynd í léttum dúr um ævintýraleg- an sólarhring á stórblaðinu The Sun í New York. Með aðalhlutverk fara Glenn Close, Michael Keaton, Robert Duwall og Marisa Tomei. Klukkan 23 verður sýnd myndin Renaissance Man með Danny DeVito. A bamasýning- um á sunnudag kl. 15 verða síðan sýndar myndimar Baby’s Day Out og Þumalína (með íslensku tali). Félagsvist í Hamri Félagsvist verður spiluð í Hamri, fé- lagsheimili Þórs á Akureyri, nk. sunnudagskvöld kl. 20. Góóir vinn- ingar verða í boði og eru allir vel- komnir. A síðasta spilakvöld komu um 40 manns og var mikið fjör. Bólumarkaðurinn af stað Á morgun, laugardag, kl. 11-15 verð- ur Bólumarkaóurinn opnaður að nýju eftir nokkurt hlé. Markaöurinn verður starfræktur í tengslum við Punktinn (miðstöð atvinnulausra) að Gleráreyr- um (áóur Strikið). Uppl. og pantanir söluborða í síma 26657 (Kristín). 15 mínútna mót hjá Skákfélaginu Skákfélag Akureyrar stendur fyrir 15 mínútna móti í kvöld, föstudag, kl. 20. Allir eru velkomnir. Að venju verður teflt í skákheimilinu við Þingvallastræti. Milli kl. 14 og 17 á morgun (fyrsta vetrardag) veróur Skíðaráð Akureyrar með kaffihlaöborö á Skíðastöðum of- an Akureyrar. Ágóði af hlaóborðinu verður notaóur til aö styrkja 30 manna hóp unglinga sem ætlar að fara yfir Sinfóníuhljómsveit Norður- lands á Húsavík og Akureyri Sinfóníuhljómsveit Noröurlands Berios, mezzosópransöngkonunni hefur 2. starfsár sitt á morgun með Cathy Berberian. sinfóníettutónleikum og á þeim Það er Anna Sigríður Helga- dóttir sem syngur lögin með Sin- fóníuhljómsvcit Noróurlands, en Anna býr á Sauóárkróki um þessar mundir þar sem hún kennir söng. Anna Sigríður er landsmönnum að góóu kunn sem „Anna Sigga“ úr sönghópnum „Emil og Anna Sigga“ en hún haslar sér nú völl sem klassískur söngvari. Hún hóf söngnám hjá John Speight, þá var hún vió Söngskólann í Reykjavík, en dvaldi nú síðast í þrjú ár á Ítalíu og nam hjá Rinu Maltrasi. Verk Milhauds er ballettinn „Sköpun heimsins" scm er mjög aðgengilegt, þó að þaö hafi þótt framúrstefnulegt þegar þaó var frumflutt 1923. Verk Iberts er „Divertissment" sem er sannköll- uð tívolítónlist og ef grannt er hlustaö má hcyra ýmislegt kunn- uglegt í öllum gleðilátunum. Sljómandi á tönleikunmn er Guómundur Oli Gunnarsson. Tónleikamir annað kvöld, laugardag, á sal Tónlistarskólans á Húsavík hefjast kl. 20.30 og tón- leikamir í Akureyrarkirkju á einkaðir þáverandi eiginkonu sunnudag hefjast kl. 17. verour teiKin tonnst rra íyrrt ntuta 20. aldar. Þaó hcfur lengi blundað í aóstandendum hljómsveitarinnar að halda tónleika víðar en á Akur- eyri og þar sem um er að ræða litia hljómsveit að þessu sinni var ákveðið aó fmmflytja fyrstu tón- leika haustsins í sal Tónlistarskól- ans á Húsavík en endurflytja þá í Akureyrarkirkju daginn eftir. Meó þessu er vonast til að hljómsveitin ntegi enn frekar kallast hljómsveit Norðlendinga. Það ntá líka nefna að stefnt cr að tónleikahaldi fyrir Húnvetninga í nóvember. Á efnisskránni unt helgina verða verk eftir Luciano Berio, Jacques Ibert og Darius Milhaud. í tilfelli Berios er að vísu ekki unt að ræða venjulcga tónsmíði, held- ur sjö þjóðlög í útsetningu hans, tvö lög eftir hann sjálfan og loks ástaróð sem