Dagur - 22.02.1995, Blaðsíða 11

Dagur - 22.02.1995, Blaðsíða 11
IÞROTTIR Miðvikudagur 22. febrúar 1995 - DAGUR - 11 SÆVAR HREIÐARSSON Stórleikur í blaki í KA-heimilinu í kvöld: KA mætir HK í fjögurra liða úrslitum bikarkeppninnar Glæsilcgur hópur fímlcikastúlkna úr FRA með vcrðlaun sín. Þjálfari þeirra, Hanna Dóra Markúsdóttir, stendur lengst til vinstri í öfíustu röð. Mynd: Robyn. Fimleikastjörnur að norðan - sneru heim með 30 verðlaun í kvöld kl. 20.00 fer fram stór- leikur í blaki karla í KA-heimil- inu á Akureyri. Þar mætast heimamenn í KA og HK úr Kópavogi, í fjögurra liða úrslit- um bikarkeppni Blaksambands- ins. Liðið sem fer með sigur af hólmi, mætir annað hvort ÍS eða Stjörnunni í úrslitaleik en þau lið eigast einnig við í kvöld. „Þetta verður án efa hörkuleik- Akureyrarmót í vélsleðaakstri: Garðbæing- urinn bestur Garðbæingurinn Sigurður Gylfason kom sá og sigraði á Akureyrarmótinu í vélsleða- akstri sem BA stóð fyrir sl. iaug- ardag. Sigurður vann þrenn gullverðlaun af fjórum mögu- legum og eitt silfur. Keppt var í tveimur keppnisgreinum, braut og krossi, og í tveimur flokkum auk unglingaflokks. Hjálmar Guðmundsson á Yamaha hafði talsverða yfirburói í unglingaflokki (15-17 ára) og sigraði bæði í braut og crossi. Sig- urjón Jónsson á Polaris varð annar í báðum greinum og Rögnvaldur Harðarson á Arctic Cat þrióji. I -550 cc flokki í krossi sigraði Siguróur Gylfason á Ski-doo, Stefán Alfsson á Polaris varð ann- ar og Halldór Einarsson á Ski-doo þriðji. Sigurður Gylfason keppti einnig í stærri flokknum, +550 cc og þar á Polaris. I krossinu börð- ust þeir hart um sigurinn Sigurður Gylfason og Vilhelm Vilhelms- son, einnig á Polaris. Hafði Vil- helm betur að lokum. Sveinn Sig- tryggsson á Arctic Cat varð þriðji. I brautarkeppni sigraói Sigurð- ur í báðum stærðarflokkum á Ski- doo og Polaris. Stefán Alfsson náði í silfurverðlaun í minni flokknum í brautinni líkt og í crossinu og Finnur Aðalbjömsson á Ski-doo varð þriðji. í stærri flokknum í brautinni hirti Sveinn Sigtryggsson á Arctic Cat silfrið og Vilhelm Vilhelmsson varð þriðji. Innanhússknattspyrna: Góður árangur KA-manna Knattspyrnumenn úr KA gerðu góða ferð á höfuðborgarsvæðið um helgina og þá fór fram úr- slitakeppni yngri flokka á ís- landsmótinu í innanhússknatt- spyrnu. KA-menn höfnuðu í þriðja sæti, bæði í 2. og 3. flokki. Breiðablik varð Islandsmeistari í 2. flokki karla, eftir sigur á KR 9:2 í úrslitaleik en Keflvíkingar fögnuðu sigri í 3. flokki karla, eft- ir sigur á Víkingi 5:3 í úrslitaleik. í 4. flokki karla varð Fylkir Is- landsmeistari, eftir sigur á Val 2:1 í úrslitaleik en í 5. flokki fögnuðu Víkingar sigri, eftir 5:0 sigur á Leikni í úrslitaleik. Afturelding varð íslandsmeist- ari í 2. flokki kvenna, lagói Stjömuna í úrslitaleik, 2:1, KR sigraði í 3. flokki kvenna, eftir 1:0 sigur á Val og Stjaman sigraói í 4. flokki kvenna, eftir 3:2 sigur á Haukum í úrslitaleik. ur og þeir mæta trúlega með nýjan bandarískan leikmann til leiks í kvöld,“ sagði Pétur Olafsson, fyr- irliði