Dagur - 22.11.1994, Page 2

Dagur - 22.11.1994, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 22. nóvember 1994 FRÉTTIR Saga Sýslunefndar Eyjafjarðar- sýslu komin út í gær kom út Saga Sýslunefndar EyjaQarðasýslu 1874-1989. Sög- una ritaði Hjörtur E. Þórarins- son, bóndi og fyrrverandi sýslu- nefndarmaður á Tjörn í Svarf- aðardal. Saga Sýslunefndar Eyjaíjarðarsýslu er í tveimur bindum, sem hvort um sig telur um 500 blaðsíður, bækurnar prýða liðlega 500 myndir. I ritnefnd sýslunefndarsögunn- ar sátu: Elías I. Elíasson, sýslu- maóur Eyjafjaróarsýslu, sem var formaöur ritnefndarinnar, Birgir Þóróarsson, oddviti á Ongulsstöó- um í Eyjafjarðarsveit, Eiríkur Björnsson frá Arnarfelli, Ingimar Brynjólfsson á Asláksstöóum og Stefán Halldórsson, hreppstjóri á Hlööum. Á síóasta formlega fundi sýslu- nefndar Eyjatjarðarsýslu, sem var haldinn síöasta vetrardaga 19. apríl árió 1989, var samþykkt aö skipa ritnefnd til aö vinna að ritun Saga Sýsluncfndar Eyjafjarðarsýslu í höndum höfundar, Iljartar E. Þór- arinssonar á Tjörn. sýslunefndarsögu. Skyldi í þessu skyni varið fjármunum sem sýslu- nefndin átti í sjóói þegar hún var lögð niður samkvæmt lögurn frá Alþingi sem sett voru árið 1986. I ársbyrjun áriö 1990 réði rit- nefndin Hjört E. Þórarinsson á Tjörn til aö skrifa sögu sýslunefnd- ar og nú lítur hún dagsins Ijós. Verkinu er öllu skipti í fimm hluta, þfír fyrstu hlutarnir eru al- menn saga en fjórði hlutinn er ein- vörðungu um samgöngumál og síóasti hlutinn um kvennaskóla- hald sýslunefndarinnar. I lok seinna bindis cr sýslunefndar- mannatal. Það var Dagsprent hf. sem sá um prentvinnslu bókarinnar en prentun og band var í höndum Akoplasts/POB á Akureyri. Eins og fyrr sagöi korn bókin út í gær. Við þaö tækifæri sagöi Hjörtur E. Þórarinsson, höfundur bókarinnar, meðal annars: „Eg ætlast til aó lestur þessarar skráar opni mönnum nokkuð skýra sýn yfir lífsstríóið í Eyjafirði og þó öðru frcmur sveitabyggðina vegna þess hvc sýslulelaginu hclst illa á sjávarþorpum sínum þcgar stundir liðu fram. Kaupstaðirnir fjórir á gamla sýslusvæðinu: Akurcyri, Sigluljöröur, Olafsfjörður og Dal- vík hafa allir fengið sína sögu skráða, sumir oftar cn einu sinni. Þessi samantekt má gjarnan skoð- ast scm tilraun til að rctta þcnnan halla.“ Þaó cr UMSE, Ungmennasam- band Eyjafjarðar, sem sér um dreifingu og sölu bókanna, sern til samans munu kosta átta þúsund krónur séu þær kcyptar beint af Ungmennasambandinu. Á næst- unni verður borinn í öll hús á hinu forna svæði Sýslunefndar Eyja- fjarðarsýslu bæklingur til kynn- ingar á bókinni. KLJ íslandsrúta Alþýðubandalagsins í Eyjafírði Alþýðubandalagið hefur staðið fyrir fundaherferð um landið að undanförnu. Sl. föstudag var almennur stjórnmála- fundur í Alþýðuhúsinu á Akureyri þar sem þingmennirnir Svavar Gestsson og Olafur Ragnar Grímsson höfðu framsögu. Á myndinni eru auk þeirra Ásgeir Magnússon, formaður kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norður- landi eystra, og þingmaður kjördæmisins, Steingrímur J. Sigfússon. GG/Mynd: Robyn Könnun Félagsmálastofnunar: Húsvíkingar í andlegu jafnvægi og nota mikiö smjör Færri Húsvíkingar telja sig lifa við góða líkamlega heilsu en þjóðin að jafnaði, en mun fleiri Húsvíkingar telja sig búa við betri andlega líðan en þjóðin að jafnaði, betri en fólk af öðrum stöðum sem spurt var. Færri reykja á Húsavtk en á öðrum stöðum, menn drekka einna minnst og mun minna en þjóðin að jafnaði. En Húsvíkingar taka ekki nóg mið af hollustu matar sem þeir neyta, smyrja betur á brauðið en nokkrir aðrir lands- menn, en þeir hreyfa sig manna mest, finna minna fyrir streitu en flestir, láta sjaldnar mæla blóðþrýsting en menn almennt, en nota einna oftast bílbelti. Haustleiðangur Hafrannsóknastofnunnar: Hrygningarloönustofninn aðeins 570 þúsund tonn Þetta kemur fram í þjóómála- könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Islands gerði sl. vor. Könnunin náði til 1500 manns úr þjóðskrá á aldrinum 18 til 75 ára af landinu öllu. Einnig var gerð könnun meöal íbúa Hafnarfjarðar, Húsavíkur, Hornafjarðar og Hverageróis, svokallaóra H-bæja sem þátt taka í heilsueflingarátaki landlæknisembættisins. Niðurstöður könnunarinnar eru þær að 63,4% Húsvíkinganna telja sig viö mjög góöa eða frekar