Dagur - 14.01.1995, Side 20
Ágætur afli á innfjarðarrækju í upphafi ársins:
„Alit að ekki komi til aukningar a
núverandi rækjukvóta á Öxarfirði"
- segir Kristján Þ. Halldórsson, framkvæmdastjóri Gefiu hf.
Innfjarðarrækjuveiði er hafln
á öllum innfjörðum norðan-
lands eftir uppihald síðan fyrir
jól og hefur aflinn víðast verið
ágætur. Húni HU fór á veiðar á
Húnaflóa í byrjun vikunnar og
aflaði sæmilega í upphafi en síð-
an hafa aflabrögð verið fremur
dræm. Vinnsla hófst í gær hjá
rækjuverksmiðjunni Særúnu hf.
á Blönduósi, og er jafnframt ver-
ið að vinna frosna úthafsrækju.
Fjórir úthafsrækjubátar landa
hjá Særúnu hf., Nökkvi, Gissur
hvíti, Ingimundur gamli og Dag-
fari, og eru þeir allir komnir á
veiðar að Gissuri hvíta undan-
skildum. Veiði hefur verið fremur
treg, en flest skipin halda sig í
Eyjafjarðarálnum eða austur með
Norðurlandi.
Vinnsla er byrjuð hjá Meleyri
hf. á Hvammstanga og hjá Hólma-
drangi hf. á Hólmavík og á
Drangsnesi, en um sl. áramót var
rekstur útgerðarfyrirtækisins
Hólmadrangs hf. og hraðfrysti-
húss Kaupfélags Steingrímsfjarðar
sameinaður undir nafni Hólma-
drangs hf. Nk. þriðjudag hefst
rækjuvinnsla hjá Hólanesi hf. á
Skagaströnd eftir uppihald um jól
og áramót, en tíminn hefur verið
notaður til aó framkvæma nokkrar
endurbætur og viðhaldsaögerðir í
verksmiðjunni.
Aðeins var unnið í einn dag
Þróunarsjóður sjávarútvegsins:
milli jóla og nýárs hjá rækjuverk-
smiöjunni Geflu hf. á Kópaskeri
og síðan var byrjað aftur 5. janúar
sl. Mikil ótíð á Öxarfirði hefur
heft sókn rækjubátanna en veiðst
ágætlega þegar gefið hefur. A
rækjuvertíðinni er búió að veiða
um 400 tonn af 1.450 tonna kvóta
sem gefinn var út á Öxarfirði. Þeir
bátar sem stunda rækjuveióar á
Öxarfirði eru Kristey frá Húsavík,
Þingey frá Kópaskeri og Þorsteinn
og Öxarnúpur frá Raufarhöfn.
Vinnsla hófst hjá Rækjuvinnslu
Dögunar hf. á Sauóárkróki sl.
mánudag og var bæói byrjað aö
vinna innfjarðarrækju og eins af
Haferninum sem er á úthafsrækju.
Aflabrögð hafa verið ágæt á
Skagafirðinum nú í byrjun árs, en
rækjan hefur verið fremur smá,
hefur farið allt upp í 300 stk/kg,
en var 230 til 250 stk/kg. Búið er
að veiða rétt um 200 tonn af 540
tonna rækjukvóta á Skagfirði af
þeim bátum sem leggja upp hjá
Dögun hf„ en Berghildur á Hofs-
ósi hefur aflað um 90 tonn, sem
landað er til vinnslu hjá rækju-
verksmiðju Þormóðs ramma hf. á
Siglufirði.
Vinnsla hófst í lok síðustu viku
hjá rækjuverksmiðju Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur og var byrjað að
vinna frosna rækju. Fyrsta úthafs-
rækjulöndunin eftir áramót var
svo um sl. helgi en fyrsti innfjarð-
arrækjubáturinn, Aron, hóf svo
veiðar sl. sunnudag og kom að
landi með 6 tonn. Aðrir bátar hófu
svo veiðar í þessari viku og hafa
aflað þokkalega, allt upp í 4 tonn
á bát eftir daginn.
