Dagur - 02.12.1994, Page 5
Föstudagur 2. desember 1994 - DAGUR - 5
Baldvin bóndi á geisladiski:
Söngur sem aukabúgrein
- eigin útgáfa 18 einsöngslaga
Baldvin Kr. Baldvinsson, bóndi í
Torfunesi í Kinn, hefur gefið út
disk og kassettu með söng sín-
um. Þetta er fyrsta útgáfa á ein-
söngslögum sem Baldvin syng-
ur, en hann hefur áður sungið
einsöng á þremur hljómplötum
með Karlakórnum Hreimi og
sungið á hljómplötunni Rangár-
bræður með Baldri bróður sín-
um.
„Á þessum samdráttartímum
verða bændur að sækja aðra vinnu
jafnhliða búskapnum. Það hefur
þróast þannig að ég hef meira far-
ið að syngja einn, eftir að bróðir
minn fór að stunda vinnu við akst-
ur og átti erfiðara með aó sækja
æfingar með mér. Bóndi hefur að
vísu í ýmsu að snúast og búskap-
urinn og söngurinn rekast á, þann-
ig að ég er ekki alltaf eins vel
undirbúinn og hvíldur eftir erfióis-
vinnu og ég vildi þegar ég kem
fram til aó syngja við athafnir og
fleiri tækifæri. En ég er ekki at-
vinnusöngvari og get því ekki
hegðað mér samkvæmt því. Ég
kem úr ööru umhverfi og þarf að
stunda fulla vinnu samhliða
söngnum," sagði Baldvin.
Verð að sýna framför
Eflaust muna margir er hann söng
sama veturinn hlutverk Perons í
uppfærslunni á Evitu í Sjallanum
og í Ástardrykknum, sem sýndur
var í Laugarborg. Baldvin hel'ur
einnig haldið þrenna einsöngstón-
leika. Hann æfir nteð Juliet
Faulkner, undirleikara sínum. I
fyrravetur stundaði Baldvin söng-
nám hjá Jóni Þorsteinssyni og
byrjaði hjá honum aftur í haust.
„Það þýðir ekki annað en að sýna
þróun fyrst ég er að gefa mig í
þetta. Þetta er óhemju mikil vinna,
en maður syngur ekki á gamalli
frægó, heldur verður að sýna
Borgarbíó:
Harrison Ford
mættur tíl leiks
Borgarbíó á Akureyri hefur tek-
ið til sýninga kvikmyndina Bein
ógnun (Clear and Present Dang-
er) með Harrison Ford í aðal-
hlutverki undir leikstjórn Philip
Noyce eftir metsölubók Tom
Clancy. Myndin er sú þriðja í
röðinni um leyniþjónustumann-
inn Jack Ryan, sem í þessari
mynd er orðinn einn af aðstoð-
arforstjórum bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA.
Ryan flækist í baráttu við eina
mestu ógn sem steðjar að Banda-
ríkjununt um þessar mundir, stór-
felldan fikniefnainnflutning frá
Kólumbíu. Hann óskar eftir auk-
inni fjárveitingu frá þinginu, sent
nota á til þess sem Ryan heldur aó
sé lögleg barátta gegn fikniefnum
en er í raun leynileg og kolólögleg
hernaðaraógeró. Ryan kemst fljótt
að því að hann hefur verið notaður
sem peð í refskák og valdabrölti
yfirboöara sinna og virðist skolla-
leikurinn eiga rætur hjá sjálfum
forsetanum.
Titill myndarinnar Bein ógnun
er dreginn af klásúlu í bandarísk-
um lögum sem banna bandaríska
hernaóaríhlutun á erlendri grund
nema um sé að ræða beina ógnun
gagnvart Bandaríkjunum.
Hópur heimsþekktra rithöfunda
og handritshöfunda standa aö
myndinni en hún er gerð eftir met-
söluskáldsögu Tom Clancy, sem
einnig skrifaði The Hunt for Red
october og Patriot games. Kvik-
myndahandritið skrifuðu Donald
Stewart, sem fékk Oskarsverðlaun
fyrir Missing og skrifaði handritið
að fyrri Jack Ryan myndinni
ásamt John Milius, sem tilnefndur
var til Oskarsverðlauna fyrir
Apocalypse Now. Þriðji handrits-
höfundimn er Steven Zaillan, sem
fékk Óskarsverðlaunin fyrir hand-
ritið að Lista Schindlers.
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferðinni.
framför hverju sinni. En ég hef
mjög gaman af þessu og það er
kannski aðalmálið," sagði Bald-
vin, í samtali viö Dag.
