Dagur - 09.03.1995, Blaðsíða 12
Akureyri, fimmtudagur 9. mars 1995
alfe
Smíöum allargerðir innrétttnga
og innihurða
Trésmiðjcin fllfo • Óseyri 1 o • 603 flkureyri
Sími 96 12977 • Fox 96 12978
Fimm norsk tilboð bárust í smíði rækjutogara fyrir Ingimund hf.:
„Verið að nota okkar menn til
að fá lán úr Fiskveiðasjóði"
- segir Ingólfur Sverrisson, framkvæmdastjóri MÁLMS, samtaka fyrirtækja í málm- og skipasmíðaiðnaði
Samtök fyrirtækja í málm- og
skipasmíðaiðnaði, MÁLM-
UR, telja að búið hafi verið að
ganga frá smíði 2.000 tonna
rækjutogara í Noregi fyrir Ingi-
mund hf. og hefur Guðmundur
Túlimus, framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar-Odda hf.,
m.a. tjáð Ingólfi Sverrissyni,
framkvæmdastjóra MÁLMS, að
upplýsingar hafi fengist gegnum
byrgja að fyrir löngu síðan sé
búið að gefa verð í verkið og að
búið sé að ganga frá samning-
um. Eins hafi fengist upplýsing-
ar gegnum sambönd í Noregi að
búið væri að ganga frá smíða-
samningi í Noregi með fyrirvara
um niðurgreiðslur í Noregi.
Ingólfur segir að því hefði það
verið ábyrgðarhluti að eyða tíma í
vinnu vió að ganga frá tilboði í
verkið, en í því felst gríðarleg
vinna. Þetta sé ekki eins og að
gera t.d. tilboð í smíði niðurfalls-
renna á húsi.
„Mönnum ber saman um að að-
eins sé verið að uppfylla kröfu
Fiskveiðasjóðs um útboð innan-
lands en eftir að Fiskveióasjóður
setti þá reglu að leita yrði tilboða
innanlands áður en verkið yrói
unnið erlendis. Þaó mátti kannski
búast við einhverju svona og í
þessu tilfelli finnst okkur aó það
sé aðeins verið að uppfylla þessar
Fjárveiting Akureyrarbæjar til snjómoksturs
á árinu á þrotum:
„Getum auðvitað
ekki hætt að moka“
- segir Jakob Björnsson, bæjarstjóri
Það er auðvitað alveg ljóst að
við getum ekki hætt snjó-
mokstri, við verðum að moka
eins og nauðsynlegt er þrátt fyr-
ir að Qárveitingin sé á þrotum,“
sagði Jakob Björnsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, um þann
vanda sem menn standa frammi
fyrir varðandi kostnað við snjó-
mokstur í bænum.
Áttræð kona
lenti milli hjóla
á vörubifreið
Tæplega áttræð kona varð
fyrir vörubifreið á mótum
Hamarstígs og Ásvegar um íjög-
urleytið í gær og kvartaði konan
vegna eymsla í mjöðm. Konan
lenti undir bifreiðinni og á milli
hjóla en bifreiðastjórinn varð
hennar ekki var og hélt áfram
og slapp konan því furðu vel.
Tækjamaður sem var að moka
snjó á bflinn sá atvikið.
Maður fótbrotnaði á Oddeyrar-
bryggjunni í gær er vörulyftari ók
á vörubifreið en maðurinn stóð á
stigbretti vörubílsins. Þriggja bíla
árekstur varð í Hjalteyrargötu,
nokkrar skemmdir á bílunum og
ökumaður fremsta bílsins kvartaði
um verk í hálsi. Sjúkrabifreið var
send eftir skíðamanni í Hlíðarfjali
vegna gruns um fótbrot. GG
Embættismenn bæjarins munu í
dag leggja fyrir bæjarráð úttekt á
kostnaði við snjómokstur það sem
af er árinu. Ljóst er að fjárveiting
ársins, um 14 milljónir króna, er á
þrotum.
