Dagur - 24.11.1994, Blaðsíða 12

Dagur - 24.11.1994, Blaðsíða 12
Akureyri, fimmtudagur 24. nóvember 1994 afey gsrlií' m§ fið^dir iímml^n • Tölvugataða • Frostþolna • Tölvuvogamiða • Strikamerki LIMMIÐAR NORÐURLANDS HF. Strandgötu 31 • 600 Akureyri Sími 96-24166 • Fax 96-13035 Leiklistin blómstrar á norðaustur- horni landsins - Afbrýðisöm eigin- kona frumsýnd á Rauf- arhöfn 2. desember eikfélag Raufarhafnar frumsýnir leikritið Af- brýðisama eiginkonu eftir Gay Paxton og Edward Hoile í þýðingu Sverris Haraldsson- ar og Ieikstjórn G. Margrétar Óskarsdóttur frá Kópaskeri, 2. desember nk. Æfingar hóf- ust í októbermánuði sl. Hlut- verkin eru átta talsins en þetta er farsi sem á sér stað í sumahúsi á Englandi árið 1936. Leikurinn verður ekki sýnd- ur í nágrannasveitarfélögunum, enda býður fólagshcimilið Hnitbjörg á Raufarhöfn upp á mjög gott og stórt leiksvið og væntir leiklistarfólk á Raufar- höfn þess að sem flestir heima- menn sem og íbúar nágranna- svcitarfélaganna sjái sér fært að bregóa sér í lcikhús í skammdeginu og létta lundina. Leikklúbburinn á Kópaskeri hyggst frumsýna leikritió 19. júní, sem_ einnig gengur undir nafninu í dagsins önn, eftir systurnar Ióunni og Kristínu Steinsdætur 20. febrúar næst- komandi. Auk Kópaskersbúa og annarra íbúa Öxarfjarðar- hrepps hafa íbúar úr Keldunes- hrcppi, tckió þátt í starfscmi leikklúbbsins. Leikstjórinn, Oktavía Stef- ánsdóttir, kemur í lok þcssa mánaðar til Kópaskers og velur í hlutvcrkin sem cru 10 talsins af báðum kynjum en æfingar hefjast strax eftir áramót. Leik- ritið fjallar um kvennadaginn 19. júní. Það scgir frá deginum í lífi rúmlcga fcrtugrar konu. Þetta er hátíðisdagur í lífi kon- unnar sem og annarra kvenna en ýmissa hluta vegna gengur henni illa að komast af stað til aó taka þátt í hátíðarhöldum dagsins. Eiginmaðurinn vckur hana með kaffi í rúmið og ætl- ar að bjóða henni út að boröa, virkilegur höföingi, og hún nefnir staði sem koma til greina cn þá tckur hann af skarið og vclur staó scm fcllur honum í geð. Hugafarsbreyt- ingin í jafnréttisátt er því í raun skammt á veg komin. Leikklúbburinn fékk nýlega leigðan hluta gamallar rækju- verksmióju undir starfsemina en klúbburinn hcfur verið á hrakhólum með húsnæði. GG Áfram veróur hlýtt í veöri norðanlands. Á Norðurlandi vestra veróur suðvestan kaldi og slydduél eða súld í dag, hitinn veróur á bilinu 1- 8 stig. Á Noróurlandi eystra verður suðvestan kaldi og skýjað meö köflum, úr- komulaust og 0-10 stiga hiti. Um helgina er spáð suð- vestan átt og áframhaldandi hita. VEÐRIÐ Skýrsla um hagkvæmni loðnuverksmiðju á Húsavík lögð fram: „Meginforsenda byggingar loðnuverk- smiðju er aðgangur að auðlindinni" - segir Gunnlaugur Stefánsson, formaður Atvinnumálanefndar Húsavíkur Atvinnumálanefnd Húsavík- ur hefur fengið í hendur skýrslu um forkönnun á bygg- ingu loðnu- og síldarverksmiðju á Húsavík, sem unnin er af Stef- áni Jónssyni, starfsmanni At- vinnuþróunarfélags Þingeyinga. Fjallað var um skýrsluna á fundi Atvinnumálanefndar ný- verið en fullur áhugi er á því að stefna að byggingu verksmiðju. Ljóst er þó að bæjarfélagið fer ekki út í byggingu verksmiðju, en hugmyndin er að leita eftir samstarfsaðilum sem eru í þess- ari atvinnugrein, svo sem út- gerða loðnuskipa eða annarra loðnuverksmiðja eins og t.d. SR- mjöls hf. „Þetta var fyrst og fremst könn- un á því hvort bygging vcrksmiðju hér á Húsavík væri hagkvæmur kostur en ekki hagkvæmnisút- reikningar en þeir eru miklu urn- Sveinn Asgeirsson, hjá Ilringrás hf. og Helgi