Dagur - 25.01.1995, Blaðsíða 1
Skandia
Lifandi samkeppni
W - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 12222
Jón Ingvarsson, stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna:
Viljum samning um viðskipti til framtíðar
- yfirgnæfandi líkur á að kaup á hlutabréfum í Slippstöðinni ráðist af niðurstöðu ÚA-málsins
Jón Ingvarsson, stjórnarfor-
maður SH, segir alveg Ijóst að
hugmyndir Sölumiðstöðvarinnar
um ný atvinnutækifæri á Akur-
eyri séu bundnar því að SH hafi
trygg viðskipti við ÚA til fram-
tíðar.
„Eins og um þetta mál hefur
verið fjallað er að mínu mati ekki
óeðlilegt að bæjarstjóm Akureyrar
fari þess á leit við stjóm félagsins
að hún geri samning við Sölumið-
stöðina. Þetta hlýtur aó vera
samningur milli Útgerðarfélagsins
og SH. Við viljum að þetta atriði
verði tryggt, að menn séu ekkert
að velkjast í vafa. Þetta samstarf
hefur gengió vel í 30 ár og það
hefur eins og margoft hefur komið
fram verið mat forráðamanna Út-
gerðarfélagsins að söluhagsmun-
um félagsins væri best komið hjá
Sölumiðstöðinni,“ sagði Jón.
Útspil Sölumiðstöðvarinnar í
bréfi hennar til bæjaryfirvalda
varöandi kaup nokkurra aðila, þar
á meðal Jökla hf. - dótturfyrirtæk-
is SH, á meirihluta hlutabréfa í
Slippstöðinni, hefur vakið mikla
athygli. Spurningin er sú af hverju
Sölumiðstöðin sér sér hag í því að
fara inn í rekstur Slippstöðvarinn-
ar?
„Við höfum leitað allra leiða
með hvaða hætti við getum stuðl-
að aó eflingu atvinnulífs á Akur-
eyri. Slippstöóin hefur gengið í
gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu og á undanfömum mán-
uöum hefur ýmislegt jákvætt verið
að gerast í rekstri þessa félags. En
viö vitum að rekstur Slippstöðvar-
innar hefur ekki verið tryggður,
þama hefur Landsbankinn átt öll
bréfin. Við sáum þarna tækifæri
til að stuðla aó því aó Slippstöðin
gæti verið arðbært fyrirtæki og því
trúum við,“ sagði Jón.
- Gengur það ekki eftir að
þessir aðilar, Jöklar hf, DNG og
Málning hf kaupi meirihluta
hlutabréfa í Slippstöðinni?
„I fyrsta lagi viljum vió sjá
hvernig þessu máli reiðir af og
Handverks- og tómstundamið-
stöðin Punkturinn á Akur-
eyri er eins árs í dag, 25. janúar.
Af því tilefni tekur „afmælisbarn-
ið“ á móti gestum frá kl. 10-21 í
dag.
síðan hlýtur það aö vera mikils-
verð forsenda fyrir þessum kaup-
um að það náist hagkvæmir samn-
ingar við bæjaryfirvöld á Akur-
Forsvarsmenn Punktsins hvetja
alla bæjarbúar og nærsveitamenn til
að nota tækifærið og kynna sér
starfsemi Punktsins, sem er til húsa
á Gleráreyrum þar sem Sambands-
verksmiðjumar voru áður. Hand-
eyrar um notkun á þessari flot-
kví.“
- Skil ég það rétt að efákveðið
verður að flytja viðskipti ÚA frá
ársídag
verks- og tómstundamiðstöðin er
öllum opin alla virka daga frá
klukkan 10-17 og á mánudögum er
einnig opið klukkan 19- 22. Nánar
verður fjallað um Punktinn í næsta
helgarblaði Dags. KLJ
Sölumiðstöðinni yfir til íslenskra
sjávarafurða, þá muni Slippstöðv-
ardœmið ganga til baka?
„A þessari stundu vil ég ekki
slá einu eða öðm föstu um það.
Hins vegar gefur það augaleið að
þetta hangir allt meira eða minna
saman. Það segir sig sjálft,“ sagði
Jón Ingvarsson. óþh
Fjalar hf. á Húsavík:
Borg hf.
leigir
reksturinn
Starfsemi er hafin á ný í hús-
næði Fjalars hf. á Húsavík
en samkvæmt heimildum Dags
tók Borg hf. reksturinn á leigu
um helgina en það fyrirtæki er
einnig í eigu Gunnars B. Salom-
onssonar, framkvæmdastjóra
Fjalars. Þessi tvö fyrirtæki voru
einmitt sameinuð fyrir tæpum
þremur árum síðan.
Meirihluti starfsmanna Fjalars
hcfur verið ráðinn hjá Borg hf. og
hóf störf sl. mánudag. Hins vegar
eru málefni Fjalars hf. enn óleyst
og fyrirtækió skuldar m.a. lífeyr-
issjóðsgjöld starfsmanna og laun
fyrir desembermánuð. Afram er
lcitað leiða til lausnar á erfiðleik-
um Fjalars en á þessari stundu er
framtíð fyrirtækisins óviss.