KA í samtali við Dag. Pétur á við meiðsl að stríða og er óvíst hvort hann leikur í kvöld. Þá er rússneski þjálfari liðsins einnig meiddur og hann leikur ekki blak á ný fyrr en næsta haust. KA-menn hafa átt misjöfnu gengi að fagna í leikjum sínum við HK í vetur. Þeir lögðu HK- menn að velli í leik liðanna í haust en hafa síðan tapað tvívegis fyrir þeim. „Við stefnum aö sjálfsögóu að því að komast í úrslitaleikinn. Við höfum verið óheppnir í vetur og það yrði því uppreisn æru að ná því takmarki og við eigum reyndar enn möguleika á báðum bikurunum, þ.e. í deild og bikar,“ sagði Pétur. KA lék til úrslita um bikarinn árið 1992 og lagði þá Reykjavíkur Þrótt að velli, 3:2 í æsispennandi leik. Kvennalið KA er einnig í fjögurra liða úrslitum bikarkeppn- innar og mætir ÍS fyrir sunnan eft- ir viku. Eins og sagt var frá á íþrótta- síðu blaðsins í gær þá stóðu flm- ieikastúlkur úr FRA sig frábær- lega á Skrúfumóti Fimleikasam- bandsins um helgina. Tuttugu stúlkur frá Akureyri tóku þátt í mótinu og snéru þær heim með þrjátíu verðlaun. Keppt er í þremur þrepum og aldursflokkum og eru æfingamar erfiðari eftir því sem þrepin eru fleiri. Bestum árangri Akureyr- inga náði Halla Sigríóur Bjark- lind, sem fékk hæstar einkunnir fyrir gólfæfingar, á trampolíni og í stökki auk þess sem hún fékk bronsverólaun á dýnu. Þessi ár- angur tryggði henni öruggan sigur í samanlagðri keppni á þriðja þrepi keppenda 15 ára og eldri en þess ber aó geta aó hún fékk 9,70 í einkunn fyrir stökk sitt af tramp- ólíni. í þessum sama flokki var önnur Akureyrarmær í öðru sæti samanlagt. Hulda Guðmundsdóttir fékk silfur á gólfi og á trampolíni og það tryggói henni annað sætið. Þá fékk Sandra Halldórsdóttir silf- ur á dýnu fyrir æfingar upp á 9,00 í 3. þrepi fiokki 14 ára. Þá fékk hún einnig þriðja besta saman- lagðan árangur í þeim flokki. Si. fimmtudag var keppt á Ak- ureyrarmótinu í svigi í Hlíðar- fjalli og á laugardaginn tók síð- an við keppni í stórsvigi. Guð- mundur Sigurjónsson sigraði örugglega í svigi karla en Hrefna Óladóttir bafði nauman sigur í svigi kvenna eftir keppni við Söndru Axelsdóttur. Hrefna sigraði síðan í stórsviginu á Hrcfna Óladóttir sigraði bæði í svigi og stórsvigi á Akureyrarmótinu í síðustu viku. Á 2. þrepi 15 ára og eldri fékk Kristín Ingimarsdóttir gull á trampólíni fyrir stökk upp á 9,70 og þriðja sætið samanlagt. Mar- grét ísleifsdóttir fékk gull fyrir gólfæfingar og þar fékk Petra Sif Stefánsdóttir bronsió. Harpa Helgadóttir fékk bronsverðlaun fyrir bæði trampólín og stökk. Á 2. þrepi yngri stúlkna fékk Guðríður Sveinsdóttir gull fyrir gólfæfingar og 2. sætið samanlagt. Anna M. Ólafsdóttir fékk gull- verólaun með einkunnina 9,75 á trampólíni. Þessi frábæri árangur tryggði henni 3. sæti í saman- lögðu. Þá fékk Aðalbjörg B. Jóns- dóttir bronsverólaun fyrir gólfæf- ingar. Á 1. þrepi nældi Kristín Ása Henrýsdóttir í brons á dýnu og á gólfi og 2. sæti samanlagt. Ásta S. Olafsdóttir fékk gull á dýnu og brons á trapólíni. Katrín Pálma- dóttir fékk silfur á gólfi og