Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 11

Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 11
Laugardagur 29. október 1994 - DAGUR - 11 Á lcið undir smásjá tollvarða. Eru verslunarferðír að deyja út? Hinar margfrægu verslunarferð- ir Akureyringa og nærsveitar- manna til Dublinar virðast vera að breytast í menningar- og skemmtiferðir. Ástæðan er að sögn ferðalanganna sjálfra lækkandi verðlag á Akureyri. Kaupmenn hafa samt enn áhyggjur af ferðunum og eru að fara af stað með átak undir yfir- skriftinni: Tryggjum atvinnu - verslum heima. Stór hópur Dublinarfara kom heim aðfaranótt þriðjudags eftir fjögurra nátta ferð. Tollverðir höfðu á orði að verslunarvarning- urinn sem komið var meó væri minni en í fyrra. Farþegar sögöu að verðmunur milli Dublinar og Akureyrar væri orðinn svo lítill að ekki borgaði sig að kaupa annað cn barnaföt og leikföng ytra. Verslun væri því ekki aðaltilgang- ur ferðanna. Þær væru frekar hugsaðar til skemmtunar og af- þreyingar. Kaupmenn eru engu að síöur áhyggjufullir. Kaupmannasamtök Islands eru um þessar mundir að hrinda í framkvæmd átaki sem Beðið úti í kuldanum cftir Dublin- arforum. miðar aó því að fá fólk til að versla hér heima. I þeirn tilgangi hefur meðal annars verið leitað til bæjarstjórnar Akureyrar. Kaupmenn á Akureyri hafa unnið markvisst að því aó lækka innkaupsverð og álagningu til aó geta keppt við verslanir í Dublin. Sem dæmi nefna þcir verð á jakkafötum, sent hcfur á tveimur árum farið úr 25.000 kr. í 16.900, stakur jakki úr 14.000 í 8.900 og leðurjakki sem áður kostaði 20.000 kostar nú 13.900. Þeir eiga samt við ramman reip að draga vegna þess aó kostn- aður og álögð gjöld er oft ntun hærri hér á landi. Til dæmis er enginn virðisauki lagður á barna- fatnað á írlandi en 24,5% hérlend- is. Flutningskostnaður er meiri á Islandi og innkaupsveró oft á tíð- um hærra vegna þess hversu lítið er unnt að kaupa í einu. Verslun- arcigandi á Akureyri benti einnig á að írska ríkið styrkti kaupmcnn fjárhagslega. Á íslandi tíðkast hins vegar engir styrkir til smá- vöruverslunar. Áhyggjur kaupmanna á Akur- eyri eru skiljanlegar í Ijósi þess að ferðaskrifstofur anna varla eftir- spurninni eftir ferðurn til Dublin- ar. Ætla má að 10% Akureyringa auk fjölda fóllks úr nágranna- byggðum hafi farið til írlands á þeim fjórum árurn sem þessar ferðir hafa verió farnar. Suntir fara ár eftir ár og vináttutengsl hafa jafnvel myndast. Þannig eru Irar farnir að ferðast hingað til Akureyrar til að heimsækja ís- Ienska vini. Ef santa þróun heldur áfram má kannski búast við því að sjá heilu llugfarmana af Irunt ráfa hér um götur Akureyrar í verslun- arhugleiðingum. Helgi Þorsteinsson, Sindri Skúlason, Viðar Oddgeirsson. Höfundar eru nemar í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Islands. Ný námskeið að hefjast mánudaginn 31. október Líkamsrœktin Hamri Sími 12080 BLOMASKALINN VÍN Skreytinganámskeið verða í Vín í nóvember sem hér segir: Hvert námskeið er tvö kvöld. 8. og 10. nóvember kl. 20.00. 15. og 17. nóvember kl. 20.00. 22. og 24. nóvember kl. 20.00. Allt efni og áhöld á staðnum. Tilvalin námskeið fyrir einstaklinga, félög og saumaklúbba. Notaleg kvöld með góðum leiðbeinanda. Námskeið í desember auglýst síðar. Skráning í síma 31333 frá ld. 13-22 alla daga. Blóma skálinn VÍN H.J). "... \ dag er M.D. Formulations yfirgripsmesta línan sem notast við glýkólsýru, en það er AM-sýra sem er unnin úr sykurreyr. Gtýkólsýra, sem er vel þekkt ó meðal lœkna og annarra vísindamanna, hefur reynst vera órangursríkasta og heppilegasta óvaxtasýran til húðmeðferðar. Fannsóknir sýna að glýkólsýra veldur eyðingu/flögnun dauðra húðfruma (exfoliation). Þetta er eðtilegur hluti af endurnýjunarferli húðarinnar, en með aldrinum hœgist ó þessari nóttúrulegu endurnýjun jafnt hjó konum og körlum. • Minnkar hin sýnilegu einkenni öldrunar. • Sléttir áferð húðarinnar. • Jafnar ójafnan litarhátt. • Mýkir þurra húð. • Stuðlarað útgeislun heilbrigði og œsku. Kynningarverð í nóvember Félag íslenskra snyrtifrœðinga Snyrtistofan Betri líðan Kaupangi • Sími 24660 Snyrtistofa Nönnu Strandgötu 23 • Sími 26080 Snyrtistofan Tanja Hafnarbraut 5. Dalvík • Sími 63199 Snyrtifrœði Snyrtlfrœðl varð að lögglltrl Iðngreln á íslandl árlð 1985. Þelr elnir sem hafa sveinsbréf eða meistarabréf í Iðngreinlnni geta með réttu kallað sig snyrtifrœðinga. Ráðgjöf Snyrtlfrœðingar veita ýmis konar ráðgjóf um snyrtingu og með- ferð húðar. Þar skiptir húðgreining mestu máli og í framhatdi af því ráðgjöf um val á kremum og hrelnsiefnum. Rétt ráðgjöf um meðferð getur komlð í veg fyrlr margvísleg óþœgindi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.