Dagur - 09.03.1995, Page 5

Dagur - 09.03.1995, Page 5
Fimmtudagur 9. mars 1995 - DAGUR - 5 Þótt hundrað þursar Nú stendur yfir listahátíð hér á landi, sem hlotið hefur heitið Sólstafir. Hátíðin er haldin í tengslum við fund Noróurlanda- ráðs, sem haldinn var í Reykjavík í fyrra mánuöi. Höfuóvettvangur hátíðarinnar er Reykjavík, en nokkuð af efni því, sem flutt er, er einnig fært upp annars staðar á landinu og þar á meðal á Akur- eyri. Þegar hafa nokkur atriði ver- ió sett upp í bænum og þeirra á meðal leiksýning í Iþróttaskemm- unni laugardaginn 4. mars, þar sem flytjendaflokkur frá þjóðleik- húsi Sama, Beaivvá Sámi Teáhter, flutti verkið Þótt hundrað þursar eftir Knut Walle og Beaivvás. Mikil samísk tónlist er í verkinu og er hún og glefsur af tónlist af öðrum uppruna gerð af Ingor Anette, Ailu Gaup og Egil Keski- talo. Hinn síðastnefndi og Gunnar Augland sjá um undirleik. Leik- endur eru sex: Ingor Anette, Ailu Gaup, Mikkael Gaup, Inga Juuso, Toivo Lukkari og Mary Sarre. Leikstjóri uppsetningarinnar er Knut Walle. Verkið Þótt hundrað þursar er níu glefsur úr þjóðarsögu Sama á um eitt þúsund ára bili. Höfuð- þunginn er á átakapunktum í sögu þjóðarinnar; baráttu hennar við þær þjóðir, sem skipt hafa löndum hennar nyrst í Skandinavíu og vestanveróu Rússlandi, erlend áhrif, svo sem trúboða, kaup- menn, nýja siði og neysluvenjur og á síðustu áratugum, hið mátt- uga og ópersónulega kerfí og skrifræði, sem sviptir menn for- ræði eigin mála og einnig okkur Islendingum er títt á tungu. Flutningur verksins byggist mjög á látbragðsleik. Hann er vel út færður og víða mjög tjáninga- ríkur og talandi. Segja má, að þar beri tæpast nokkum tímann Þórarinn Hjartar- son með tónleika í Deiglunni Á heitum fimmtudegi í Deigl- unni, 9. mars, flytur Þórarinn Hjartarson „Sönghugleiðingu um kvalafulla ást“. Á dagskránni eru söngvar frá 12. öld og fram til dagsins í dag sem eiga það sameiginlegt að fjalla um ástina kvalafullu, ævin- týrin sem enda illa, elskenduma sem ekki fá aó unnast. Söngvamir em bæði íslenskir og erlendir af ýmsum toga; til dæmis dróttkvæði Kormáks Ogmundssonar, trúba- dorakvæði Ventadoms og trega- kvæði Stefáns í Vallanesi, Sigurð- ar Breiófjörð og Leonards Cohen. Þórarinn Hjartarson hefur stundað jöfnum höndum jámsmíðar, sagn- fræði og söng. Tónleikamir hefj- ast kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr. 500. skugga á. í þessu efni hjálpar mjög til skilnings, að verkinu fylgir góð leikskrá, þar sem efni glefsanna níu er rakið til leiðsagn- ar um verkió og túlkun þess. LEIKLIST HAUKUR Á6ÚSTSSON SKRIFAR Til frekari áherslu og til túlkun- ar á hinum ýmsu áhrifavöldum, sem koma við sögu, taka leikarar sér áhrifamiklar grímur á höfuð. Þær tákna til dæmis þjóðimar þrjár, sem kastað hafa eign sinni á lönd Sama, kirkjuveldið, kaup- mannaveldið, nasista hemámsár- anna og skrifræði okkar tíma. Þessar grímur eru vel gerðar og gefa leiknum mikinn svip. Jafn- framt tengja þær hann traustum böndum hinni miklu hefð hins al- þjóðlega leikhúss, þar sem grímur koma mjög vió sögu svo sem í leikhúsi Grikkja hinna fomu sem og í leikhúsi Austurlanda. Tónlist í leiknum byggist mjög á samverskum söng með undirleik slagverks, en einnig á ýmsum tón- listarglefsum og loks vel útfæró- um áhrifahljóðum af ýmsu tagi. Með söngnum og annarri tónlist fylgir tíðast dans með táknrænum stafaleik, sem fellur inn í lát- bragðsleikinn