Dagur - 02.12.1994, Blaðsíða 11
I
Hafíð á Þórshöfii
Leikfélag Þórshafnar frumsýndi
föstudaginn 25. nóvember leikrit-
ið Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son. Leikstjóri sýningarinnar er
Steinunn Jóhannesdóttir og hann-
aði hún einnig sviðsmynd.
Hafið er dramatískt verk, þar
sem höfundur fléttar saman þátt-
um, sem eru efni. harmleikja,
skoplegum brag og rómantík. Ur
verður þétt flétta, sem gerir veru-
legar kröfur til leikenda og leik-
stjóra, eigi vel aó takast. Það er
talsvert metnaðarfullt af litlu leik-
félagi, eins og Leikfélagi Þórs-
hafnar, að leggja til atlögu við
verk af þessu tagi. Þaö er því
ánægjulegra að geta sagt, að vel
hafi tekist á sem næst allan veg.
Þar er án efa mikið að þakka vel
unnu starfi leikstjórans, Steinunn-
ar Jóhannesdóttur, sem virðist
hafa haft auga sem næst á
hverjum fingri og gætt þess af
kostgæfni, að samfella persóna
héldist, að sviðshreyfmgar gengju
upp, að hópsenur yrðu sem sann-
ferðugastar og að fjöldi annarra
atriða félli aó þeirri heildarmynd,
sem verkið krefst. Einungis í örlá
skipti hefur ekki tekist svo vel
sem skyldi og ferlið verður ólipurt
eóa ósannferðugt. Sem dæmi má
ncfna heldur viðbragóalítið atriói,
þegar Þórður birtir ætlun sína með
fyrirtækið og nokkuð óþægilega
og líflitla uppstillingu við píanóið
í samsöngsatriðum. Einnig er
rómantískt atriði Maríu og Agúst-
ar stirðlcgt, svo enn eitt dæmi sé
nefnt af fáum, sem enn mætti til
tína.
Sviðsmynd Steinunnar Jóhann-
esdóttur er vel hönnuó og lýsing,
sem er í höndum Kristjáns Her-
mannssonar, vel unnin. Hið sama
cr um sviðshljóð; brimrót og veð-
urhljóð, sent hefðu þó á stundum
mátt fylgja örlítið lengur framrás
verksins í samræmi við texta þess.
Þórður Haraldsson, útgerðar-
maður, er leikinn af Steinari Harð-
arsyni. Steinar hefur í flestum til-
fellum góö tök á persónunni og
víöa vel yfir það. Lcikur hans er
gjarnan sterkur og ákveðinn,
þannig að enginn efast um það, að
hann er maður, sem vill láta sinn
vilja ráða. Góður hápunktur túlk-
unar Steinars á Þórði er, þegar
hann er lciddur út dauðvona eftir
átökin við Jón, son sinn.
Kristín, sambýliskona Þórðar,
er leikin af Dagnýju Haraldsdótt-
ur. Þetta hlutverk er vandasamt
MINNINO
vegna þess hve hljóðlátt það er.
Dagnýju tekst langoftast vel að
gæða þessa hlédrægu og undir-
gefnu manneskju sannferðugleika
LEIKLIST
HAUKUR ÁCÚSTSSON
SKRIFAR
og er víða áhrifamikil í leik sín-
um.
Katrín, móðir Þórðar, er leikin
af Sölva Hólmgeirssyni. Sölvi er
víða mjög góður í þessu hlutverki.
Hann kemur með beittar athuga-
semdir sínar, í viðeigandi raddblæ
og með fasi, sem fellur vel að
hinni gömlu ömmu og móður,
sem séð hefur alla fjölskylduna
vaxa úr grasi og þekkir hvern
meðlim hennar í grunn.
Son Þóróar, Harald, leikur Haf-
steinn Óskarsson. Haraldur er
gunga og tekst Hafsteini allvel að
túlka þann þátt í fari hans. Þó
skortir of víða neista í leik Haf-
steins. Best tekst honum í lok 2.
þáttar.
Konu Haraldar, Aslaugu, leikur
Hildur Vala Þorbergsdóttir. Hún
vex í leik sínum er á líður verkið
og nær orðið talsvert góðum tök-
um í mótleik við Harald í 3. þætti.
Ragnheiði, kvikmyndaleik-
stjórann, leikur Heiðrún Ólafs-
dóttir. Hún á stórgóða spretti og
nær vel að draga fram grófa þætti
þessarar heimskonu ekki síst í
samleik vió Guðmund, eiginmann
sinn, sem leikinn er af Oddi
Skúlasyni. Hann byrjar heldur
dauflega, en vex stórlega er á líður
í túlkun sinni á þessum hálfkúg-
aða kvikmyndaklippara.
Jón ílugmann, son Þórðar, leik-
ur Ólafur Stefánsson. Persónan er
verulega áberandi í verkinu frá
hendi höfundar og tekst Ólafi
vissulega að gera hana það. Beitt-
ar og iðulega beiskar setningar
Jóns komast vel til skila og fasið
er almcnnt vel við hæfi persón-
unnar, svo að úr verður vel heild-
stæó túlkun.
