Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 13

Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 13
POPP Laugardagur 29. október 1994 - DAGUR - 13 MAGNÚS GEIR ÚUÐMUNDSSON GARPSVERK Eigi einhver tónlistarmaður skilið aó teljast sannnefndur garpur, þá er það Neil Young. Þessi tæplega fimmtugi Kanadamaður hefur nefnilega afrek- að meira á fjölbreyttari hátt á um þrjá- tíu ára ferli sínum en flestir aðrir, ef þá ekki meira en nokkur annar. Afrek hans og dáðir hafa ekki beinlínis verið fólgin í því að hann hafi selt fleiri plötur en aðrir, þó hann hafi svo sem ekki þurft að kvarta og þá ekki síst í seinni tíð í þeim efnum, heldur í tak- markalausum dugnaði og þori að gera þaö sem honum sýnist, fara sín- ar eigin leiðir sem víðast, burtséð frá öðrum lögmálum um fé og frama. Það hefur auðvitað ekki alltaf gengið sem skyldi hjá Young, en með þess- um hætti hefur hann fært rokkheimin- um meira en flestir aðrir. Um feril þessa mikla garps hefur áður verið fjallað hér í Poppi, þannig að nánar verður það ekki gert nú, en á síðustu árum hefur Young átt góðu gengi að fagna og hafa plötur hans hver af annarri, Freedom, Ragged glory, tón- leikastórvirkið Weld, Harvest moon og Unplugged, selst vel. Það gildir líka um nýjustu plötuna, Sleeps with angels, en henni hefur verið mjög vel tekið bæði af plötu- kaupendum og gagnrýnend- um. Gagnrýnendurnir hafa reyndar mest fjallað um texta Youngs á plötunni, sem líkt og tónlistin hafa alltaf verið áhrifa- miklir, en minna um tónlistina, sem þó líka hefur fengið sitt hrós. Þykir Young í textum sín- um beittur sem aldrei fyrr og er óragur sem oft áóur að benda á dekkri hliðar mannlífsins. Bæði í titillaginu og hinu frá- bæra Change your mind skír- skotar hann til harmleiksins með Kurt Cobain og í laginu Safewat cart fjallar hann um hið ömurlega líf götuflækinganna, sem víst alltaf fer fjölgandi í hinum vestræna heimi. Eru þessi lög og önnur eins og Prime of life og Driveby mjög sterk og það er líka Piece of crap, sem þó er öllu léttvæg- ara en hin og meira rokk og ról. Sem bakhjarl eins og svo oft áöur hefur Young hljóm- Neil Young. Góður „eins og venjulega". sveitina Crazy horse og er samspilið óaðfinnanlegt líkt og jafnan áður. Sleeps with angeles er ekki mesta tíma- mótaplata ársins, en hún telst til þeirra betri hing- að til. Gæðaverk frá garpi. • • SVIFIÐ VÆNGJUM ÞONDIM Með samblandi af kröftugu rokki á alþjóöavísu og ballöðum, vakti Dos pilas mikla athygli þegar hljóm- sveitin kom fram á sjónar- sviðið fyrir alvöru á síðasta ári og var hún af mörgum valin sú efnilegasta á árinu (þ. á m. af ritara Popps). Gerðu lög eins og Better times og Out of crack manni það strax Ijóst að á ferðinni væri sveit sem mikió væri spunnið í og gæti náð langt. Komu þessi tvö nefndu lög auk annarra tveggja fyrst út á safnplötum, en í júní sl. komu þau aftur út saman auk þriggja nýrra á fyrstu plötu Dos pilas. Var þar í heild um að ræóa gott byrj- endaverk og góðan for- smekk af plötu í fullri lengd, sem boóuð var með vetrinum. Sú plata er nú einmitt nýkomin á markað- inn og kallast My own wings. Þróun Það fer vart á milli mála aó þeir Jón „junior" söngvari og félagar hans fjórir í Dos pilas hafa gengið í gegnum nokkra þróun á þessum mánuðum frá því sjö laga samnefnda platan kom út til útgáfu My own wings nú. Krafturinn og melódísku Dos pilas standa undir væntingum með My own wings. Hinn nýi söngvari Iron Maiden, bresku þungarokksgoðanna, Blaze Bayley, var fyrir skömmu heppinn að sleppa með líftóruna eftir umferðarslys. Var Bayley að aka heim til sín í Tanworth á mótorhjóli sínu þegar hann