Dagur - 09.03.1995, Side 10

Dagur - 09.03.1995, Side 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 9. mars 1995 ÍÞRÓTTIR SÆVAR HREIÐARSSON Handknattleikur - úrslitakeppni 1. deildar: „Varnarleikurinn var steindauður" - sagöi Árni Stefánsson, eftir tap KA gegn Víkingi „Leikur okkar einkenndist af al- geru andleysi og engri stemmn- ingu. Varnarleikurinn var stein- dauður af því að menn hreinlega nenntu ekki að berjast. Spenn- ustigið var eitthvað vitlaust stillt hjá mönnum og það er ljóst að við förum erfiðari leiðina að þessu, líkt og gegn Stjörnunni,“ sagði Árni Stefánsson, liðsstjóri KA, eftir að Iið hans tapaði fyrir Víkingi í undanúrslitum Nissan- deildarinnar í handknattleik í Víkinni í gærkvöldi, 32:24. Liðin eigast við öðru sinni á Akureyri á föstudagskvöld. Urslit: HANDKNATTLEIKUR: 1. deild: Víkingur-KA 32:24 2. deild: Fram-Þór 21:21 UBK-Fylkir 25:25 Grótta-IBV 21:26 KÖRFUKNATTLEIKUR: Úrvalsdeild: Njarðvík-KR 96:82 Grindavík-Haukar 77:69 ENSKI BOLTINN: Coca-Cola bikarinn: Liverpool-C. Palace 1:0 Bolton-Swindon 3:1 Liverpool-Bolton í úrslit Úrvalsdeild: Blackburn-Arsenal 3:1 Man. City-Chelsea 1:2 Newcastle-West Ham 2:0 Norwich-Sheff. Wed. 0:0 N. Foresl-Everton 2:1 QPR-Leicester 2:0 Tottenham-Ipswich 3:0 Blackbum komst aftur á toppinn með góðum sigri á Arsenal þar sem Shearer skoraði tvö mörk og Le Saux þaó þriðja. Kitson og Clark skoruðu mörk Newcastle og Klinsmann og Barmby tryggðu Tottcnham sigur á Ipswich Of dýr Kevin Keegan, stjóri Newc- astle, hefur átt í vióræum við spænska fólagiö Real Sociedad um kaup á bosníska framherj- anum Meho Kodro. Keegan brá í brún þegar spænska félag- ið fór fram á 3,5 milljónir punda fyrir Kodro, sem er 28 ára. Kodro skoraði fjögur mörk um síðustu helgi þegar Socied- ad sigraði Tenerife 5:2 og hef- ur nú gcrt 18 mörk í deildinni. Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 12080 Leikurinn var hnífjafn í fyrri hálfleik en þrátt fyrir að forskot Víkinga hafi aldrei verið mikið er óhætt að segja að þeir hafi haft völdin á vellinum. Vöm KA gekk ekki upp og Patrekur var sá eini sem stóð upp úr sóknarlega. Vík- ingsliðið virtist vel stemmt, bæói í vöm og sókn, og hafói eins marks forskot í leikhléi, 14:13. KA byrjaði síðari hálfleikinn afar illa, Patrekur og Valur gerðu sitt markið hvor á fyrstu mínútun- um en síðan fór allt í baklás í sókn KA og hraðlest Víkinga var sett í gang. Áður en 9 mínútur voru liðnar af hálfleiknum hafði Vík- ingur náð 6 marka forskoti, 21:15, og hraói þeirra varð hreinlega of mikill fyrir KA. Sóknarleikurinn var ómarkviss og refsingin við því oftar en ekki mark úr hraðaupp- hlaupi. KA-menn reyndu hvað þeir gátu til þess að komast inn í leikinn að nýju en bilið var ein- faldlega orðið of mikið. Átta marka sigur segir í raun bara að yfirburðir Víkinga voru algerir að þessu sinni. Lokatölur urðu 32:24. Bjarki Sigurðsson lék mjög vel í leiknum, sem og þeir Birgir Sig- urðsson