Dagur - 09.03.1995, Page 1
78. árg.
Akureyri, fímnttudagur 9. mars 1995
48. tölublað
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Gríðariegar snjóhengjur á þakbrúnum
Gríðarlcgar snjóhcngjur hanga víða fram af þakbrúnum húsa og þá hafa margir af því áhyggjur að snjófarg geti
farið að sliga þök. Að mörgu er að hyggja í þcssum efnum og nánar er fjallað um máiið á bls. 6 í blaðinu í dag.
Mynd: Robyn.
Hofsós:
„Man ekki eftir jafn
erfiðu tíðarfari"
Já, það er óhætt að segja að
hér sé mikill snjór og það hef-
ur bætt töluvert á síðustu daga,“
sagði Jón Guðmundsson, sveit-
arstjóri á Hofsósi, í samtali við
Dag í gær.
„Við vorum að reyna að blása
af veginum að frystihúsinu þannig
að við gætum haldið þeirri leið
opinni. Við reynum ekki að halda
öðru opnu en aðalbrautinni í gegn-
um þorpið og út að frystihúsinu,“
sagði Jón.
A síðastliðnu ári var um einni
milljón króna varið úr sveitarsjóði
Hofshrepps til snjómoksturs og
það sem af er þessu ári er búið að
moka fyrir sem næst þá upphæð.
„Ég hef búið hér síðan 1959 og
ég man ekki eftir jafn erfióu tíðar-
fari á þessu svæði. Það hefur verið
rok úr öllum áttum, þaó eru örfáir
dagar sem hefur verið stillt veður
síðan fyrir jól.“
Jón sagði að víða í Skagafirði
væri mikil ófærð og henni fylgdu
miklir erfiðleikar með samgöngur.
Þó sagði hann aö bærilega hafi
gengið aó halda veginum á milli
Hofsóss og Sauðárkróks opnum,
en hins vegar væri ekki reynt að
opna veginn víða til sveita. Það
skapaði að vonum mikla erfið-
leika með mjólkurfiutninga. óþh
Svarfaðardalur:
Mokað fyrir mjólkur-
bílana í gær
- mjólk var síðast tekin
á föstudag
Grásleppuveiðar hefjast fyrir Norðurlandi 20. mars nk.:
Danskir kaupendur bjóða 23% hærra
verð en markaðsverð síðasta árs
Danskir kaupendur grá-
sleppuhrogna hafa boðið
1600 þýsk mörk, eða 74.500
krónur fyrir tunnuna gegnum ís-
lenskan umboðsmann, Kjartan
Friðbjarnarson, sem er um 300
mörkum, eða 14.000 krónum
hærra verð en greitt var á sl. ári.
Hætt er við að innlendum niður-
lagningarverksmiðjum þyki það
nokkuð hátt verð, en svokölluð
grásleppuhrognanefnd lagði til
að lágmarksverð fyrir komandi
vertíð yrði 1450 þýsk mörk, eða
liðlega 67 þúsund krónur.
Hefja má grásleppuveiðar fyrir
Norðurlandi 20. mars nk. Harald-
ur Sigurðsson á Núpskötlu II á
Melrakkasléttu segist ekki trúaður
á að þetta verð haldist, því þegar
verðið hafi rokið svona upp hefur
einhver „skandall“ komið í kjöl-
farið, fyrst og fremst í formi verö-
lækkunar og sölutregóu.
Nokkuð margir hafa ekki nýtt
leyfi til grásleppuveiða á undan-
fömum árum en danska tilboðið
kann að valda því að menn endur-
skoði hug sinn og haldi á grá-
sleppuveiðar. Gera má ráð fyrir að
fimm bátar verði gerðir út á grá-
sleppu frá Kópaskeri á þessu vori
og sami fjöldi frá Leirhöfn á Mel-
rakkasléttu.
Sigurður Gunnarsson á Húsa-
vík segist ekki hafa komist á sjó í
9 daga en þá hafi fengist 55 rauð-
magar. Svipaða sögu er að segja
frá Siglufirði, en þar hefur rauð-
magaveiói verið minni en mörg
undanfarin ár. Hins vegar er líf-
legra yfir rauðmagaveiði fyrir
sunnan land en oft áður en veiði
má ekki hefjast þar fyrr en um
miðjan aprílmánuð. Sigurður segir
að eitthvað komi alltaf af grá-
sleppu í rauðmaganetin og hann
hafi leyfi til að verka hrogn.
A Húsavík verða gerðir út um
17 bátar á grásleppuveiðar og eru 5
þeirra gerðir út frá Flatey. Þeir hafa
með sér samlag sem flestir húsvísk-
ir grásleppuhrognaframleiðendur
eru aðilar að, en Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hefur lagt verkendum til
aðstöðu og síðan hefur aðkeyptur
verktaki annast frágang hrognanna
og að koma þeim til kaupenda.
Grímseyjarbátar komust á sjó
í gærmorgun en þá hafði
ekki gefið til sjósóknar síðan á
þriðjudag í síðustu viku. Einn
bátanna var síðdegis í gær búinn
að fá 1.500 kg þannig að fískur-
inn gefúr sig við eyjuna ef viðrar
til sjósóknar. f febrúarmánuði
komust bátarnir aðeins 5 til 7
róðra vegna óveðurs.
Engin vinnsla hefur því verió í
landi undanfarið en fiskurinn er
nú aóeins verkaður í Grímsey hjá
Sigurbimi hf. eftir að Fiskverkun
KEA hætti störfum 1. mars sl. Jón
Asbjörnsson, fiskverkandi í Hafn-
arfirði, rak í rúmt ár fiskverkun í
aðstöðu Sigurbjamar hf. fram til
síðustu áramóta en þá tóku heima-
menn við henni aftur. Ekki hefur
verið um söltun eða aðra fiskverk-
un að ræóa hjá Fiskverkun KEA
síðustu misseri heldur var fiskur-
Hrognin hafa aðallega farið til
ORA í Reykjavík, Vignis A. Jóns-
sonar á Akranesi, Strýtu á Akureyri
og til Grindavíkur.