og er óaðskiljanleg- ur hluti hans. I þessum flutningi verður leikendahópurinn tíðum að kór, sem minnir á kór hins gríska leikhúss, sem hreyfðist háttbundið með flutningi sínum í nokkurs konar dansi. Umgjörð leiksins er vel unnin. Hún er hvít tjöld og miklir trjá- drumbar, sem mynda skeifu um hvítan hringlaga flöt, sem er það svæði, sem leikurinn fer fram á. Yfír þetta athafnasvæði flytjenda er þaninn breiður, hvítur borði, sem táknar himininn. I bakgrunni er upphækkun, en upp á hana sækja leikarar grímur þær, sem fyrr er getið. Þessi umbúnaður minnir enn á hið klassíska gríska leikhús og ekki síður það, að í uppsetningunni í Iþróttaskemm- unni á Akureyri sátu áhorfendur í skeifu, sem fullnaði hringinn um leiksviðið með svipuðum hætti og var í hinu foma leikhúsi, sem leik- list Vesturlanda er frá komin. Allur flutningur á sýningunni í Iþróttaskemmunni á Akureyri var sérlega agaður en þó, og ekki síð- ur þess vegna, fullur af þrótti og tjáningarstyrk. Sagan, sem sögð er í leiknum, er hrífandi og víða átakanleg. Hún fjallar tim baráttu lítillar þjóðar, sem oróið hefur fyr- ir miklum áföllum og ágangi, en sem reynir hvað unnt er til þess að halda sérkennum sínum og menn- ingu, svo að hún glatist ekki í þjóðahafínu og verði undir í ævar- andi viðleitni ráðandi afla að steypa allt í eitt og sama mótið. Það er lærdómsríkt að sjá þessa sýningu fyrir okkur, sem ísland byggjum. Okkur er ekki tamt aó sjá okkur sjálf þeim augum, sem Samamir sjá sig í þessu verki. Þó emm við að verulegu leyti í sömu stöðu. Við erum einnig lítil þjóð, sem að er sótt af þursum erlendra áhrifa úr ýmsum áttum. Einnig við höfum þurft og þurfum enn að berjast fyrir því, að halda sérkenn- um okkar og réttindum, tungu okkar og menningu. Hins vegar virðist það ekki vera talið prútt í samtíð okkar að hafa uppi vamir á opinberum vettvangi gegn þessari ásókn erlendra afla, heldur sýnist alþjóðahyggja vera lausnarorð dagsins og það sem tíóast heyrist og sést í ræðu og riti. Ef til vill er tími til þess kom- inn, að blaðinu verði snúið við og það athugað, hvort ekki sé einnig vert aó lesa hina hliðina að hætti til dæmis Samanna. Þar gætu ver- ió verðmæti og hættir, sem enn eru ekki glataðir, þó teknir séu að fymast, og sem eru ekki síður verðir varðveislu og iðkunar en þeir, sem nú ber hæst með þjóð- inni. ^ Námskeið í GA: Akveðmþjálíun fyrir foreldra „Ákveðniþjálfun fyrir for- eldra“, er námskeið sem Barna- heill standa fyrir í Gagnfræða- skóla Akureyrar, föstudaginn 10. mars kl. 17-22 og laugardag- inn 1. mars kl. 10-17. Námskeiðsgjald er kr. 2.500,- og í því er innifalinn léttur máls- verður báða dagana. Enn eru nokkur pláss laus á námskeiðinu. Skráning fer fram í síma 24172 og lýkur í dag, fimmtudaginn 9. mars. Jóhann Ingi Gunnarsson og Sæmundur Hafsteinsson, sálfræð- ingar, eru leiðbeinendur og er námskeið þetta fyrir alla foreldra og snýst um mikilvægi foreldra- hlutverksins. Rauðvínsleginn frampartur úrbeinaður kr. 699 kg Rommbraggi kr. 268 stk. Kynnum fðstudag Dalon frystirétti frákl. 15 til 19 Ferskt og fljótlegt Kynningarverð Kynnum nýtt á íslandi Örbylgjufranskar Föstudag frá kl. 15 til 19 Laugardagkl. 11 til 15 Kynningarverð Veruleg lækkun á barna- og fullorðinssnjógöllum Mikið úrval af nýjum kvenfatnaði Afgreiðslutímar: jSS- Mánud.-föstud. kl. 10-19.30 • Laugard. Id. 10-18

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.