Baldvin segir að sér þyki vænt
um öll lögin á geisladisknum og
hann sé búinn að vinna meó þau
lengi. Lögin eru flest íslensk og
ákaflega falleg, mjög ljúf tónlist
sem tilvalið er að senda góðum
vinum í jólagjöf. Lögin eru tekin
upp í Fella- og Hólakirkju. Undir-
leik annast: Juliet Faulkner á pí-
anó, Reynir Jónasson á harmoniku
og Szymon Kuran á fiðlu. Bak-
grunnsmynd á umslag tók Jón Jó-
hannesson og nefnist myndin
Kvöld í Kinn. Ljósmyndun og út-
lit umslagsins er unnin á Ljós-
myndastofu Péturs. Baldvin segist
hafa viljað sýna að fólk í dreifbýl-
inu gæti tekist á við verkefni af
þessu tagi og að menning gæti
þrifist þar rétt eins og annarsstað-
ar. „Það er mín sannfæring að
vinnan á diskinum sé mjög vönd-
uð og með mér unnu mjög góðir
listamenn, sem ég vil þakka fyrir
samstarfið," segir Baldvin.
Trúi að fólk vilji hlusta á
söng minn
Aðspurður um fjárhagshliðina
sagói hann útgáfuna mikið mál og
dýrt. Hann sagðist aldrei hafa aug-
lýst söng sinn en fundið að fólk
vildi hlusta og hann langaði til aó
taka upp efni til aó eiga. Síóan var
hann hvattur til útgáfunnar, sér-
staklega af bankastjóra og starfs-
fólki Islandsbanka á Húsavík. Sú
hvatning og lánafyrirgreiðsla varó
til þess að í útgáfuna var ráðist og
segist Baldvin afar þakklátur
þessu fólki.
„Nei, ég hef ekki fengið neinn
styrk til útgáfunnar, nema frá
mínu fólki, sem hefur tekið á sig
meiri störf vió búskapinn.
Já, ég er alltaf bjartsýnn. Ég
var eindregið hvattur því annars
hefði ég ekki farið út í þetta. Ég
var svo heppinn að stjórn Hreims
bauðst til að taka að sér dreifingu
og sölu disksins á heimasvæðinu.
Ég trúi því og treysti að fókió sem
hvatti mig segi satt og rétt til um
það að fólk vilji hlusta á söng
minn og því hafi verið rétt að ráö-
ast í þessa útgáfu,“ segir Baldvin.
Hægt er að panta diskinn í síma
11872 á Akureyri og auk þess í
sínia 43622 og bréfasíma 43652
hjá Baldvin Baldvinssyni. IM
.*?•238 5* **i *<» •*» **. «"*< «*». «*t *v. *% «-*i *% *%i *% *%. 0% *%■ *%■
•4' w. wt «4 *4- «4f *4 WJ «47 «47 «4- «4. «4! «4. *4.' «47 «47 «47 «47 «47 «4? «47 «47 «47 «47.«47 «4! «47 «47 «47 «47 «47 «4' «4; «4; «4; «4; *4' «4' V4’ ,4; V4: «4: ,
!
$
1
'i
fi
fi
fi
{!
r’
f
f
í
í
fi
!;
s
!
f
I
II
1
fi
f’
r?
f;
r
É
P
t’
1 w
H 'E *RaR*AaRm!
Afsláttardagar í Herradeild KEA
ALLT AÐ EIGIN VALI
Dæmi 1-kr. 24.990,-
Jakkaföt (einhneppt, tvíhneppt, með
eða án vestis)
Skyrta
Silkibindi eða slaufa
Silkinærbuxur
Sokkar
+ Glaðningur:
777 dæmis rakspíri, after shave
balm ilmvatn, ermahnappar,
bindisnœlur, snyrtitöskur og fleira.
Dæmi 2 - kr. 24.990.-
Stakur jakki
Stakar buxur
Skyrta
Silkibindi eða slaufa
Silkinærbuxur
Sokkar
+Glaðningur:
7/7 dœmis rakspíri, after shave
balm ilmvatn, ermahnappar,
bindisnœlur, snyrtitöskur og fleira.
Verð aðeins kr. 24.990.
Vikuna 28. nóv.-3. des.
» <r» <r« <r« <r» <r« <r» <r« <r» <r» <r* <r* <r» <r« <r» <r« <r* <r« <r« <r* <r* <r« <#• <r» <r» <r« <r« <r« <r« <r« <r« <r» <r» <r« ir« í»« .-•« »«(••.»•(*•/••(••/•»(•• ^
tfcTC Iwiw iwiw SC tki. W!iTtSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS*
1
I
ÍJ
ÍJ
I
I
l!
I
i!
1
I
<r« ir**