Dagur - 03.01.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 3. janúar 1995
FRÉTTIR
Kaupfélag Eyfirðinga og Valbær hf. stofnuðu um áramótin hlutaféiagið Vik-
ing hf. um rekstur Viking Brugg á Akurcyri. Framkvæmdastjóri er Baldvin
Valdemarsson, scm hér sést við framleiðslulínu verksmiðjunnar. Baldvin
verður einnig fyrst um sinn framkvæmdastjóri Foldu hf., en því embætti
hcfur hann gegnt undanfarin misseri. GG/Mynd: Robyn
Verslanir KEA á Akureyri:
Nýir stjórnendur í
þremur verslunum
Umtalsverðar breytingar urðu í
stjórnunarstöðum í verslunum
KEA á Akureyri nú um áramót-
in. Nýir verslunarstjórar tóku
við í tveimur matvöruverslun-
um, auk þess sem nýr stjórnandi
tók til starfa í Vöruhúsi KEA.
Gylfi Kristinsson hefur vcrið
Vöruhússtjóri KEA síðustu árin
en nú uni áramótin lét hann af því
starfi og tók við starfi innkaupa-
stjóra hjá Olís í Reykjavík. í hans
stað var ráðinn Guðjón Ármanns-
son, sem verið hefur verslunar-
stjóri KEA vió Hrísalund síðustu
fimm ár.
Verslunarstjóraskipti urðu
einnig í matvöruverslun KEA vió
Byggðaveg. Friðrik Sigþórsson,
sem verið hefur verslunarstjóri þar
síóastliðin fimm ár, tók við starfi
Guðjóns í Hrísalundi en við hans
starfi í Byggóavegi tekur Margrét
Guðmundsdóttir tímabundið. Mar-
grét hefur verió starfsmaður versl-
unarinnar um árabil.
Auk þessa verða gerðar breyt-
ingar á verslun KEA í Sunnuhlíð
sem felast fyrst og fremst í lengri
opnunartíma, lokun kjötborðs og
fieiru. Ætlunin er að hafa verslun-
ina opna milli kl. 9 og 22 mánu-
daga til laugardaga. JÓH
Hagkaup á Akureyri:
Þórhalla aftur í versl-
unarstjórastólinn
Nu um aramótin urðu verslunar-
stjóraskipti hjá Hagkaup á Ak-
ureyri. Sigurður Markússon lét
þá af stjórn og við tók Þórhalla
Þórhallsdóttir en hún var einmitt
í þessu starfi áður en Sigurður
tók við fyrir tveimur árum.
I samtali við Dag í gær sagði
Sigurður þetta hluta af reglu-
bundnum verslunarstjórabreyting-
um hjá fyrirtækinu. Skipt er um
verslunarstjóra í fimm af níu
verslunum Hagkaups en sjálfur
verður Sigurður verslunarstjóri í
Hagkaup í Grafarvogi í Reykja-
vík. Nýr verslunarstjóri kemur
einnig í Hagkaup á Eiöistorgi á
Seltjarnarnesi, þar sem Þórhalla
Þórhallsdóttir hefur verið verslun-
arstjóri síðustu tvö árin. JÓH
RALA
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Þróunarstarf í
matvælaframleiðslu
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að ráða
starfsmann til rannsókna og þróunarstarfs á sviði kjöt-
og mjólkurúrvinnslu. Starfsmanninum er ætlað aó taka
virkan þátt í samstarfi Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins og Háskólans á Akureyri um uppbyggingu
rannsókna og kennslu í matvælafræði og tengdum
greinum.
Starfsvettvangur verður á Búgarði á Akureyri, Tilrauna-
stöðinni á Möðruvöllum og aðstööu Háskólans á Akur-
eyri. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem
fyrst.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum sendist:
Forstjóra Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins,
Keldnaholti, 112 Reykjavík,
fyrir 1. febrúar 1995.