skrifaóur var upp eftir 78 snúninga hljómplötu þjóðlaga- bands frá Asjerbaijan. Saman heita lögin einfaldlega „Folk cíMIöc** vnm á cínnm fíma til_ Kaífihlaðboró til styrktar skíðakrökkum Kynningarfundur umjafnréttisverk- efhi ogjafhréttis- stefhu í skólum á Akureyri Þaó er orðin hefð hjá jafnfréttis- nefnd Akureyrarbæjar að standa fyrir „Opnu húsi“ um jafnrcttismál á kvcnnaffídaginn 24. október. Á síðasta ári var kynningar- fundur um Nordisk Foram og þar með hófst undirbúningu fyrir kvennaþingið mikla í Ábo í Finn- landi scm u.þ.b. 100 konur af Eyja- fjarðarsvæðinu sóttu í ágúst sl. í ár er ætlunin að vekja athygli á jafnréttismálum í skólum og nokkram jafnréttisverkefnum sem unnin hafa verið í skólum bæjarins mcðal annars mcó fjárstuóningi jafnréttisnefndar. Nefndin veitir ár- lega styrki til verkefna sem hafa það aó markmiði að jafna stöóu kynjanna og hafa sex skólavcrkefni af öllum skólastigum fengið styrk. Þau vcrða kynnt á fundinum, cn auk þess cr ætlunin að hleypa lífi í umræðuna um jafnréttisstefnu í skólum, m.a. með pallborðsum- ræðum og óformlegum hópumræó- um yfir kaffi. Kynningarfundur jafnréttis- nefndar vcrður nk. mánudags- kvöld, 24. október, kl. 20-23 í Al- þýðuhúsinu viö Skipagötu og er hann öllum opinn en foreldrar og kcnnarar era sérstaklega hvattir til aö mæta. Brimkló og Bjöggi í Sjallamim í kvöld verður mikið um dýrðir í Sjallanum. Matreióslumeistarinn og sjónvarpsstjaman Siguróur L. Hall býður upp á dýrindis matseðil í Sjallanum sem samanstendur af sjávarréttum, kalkúnabringum og ávaxtaís, matreitt eftir kúnstarinn- ar reglum. Á eftir stígur svo á stokk ein vinsælasta hljómsveit á Islandi fyrr og síðar, Brimkló, með Björgvin Halldórsson í broddi fylkingar. Hljómsveitin hefur fengið liósauka eða Sigríði Bein- teinsdóttur. í Kjallaranum verða Rúnar Þór og félagar í kvöld og annað kvöld. Kristján Jónsson, Pétur Hallgrímsson og Sigfús Ótt- arsson leika á Góða dátanum. Birgir Snæbjörn opnar sýningu íÞingi Á morgun, laugardag, kl. 16 verður opnuð í Listhúsinu Þingi á Akureyri sýning á verkum Birgis Snæbjamar Birgissonar. Birgir fæddist árið 1966 á Akureyri. Hann stundaói nám vió Myndlistaskólann á Akur- eyri 1985-1986, Myndlista- og handíóaskóla íslands 1986-1989 auk náms í Strasbourg í Frakklandi 1991-1993. Verk Birgis eru óður til sakleys- islegrar heimsmyndar bama. Verk hans lýsa þó miklu sakleysi og al- vöru í senn, því lífið er nú þannig gert að á endanum hrynur þessi sak- leysislega heimsmynd og alvaran tekur við. I sérhverju verki hefst frá- sögnin sem áhorfandinn er krafinn um að klára. Upp koma móralskar spumingar en svörin við þeim velta á innræti áhorfandans sjálfs. Þetta er þriðja einkasýning Birg- is, en hann hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og er- lendis. Birgir er í hópi Listkafar- anna, hópi myndlistarmanna, sem m.a. stóðu að sýningum í Djúpinu, Reykjavík, árin 1990-1991 og nú síðast að sýningarþrennu í Gallerí Greip fyrr á þessu ári. Sýning Birgis stendur til 30. október og er opin daglega frá kl. 14 til 18. áramótin í æfingabúðir í Noregi. Þetta er því tilvalið tækifæri til að styrkja skíðamennina ungu. Dömufest á Siglufirði Annað kvöld, laugardagskvöld, verður