Dagur - 03.01.1995, Blaðsíða 16

Dagur - 03.01.1995, Blaðsíða 16
Þú færð eina ókeypis- 1-5^-24-cm-stækkun með hverri framköllun. ^Pe d íomyn dit7 Skipagata 16 - 600Akureyri - Sfmi 96-23520 I Alvarleg bilun í símstööinni á Akureyri á nýársnótt: Hugbúnaður undir smásjánni Rússneska ílutningaskipið Rand I í Akureyrarhöfn. Mynd: GG 011 símanúmer á Eyjafjarðar- svæðinu og Siglufirði voru óvirk frá miðnætti á gamlárs- kvöld og til klukkan 00.56 á ný- ársnótt. Þetta stafaði af bilun í stafrænu símstöðinni á Akureyri og beinast sjónir manna að hug- búnaði hennar, en í gær hafði ekki tekist að finna nákvæmlega út hvað gerðist. „Fjarskiptadeild Pósts og síma er að rannsaka þetta mál og ég hef enn sem komió er ekki fengið skýrslu um þaó. Þetta hefur ekki áður komió fyrir og við væntum þess að engin hætta sé á því aó þetta endurtaki sig,“ sagói Ársæll Mikil samkeppni við erlenda aðila um frysta rækju: Fryst rækja flutt til Noregs með rússnesku flutningaskipi Rússneska flutningaskipið Rand I, lestaði um 100 tonn af frystri, óunninni rækju á Ak- ureyri um áramótin sem fer til vinnslu í Noregi. Finnbogi Bald- vinsson, framkvæmdastjóri Sölt- unarfélags Dalvíkur hf., segir að mikil samkeppni ríki á mark- aðnum um frysta rækju og á sl. ári hafi töluvert farið af rækju til vinnslu bæði í Noregi og Dan- mörku en þar er boðið mjög hátt MA-stúdentar standa sig Samkvæmt niðurstöðum könn- unar sem Guðmundur B. Arnkelsson og Friðrik H. Jóns- son unnu fyrir kennslusvið Há- skóla íslands standa stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri sig afburða vel í Háskóla íslands. Könnunin náði til námsframmi- stöóu stúdenta á fyrsta ári í deild- um Háskóla Islands og er athygl- isvert að stúdentar frá Mennta- skólanum á Akureyri skera sig úr. Á viðskipta- og hagfræðibraut er MA á toppnum og nemendur Verslunarskóla Islands eru í öðru sæti. Fjölbrautaskólinn á Sauðár- króki er í áttunda sæti og Verk- menntaskólinn á Akureyri í fjór- tánda sæti. Nemendur frá MA skila bestuni námsárangri í raunvísindadeild og nemendur frá Menntaskólanum á Laugarvatni eru í öðru sæti. Sama cr uppi á tcningnum á fyrsta ári í heimspckideild. Könn- un Guðmundar og Friðriks leiðir í ljós að MA-ingar standa sig best, nemendur úr MR eru í öðru sæti og ML-ingar í því þriðja. VEÐRIÐ Veðurfræðingar Veðurstofu íslands spá hvassviðri og rigningu framan af degi en þegar líóur á daginn fer að lægja. Hitinn veróur á bilinu 0-7 stig norðanlands. Á morgun er spáð austan og norðaustan att, éljum og vægu frosti. Á fimmtudag verður nokkuð hvöss noróa- nátt og snjókoma eða él á Norðurlandi. í verkfræðideild HÍ eru yfir- burðir nemenda frá MA ótrúlega miklir. Þeir eru með langbestu út- komuna á fyrsta ári í verkfræði. Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð eru í öðru sæti og MR- ingar í því þriðja.„ óþh ^ Folda hf.: Asgeir starfandi stjórnarformað- ur fyrst um sinn Eins og fram kom í Degi fyrir áramót hefur Baldvin Valdemarsson, framkvæmda- stjóri Foldu hf. á Akureyri, sagt starfi sínu lausu en hann tók við framkvæmdastjórn drykkjar- vöruverksmiðjunnar Viking hf. á Akureyri nú um áramótin. Fyrst um sinn verður Ásgeir Magnússon, stjórnarformaður Foldu, við daglega stjórn hjá fyrirtækinu. Þetta þýðir að Baldvin lætur af störfum hjá Foldu hf. innan skamms en Ásgeir verður í leyfi frá Iónþróunarfélagi Eyjafjarðar, þar sem hann er framkvæmda- stjóri. Bjarni Kristinsson, starfs- maður Iönþróunarfélags Eyja- fjarðar, tekur þar við daglegri stjóm meðan Ásgeir sinnir mál- efnurn Foldu hf. Ásgeir er gjörkunnugur rekstri Foldu hf. enda hefur hann verið stjómarformaður fyrirtækisins frá upphafi. Aðspurður sagði hann í samtali við Dag í gær að auglýst verói eftir nýjum framkvæmda- stjóra að Foldu hf. þegar frá líður þó óljóst sé hvenær þaö verður. JÓH verð. Togarinn losaði frystan fisk á Húsavík sem þaö kom með úr nokkrum rússneskum togurum og fer hann til vinnslu hjá Fiskiðju- samlagi Húsavíkur. Rússarnir buðu mjög ódýra frakt á rækjunni til Noregs og var ákveðið að taka því tilboði sem barst í þessa rækju, en verksmiójurnar hér voru ekki samkeppnisfærar að vinna rækjuna á því verði. Það er Strýta hf. sem selur rækjuna til Noregs. I nóvenrbermánuði hafði