og Reynir Reynisson en Patrekur lék best KA-manna. Vík- ingsliði sýndi klæmar í gærkvöldi og verða norðanmenn að taka sig á ætli þeir sér að knýja út oddaleik á föstudagskvöldið. Takist það mætast liðin þriðja sinni á sunnu- dagskvöld. Sá leikur er þó ekki á dagskrá hjá Víkingum. „Við erum staðráónir í því að fara norður og klára þetta þar. Þetta var mikil barátta en ömggur okkar sigur,“ sagði Gunnar Gunn- arsson, þjálfari Víkings. SV Mörk Víkings: Bjarki 11/2, Sigurður 6/1, Birgir 5, Friðleifur, 4, Gunnar 3, Ámi 2 og Rúnar 1. Reynir varði 16/1. Mörk KA: Patrekur 9, Valdimar 8/5, Valur 3, Atli, Jóhann, Þorvaldur og Er- lingur 1 hver. Sigmar varði 9/1 og Bjöm 4. Dómarar Öm og Egill Már Markús- synir. Dæmdu ágætlega en þeim sást of oft yfir að því er virtist nokkuð augljós smáat- riði. Patrekur Jóhannesson lék best KA-manna í gærkvöldi og gerði níu mörk. Knattspyrna: Guðni Rúnar í KR Handknattleikur - úrslitakeppni 2. deildar: Loksins fengu Þórsarar stig Þórsarar nældu sér loksins í stig í úrslitakeppni 2. deildar í hand- knattleik þegar liðið mætti Fram í gærkvöldi. Lokastaðan var 21:21 eftir mikla dramatík í lokin. Jafnræði var allan tímann en Framarar skoruðu tvö síð- ustu mörkin í fyrri hálfleik og höfðu yfír í hléi, 10:8. Þórsarar hafa verið óheppnir með meiósli í vetur og nú vantaði Heiómar Felixson og Samúel Ámason í liðið en Sævar Ámason var kominn aftur og munaði um minna. Framarar höfðu frumkvæðið framan af leiknum og fram í síðari hálfleik en síðari hluta hálfleiksins voru Þórsarar á undan að skora. Þegar innan við hálf mínúta var til leiksloka var Þór með boltann og staðan 21:21. Þá var dæmdur ruðningur á Þórsara og Framarar nældu í vítakast á síðustu sekúnd- unni en Hermann Karlsson gerði sér lítið fyrir og varði. „Við munum gera okkar besta til aó stríða toppliðunum,“ sagði Körfuknattleikur: Þórsarar í Keflavík Þá er úrslitakeppnin í körfubolt- anum hafín og Þórsarar leika fyrsta leik sinn gegn Keflavík á útivelli í kvöld og má búast við jöfnum leik eins og í þau tvö skipti sem liðin hafa mæst í vetur. Liðin mættust á Akureyri í lok október og þá sigraði Keflavík eft- ir mikinn hasarleik, 112:108, þar sem Þórsarar áttu í erfiðleikum með að hemja Lenear Bums og Davíð Grissom í liði gestanna. Þegar lióin mættust síðan aftur í Keflavík í byrjun febrúar var spennan ekki síöri og Þórsarar misstu sigurinn frá sér á lokasek- úndunum. Keflvíkingar sigruðu 95:92 með þriggja stiga körfu í lokin. Þaó veröur því fróólegt að fylgjast með leikjum liðanna í 8- liða úrslitum. Jan Larsen, þjálfari Þórs, eftir leikinn. Mörk Þórs: Sævar 8, Páll 6, Geir og Amar 2 hvor, Þorvaldur, Jón Kjartan og Ingólfur 1 hver. Hermann varói tæp 20 skot. Guðni Rúnar Helgason, knatt- spyrnumaðurinn ungi frá Húsa- vík, sem leikið hefur sem at- vinnumaður hjá Sunderland undanfarin ár, hefur ákveðið að leika með KR í 1. deildinni næsta sumar. Guðni Rúnar hefur verið