Dagur - 06.01.1995, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. janúar 1995 - DAGUR - 7
Margir hafa verið að gera grín að
vélsleðamönnum vegna snjólcysis
það sem af er vetrar, þó reyndar
hafi ræst úr því upp á síðkastið. A
þaö ber hins vegar að líta að vél-
sleðavertíðin hefst ekki fyrr en í
janúar-febrúar, með hækkandi sól
og betra veðri, og stendur fram í
júní. I raun má segja að árleg vél-
sleða- og útilífssýning á Akureyri
um miðjan janúar marki upphafið
að vélsleðavertíðinni norðanlands.
Sýningin verður haldin helgina
14.-15. janúar, á sama stað og á
síðasta ári, í Iþróttaskemmunni á
Oddeyri á Akureyri. Þar á að vera
hægt að sjá á einum stað, flest það
sem þarf til nútíma útivistar og
skemmtunar yfir vetrartímann.
Það er ekki úr vegi að líta á
hvaóa nýjungar eru helstar á vél-
sleðamarkaðinum að þessu sinni,
en þar er af mörgu aö taka. Að
sögn sleðaumboóanna er sala þeg-
ar komin í gang og hefur víða orð-
ið einhver lækkun frá því í fyrra,
vegna stöðu dollars. Breiddin í
vélsleðunum er mikil og ættu allir
að geta fundið sleöa við sitt hæfí,
ef eitthvað er í buddunni.
Nýr ZRT 800 fær góða
dóma
Ein helsta nýjungin frá Arctic Cat
að þessu sinni er nýr sleói, ZRT
800, sem hlotið hefur afar góða
dóma erlendis. Vélin er að grunni
til sú sama og í Thundercat en
sleðinn að öðru leyti byggður á
grunni hinna rómuðu ZR keppnis-
sleða. Það er ekki síst framfjöðrun
Nýr ZRT 800 frá Arctic Cat er spcnnandi sleði og ekki spillir útlitið.
Yamaha Vmax 500 og 600 cru eins í útliti, en íslandsmcistarinn í snjókrossi
1994, Gunnar Hákonarson, ók einmitt Yamaha Vmax 500 sleða.
Margt nýtt
í vélsleða-
heiminum
Það er ekki til
eftirbreytni að
þrímcnna á véi-
sleða, enda er
hér aðcins verið
að brcgða á leik
fyrir Ijósmynd-
arann. Þar eru
þrír kunnir vél-
slcðakappar,
Pat Hauk,
Nolan Knochen-
mus og Mark
Thompson, sem
þarna sitja á
nýjum Ski-doo
MX-Z 440.
Villa í myndagátu Dags
ZR sleðana, AWS IV, sem hlotiö
hefur frábæra dóma og er án efa
ein sú besta á markaðinum. Annar
athyglisverður sleði er EXT Pow-
der Special, með löngu og sérlega
grófu belti og ýmsum búnaói sem
gerir hann t.d. hentugan sem
ferðasleða. Vélin er 580 cc mcð
tveimur 38 mm blöndungum.
Margskonar endurbætur er
einnig hægt að telja upp á „katta-
fjölskyldunni“ milli ára, t.d. nýja
vökvabremsu á alla sleða 550 cc
og stærri, EXT sleðarnir fá helstu
kosti AWS IV framfjöðruninnar
o.fl. Þá má ekki gleyma Thund-
ercat 900, stærsta verksmiðju-
framleidda sleóanum sem nú er á
markaði.
Polaris með nýja fjöðrun
Góð fjöðrun hefur löngum verið
aðalsmerki Polaris og af þeim
vettvangi eru stór tíðindi hjá Pola-
ris að þessu sinni. Nýjungin er
kölluð XTRA og fjaðrar hún 12“
að aftan og framendi sleðans getur
fjaðrar 10“. Þaó eru RXL og XTL
Special sem fá nýju fjöórunina til
að byrja með og verður fróðlegt
að sjá hvernig hún reynist.
Fyrir tveimur árum sló Poiaris í
gegn með XLT og sá sleði heldur
áfram að vera eitt aðal númerið í
’95 árgerðinni. Vélin hefur verió
stækkuð upp í 597 cc og er hún
með þremur 34 mm blöndungum.
XCR 600 er með sömu vél en 38
mm blöndunga og ýmislegt annað
góðgæti sem XCR er þekktur fyr-
ir.
Polaris kynnti nýtt útlit á sl. ári
Níels Halldórsson, höfundur
myndagátu Dags, sem birtist í
blaðinu 30. desember sl., óskaði
eftir að koma þeim upplýsingum á
framfæri að villa hafi verið í
myndagátunni um lcið og hann
biður lesendur velvirðingar á mis-
tökunum.
Níels sagði að í sjöttu myndröð
eigi eftir tákninu ÁTB að vera U
cn ekki T.