Bjarnason, starfsmaður Kötlu hf. við beltagröfuna, sem búið var að skcmma á öskuhaugum Akureyrar í gærmorgun. Mynd: KK Óskemmtileg aðkoma: Ruðurnar i grofunni brotnar - skemmdarvargar á ferð á öskuhaugunum á Akureyri Hún var heldur óskemmtileg aðkoman, þegar Sveinn Ás- geirsson, einn af eigendum Hringrásar hf. mætti til vinnu á öskuhaugum Akureyrar í gær- morgun. Beltagrafa fyrirtækis- ins hafði orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum. Búið var að brjóta fimm rúður af þeim átta sem í vélinni eru og einnig ljósin. Að auki var búið að brjóta þrjár rúður í jarðýtu Akureyrarbæjar, sem notuð er á öskuhaugunum. Sveinn sagói í samtali við Dag að þaó væri hrikalegt að koma að vinnutæki sínu svona og þótt graf- an liti ekki beint vel út, réttlætti ekkert þessa meðferð. Hann sagði að málið hefði verið kært til lög- reglu, enda fylgdi því bæði óþæg- indi og kostnaður. Tjaran hlóðst á dekkin Stefán Sveinbjörnsson, skólabílstjóri á Svalbarðsströnd, varð fyrir hcldur óskcmmtilcgri rcynslu sl. þriðjudag. Um morgunin þcgar hann var að aka ncmcndum í Hrafnagilsskóla, hlóðst tjaran úr vcgklæðningunni á dckkin og bifrciðin varð nær óökufær. Einnig er vitað uni ökumcnn fólksbíla sem urðu fyrir svipaðri rcynslu á þriðjudaginn. Ekki er að fullu vitað hvað veldur því að þetta gcrist, en mikil vinna var að ná tjörunni af dckkjunum. Mynd: Halldór. Beltagrafan, sem cr útbúin nreð svokölluðum krabba, er notuð til aó hreinsa brotamálmshauginn á öskuhaugunum en það cr Sorp- eyðing Eyjafjarðar scm stendur fyrir því vcrki. Brotajárninu er komió fyrir í gámum og það sent með skipi til vinnslu hjá Hringrás í Reykjavík, sem aftur vinnur járniö fyrir útfiutning. Aó sögn Sveins hefur verkið gengið nokkuð vel og var stefnt aó því að Ijúka við aó hreinsa járnhauginn á öskuhaugunum í vikunni. Nú er það hins vegar óvíst og þá ekki síst vegna þess að fara þarf í lagfæringar á gröfunni eftir skemmdirnar. Sveinn segir að nú sé í mun meira mæli farið að setja brotajárn bcint í gáma og síðan í vinnslu, í stað þcss að safna upp haugum hér og þar og slíkt sé mun einfaldara fyrir alla aðila. KK fangsmciri. Einnig þarf að ákvcða hvcrsu stóra verksmiðju stelnt er á að byggja. En nieóan ekki helur verið talaó við þá aðila sem hugs- anlcga kærnu inn í þetta samstarf á ég ákaflega erfitt með að tjá mig frekar um málið. Eins og staðan er í dag í loðnuveiðinni gct ég ekki ímyndað mér að margir séu spenntir fyrir aö taka þátt í upp- byggingu loðnuverksmiðju á Húsavík og það er ckki liægt aö vcra bjartsýnn lyrr en loðnan fer að vciðast aftur,“ segir Gunnlaug- ur Stefánsson, formaður Atvinnu- málanefndar Húsavíkur. Er nclndin ekkcrt hrædd vió að markaöurinn sé að mcttast í ljósi þess að í undirbúningi er aó byggja loðnuvcrksmiðjur í Helgu- vík á Reykjanesi og austur á Fá- skrúðsfirói? „Jú, en Húsavík cr einn af tveimur stöóum landsins þar sem til greina kemur að nota gufu við þurrkun. Hinn staðurinn er Grindavík. Mcginforscnda þess að skynsamlegt sé að byggja loðnu- verksmiðju er hins vegar aðgang- ur aó auðlindinni, þ.e. loðnukvót- anum sem ekki liggur á lausu. Ef af byggingu verksmiðju veróur yrði hún staðsett á uppfyllingu vcstan Kísilskemmunnar cn upp- fyþingin er cnn ekki til staðar,“ segir Gunnlaugur Stefánsson. GG Fróbœrt verð á plastrimla- gardínum Stœrðir: 40x150-180x150 40x210-180x210 Sníðum eftir máii KAUPLAND Kaupangi ■ Sími 23565 INNANHUSS- MÁLNING 10 lítrar frá kr. 3.990,- KAUPLAND Kaupangi • Sími 23565

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.