at- vinnumaður hjá Sunderland und- anfarin tvö ár en hann lék í yngri flokkum Völsungs og KA áður en hann hélt í atvinnumennskuna. Guðni var búinn aó fá nóg af dvölinni í Englandi og fékk sig lausan undan samningi við Sund- erland um áramótin. Nokkur önn- ur íslensk lið höfðu falast eftir Guðna og þar á meðal voru bæði Akureyrarliðin, KA og Þór. Einnig höfóu Völsungar mikinn áhuga á að fá hann aftur til Húsa- víkur en Guðni hafði mestan áhuga á að reyna sig í 1. deildinni og KR varó fyrir valinu. Guðni, sem á að baki 6 leiki með drengja- landsliöi Islands og 12 með ungl- ingalandsliðinu, mun eflaust reyn- ast KR-ingum mikill styrkur enda einn efnilegasti knattspymumaður Islendinga í dag. Ishokkí: L'rf og ffjör á Brynjumóti Um síðustu helgi var haldið heil- mikið íshokkímót á Skautasvell- inu á Akureyri, svokallað Brynjumót. Þar var hart barist í öllum aldursfíokkum og takt- arnir létu ekki á sér standa. Keppt var í þremur yngri flokk- um auk þess sem eldri leikmenn fengu að spreyta sig. í flokki 9 ára og yngri sigraði SR mótherja sína í SA 9:0 en í flokki 10-12 ára snérist dæmið við og SA sigraði 9:1. í flokki 13-15 ára sigraði SA aftur örugglega, 8:0, en keppni féll niður í flokki 16-17 ára, þar sem SR mætti ekki með lið í þeim flokki. Lið SA í þeim flokki keppti því gegn gömlu mönnunum úr SA og SR auk þess sem Golf- klúbbur Akureyrar sendi lið til keppni og setti skemmtilegan svip á mótið. Reykvíkingar sigruóu í þessum flokki eftir spennandi úr- slitaleik við SA 16-17 ára. SR sigraði 3:2. I leik um þriðja sætið áttu gamlingjamir úr SA í litlum vandræóum með GA og lokatölur urðu 6:3. m m m M m m íþróttamaður Norðurlands 1994, golfarinn Sigurpáll Geir Svcinsson, sýndi góða takta á svellinu og sveiflan var í lagi. mm •• m au m Tvo bikarmot Bjöms Biynjars-mótinu, bikar- móti í svigi karla eldri en 15 ára og bikarmóti í svigi kvenna og stórsvigi i sömu flokkum, sem fresta varð um síðustu helgi, verða haldin um helgina á Dalvtk og t Ólafsfirði. Breyt- ist fyrri dagskrá þannig að stór- svigið verður haldið á laugar- dag á Dalvík, m.a. vegna Fjarðargöngunnar, sem er í Ól- afsfirði á laugardaginn. Þar verður síðan keppt í svigi á sunnudag. Fjaröargangan - lslandsgangan 1995, verður haldin í Ólafsfirði nk. laugardag kl. 14.00. Keppt er í 10 og 20 km göngu en auk þess er gert ráð fyrir trimm- hópum. Nánari upplýsingar em gefnar í símum 96-62270 og 96-62425. Sveinn til Akureyrar Besti skíðamaöur Húsvíkinga, unglingalandsliðsmaðurinn Sveinn Bjamason, hefur tilkynnt félagaskipti og mun keppa fyrir Akureyringa í framtíðinni. Þetta kom ffarn í VSkurblaðinu fyrir sköinmu en Sveinn ntun keppa fyrir hönd Akureyringa á punktamótum á Dalvík og Ólafsfirði um heig- ina. Hann tók þessa ákvörðun vcgna óánægju með störf Skíðaráðs Húsavíkur en ekkt cr langt síðan honum var sagt upp störfum sem þjálfari yngri flokka á Húsavík.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.