Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. október 1994 - DAGUR - 7
Nú á haustdögum kom það fram í fréttum að Ráðgjaf-
ardeild Akureyrarbæjar, í daglegu tali nefnd Félags-
málastofnun, þurfti á aukaQárveitingu að halda til að
mæta vaxandi þörf fyrir Qárhagsaðstoð við íbúa Akur-
eyrar.
Deildarstjóri Ráðgjafardeildar er Guðrún Sigurðar-
dóttir félagsráðgjafí. Auk hennar starfa fímm ráðgjaf-
ar, félagsráðgjafar og einn sálfræðingur hjá deildinni.
Starfsmenn deildarinnar sjá um ýmis verkefni auk
fjárhagsaðstoðarinnar má nefna barnaverndarmál, al-
menna ráðgjöf og félagslegar leiguíbúðir.
En hvernig er Qárhagsaðstoð Ráðgjafardeildar hátt-
að og hverjir eru það sem einkum þurfa á henni að
halda?
Blaðamaður Dags gekk á fund Guðrúnar Sigurðar-
dóttur til að fá nánari upplýsingar um þá fjárhagsað-
stoð sem Ráðgjafardeildin veitir bæjarbúum.
„Lög um félagsþjónustu sveit- - Hefur þörfin fyrir þetta net
arfélaga setja Akureyrarbæ, eins ekki fariö stigvaxandi á síðustu ár-
og öörum sveitarfélögum, þær um?
skyldur á herðar að veita fjárhags- „Jú. Á síðustu árum hefur þörf-
•4 Guðrún Sigurðardóttir hefúr
verið deildarstjóri Ráðgjafardeildar
síðan árið 1988. Hún er Vopnfirð-
ingur sem kynntist Akureyri á
námsárum sínum í Menntaskólan-
um á Akureyri og hefur nú fest hér
rætur.
barnafjölskyldur sem leita til okk-
ar, hingað leitar líka töluveróur
hópur einstaklinga sem á einhvern
hátt á erfitt með að sjá sér fyrir
framfærslu."
- Vantar þá peninga fyrir dag-
legum nauösynjum eða frekar
vegna sérstakra útgjalda?
„Þaó getur verið hvoru tveggja.
Þegar launin eru svona lág þá hef-
ur fólk ekkert bolmagn til að tak-
ast á við fjárhagsleg áföll. Til
dæmis bilun á heimilisbílnum,
þvottavélinni eða ísskápnum. Það
getur því verið að fjárhagslega
áföll séu ástæða umsóknar þó að
venjulega gangi dæmið upp. Hins-
vegar eru tilvikin flest þar sem
tekjur duga ekki fyrir daglegum
nauðsynjum.
Svo finnum við verulega fyrir
auknum erfiðleikum fólks, sér-
staklcga barnafjölskyldna, vegna
læknis- og lyfjakostnaðar en þaó
hefur lengi verið þannig aó lág-
„Það er komið út fyrir öll siðræn mörk
hvað fólk fær lág laun fyrir fúlla vinnu“
- fjöldi Akureyringa þarf á fjárhagsaðstoð að halda
aðstoð. í þessum lögum, í 21.
grein, segir: „Fjárhagsaóstoó á
vegum sveitarfélags skal vera svo
mikil sem nauðsyn krefur. Sveit-
arstjón setur reglur um fram-
kvæmd fjárhagsaðstoðar að
fengnum tillögum félagsmála-
nefndar.“ Þetta er sá rammi sem
okkur er settur, það eru annars
vegar lögin og hins vegar þær
vinnureglur sem samþykktar eru
af bæjaryfirvöldum.