Háskólinn á Akureyri:
Dr. Ármann Ingólfsson skipaður
dósent í rekstrarfræði - gæðastjórnun
fyrsti dósentinn sem fær skipun við Háskólann
Menntamála-
ráðherra hefur,
að tillögu Há-
skólans á Akur-
eyri, skipað dr.
Armann Ing-
ólfsson dósent í
rekstrarfræði -
gæðastjórnun
við Háskólann á Akureyri frá 1.
desember 1994 að telja. Ármann
er fyrsti dósentinn sem fær skip-
un við Háskólann. Ármann var
einn fjögurra umsækjenda um
starfið en sá eini sem var talinn
hæfur. Hann er Akureyringur,
sonur hjónanna Ingólfs Ár-
mannssonar, skóla- og menning-
arfulltrúa á Akureyri, og Hrefnu
Hjálmarsdóttur.
Ármann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1984
og BS prófi í iðnaðarverkfræði frá
University at Buffalo í Bandaríkj-
unum 1989. Hann lauk meistara-
gráðu í aðgerðarrannsóknum frá
Massachusetts Institute og
Technology (MIT) haustið 1991
og doktorsprófi frá sama skóla sl.
haust.
Ármann hefur stundað rann-
sóknir á samspili sjálfvirkra ferlis-
stýringa og tölfræðilegra aðferða
gæóastjórnunar við MIT og meðal
afraksturs rannsóknanna er hug-
búnaður til að aðstoða ferlisstýr-
ingu, sem hefur verið notaður í
framleiðslu hjá ýmsum fyrirtækj-
um í Bandaríkjunum og hefur
jafnframt verið notaóur til grund-
vallar frekari þróunar á þessu
sviði.
Rannsóknarsviö Ármanns til
doktorsprófs var af öðrum toga
spunnið, þ.e. hversu mikil áhrif
ótvíræóar jarðskjálfaspár gætu haft
til lækkunar á dánartíðni í miklum
jarðskjálftum. Athyglinni er fyrst
og fremst beint aó spám meó mjög
stuttum fyrirvara, allt niður i 30
sekúndur, en slíkur fyrirvari er tal-
inn raunhæfur á ákveónum svæð-
um, t.d. í Mexíkóborg.
Ármann hefur auk þessa tekið
þátt í rannsóknarverkefnum sem
unnin voru í samvinnu MIT og
japanska jámbrautafyrirtækisins
JR-East og beindust að því að
meta slysahættu í járnbrautakerfi
JR-East og var honum boðið á
ráðstefnu í Tokyo sl. haust til að
kynna nióurstöður verkefnisins.
Ármann Ingólfsson veróur
gestakennari við fylkisháskólann í
Alberta í Kanada nk. vormisseri,
en snýr til starfa við Háskólann á
Akureyri næsta haust. GG
Embætti veiðistjóra flutt til Akureyrar:
Ásbjörn settur veiðistjóri
Þrjár umsóknir
bárust um
stöðu veiði-
stjóra, sem um-
hverfisráðu-
neytið auglýsti í
haust lausa til
umsóknar, en
frá 1. febrúar
nk. flyst aðsetur veiðistjóra frá
Reykjavík til Akureyrar. Um-
hverfisráðherra, Össur Skarp-
héðinsson, hefur sett Ásbjörn
Dagbjartsson, líffræðing, til að
gegna stöðu veiðistjóra skv. lög-
um nr. 64/1994 um vernd, friðun
og veiðar á villtum fuglum og
villtum spendýrum, frá og með
1. febrúar 1995 til eins árs.
