Dagur - 14.01.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. janúar 1995 - DAGUR - 5
Kvöldið var ævintýri
í desember var efnt til eftirrétta-
samkcppni á vegum Rásar 2 og
Ríkisútvarpsins. Keppt var um
uppskriftina aö besta áramótaeftir-
réttinum. Þaö er skemmst frá því
aö segja aö þaö var Sverrir Páll
Erlendsson, kennari í Menntaskól-
anum á Akureyri, sem bar sigur úr
bítum en yfir eitt hundrað upp-
skriftir bárust dómnefnd keppn-
innar.
Þetta er í þriöja sinn sem þessi
keppni er haldin meö þeim hætti
sem nú er og eru verðlaunin marg-
rétta glæsilegur veislukvöldverður
aö heimili vinningshafans. Þaö
eru þeir Oskar Finnsson og Ingvar
Oskar, Ingvar og Birkir Þór Elmarsson mættir í cldhúsið hans Sverris Páls.
Sigurðsson á Argentínu Steikhúsi
sem sjá unt kvöldverðinn og er
þetta í þriðja sinn sem þeir halda
vinningshafa, í samkeppninni um
besta áramótaeftirréttinn, veislu.
Matarveislan fer ávallt frarn að
kvöldi þrettándans og þann 6.
janúar síöastliðinn kontu í fullunt
skrúóa frá Reykjavík Oskar, Ingv-
ar og Birkir Þór Elmarsson veit-
ingastjóri á Carpe Diem, sem sá
um að þjóna Sverri Páli og gestum
hans til borös.
Sverrir Páll, gestgjafinn sjálfur,
þurfti aöeins aö opna útihurðina
og vísa þremenningunum á eld-
húsið í Asvegi 29, síðan gat hann
notið kvöldsins með gestum sín-
um áhyggjulaus. Sverrir Páll er
fæddur og uppalinn á Siglufnði,
fyrrverandi nemandi í Mcnnta-
skólanum á Akureyri og, eins og
áður sagði, núverandi kennari þar.
Hann cr ógiftur og bamlaus og
býr einn en þó hafa iðulega verið
leigjendur eða kostgangarar hjá
honum í Asveginum.
„Eg er húsbóndinn og húsmóó-
irin á mínu hcimili og það var
fyrst á föstudaginn sem einhver
annar en ég fékk að vinna í eld-
húsinu mínu. Eins og sjá má á mér
er ég fjarskalega mikill matar-
geröarmaður. Eg kann hins vegar
lítið með uppskriftir að fara enda
alinn upp í eldhúsi móður minnar
og kann því ekki að baka pönnu-
kökur nema eftir tilfinningu. Eg er
þó cand pott, cand ger og cand
grill frá Hússtjómarskólanum á
Akurcyri, en þar sótti ég námskeið
hjá Margréti Kristinsdóttur. Svo
(i {’/HÍ/aU/Ht-
matsemll
-fiHttm'í’ií/í/ui' (t(ffeimi/i
(JiieivvW f//áfs ólfatu/ai1
Humar í kampavínssósu
mlmelónukúlum
- borðvín: Chardonnay Bin 65
Grafin gœsabringa mlrúsínu-
sósu
- borðvín: Hunt's portvín
Gulrótarseyði m/reyktum
kjúklingabitum
- borðvín: Vina Cumrero
Smjörsteikt kálfabris mlMa-
deiraskvettu
- borðvín: Vina Cumrero
Bláberjaískrap
Heilsteikt nautalund mlpecan
Burbonsósu
- borðvín: Chateau la Fleur
Bonnet
Sítrónuterta mlferskum ávöxt-
um
- borðvín: St. Héléne
Kajfi og heimalagað konfekt
Sverrir Páll var himinsæll mcð
kvöldið, „það var ógleymanlegt,“
sagði höfundur Myntudraumsins.
hef ég líka farið á námskeið í Ind-
verskri matargerðarlist hjá Surek-
hu Datye og það er með því
skcmmtilegra sem ég hef gert í
þessu fagi.
Eg hef rnjög gaman af vel
krydduðunt mat og eftir því sem
árin hafa lióið þá hef ég til dæmis
ekki skilið hvernig menn fóru að,
hér á öldum áður, að búa til mat
án þess að hafa hvítlauk. Hvít-
laukur er afskapleg bragðgóður og
lyktarlaus, þaö er bara hjátrú að
það sé lykt af hvítlauk!“
- Nú eru verðlaunin í þessari
samkeppni nokkuð óvenjuleg, var
þetta ekki ánægjulegt kvöld?
„Þessi verólaun voru mjög
óvenjuleg en jafnframt stórkostleg
og kvöldið var óviðjafnanlegt og
ógleymanlegt, ábyggilega mörg-
um sinnunt skemmtilegra en viku-
ferð til Flórída.