Það má segja að fjárhagsað-
stoðin sé eitt af þeim öryggisnet-
um þjóöfélagsins sem verður að
vera til staðar fyrir alla ef á þarf
að halda. Hins vegar er því ekki
að leyna að fyrir marga eru það
þung spor, að geta ekki aflað fyrir
sig og sína og veróa að nýta sér
þetta öryggisnet.“
in fyrir fjárhagsaðstoð við einstak-
linga og fjölskyldur hér á Akur-
eyri vaxið verulega. Á tveimur ár-
um hefur umfang fjárhagsaðstoð-
arinnar aukist um meira en helm-
ing og það hefur verið brugðist
við þessari auknu þörf meö auka-
fjárveitingum.“
- Hefur þú fundið einhverja
sérstaka ástæðu fyrir þessari
auknu fjárhagsaðstoð?
„Ég held að um marga sam-
verkandi þætti sé að ræða. Auðvit-
aö eru ástæðumar misjafnar.
Margir sækja um vegna atvinnu-
leysis, veikinda, of hárrar
greiðslubyrði vegna húsnæóis-
kaupa, fjárhagslegs áfalls og síð-
ast en ekki síst of lágra launa.
Það er ljóst að það hefur verió
slæmt atvinnuástand hér á Akur-
Staðreyndír sem ekki
verður litíð fram hjá
Örorka
Fullur örorkulífeyrir einstaklings
með tekjutryggingu er 35.649,-
kr. á mánuði. Ef einstaklingurinn
býr einn bætist við heimilisupp-
bót kr. 7.711,- og ef hann hefur
engar aðrar tekjur, svo sem úr
lífeyrissjóði, á viókomandi rétt á
sérstakri heimilisuppbót sem er
kr. 5.304,- Hæstu mögulegar ör-
orkubætur fyrir einstakling eru
því 48.664.-.
Örorkuþegi sem er með bam
innan 18 ára á framfærslu fær
greiddan bamalífeyri, sem er
10.300,- kr. á mánuói með
hverju bami.
Atvinnuleysisbætur
Hámarks atvinnuleysisbætur til
einstaklings era 2.140,- á hvem
virkan dag eóa 42.800.- fyrir
fjórar vikur, 20 virka daga.
Greiddir era 85.65 kr. á virkan
dag til framfærslu bams eða
1.713,- fyrir fjórar vikur. Athug-
ið að einn líter af mjólk í fjórar
vikur kostar 1.708,- kr. Hægt er
að fá atvinnuleysisbætur í eitt ár,
260 virka daga samfellt. Ef við-
komandi hefur ekki fengió
vinnu, tekið þátt í atvinnuátaks-
verkefnum eóa farið á viður-
kennd námskeið þá fær hann
ekki atvinnuleysisbætur um 16
vikna skeið.
Laun
Samkvæmt upplýsingum Verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akur-
eyri era byrjunarlaun vcrkafólks
samkvæmt taxta félagsins
43.116.- kr. á mánuði fyrir dag-
vinnu, sem er 248.75 á tímann.
eyri í talsvert langan tíma og þaó
er greinilegt samhengi á milli þess
og fjárhagsaóstoðarinnar. Þegar
um atvinnuleysi er að ræða, jafn-
vel þó tímabundið sé, eða sam-
drátt í vinnu þá duga ráóstöfunar-
tekjur heimilanna einfaldlega ekki
til að standa straum af daglegum
rekstri heimilisins og fjárhagsleg-
um skuldbindingum.
Mér finnst það verða skýrara
og skýrara á þessum síðustu miss-
erum að fólk hefur einfaldlega of
lág laun. Dagvinnulaunin eru svo
lág að það er ekki hægt að reka
heimili fyrir þau og vegna sam-
dráttar á vinnumarkaðnum er ekki
lengur um aukavinnu og yfirvinnu
að ræða í sama mæli og áður var.
I mörgum tilfellum er líka aóeins
um ein laun að ræða. Til dæmis
hjá einstæðum foreldrum, hjónum
sem eiga ung börn eóa á heimilum
þar sem annar aðilinn er óvinnu-
fær vegna veikinda.“
- Eru þaó heimilin þar sem að-
eins er urn ein laun að ræða sem
þurfa oftast á aóstoð ykkar að
halda?