lenti í árekstri við aðvífandi bif- reið. Hlaut hann nokkur meiðsl á hné og dvaldist nokkra daga á sjúkrahúsi, en er nú að jafna sig og kominn heim. laglínumar eru sem fyrr fyr- ir hendi, en tónninn hefur hins vegar harðnaó til muna og hljómurinn skerpst í lagasmíðunum. Er gítarleikurinn t.d. orðin áberandi sýróur á köflum. Kemur samlíking við stór- sveitir á borð við Sound- garden og Stone temple pilots óneitanlega upp í hugann, sem ekki svo leitt er að líkjast. Er líka óhætt að fullyrða að með plötunni stenst Dos pilas saman- burð viö hvaða sveit sem er af svipuðum toga. Er upptaka Guðmundar Jóns- sonar og Nick C. Jones til mikillar fyrirmyndar og í samræmi við metnaðarfulla plötu. Erfitt er að taka ein- stök lög út sérstaklega, en nefna má titillagið, Living mind, Preachers og Moon- light sem dæmi um góðar smíóar. Alls eru lögin tíu á My own wings, plötu sem sýnir unga hljómsveit komna vel á flug. ú saga gengur nú í Bandaríkjunum að Michael Stipe, söngvari REM, hafi meira en lítinn áhuga á ^^að syngja dúett með söngkonunni sérstæðu Tori Amos. Mun Stipe hafa verið duglegur við að elta tónleika hennar og ekki leynt aðdáun sinni. Ef af verður, þ.e. að hann syngi með henni, verður það ekki alls kostar ókunnugt hlutverk fyrir hann, því fyrr á árinu söng Stipe með Kristinu Hersh í laginu vinsæla, Your ghost. Japis- plöUtr Japis hefur um nokkurt skeið verið öflugt í dreifingu á „frjálsri“ íslenskri útgáfu. Er fyrirtækið það áfram, en hefur nú einnig hellt sér af fullum krafti út í útgáfu. Fara nokkrir útgáfu- og dreifingartitlar hér á eftir. Spoon með söngkonuna Emil- íönu í broddi fylkingar vakti mikla athygli með laginu Ta- boo. Hljómsveitin sendir frá sér sína fyrstu samnefndu plötu eftir helgina. • Fyrr í ár kom frá trúbadornum víðförla, Siggu Björns, platan Blús báðum megin. Er hann greinilega afkastamikill, því önnur Iftur dagsins Ijós næstu daga, sem bera mun heitið Bí- sinn á Trinidad. • Mannakorn hafa ekki átt plötu á markaðnum í nokkur ár, en nú er að koma frá Magnúsi Eiríks, Pálma Gunnars og félögum þeirra ný plata, sem eflaust mun vekja mikla athygli. Er þar um að ræða „unplugged“ plötu með einum 20 lögum, en um þessar mundir eru einmitt 20 ár frá upphafi Mannakorns. • Ein vinsælasta nýja hljómsveitin á síðasta ári var Bubbleflies, en hún sló hressilega í gegn hjá ungliðum landsins með Plötunni The world is still alive. Á nú að fylgja velgengninni eftir með nýrri piötu, Pinochio, sem nú er rétt komin út. • Kvennarokkssveitin Kolrassa krókrfðandi frá Keflavík sigraði með glæsibrag í Músfktilraun- um árið 1992 og gaf síðan út í kjölfarið fína plötu, Drápu. Eftir um tveggja ára hlé og trommu- leikaraskipti, strákur í stað stelpu, er önnur platan komin og ber hún titilinn Kynjasögur. • Maus sigraði í síðustu Músíktil- raunum og er nú fyrsta platan þeirra nýkomin út. Nefnist hún því langa nafni, Allar kenningar heimsins og ögn meira. Eru þeir Maus- félagar að sögn á gömlum nýbylgjunótum á þessu jómfrúarverki sínu, sem eflaust vekur athygli hjá mörg- um. • Sigurjón Kjartansson, fyrrum HAM meðlimur, sendi frá sér tölvupopplagið Hvert sem er undir nafninu Olympia fyrr í sumar. Vakti hann svo mikla lukku með tiltækinu, að sam- nefnd plata í fullri lengd varð til og er nú væntanleg innan skamms. Forvitnileg plata það. Er það Smekkleysa sem gefur Olympíu út, sem og þrjár þær síðasttöldu hérá undan. • Að lokúm má svo geta hér plötunnar Giants of Yore með þungarokkssveitinni X-ist. Sem Exist sendi hún frá sér bráð- góða plötu árið 1992, sem nefndist After midnight.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.