Vonandi hjálpa þessar upplýs-
ingar lesendum við að ráða
myndagátuna en rétt er að ítreka
aó lausnir skulu berast blaðinu
fyrir 26. janúar nk. Dregið verður
úr réttum lausnum og hlýtur sá
heppni að launum Audiosonic
TBS 5110 útvarps- og kassettu-
tæki frá versluninni Radíónausti á
Akureyri.
Útvegsbanka-
vísa Rósbetgs
Ekki var rétt farið meó vísu eftir
Rósberg G. Snædal sem birtist í
Degi 30. desember sl. Rétt er vís-
an þannig:
Þó að lífs míns lekahrip
liggi á botni ránar
alltafmá fá annað skip
Utvegsbanki lánar.
Polaris Indy XLT hcfur svo sannarlcga slegið í gcgn og er citt aðai númcrið
hjá Polaris, nú mcð stærri vél.
og nú koma Indy 440, 500, Class-
ic, og Trail með þessu útliti, ásamt
XLT Touring, sem án efa verður
vinsæll ferðasleði.
Ski-doo í sókn
Sennilega hefur enginn framleió-
andi tekið eins til hendinni í sinni
framleiðslu á undanfömum 2-3 ár-
um og Ski-doo. Fram á sjónar-
sviðið eru komnir algerlega nýir
sleðar sem líkað hala geysilega
vel og seljast svo grimmt vestan
hafs að íslenski umboðsaðilinn
hefur verið í vandræðum með að
fá sleða.
Ein stærsta breytingin er sú að
nú eru nær allir sleðar komnir
með nýtt útlit og fjöðrunarkerfi aö
framan, svokallaða DSA-fjöðrun,
sem fengið hefur góða dóma. Áó-
ur voru nokkur fjöðrunarkerfi í
gangi en verður núna aöeins eitt.
Ski-doo hefur einnig ráðist í sam-
ræmingu og einföldun á fram-
leiðslulínunni á fieiri sviðum sem
kemur kaupendum til góða, t.d.
samræmingu á stýrisendum,
búkkahjólum, beltislengdum o.fl.
Megin framleiðslulínur Ski-doo
eru tvær, Formula og Safari. Saf-
ari fær nú framfjöðrunina frá For-
mula og auk þess afar slaglanga
afturfjöðrun sem fjaðrar um 12“.
I l’yrra kynnti Ski-doo nýjung í
eldsneytiskerfi, HAC, sem vinnur
svipað og svokölluð bein innspýt-
ing og stjórnar bensínflæðinu með
tilliti til ytri aðstæðna. Þessi ein-
faldi og ódýri búnaður reyndist af-
ar vel og kemur nú á fleiri vélar.
Af nýjum sleðum má t.d. nefna
MX-Z með nýrri afimikilli 440 cc
vél, nýjan Mach 1 og nýja Safari
sleða.
Yamaha gerir góða
sleða betri
Gæði og áræðanleiki er það sem
Yamaha hefur gert út á í gegnum
árin og það hefur ekki brcyst.
Stærstu tíðindin að þessu sinni er
ný vél í Vmax-4, eina fjögurra
strokka sleðann á markaðinum.
Vélin var stækkuð upp í 800 cc og
Yamaha fór þá leið að búa til
nánst nýja vél í stað þess aó end-
urbæta þá sem fyrir var. Fá er-
lendir „vélsleðaspekúlantar" vart
vatni haldið yfir árangrinum og
hefur sleðinn í heild hlotið mikið
lof,
I fyrra kynnti Yamaha nýja
Vmax 500 og 600 sleða, sem
reyndust að fiestu leyti vel. Þeir
eru að mestu óbreyttir milli ára en
fá þó nýja kúplingu, YVXC, sem
framleiðandinn segir blákalt vera
þá bestu á markaðinum. Önnur
merk nýjung hjá Yamaha er stig-
laus hitastillir fyrir handföng og
bensíngjöf og því ætti engum að
vera kalt á puttunum sem fær sér
Yamaha. HA
Leikfélag Dalvíkur
sýnir söngleikinn
Land míns
föður
eftir Kjartan Ragnarsson
Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson
Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil
Aukasýning
laugardaginn 7. jan.
Sýningar eru í Ungó og
hefjast kl. 21
Miðasala kl. 17-19
sýningardaga í Lambhaga,
sími 61900, og í Ungó eftir
kl. 19 fram ab sýningu
Tekið við pöntunum í
símsvara í sama númeri
allan sólarhringinn
Aukin ökuréttindi
LEIGII - VÖRl) - HÓPBIFREIÐAR
Námskeið hefst 14. janúar.
lnnritun hjá Hreiðari Gíslasyni í símum 21141
og 985-20228 og Kristni Jónssyni í símum 22350
eða 985-29166.
Ökuskólinn á Akureyri s/f.