Dagur náði sambandi við
Gunnar B. Salomonsson, fram-
kvæmdastjóra Fjalars í gær. Hann
hafði ekkert um málió að segja á
þessari stundu en sagði að boðað
yrði til blaðamannafundar í vik-
unni. KK
[ Punktinum eru bæði vcfstólar og vcfgrindur til myndvcfnaðar til reiðu, þcssar konur voru að hefjast handa við
vcfnaðinn þegar Ijósmyndara Dags bar að garði í Punktinum í gær. Mynd: Robyn
Akureyri:
Punkturinn er eins
Margfeldisáhrifin meiri okkar megin
segir Benedikt Sveinsson, framkvæmdastjóri íslenskra sjávarafurða hf.
Nú þegar Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hefur lagt sín
spil á borðið hljóta menn að bera
hennar útspil saman við tilboð
íslenskra sjávarafurða. Benedikt
Sveinsson, framkvæmdastjóri
ÍS, segir ljóst að þeirra tilboð um
að flytja IS í heilu lagi til Akur-
eyrar standi. Þar sé alveg ljóst
hvað verið sé að tala um. Að
hans mati eru svokölluð marg-
feldisáhrif, þ.e. ýmiskonar óbein
jákvæð áhrif á atvinnulíf á
svæðinu, mun meiri samfara
flutingi ÍS en hluta af starfsemi
SH. Einnig sé ljóst að í lok þess-
arar viku þurfí stjórn ÍS að taka
ákvörðun um framtíðar stað-
setningu höfuðstöðvanna.
„Eg held að það hljóti að vera
öllum ljóst aó hefði ÍS ekki boðist,
af fúsum og frjálsum vilja, til þess
aö fara noróur til Akureyrar með
sínar höfuðstöðvar, þá væru lík-
lega engin tilboð á borðinu í dag.
Það er kannski mergurinn málsins.
Við vildum kanna hvort áhugi
væri fyrir því að ÍS kæmi norður
og tæki að sér viðskipti fyrir ÚA.
Eg held að okkar boð sé ákaflega
hreint og beint, einfaldlega að IS
flytji norður og starfi þar í fram-
tíðinni. Þar er öllum ljóst hvaó
verið er að tala um, sagði Bene-
dikt.“
- Sýnist þér að SH sé að bjóða
betur en þið?
„Það er kannski ekki mitt að
meta það. En ef við rifjum þetta
upp, þá bjóðumst við til að koma
norður með okkar höfuðstöðvar.
Hjá okkur starfa 66 manns og við
munum væntanlega auka umsvifin
og þar með fjölga fólki ef við-
skipti við ÚA bætast við. Eins
hefur oft ekki verið talið með aó í
þróunarsetrinu hjá okkur vinna 10
manns, sem er fyrir utan þessa
tölu. Inn í þetta kemur líka vöru-
söfnun og dreifing. Akureyri sem
miðstöð flutninga er því ein af af-
leiðingunum af flutningi okkar
norður og hluti af þessum marg-
feldisáhrifum sem við erum að
tala um.“
- I sambandi við þesssi svo-
kölluðu margfeldisáhrif. Hvaða
störf gœti verið um að rœða sem
myndu skapast vegna flutnings
höfuðstöðva ÍS?
„Með fullri virðingu fyrir SH,
þá held ég aö það sé alveg ljóst að
mun fleiri myndu eiga erindi við
höfuóstöðvar ÍS en útibú frá SH.
Margfeldisáhrifin þess vegna eru
því að mínu mati mun meiri okkar
megin. Kannski er rétt aó hafa það
í huga að okkar viðskipti við
framleiðendur á Noröur- og Norð-
austurlandi eru mjög mikil. Það
svæði myndi því allt tengjast sam-
an.
Varðandi umbúðaframleiðslu,
þá kaupum við okkar þjónustu í
þeim efnum af öðrum, en eflaust
myndu þeir sem okkur þjóna vilja
styðja vel við bakið á okkur. Eg
get ekki orðað það öðruvísi en al-
mennt.“
- Hvað með tengingu við Há-
skólann á Akureyri?
„Það er alveg augljóst að sam-
vinna vió Háskólann yrði mikil og
er raunar þegar í gangi. Hún
myndi hins vegar aukast mikió,
því þannig gerist þetta þegar menn
eru komnir í sama bæinn.“
- Nú hefur SH boðist til að
styrkja aðrar atvinnugreinar á
Akureyri, m.a. beita sér fyrir
kaupum á meirihluta í Slippstöð-
inni-Odda. Hefur IS eitthvað slíkt
íhuga?
„Það hefur ekki verið upp á
okkar boröi að kaupa Slippinn.
Við höfum stundum verið gagn-
rýndir fyrir að leggja fjármuni í
framleiðslufyrirtækin okkar, en
höfum gert það samt. Sumir gera
það síóur og leggja þá sína pen-
inga í slippa.“
- Hvað getið þið beðið lengi
með ákvarðanatöku varðandi
fiutning höfuðstöðvanna?
„Vió eigum að vera búnir að
rýma húsnæðió hér 1. ágúst og
höfum því sex mánuði. í lok þess-
arar viku munum við taka okkar
ákvarðanir, verði aðrir ekki búnir
að því fyrir okkur. Sérstaklega
starfsfólksins vegna þá getum við
ekki látió hlutina danka. Við verð-
um að sýna fulla ábyrgð í því.
- Er einhver önnur staðsetning
á höfuðstöðvum fyrirtœkisins upp
á borðinu?
„Þaö er áhugi fyrir því hjá
mörgum að fyrirtækió verði áfram
syðra. Viö erum að fara yfir svæð-
iö, Reykjavík-Kópavogur-Hafnar-
fjörður og könnum hvar best væri
að setja fyrirtækið niður,“ sagði
Benedikt að lokum. HA