Hafrannsóknastofnun mun
væntanlega fara í nýjan rannsókn-
arleiðangur á næstu vikum og að
honum loknum verður ástand
rækjustofnanna á Öxarfirði,
Skjálfandaflóa, Skagfirði og
Húnaflóa endurskoðað og hugsan-
lega verður þá aukið við kvótann
einhvers staðar en látið óhreyft á
öðrum veiðisvæóum.
Kristján Þ. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Geflu hf, segir það
vera sitt mat að ekki komi til
aukningar rækjukvóta á Öxarfirði,
kannski snúist spurningin meira
um það hvort raunhæft sé aó halda
sig við útgefinn rækjukvóta að
fengnum nióurstöðum úr rann-
sóknunum. GG
Þrír styrkir til norð-
lenskra skipaeigenda
- að upphæð 40
róunarsjóður sjávarútvegs-
ins samþykkti á fundi sfnum
12. janúar sl. 18 umsóknir um
styrk vegna úreldingar, alls að
upphæð kr. 466.726.000. Af-
greiðslu nokkurra umsókna var
frestað þar sem vantaði form-
lega staðfestingu á vátryggingar-
mati viðkomandi skipa.
I þeim hópi eru nokkrir togarar
eða togskip, m.a. Hópsnes GK-77
í Grindavík, sem byggt er 1990,
Kofri ÍS-41 frá Súðavík, sem er
byggður 1984, Skúmur ÍS-322 frá
2 milljónir króna
Hafnarfírði, byggöur 1987 og
Kristbjörg ÞH-44, eign Korra hf. á
Húsavík, en útgerðin fær 39,2
milljónir króna í úreldingarstyrk.
Önnur norólensk skip eða bátar
sem samþykktir voru eru Torfi
ÓF-39, 3 tonna bátur í eigu H.
Kristjánsson hf. í Ólafsfirði, sem
fær 188 þúsund og Glæsir ÞH-
266, 4 tonna bátuf í eigu Hlyns Þ.
Ingólfssonar á Raufarhöfn, sem
fær 795 þúsund krónur í úrelding-
arstyrk. GG
Arni Steinar í 2. sætið?
Eg get staðfest að ég hef verið í
viðræðum við Alþýðubanda-
Iagið,“ sagði Árni Steinar Jó-
hannsson, umhverfisstjóri Akur-
eyrarbæjar, um þann þráláta orð-
róm að hann skipi annað sæti Al-
þýðubandalagsins á Norðurlandi
eystra fyrir næstu alþingiskosn-
ingar.
Ámi vildi ekki staðfesta að hann
næstu viku með Ögmundi Jónas-
syni í Reykjavík en eins og fram
hefur komið hefur hann verið orð-
aður við lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík og myndi hann þá taka
sæti á honum sem óháður einstak-
lingur.
Ami Steinar Jóhannsson skipaði
efsta sæti á lista Þjóðarflokksins á
N. e. fyrir síðustu kosningar. óþh
verði í öðm sæti en hins vegar taldi
hann miklar líkur á að af þessu
samstarfi yrði og þá yrði það undir
þeim formerkjum að hann tæki sæti
á listanum sem óháður einstakling-
ur. Ámi Steinar sagðist eiga fund í
O HELGARVEÐRIÐ
Veðurfræðingar Veðurstof-
unnar spá kólnandi veóri,
norólægri átt og éljum á
Norðurlandi í dag. Á morg-
un er spáð áframhaldandi
norðan- og norðaustanátt
og éljagangi, frostið getur
farið upp í 16 stig. Á mánu-
daginn er spáð hvassri
norðaustanátt og snjókomu
eða éljagangi. Þá verður
frostiö 1-10 stig.
r—n
C-634 XT
þvottavél
18 þvottakerfi
5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
Rústfrír pottur
Frábærtverð 39.900,-stgi
CKAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 23565
T
lUýr umboðsaðili á Akureyri:
*M STRAUMRÁS
Furuvöllum 3 • Sími 12288 • Akureyri