Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 5
Laugardagur 29. október 1994 - DAGUR - 5
MANNLIF
Hagyrðingarnir voru sannarlcga í essinu sínu í Deiglunni. Frá vinstri: Björn Þórieifsson, Reynir Hjartarson,
Hjáimar Freysteinsson, Stefán Vilhjálmsson og Pétur Pétursson. Myndir: óþh
Hagyrðingar í ham
- fjölmenni á hagyrðingakvöldi í Deiglunni
sl. fimmtudagskvöld
Það er óhætt að segja að „Heitir
fimmtudagar“ í Deiglunni á Ak-
ureyri haft farið vel af stað sl.
fimmtudagskvöld, en ætlunin er
að hafa þar allskyns uppákomur á
hverju fimmtudagskvöldi í vetur,
að minnsta kosti liggur fyrir
skipulögð dagskrá til jóla.
Sl. fimmtudagskvöld var efnt til
hagyróingakvölds og var gífurleg
aðsókn, færri komust að en vildu.
Hagyrðingamir fóru auðvitað á
kostum og því var frábær stemmn-
ing í Deiglunni.
Hagyrðingarnir sem mættu til
leiks voru Björn Þórleifsson, Reynir
Hjartarson, Hjálmar Freysteinsson,
Stefán Vilhjálmsson og Pétur Pét-
ursson, sem sá um stjómina af sinni
alkunnu snilld. Ekki má svo gleyma
hlut heiðursgestsins, Gests Olafs-
sonar, sem Pétur sagði að hafi feng-
ist við að yrkja í áttatíu ár. Það var
greinilegt að Gestur hefur engu
gleymt og fór hann hreinlega á kost-
um.
Urn tónlistarflutning á þessu
hagyrðingakvöldi sáu þau Þórarinn
Hjartarson, Rósa Kristín Baldurs-
dóttir og Ragnheiður Olafsdóttir.
Ekki er ætlunin að prenta hér all-
ar þær stórkostlegu vísur sem hag-
yrðingarnir köstuöu fram, enda
myndi ein opna í blaðinu ekki duga
fyrir allt það flóð. Við birtum aðeins
nokkur sýnishorn, svona rétt til að
varpa ljósi á snilli þessara manna.
Það má svo fylgja meö að undirrit-
aður heyrði því fleygt að öruggt
væri að eftir áramótin yrði aftur efnt
til hagyrðingakvölds og er það vel.
Pétur Pétursson hafði á blaði hjá
sér nokkur þema sem hann bað hag-
yrðingana að yrkja út frá. Eitt þem-
að var hann sjálfur.
Hjálmar Freysteinsson, kollegi
Péturs á Heilsugæslustöðinni, sagð-
ist lítið hafa ort um Pétur í hálft
annað ár, enda hafi hann talið rangt
að æsa upp menn sem væru á skil-
orði. Þegar Pétur, sem kunnur er af
steramálaferlum, fékk á sig skil-
orðsbundinn dóm orti Hjálmar:
Svo Pétur hcetti að hrella menn,
hentug leið var fundin.
Þó hann sé til í tuskið enn,
er tungan skilorðsbundin.
Hjálmar greindi frá því að sést hafi
til Péturs í útreiðartúr á Akureyri og
hafi hann dottið af bakió og skafið
malbikið. Þá hafi þetta orðið til:
Einn er lceknir öðrum knárri
ógurlegur hestamaður.
Sumum finnst hann sýnu skárri
síðan hann var malbikaður.
Mikill fjöidi fólks sótti hagyrðingakvöldið og er greiniiegt að Ijóðlistin nýtur
sem fyrr mikilla vinsælda.
Bjöm Þórleifsson sagðist hafa séð
símbréf (fax) frá Stefáni Vilhjálms-
syni og efst á því hafi staðið Kjöt-
iðnaðarsoð, en eins og kunnugt er
vinnur Stefán í Kjötiðnaðarstöð
KEA. Þá orti Björn:
Égfékk í morgun faxi á
fremur snúin boð.
Kveðskap Stefáns kalla ntá
Kjötiðnaðarsoð.