„Ég býst viö því að einstæðir
foreldar séu fjölmennastir í hópi
þeirra sem leita aðstoðar hjá okk-
ur. En hjón sem eiga mörg börn
eiga líka í verulegum erfiðleikum
með að láta enda ná saman. Hins-
vegar eru það ekki eingöngu
launafólk ræður illa við tann-
læknakostnað og nú hefur al-
mennur lækna- og lyfjakostnaður
lagst þar ofan á.“
- Er algengast aó um einstakar
greiðslur sé að ræða?
„Já, í raun er alltaf um einstak-
ar greiðslur að ræða. Annars vegar
er hugsanlega um aðstoð aó ræða
tvisvar eða þrisvar á ári en hins
vegar er algengast að fólk fái að-
stoð í nokkra mánuði, til að kom-
ast í gegnum erfióleikatímabil til
dæniis vegna skilnaóar eða veik-
inda. Það eru undantekningar ef
fólk er á framfærslu hjá okkur í
langan tíma í senn.“
- Hvað sækja margir um að-
stoð hjá ykkur í hverjum mánuði?
„Þaó er svolítið misjafnt en í
ágúst sóttu til dæmis 84 aðilar um
fjárhagsaðstoð hjá hjá stofnuninni.
Ágúst er venjulegur mánuður en í
nokkrum mánuðum er áberandi
mikió álag á fjölskyldur fjárhags-
lega og þá sækja ntun fleiri um
aðstoð.
Desember er þar mest áberandi
en fleiri og fleiri fjölskyldur eiga í
erfióleikum meó að gera sér og
sínum dagamun um jólin. í sept-
ember þarf að klæöa bömin fyrir
skólann og um páskana eru það
svo fermingarnar sem kalla á auk-
ið fjármagn," sagði Guðrún. KLJ
Að sækja um fjárhagsaðstoð
Ráðgjafardeildin er rekin af Akureyrarbæ og því eiga allir sem eiga
lögheimili á Akureyri rétt á því að sækja um fjárhagsaðstoð til deild-
arinnar. Viðkomandi einstaklingar hringja og panta viðtal hjá félags-
ráðgjafa Ráðgjafardeildar og leggja sitt mál fyrir hann.
Félagsráðgjafinn þarf að fá að sjá ýmsa pappíra sem varða fjár-
hagslcga stöðu viðkomandi fjölskyldu eða einstaklings. Ráðgjafinn
athugar fjárhagsstöðu viðkomandi og miðar hana vió þær reglur sem
deildin vinnur eftir og eru samþykktar af Bæjarráði Akureyrar. Þessi
vinnurammi er hliðstæður þeirn sem er í gildi hjá Tryggingastofnun
ríkisins á hverjum tíma.
Fundur ráðgjafanna sem starfa á Ráðgjafardeildinni fjallar um
fjárhagsbeiðnina og tckur ákvörðun um hana hafi deildin til þess um-
boð. Ef svo er ekki, þá er málinu vísað til félagsmálaráðs og jafnvel
til bæjarráðs.
Ef um aðstoð til lcngri tíma er að ræða þá þarf viðkomandi ein-
staklingur að óska eftir henni mánaðarlega. Fjárhagsaðstoðin verður
aldrei sjálfvirk heldur er hver einasta umsókn metin hverju sinni. Að
mati Guðrúnar Siguróardóttur er meðaltalsbeiðni um fjárhagsaðstoð
á bilinu 25-50 þúsund krónur. Algengast er að um 20-30 þúsund
króna aðstoð sé að ræða. Ýmist er aðstoð veitt í formi láns eóa styrks
og ræðst það af aóstæóum umsækjanda.
TIL LEIGU
verslunar- eða skrifstofuhúsnæði á ann-
arri hæð, Skipagötu 18, ca. 95-105 fm.
Upplýsingar gefur Fasteignasalan Holt, sími 21967.