Lagskonu Jóns, Lóu, leikur
Þórdís Marín Þorbergsdóttir. Hlut-
verkið gerir ekki miklar kröfur til
dramatísks leiks, en Þórdísi tekst
vel að draga fram ýmsa eðlisþætti
lagskonunnar, svo að úr verður
sannferóug persóna.
Hjördís, dóttir Þórðar, er leikin
af Dagbjörtu Aradóttur. Þessi
hægláta kona, dreymin og ljóð-
elsk, kemur vel til skila hógværó
sinni í túlkun Dagbjartar.
Berg, uppeldisson Þórðar og
augastein, leikur Guðbjörn Ólafs-
son. Bergi tekst sæmilega að túlka
þennan sjóara og fiskimann, sem
hefur fiskablóó í æðum, en því
miður ekki meira en það. I túlkun-
ina skortir brag þess, sem treystir
á sjálfs síns styrk og getu og hefur
reynt, að hann getur það.
Agúst, son Þóróar, leikur Gísli
Örn Bjarnhéóinsson. Hlutverkió
er ekki átakamikió, en Gísli er ör-
lítið vandræðalegur í túlkun sinni
og virðist ekki meira en svo kom-
ast í samband við það.
María, dóttir Kristínar, er leikin
af Stefaníu Malen Stefánsdóttur.
Persónan er lífsglöð unglings-
stúlka, sem skapar andstöðu við
aðrar persónur leiksins; fersklegan
andblæ í staðnaó umhverfi, þar
sem átök eiga sér þó stað jafnt
undir yfirborði sem ofan þess.
Stefaníu Malen tekst vel að ná
þessum blæ. Hún er létt og leik-
andi í túlkun sinni og skapar
skemmtilega persónu.
I heild er uppfærsla Leikfélags
Þórshafnar á Hafinu aöstandend-
um öllum til sóma. Með henni
hefur félagið sýnt, að það getur
tekist á við erfið verkefni og skil-
að þeim vel.
Baldur Eiríksson
Ul Fæddur 23. desember 1910 - Dáinn 16. nóvember 1994
Kveðja frá barnabörnum
Minningar okkar um afa á Akur-
eyri eru allar einstaklega ljúfar og
góðar. Það er margs að minnast og
margt að þakka frá samverustund-
um okkar hjá afa og ömmu á Ak-
ureyri og heimsóknum þeirra suð-
ur til okkar.
Þau eru ófá sporin sem afi gekk
með okkur lítil í fanginu og þegar
eitt stækkaði og fór að síga í, kom
annað yngra í staðinn. Þolinmóður
og kíminn á svip umbar hann læt-
in í okkur, en ólund og óþekkt
sýndum við afa aldrei, það var
ekki hægt.
Afi var alltaf svo góður og ró-
legur, sat mikið og las í bókunum
sínum eða sat viö skrifborðið sitt
og grúskaöi í ættfræði og afi tók
því ekkcrt illa þó hann væri ónáð-
aður, hann opnaói gjarnan skrif-
borðsskúffuna og tók upp súkku-
laði, sem hann átti alltaf þar og
gaf okkur. Já, aft las mikið og
okkur þótti hann fróður. Hann
hafði áhuga á svo mörgu og kunni
svör við ólíklegustu spurningum.
Afi var listrænn í sér. Hann
málaði og skar út og var gott
skáld. Við viljum þakka afa allar
vísurnar og kvæðin, sem hann orti
og sendi okkur, það eru dýrgripir
sem við munurn geyma vel.
Síóustu árin var afi ekki heill
heilsu. Veikindin drógu smátt og
smátt úr andlegu og líkamlegu
þreki hans. Hann dvaldi á Seli, þar
sem vel var um hann hugsað og
þangaö heimsótti amma hann eins
oft og hún gat. Hógværðin og ljúf-
mennskan fylgdu honum alla tíð
og þannig munum við minnast
hans. Elsku ömmu vottum við
samúð okkar í sorg hennar, en við
vitum að allar góðu minningarnar
um afa eru besta huggun hennar.
Föstudagur 2. desember 1994 - DAGUR - 11
J ólafundur
Styrks, samtaka krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra,
verður haldinn laugardaginn 3. desember 1994 í
Húsi aldraðra, Lundargötu 7 frá kl. 15.00-18.00.
Félagar fjölmennið. Takið með ykkur gesti, 1 köku
og góða skapið.
Stjórnin.
ALÞJÓÐLEGUR DAGUR
FATLAÐRA
3. DESEMBER 1994
Styrktarfélag vangefinna og Foreldrafélag barna
með sérþarfir halda daginn hátíðlegan með
opnu husi á Fiðlaranum, 4. hæð, kL 15.00-
17.00, laugardaginn 3. desember.
Kaffiveitingar, tónlist og veiting viðurkenninga
fyrir vel unnin störf í þágu fatlaðra.
KomiÖ og gleðjist með okkur
á degi fatlaðra!
G j ileymið ekki )ð gefa smáfuglunum.
Jólokveðjur
- Jólablað
auglýsingadeild sími 24222
Áætlað er
að jólablað
Dags komi
út þriðju-
daginn
20. des-
ember.
Þeir aðilar
sem vilja
senda
kveðjur til
starfsfólks,
viðskiptavina
eða annarra,
vinsamlegast haf-
ið samband við
auglýsingadeild
Dags sem fyrst og
eigi síðar en
fimmtudaginn
8. desember nk.