sérstakt dömukvöld í Bíósalnum á Siglufirói. Húsió verður opnað kl. 20 og þar verður snyrtivörakynning, tískusýning og fieira. Klukkan 23 gefst karlpeningnum kostur á að mæta á svæðió. Hljómsveitin Namm leikur fyrir dansi frameftir nóttu. Sýning á halogenljósum Raflampar hf. Óseyri 6 á Akureyri halda sýningu á halogenljósum í sýn- ingarsal'sínum að Óseyri 6 á morgun, laugardag, kl. 10-16 og á sunnudag kl. 13-16. Sýnd veróur eigin hönnun og framleiðsla á loft- og veggljósum og ljósakrónum ásamt innfelldum ljósum og brautum. Skemmtun hjá öldruðum Fyrsta skemmtun vctrarins á vegum Félags aldraðra verður á morgun kl. 15 í Húsi aldraðra. Kynnt verður loka- verkefni hjúkrunarfræðinga við Há- skólann á Akureyri, „Ástir á ævi- kvöldi: Að þora, vilja og geta“ og sýndur verður dans. Tríó Birgis Mar- inóssonar ásamt Örvari og Steingrími leika fyrir dansi. Kaffiveitingar. Að- gangseyrir kr. 600. •• Orvar á Setrinu Vegna fjölda áskorana spilar Örvar Kristjánsson á Setrinu i Sunnuhlíð í kvöld og annað kvöld. Dansleikur nikkara Félag harmonikuunnenda við Eyja- fjörð og Harmonikufélag Héraðsbúa halda sameiginlegan dansleik á Fiðl- aranum, 4. hæó Alþýðuhússins, annað kvöld kl. 22. Allir era velkomnir. Hagar hendur með sölusýningu Samstarfshópurinn Hagar hendur veróur með sölusýningu í Blómaskál- anum Vín á morgun og sunnudag kl. 12-19 báða dagana og síðan allar helgar til jóla. BarPar slær sýningarmet Næsta sýning Leikfélags Akur- eyrar á leikritinu BarPar eftir Jim Cartwright undir leikstjóm Hávars Sigurjónssonar verður annað kvöld, laugardagskvöld, og er hún sú 59. í röðinni á þessu vinsæla leikriti og er það jafnframt sýningarmet, því eng- in leiksýning hefur verió sýnd jafn oft hjá LA. Sýningarmetið átti söngleikurinn Piaf, sem sýndur var hjá LA árið 1985. Sunna Borg og Þráinn Karlsson fara með öll hlutverk- in í BarPari, 14 að tölu. Það er óhætt að segja að þessi tveggja manna kabarett sem framinn er í fúlstu alvöru, eins og Hávar Sigurjónsson hefur nefnt sýn- inguna, hafi slegið í gegn á síð- asta leikári. LA bryddaði upp á þeirri nýjung að innrétta lítið leikhús sérstaklega fyrir þessa sýningu og kallaði það Þorpið. Frumsýning var í janúar sl. og gekk sýningin fyrir fullu húsi fram í maílok, en þá tók Bar- Parið sig upp og setti barinn sinn niður í Rcykjavík á Lista- hátíð. Þar endurtóku þau leik- inn frá Akureyri og nutu ntik- illa vinsælda, enda hafa þau Sunna og Þráinn hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á Barpar- inu og gestum þeirra. Guðrún J. Bachmann þýddi leikritið. Ingvar Bjömsson hannaói lýsingu og leikmynd og búningar eru eftir Helgu I. Stefánsdóttur. Sem fyrr segir er 59. sýning annað kvöld og er þegar orðið uppselt á hana eins og flestar sýningar hingað til og er því óhætt að hvetja þá sem enn eiga cftir að sjá þessa vinsælu sýningu að haía hraðan á því sýningum fer nú óðum fækk- andi. Leikfélag Akureyrar sýnir einnig um helgina hina vinsælu sýningu Karameliukvömina. Sýningamar verða á morgun og sunnudag kl. 14 báða dagana. VARNER’S vetrarlínan kynnt föstudaginn 20. okt. Ráðgjafi frá VARNER’S verðurtil aðstoðar Kynningarafsláttur

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.