Þóröur Asgeirsson á Húsavík
segist vera hræddur við þetta háa
tilboð Dana því oft hafi verðhmn
fylgt í kjölfar svo mikillar verð-
hækkunar og það taki mörg ár og
mikla vinnu að ná því upp aftur.
„Það kostar nýjar tunnur ef
inn ísaður í kör og fluttur með
eyjaferjunni Sæfara til verkunar í
Hrísey með áætlunarferóum henn-
ar sem eru tvisvar í viku, mánu-
daga og fimmtudaga yfir vetrar-
mánuðina.
Fiskmarkaður hefur tekið til
starfa í Grímsey en hann er útibú
frá Fiskmarkaði Dalvíkur. Þar hef-
ur farið fram eitt uppboð.
Garðar Olason hjá Sigurbimi
hf. segist gera ráð fyrir að kaupa
eitthvað af fiski af nýja markaðn-
um ef verðið verði ekki sprengt
upp en einhverjir bátar munu
halda áfram að leggja beint upp
hjá honum, a.m.k. stærri fiskinn
en sá smærri færi þá á markaðinn
auk steinbíts og annars aukfiskis.
Allur fiskur sem berst til Sigur-
bjamar hf. er flattur og saltaður og
hefur á þessu ári verið seldur af
Jóni Asbjömssyni, en einnig hefur
hrognin er flutt beint út auk flutn-
ingsgjalds og annars kostnaóar
svo innlendar niðurlagningarverk-
smiðjur mega vera um 150 þýsk-
um mörkum lægri til aó vera sam-
keppnishæfar í verði. Auóvitað er
ég ekki að segja þeim að gera það
því okkur þykir gott að fá sem
hæst verð fyrir grásleppuhrognin,"
sagói Þórður Asgeirsson, grá-
sleppukarl á Húsavík. GG
verið mikil eftirspum af ýmsum
fisksölusamtökum eftir saltfiski úr
Grímsey en mikil eftirspum er eft-
ir saltfiski erlendis frá fyrir
páskanav Heimamenn hafa keypt
af Jóni Asbjömssyni þvottakör og
fleiri tæki til fiskverkunar og er
hluti andviróisins greiddur með
fiski sem Jón Asbjömsson sér um
sölu á.
„Vaxandi eftirspurn er eftir
söltuðum flökum eftir niðurfell-
ingu tolla á þeim en lítil aukning í
flöttum fiski, en annars held ég að
saltfiskurinn hafi haldið sinni
hlutdeild á síðasta ári. Annars
hafa ekki verið nein stórviðri hér,
en alltaf þessar „lenjur“, 5 til 6
vindstig, en hér er kominn óhemju
snjór. Það hafa verið hér vitlaus
veður síðan á jóladag," segir
Garðar Olason, útgeróarmaður í
Grímsey. GG
Einstaka mjólkurframleið-
endur í Svarfaðardal þurftu
að grípa til örþrifaráða í gær-
morgun þar sem mjólkurtankar
voru orðnir fullir. Vegna ófærð-
ar hafði mjólk ekki verið tekin í
sveitinni frá því á föstudag. Síð-
degis var veður svo orðið skap-
legt og þá var mokað fyrir
mjólkubflana um sveitina.
Dæmi eru þess að á bæjum hafi
plastílát verið þvegin og notuð
undir mjólk í gærmorgun enda
gerðu menn sér vonir um að hægt
yrði að sækja mjólk í gær, sem og
varð. Snjórinn er mikill í Svarfað-
ardal, eins og víðar, og það lýsir
kannski ástandinu best að á verstu
köflunum ók vélsleði á undan
mokstursvélinni í gær til að finna
veginn. JÓH
Frystihúsið á Grenivík:
Fiskur með
Sæfara
Vinna féll niður í frystihúsinu
á Grenivík sl. mánudag sök-
um þess að ekki tókst að koma
þangað físki til vinnslu frá Ak-
ureyri. Búið er að vera ófært
landleiðina til Grenivíkur nán-
ast alla vikuna, en síðdegis á
mánudaginn tókst að opna og
þá komust fiskflutningabflarnir
á leiðarenda. Sá fískur var unn-
inn á þriðjudaginn.
Vegurinn lokaðist hins vegar
fljótlega aftur. Því var gripið til
þess ráðs að flytja fiskinn sjóleið-
ina frá Akureyri og um kl. 11 í
gærmorgun kom Sæfari með fisk
til Grenivíkur sem endist frysti-
húsinu til morgundagsins. Verði
færðin ekki oróin betri eftir helg-
ina má búast við því að aftur þurfi
að fá Sæfara til fiskflutninga.
Asgeir Jónsson, verkstjóri í
frystihúsinu á Grenivík, sagði
óhemju mikinn snjó á staðnum og
á mörkunum að fólk kæmist til
vinnu vegna þess. „Eins veitir
ekki af því að fara að byggja upp
veginn hingað úteftir. Menn hljóta
að átta sig á því að þegar Eyja-
fjörður er orðinn að einu atvinnu-
svæði veróur líka að bæta
samgöngumar," sagði Asgeir. HA
Garðar Ólason, útgerðarmaður í Grímsey:
„Hér hafa verið vitlaus
veður síðan á jóladag"
- Fiskverkun KEA hætti fiskmóttöku 1. mars sl.