al'urða- verðið ekki náð meðalverði ársins 1993, og þrátt fyrir það fer hráefn- isverð stöðugt hækkandi sem gerir rækjuverksmiðjunum erfitt fyrir í samkeppni við crlenda aðila um hráefnið. Rækjutogararnir eru að halda til veióa á nýju ári; Stokksncs EA- 410 fór í gærkvöld og síðan frysti- skipin eitt af öðru. Hjalteyrin EA- 310 fór í stuttan rækjutúr milli jóla og nýjárs og aflaði mjög vel, aflaverðmæti 6,3 milljónir króna. Önnur skip Samherja hf. voru á fiskitrolli. Rækjuvinnsla hefst í í Strýtu hf. í dag eftir uppsetningu á nýjum rækjuflokkara og í Söltunarfélagi Dalvíkur hf. nk. mánudag, en unn- ið hefur veriö að uppsetningu nýs rækjuflokkara þar auk hefðbund- ins viðhalds, sem alltaf er fram- kvæmt á þessum árstíma. Öllu starfsfólki var sagt upp störfum á sl. ári og mun fækka á þessu ári í tengslum viö þessa auknu tækni- væöingu í vinnslunni. Um 16 starfsmenn verða ekki endurráðn- ir, en þeir voru ekki allir í heils- dagsstörfum. Eftir þessa hagræó- ingu veröa um 50 nranns á launa- skrá hjá Söltunarfélagi Dalvíkur hf. GG Magnússon, umdæmisstjóri Pósts og síma á Norðurlandi. Sigurjón Jóhannesson, verk- fræöingur hjá Pósti og síma, segir að vegna þess að bilunin hafi átt sér stað á miðnætti beinist athug- un manna aó því hvort hún standi í sambandi við breytingar á hug- búnaði símstöðvarinnar vegna grundvallarbreytinga sem ætlað var að tækju gildi um áramótin. Þær breytingar eru fyrst og fremst fólgnar í því að frá og með ára- mótum eru fyrstu tveir stafirnir í símanúmerum til útlanda 00 en ekki 90 eins og vcrið hefur. „Almennt má segja að þama átti sér ekki stað bilun í vélbúnaði símstöðvarinnar. Þetta er fyrst og fremst hugbúnaðarbilun, ekki ósvipað og gerist þegar einkatölva frýs,“ sagði Sigurjón. Ársæll sagði að þessi bilun hafi ekki bara tekið til símanúmera á Akureyri. Hún hafi tekið til allra stöðva sem eru tengdar í gegnum móðurstöðina á Akureyri. „Þarna er um að ræða allan Eyjafjörð, stöóvarnar á Hrafnagili, Grenivík, Hrísey, Árskógsströnd, Dalvík, Ólafsfirói og reyndar einnig Siglufirói. Þaö má skjóta á að bil- unin hafi haft áhrif á allt aó 11 þúsund notendur," sagði Ársæll. „Við hljótum að skoða hvað við getum lært af þessari bilun, en auðvitað getum við fyrst og fremst dregió þann lærdóm af þessu að reyna með öllum tiltækum ráöum að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur. Ut frá öryggissjónar- miói er mjög alvarlegt að þetta skyldi gerast, ekki síst á þessari nóttu.“ óþh Slagsmál á nýársnótt Slagsmál urðu á áramótadans- leik á Raufarhöfn. Lögreglan sagði að það hefði orðið mikið hnoð í kringum menn sem verið hefðu að takast á, þegar frænd- ur, bræður og vinir þyrptust að til að miðla málum. Engin eftir- mál urðu af þessu stappi en um klukkutíma tók að greiða úr hnútnum og keyrði lögreglan menn heim. Nokkrir þeirra er Útvarp Norðurlands: Sr. Pétur Þórarinsson Norðlendingur ársins hlut áttu að máli voru útúr- drukknir. Slökkviliðið á Raufarhöfn var kallað út sl. fimmtudag er eldur varö laus í tróði á efri hæð gamla kaupfélagshússins. Guttar voru þar að leik með skotelda eða blys, en vcgfarendur urðu eldsins strax varir og gerðu slökkviliðinu að- vart. Ekkert tjón hlaust af þar sem eldurinn uppgötvaðist svo snemma, en málið er í rannsókn. IM RAFTÆKI í MIKLU ÚRVALI Hlustendur Útvarps Norðurlands völdu sr. Pétur Þórarinsson í Laufási við Eyjafjörð Norð- lending ársins. Þetta var til- kynnt í útsendingu Útvarps Norðurlands 30. desember sl. Sr. Pétur fékk langflest atkvæði en næstur kom Gestur Einar Jón- asson, þáttagerðarmaður við Út- varp Norðurlands, Rás 1 og Rás 2. Eins og fram hefur komið, m.a. í ítarlegu viótali við Pétur sem birtist í Degi á Þorláksmessu, var hægri fótur Péturs tekinn af fyrir neðan hné í desember. Fyrr á ár- inu var vinstri fóturinn tekinn af fyrir ofan hné. Þrátt fyrir þessi gífurlegu áföll er sr. Pétur haróur af sér og hann er staðráðinn í því að láta þau ekki buga sig. Þvert á móti er hann ákveðinn í að halda sínu striki, meö dyggum stuðningi fjölskyld- unnar, annarra ættingja og vina. óþh Vöfflujárn frá 4.880,- Kaffivél frá 2470,- 0KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, slmi 23565

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.