Sigríð- ur Jóna Ingólfsdóttir hirti bronsið fyrir gólfæfingar. laugardaginn og Fjalar Úlfars- son hafði sigur í karlaflokki. Úrslit: Svig karla: 1. Guðmundur Sigurjónsson KA 1:15.41 2. Fjalar Úlfarsson Þór 1:37.61 Svig kvenna: 1. Hrefna Óladóttir KA 1:20.04 2. Sandra B. Axelsdóttir KA 1:20.07 Svig stújkna 15-16 ára: 1. Þóra Ýr Sveinsdóttir KA 1:20.67 2. Hallfríður Hilmarsdóttir KA 1:34.90 3. Emma Björk Jónsdóttir KA 1:53.76 Stórsvig stúlkna 15-16 ára: 1. María Magnúsdóttir K A 1:52.23 2. Þóra Ýr Sveinsdóttir KA 1:53.33 3. Hallfríður Hilmarsdóttir KA 1:55.22 Stórsvig kvenna: 1. Hrefna Óladóttir KA 1:47.84 2. Sigríóur Þorláksdóttir KA 1:48.62 Stórsvig karla: l.FjalarÚlfarssonÞór 0.53.10 Urslitakeppnl 2. deildar í handbolta: Þórsarar töpuðu stórt í Eyjum Þórsarar eru enn án stiga í úr- slitakcppni 2. deildar Islands- mótsins í handbolta, eftir heim- sókn til Vestmannaeyja sl. mánudagskvöld. Eyjamenn unnu mjög öruggan sigur, 28:22, eftir að staðan í hálfleik var 14:8 heimamönnum í vil. Með þessu tapi minnkuðu möguleikar Þórsara á að end- urheimta sæti sitt í 1. deild, til mikilla muna. Jafnræði var með liöunum í Þorvaldur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Þór í Eyjuni. byrjun en íljótlcga náðu Eyja- menn yfirhöndinni og þegar fiautað var til leikhlés var mun- urinn orðinn 6 mörk. Eyjamenn skoruðu tvö fyrstu mörk síðari hálflciks og ætluðu hreinlega að stingá gestina strax af. Þórsarar voru ekki alveg á því og náðu að minnka muninn á næstu mínút- um niður í 3 mörk. Nær komust þeir ekki og Eyjamenn tryggðu sér öruggan sigur á lokakaflan- um. Þórsarar náðu sér ekki á strik í þcssum leik og það var helst vamarleikurinn og þá um leið markvarslan sem var ekki nógu góður. Heimamenn sýndu góða spretti og var sigur þeirra mjög öruggur. Zoltan Belany var at- kvæðamestur Eyjamanna en Páll Gíslason var atkvæðamestur Þórsara. Mörk ÍBV: Zoltan Belany 12, Gunnar Viktorsson 5, Erlingur Richardsson 3, Daói Pálmason 2, Magnús Amgrímsson 2, Amar Richardsson 2, Amar Péturs- son 1 og Daói Hallgrímsson 1. Mörk Þórs: Páll Gíslason 8, Þorvaldur Sigurösson 5, Atli Þór Rúnarsson 3, Samúcl Ámason 2, Gcir Aðalstcinsson 2 og Hciðmar Fclixson 2. Urslitakeppni 2. deildar í handbolta: KAm-IIDI/ U I/iiaU POItUdK I KVOIQ - Fram stendur best aö vígi önnur umferð í úrslitakeppni 2. deildar f handbolta fer fram í kvöld. Þórsarar fá Blika í heimsókn og fer ieikurinn fram í íþróttahöllinni og hefst kl. 20.00. Aðrir leikir eru: Grótta- Fram og ÍBV-Fylkir. Framarar standa best að vigi eftir fyrstu umferðina í úrslita- keppninni sem hófst um helgina. Fram er með 6 stig, eftir góðan sigur á Breiðabliki, 18:16 en lið- ió fór meó 4 stig í úrslitakeppn- ina. Fylkir og Grótta gerðu jafn- tcfli 24:24 og eru Gróttumcnn í öóru sæti með 3 stig. ÍBV fékk sín fyrstu 2 stig í úrslitakeppn- inni, með sigrinum á Þór en Breióablik og Fylkir hafa 1 stig hvort félag. Þórsarar sitja á botn- inum án stiga. Skíöi - alpagreinar: Tvöfalt hjá Hrefnu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.