Þessir þremenningar sent sóttu
mig heint eru listamenn á sínu
sviði cn auk þess ljúfir og indælir
menn. Matseðillinn var snilldar-
lega saman settur af þeim Oskari
og Ingvari. Hver réttur fyrir sig
var frábærlega bragðgóður og fal-
lega borinn fram og vínið sem
veitt var með hverjum rétti fyrir
sig var svo viðeigandi sem mest
mátti verða, þctta var fullkomin
heild. Til dæmis var grafna gæsa-
bringan, sem var dálítið ntikið
piparkrydduó meó koníaksrúsínu-
sósu, einkar ljúffeng og þegar
portvínið kom nteð varð til eins
konar ævintýri inn í manni.
Þetta var langt borðhald, það
hófst klukkan sjö og klukkan var
töluvert gengin í eitt þegar okkur
var boðið að ganga til stofu og fá
okkur kaffi og konfekt, en kvöldið
leið eins og andartak, það var un-
aðsstund," sagði Sverrir Páll, sæll
og glaður.
Til kvöldverðarins bauð hann
Arna Sveini Sigurðssyni kennara í
Menntaskólanum og konu hans
Margréti Jónsdóttur, aðstoðar-
skólameistara Menntaskólans,
Höllu Báru Gestsdóttur stjórn-
málafræðinema við Háskóla Is-
lands og Tryggva Birni Davíðs-
syni nemanda í hagfræði við sama
skóia, en hann er gamall heimilis-
maður í Asveginum, og Finni
Friðrikssyni, sem er við nánt í
ensku í Edinborgarháskóla. KLJ
Þau nutu gómsætra kræsinga og Ijúfra vciga, Árni Sveinn og Margrét.
Birkir Þór færir Höllu Báru einn af réttunum sjö og Tryggvi Björn bíður
spcnntur cftir að röðin komi að honum.
'Æuntucf/Huvniu*'
t i'oe/'/'/W (Ads
/. oe/'día////
1 dl rjómaostur
2 stk. egg
8-10 msk. flórsykur
1-2 tsk. vanilludropar
200 g suðusúkkulaði
Vi I rjómi
10-12 plötur Afier Eight eða
sambœrilegt piparmyntusúkku-
laði.
Súkkulaðið brœtt og hellt smátt
og smátt út í á meðan hrœrt er.
10-12 plötur af After Eight eru
brytjaðar nokkuð smátt og settar
saman við. Best er að bregða
þeim í frysti um stund áður en
þœr eru brytjaðar svo þœr kless-
ist ekki. Rjóminn er stífþeyttur
og honum blandað varlega sam-
an við allt hitt.
Rjómaosturinn er hrœrður
vel svo hann verði kekkjalaus.
Eggin eru þeytt rœkilega ásamt
flórsykri og vanilludropum. Best
er að þeyta eggjarauðu og hvítu
sitt í hvoru lagi og blanda þeim
síðan saman. Eggjahrœrunni er
blandað saman við ostinn.
Berið Myntudrauminn fram í
eftirréttarskálum og stingið
einni plötu af After Eight á
hornið ofan t. Svolítilli slettu af
þeyttum rjóma ogleða smákúlu
af vanilluís bœtt í skálina til
skrauts og bragðbœtis.
//(//ii/ic,s/i /ia/ia
2. oc/'<f(//////
f/(/<í/'(é<z/' f/óJhz/i//,'í</ó f///', j\/es/uu//x'itaé
200 g fersk jarðarber
200 g blá vínber
2 stk. ferskjur
200 g makkarónukökur
2 dl sýrður rjómi
2 msk. púðursykur
Jarðaber og vínber skorin
sundur og kjarnahreinsuð,
ferskjurnar skornar í bita. Þessu
er raðað í eldfast mót og makka-
rónukökunum raðað yfir, sýrði
rjóminn þeyttur létt með gaffli
og smurður yfir. Látið standa í
kœli, helst yfir nótt. Þá er púð-
ursykrinum stráð yfir og formið
sett undir grill þar til allt er
orðið heitt og púðursykurinn
bráðnaður.
{frí/i/iv^ { /*o/n/nsósii/
S. oc/hÍJc/////
fZJa/'c/t (/fÁz//n(fz//sf, , {/izz/'c/j/'<
450 gfikjur
2 bollar vatn
'/ tsk. anís, steyttur
'Z bolli sykur
Z bolli dökkt romm
Stönglarnir skornir af fikjun-
um og lagðir í bleyti í 3-4 klst.
Anísinn settur saman við fíkjurn-
ar og þetta soðið í 45 mín. Síð-
ustu mínúturnar er sykrinum
bœtt út í. Þetta er kœlt og romm-
inu bœtt í. Boriðfram með þeytt-
um rjóma eða heimatilbúnum
vanilluís.
Best er að gera þennan rétt
1-2 dögum áður en hans er neytt
svo anísinn og rommið hafi
fengið tíma til að krydda réttinn
vel.
Kaffíhlaðborð
álla sunnudaga
Lindin við Leiruveg
sími 21440.
^_______________________r
Arnarnesshreppsbúar
burtfluttir og búandi
Þorrablótið
okkar er laugardaginn 21. janúar kl. 20.30
aö Hlíðarbæ.
Miðapantanir í símum 21954 og 27790 á kvöldin.
Pantið tímanlega til að auðvelda niðurröðun á borðin.
Sjáumst hress og kát.
Nefndin.