Hagyrðingamir veltu sér mikið upp
úr þemanu „matarvenjur og veislu-
hættir Akureyringa", en mikil
blaöaskrif hafa verið um þetta mál
að undanfömu. Hjálmar orti:
Úr sturtuklefum steikur ber
Stefán vert á Bauta.
Tilhögun sem talsvert fer
i taugar keppinauta.
Stefán Vilhjálmsson sagðist vera
mikill kaupfélagsmaður og því
kæmi aðeins eitt orð til greina sem
rímaði við Bauta:
Úr sturtuklefum steikur ber
Stefán vert á Bauta.
Hvort fað hneyksli algjört er
ég cetla að spyrja Gauta.
Hjálmar Freysteinsson átti í poka-
hominu aðra vísu um Stefán Gunn-
laugsson og sturtuklefana:
Virðist Ijóst að lýðum er
lítið gefið um.
Steikur þcer sem Stefán ber
úr sturtuklefunum.
Pétur upplýsti að þessa dagana væru
þeir Hjálmar uppteknir við inflú-
ensubólusetningu. Stefán varpaði
fram eftirfarandi fyrriparti af þessu
tilefni:
Lceknar bruna unt bce og sveit
og beita stungunálum.
Og Bjöm botnaði:
Lœri fukla Ijúfog heit
og lenda í vondunt ntálum.
óþh
Gestur Ólafsson, fyrrv. kcnnari,
hcfur greiniiega engu gleymt.
Og Hjálmar kastaði líka fram limru
um hrakfarir Péturs á hestbaki:
Skaði er hve hann skrámast illafalli’ann
hjálmurinn þó heilann verji snjallan.
Efveleraðgáð
virðist því ráð
að láta smíða utanum ’ann allan.
Björn Þórleifsson kastaði fram eftir-
farandi limru vegna dóms Péturs:
Ég þori vart lengur að Ijóða
lasta, skamma né hnjóða.
Fyrst dcemdur var Pétur
í drjúga tvo vetur
að lifa sem leiðindaskjóða.
Pétur svaraði því til að það væri
ákaflega gott að hafa ákveðnu hlut-
verki að gegna fyrir ljóólistina í
landinu. „En eins og þið sjáið er við
ákaflega ratnman reip að draga,“
sagði Pétur. Og hann svaraði fyrir
sig:
Þóttýmsa fóla ausi ég níði
og yndi hafi af sókn og vörn.
Aldrei mun ég standa í stríði
við Stefán, Hjálmar, Reyni og Björn.
■i 1 " --------A
Framsóknarvist
Spílakvöld
Þriggja kvölda keppní
Annað spilakvöld.
Framsóknarvíst að Hótel KEA míðvíkudagínn 2.
nóvember k!. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrír hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fVrir öll
þrjú kvöldin.
JRlíír velkomnír.
Framsóknarfélag Akureyrar.
it ------ . . ------- rj
Skóladag-
heimilispláss!
Á döfinni er að hefja rekstur skóladagheimilis
fyrir 6 ára börn og eldri f Hamri, félagsheimili
Þórs þar sem skóladagheimilið Hamarkot var
áður til húsa.
Áhersla verður lögð á að börnin fái góða hreyfingu,
enda aðstaöan til fyrirmyndar.
Þeir sem áhuga hafa á aó nýta sér pláss þau er verða
í boði ef af stað verður farið, vinsamlegast sendi um-
sóknir sínar í Hamar við Skarðshlíð, merktar „Skóla-
dagheimili."
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma
12080.
Herrakvöld
KA
verður haldið í KA-heimilinu laugardaginn 5. nóV'
ember nk.
Miðaverð aðeins kr. 1.800.
Skráning í síma 23482.
Sjáumst hressir.
Frá menntamálaráðuneytinu
Styrkir til námsefnisgerðar
á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um
styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum
greinum á framhaldsskótastigi. Minnt skal á að heimilt
er skv. nýjum reglum um úthlutun að verja allt að
fimmtungi heildarúthlutunar til að efla tiltekin svið.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, náms-
efnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 18.
nóvember nk. á þar til gerðum eyöublöðum sem hægt
er að fá í ráðuneytinu.
Eftir eirm - ei aki neinn!
mÉUMFERÐAR
Uráð