góða líkamlega heilsu, en 67,7% þjóöar- innar svara játandi. Andleg líðan 77,2% Húsvíkinganna er mjög góð eða frekar góð en aóeins 71,5% landsmanna að meóaltali. Á Húsa- vík reykja 27,1% daglcga, færri en á hinum stöðunum því 30,8% þjóöarinnar reykir daglega. Hús- víkingar nota einna sjaldnast áfengi, 1-3 í viku eða 5,9% en landsmeðaltalið er 8,2%. Húsvík- ingar tóku einna sjaldnast mió af hollustu matar af þeim er spurðir voru eða 47,5% en 56,5% þjóðar- innar gerir slíkt. Brauðió á Húsa- vík er smurt frekar þykkt cða rnjög þykkt af 26,5% eða fieiri en á hin- unt stöðunum en slíkt gerir aðeins 21,8% þjóóarinnar. Húsvíkingar hreyfa sig einna mest, 75,3% hreyfa sig 1-3 í viku en 74,6% landsmanna. Húsvíkingar eru af- slappaóri en aörir því 32,2% finna næstum aldrei til streitu en 28,3% þjóðarinnar svarar spumingunni játandi. Á Húsavík hafa 86,3% að- spuróra látið mæla blóðþrýsting sl. fimm ár en 87,9% þjóðarinnar en 89% Húsvíkinga notar bílbelti allt- af eóa oftast en það gera aðeins 87,5% þjóðarinnar. Þessar upplýsingar komu fram hjá Sigrúnu Gunnarsdóttur hjúkr- unarfræðingi sem er verkefnis- stjóri heilsueflingarátaksins. Hún undirbýr nú samstarf við vinnu- veitendur og starfsfólk á vinnu- stöðum í bænum um fræóslu um lífshætti og mat á líðan og heilsu- fari. IM Banaslys skammt norðan Akureyrar Banaslys varð á þjóðveginum í Glæsibæjarhreppi, skammt frá afleggjaranum að Skjaldarvík, um eittleytið sl. laugardag er tvær bifreiðar skullu þar sam- an. Mikil hálka á veginum var orsök þessa hörmulega slyss. Ökumenn voru einir í bifreið- unum og lést annar þeirra en hinn fékk að fara heim eftir rannsókn á slysadeild FSA. Hinn látni hét Sveinn Ragnar Brynjólfsson, fæddur 26. maí 1955, til hcimilis aó Fögrusíóu 15A á Akurcyri. Hann lætur eft- ir sig eiginkonu og þrjú börn. Svcinn Ragnar, sem útskrifaóist sem arkitekt frá Konunglega listaháskólanum í Kaupmanna- höfn, starfaði sem arkitekt á skipulagsdeild Akureyrarbæjar frá októbermánuði 1986 til dauðadags auk þess sem hann starfaði áður hjá bænum sem mælingamaður. Sveinn Ragnar var mjög virkur í félagsstarfi Knattspyrnufélags Akureyrar (KA), m.a. formaður knatt- spyrnudeildar 1990 til 1992. GG Nýlokið er árlegum haustmæl- ingum á ástandi sjávar og stærð loðnustofnsins á rannsóknaskip- \tnum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Miðað við árstíma var hlýtt fyrir öllu Suð- ur- og Suðvesturlandi (8 gráður) og fyrir Vesturlandi og Vest- Qörðum var hlýsjór yfir 6 gráður yftr öllu landgrunninu allt norð- ur fyrir Straumnes. Fyrir Norð- urlandi og Austijörðum var hins vegar dæmigerður strandsjór í yfirborðslögum og hitastig yfir 4 gráður, sem er tiltölulega hátt miðað við árstíma. Loðnan hélt sig um og utan viö landgrunnskantinn frá Hala og austur fyrir Langanes. Mest var um misþéttar drcillóöningar og veiðanlegar torfur fundust nánast hvergi. Að þessu lcyti svipar ástandinu mjög til þcss sem verió hefur að haustlagi seinustu ár. I Grænlandshafi og Norðurdjúpi fannst engin loðna. Mikið virðist um ársgamla loönu um þessar mundir. Aðeins mældust um 570 þús- und tonn af hrygningarloðnu, sem er miklu minna en búist var við. Litlar líkur eru taldar á því að meira sé en þetta af fulloróinni loónu í landgrunnskantinum og miðaö við rcynslu undanfarinna ára var farið yfir sennilegasta út- bræðslusvæði veiðistofnsins. Hins vegar var fullorðna loðnan óvenju rýr og m.a. þess vegna er hugsan- legt að hluti stofnsins hafi cnn verió á eða í námunda við græn- lenska landgrunnið, þar sem ekki varð komist vegna vcðurs og íss. Enn er því óvissa um raunveru- lega stærð veiðistofnsins. Hafrannsóknastofnun mun mæla veiðistofninn í janúarmán- uói nk. og aó þeim mælingum loknum verða gerðar tillögur um aflamark á vertíóinni 1994/1995. GG LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS -HÁSKÓLABÓKASAFN auglýsir eftir bókbindara til að veita bókbandsstofu safnsins forstöðu. Um er að ræóa fjölþætt viófangsefni í nýrri og vel bú- inni stofu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, merkt landsbókavörður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 12. desember 1994. Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn 18. nóvember 1994.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.