Ásbjörn Dagbjartsson starfaói
á Rannsóknastofnun fiskiðnaóar-
ins frá 1981, síðan í Krossanes-
verksmiðjunni frá 1987 til 1990er
verksmiðjan brann, en í ársbyrjun
1991 tók Ásbjörn aó sér þróunar-
verkefni í Malawí og kom aftur
heim sl. sumar. Síðan þá hefur
hann unnið fyrir Háskólann á Ak-
ureyri að útfærslu og könnun á
grundvelli samþykktar ríkisstjórn-
arinnar urn Matvælastofnun, sent
yrði í tengslum við Háskólann á
Akureyri, sem rn.a. fyrirtæki á
Noröurlandi ættu aðild að. Ás-
björn mun ljúka því starfí áður en
hann tekur við starfi veiðistjóra og
senda skýrslu urn úttektina til Há-
skólans á Akureyri, en mennta-
málaráðuneytið fól Rannsókna-
stol'nun Háskólans að framkvæma
þessa könnun.
Veióistjóri hcfur umsjón með
og stjórn á þeirn aðgerðum, af op-
inberri hálfu, sent ætlað er að hafa
áhrif á stofnstærð og útbreiðslu
villtra dýra eða tjón af þeirra völd-
um. Hann sér um útgáfu veiði-
korta og endurskoóun reikninga
vegna kostnaóar við refa- og
minkaveiðar. Hann birtir árlega
yfirlit um veióar á fuglum og
spendýrum og stundar hagnýtar
rannsóknir á villtum dýrum í sam-
vinnu við aðrar stofnanir.
Geróur hefur verið leigusamn-
ingur við Byggingafélagið Lind
hf. um leigu á 165 fermetra hús-
næði aó Hafnarstræti 97 á Akur-
eyri til ársins 2005, en fram til
haustsins verður skrifstofan til
húsa í sama húsnæði, en á 3. hæð.
SJS-verktakar munu sjá um bygg-
ingu og innréttingu á húsnæðinu.
GG
Husavík:
Áramótin róleg
Áramótin voru róleg á Húsavík
samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar, sem ekki var kunn-
ugt um óhöpp eða vandræði af
nokkru tagi.
Talsverður fólksfjöldi var á
ferli á nýársnótt og sótti m.a. þrjá
skemmtistaði sem opnir voru í
bænum. IM
Húsavík:
Fiskbúdinni lokað um áramót
var stofnað 1948, en hóf fisk-
vinnslu 1950. Tryggvi sagói að
samdráttur hefði orðið á fisksölu í
búðinni. Lengi vel hefði enginn
annar aðili verið meó fisksölu í
bænurn en nú mætti fá fisk í mat-
vöruverslunum og einnig væri
stunduð farandsala á fiski. Það
væru breyttir tímar í dag og ekki
þyrfti endilega að fara saman
vinnsla á matvælum og sala
þeirra. Hann sagði að Fiskióju-
samlagið heföi ekki viljað fara í
samkeppni við verslunaraðila með
því að bæta fleiri vörutegundum í
fiskbúðina og ákveðið að loka
henni með von um að aðrir aðilar
tækju við og veittu þessa þjónustu
í bæjarfélaginu.
Síðustu mánuði hefur ein kona
unnið í fiskbúðinni og fær hún
annað starf hjá fyrirtækinu eftir
áramótin.
Milli jóla og nýárs var unnið að
ýmsum lagfæringum hjá Fiskiðju-
samlaginu en vinnsla liggur niðri.
Vinnsla hefst á ný 6. eða 9. janú-
ar, bæði í bolfiskdeild og rækju-
vinnslu. IM
Fiskbúð Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur var lokað nú um áramót-
in. Búnaður fiskbúðarinnar hef-
ur verið til sölu en hefur ekki
selst. Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri FH, sagðist ekki
vonlaus um að búnaðurinn seld-
ist en húsnæði fiskbúðarinnar
við Garðarsbraut verður ekki
leigt til fiskbúðarrekstur heldur
tekið til annarra nota fyrir fyrir-
tækið.
Fiskiðjusamlagió hefur rekið
fiskbúð svo til frá upphafi. Það
Kristín Þorbergsdóttir í Fiskbúðinni, sem lokað var um áramótin.
Mynd: IM