Dagur - 14.01.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 14. janúar 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Samnmgurmn víð
Royal Greenland
í því mikla atvinnuleysi sem hefur verið á Akureyri á
undanförnum árum er sannarlega ástæða til þess að
fagna því þegar tugir nýrra starfa skapast. Samn-
ingur Samherja hf., Strýtu hf., Söltunarfélags Dalvík-
ur hf. og Royal Greenland A/S sem undirritaður var
sl. fimmtudag felur í sér aukna úrvinnslu rækju hér
á landi og gert er ráð fyrir að hann muni skapa 30-
50 ný störf í þessum fyrirtækjum. Þetta eru einkar
gleðileg tíðindi.
Samningurinn tekur til markaðsmála og vöruþró-
unar og verður rækjunni í framtíðinni í auknum mæli
pakkað í neytendaumbúðir hér á landi. Um þetta
sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Samherja hf., í Degi í gær: „Við erum með þessu að
færa störf erlendis frá og til íslands, því rækju sem
íslendingar selja erlendis, hefur nánast eingöngu
verið pakkað erlendis í neytendapakkningar. “
Hér er verið að stíga mikilsvert skref. Aukið verð-
mæti er skapað úr hráefninu og það þýðir aukna
vinnu og aukna veltu fyrirtækjanna sem aftur skilar
sér í beinhörðum peningum í þjóðarbúskassann.
Aukin fullvinnsla er ekki raunhæf nema því aðeins
að markaðs- og sölumálin séu í lagi. Þess vegna er
mikilvægt að Royal Greenland, eitt stærsta fyrirtæki
sinnar tegundar í Evrópu, sé aðili að þessum samn-
ingi. Það styrkir málið ótvírætt. Velta Royal Green-
land var á síðasta ári 28 milljarðar íslenskra króna,
sem er ekki af ósvipaðri stærðargráðu og velta
stærstu hérlendra sölusamtaka, Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna.
Umræddur samningur vekur upp spurningar. Er
það ekki einmitt á sviði fullvinnslu sjávarafurða sem
möguleikar okkar liggja? Vissulega bendir margt til
þess að svo sé. í því atvinnuleysi sem þjóðin hefur
staðið frammi fyrir á undanförnum misserum og ár-
um er það skylda forsvarsmanna sjávarútvegsfyrir-
tækja og sölusamtaka að leita allra leiða til þess að
vinna eins mikið hér heima úr sjávarfanginu og
kostur er. Samningur Samherja, Strýtu, Söltunarfé-
lags Dalvíkur og Royal Greenland er athyglisvert
innlegg inn í þá umræðu.
I UPPAHALDI
Teikningar finnskra
unglinga á
veggjum Síðuskóla
Nú stendur yfir í Síðuskóla á
Akureyri athyglisverð sýning á
teikningum unglinga frá Finn-
landi sem nefnist „Til íslands á
vængjum hugarflugsins“. Nor-
ræna upplýsingaskrifstofan
stendur fyrir sýningunni.
Á haustdögum 1993 voru
haldnir Islandsdagar í Mið- og
Austur-Finnlandi, farið var í ýmsa
skóla og ísland kynnt rneð fyrir-
lestrum, ljósmyndum, myndbönd-
unt o.fl.
Eftir þessa kynningu fór hugar-
flug 14-16 ára nemenda grunn-
skólans í Kotka í Finnlandi af stað
og myndirnar á sýningunni í Síðu-
skóla er hluti afrakstursins. At-
hyglisvert er að unglingarnir sem
teiknuðu og máluðu þessar mynd-
ir hafa ekki komið til Islands.
Það var myndmenntakennarinn
Leea ilkka-Salonen í Karhuvuori
skólanum sem hafði veg og vanda
aó undirbúningi sýningarinnar.
Hún er einnig formaður Norræna
fclagsins í Kotka.
Sýningin var opnuð 10. janúar
sl. og hún stendur til 21. janúar.
óþh
Iiörnin í Síðuskóla ásamt Snorra
Guðvarðssyni, kennara, skoða af
niiklum áhuga myndlist finnskra
unglinga.
„Þetta er áhugaverð út-
færsla,“ gæti þessi ungi myndlist-
arunnandi verið að segja.
Glaðbeittur hópur 9 og 10 ára
krakka í Síðuskóla á Akureyri
ásamt kennara sínum, Snorra
Guðvarðssyni. Á veggnum fyrir
aftan þau er sú mynd sem krakk-
arnir hafa mcstar mætur á.
Robyn.