„Það liggur fyrir að við end-
urskoðun fjárhagsáætlunar síðar á
árinu verður að leysa þetta mál á
einhvem máta. Til greina kemur
að færa fjármuni milli liða til þess
að mæta þessu, skera niður eða
skekkja fjárhagsáætlunina sem
þessu nemur. En það er aö sjálf-
sögðu alveg ljóst að við getum
ekki hætt að moka þegar fjárveit-
ingin er búin. Það er hreint örygg-
isatriói að snjómokstri sé vel
sinnt, t.d. hvað varóar sjúkraflutn-
inga, eldvamir og fleira,“ sagði
Jakob.
Jakob sagðist ekki hafa ná-
kvæmar upplýsingar um kostnað
við snjómokstur það sem af er ár-
inu miðað við fyrri ár, en hann
sagðist reikna með að kostnaður-
inn í ár væri við hærri mörkin.
óþh
Snjónum mokaö í baðkarið
Úti er alltaf að snjóa og virðist ekkert lát á ofankomunni á Norðurlandi.
Víða er snjómagnið farið að valda mikium vandræðum og á einhverjum
stöðum er ástandið þannig að jafnvcl elstu menn muna ekki annað eins. Þor-
valdur Birgir á Staðarfelli í Kinn, sést hér í gættinni á hesthúsinu á bænum
cn hann þarf að grafa sig „niður“ í hesthúsið á hverjum degi til að gefa
hrossunum. En áður en það er gert þurfa ábúendurnir á Staðarfelli að
krafla sig í gegnum snjóinn við íbúðarhúsið. - Og til að það gangi upp, þarf
að byrja á því að moka snjónum í baðkarið á heimilinu og bræða hann þar,
því ekki cr hægt að losna við hann öðruvísi. KK/Mynd: BB
VEÐRIÐ
Litlar hitabreytingar verða í
dag og enn mun snjóa rétt
eins og einhver hafi beðið
um það, enda 18. bróðir
öskudags ekki fyrr en ann-
an sunnudag. Hvassviðri
verður um allt Norðurland í
dag og snjókoma en heldur
dregur úr snjókomu á föstu-
dag og þá mun einnig draga
úr vindhæðinni og hlýna, allt
upp í 4 stig.
Fönnin veldur slokkviliðsmönnum áhyggjum:
Brunahanar á kafi og götur
illfærar stórum bílum
Færðin er kannski ekki mesta
vandamálið heldur það
hversu þröngt er orðið á götun-
um og erfitt að komast um með
stóra bfla. Það er sem stendur
okkar mesti höfuðverkur,“ segir
Tómas Búi Böðvarsson, slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri, um þau
vandamál sem mikil snjóalög og
tíðarfar, eins og verið hefur að
undanförnu, geta skapað
slökkviliðsmönnum.
Ekki er einasta að í þéttbýli eru
miklir ruðningar heldur leggja
ökumenn bílum sínum oft þannig
að erfitt yrði fyrir slökkvibíla um
götumar. Annað atriði sem upp
kemur við þessar aðstæður er að
brunahanar eru á kafi í ruðning-
um. Tómas Búi sagði að á Akur-
eyri hafi starfsmenn bæjarins gert
átak í aö grafa upp brunna en gall-
inn sé sá að oft notfæri menn sér
holunar til aó setja í þær snjó af
plönum við hús og blokkir. „Þetta
er vandamál vegna þess að við
þessar aðstæður eru hanamir okk-
ur ennþá nauðsynlegri þar sem
erfitt er vegna snjóa að koma
kröfur Fiskveiðasjóðs og nota
okkar menn í þá vinnu því sé
verkið ekki boðió út hérlendis fær
viðkomandi ekki lán úr Fiskveiða-
sjóði.
Eitt af því sem við höfum þó
komið í gegn er að það sé leitað
tilboða á jafnréttisgmndvelli hér-
lendis áður en farið er út með
verkin. Ef ekki hafa komið tilboð
innanlands í verkið þá staðfestir
það þennan grun okkar um að
þegar hafi verió samið um smíð-
ina í Noregi.
Þessa dagana er verið að útbúa
reglur í utanríkisráðuneytinu til
þess að framfylgja þeirri ákvörðun
ríkisstjómarinnar að taka upp
reglur Efnahagsbandalagsins um
smíði skipa, þ.e. varðandi niður-
greiðslureglumar. Þessi uppákoma
þrýstir á stjóm Fiskveiðasjóðs að
reglum sjóðsins verði framfylgt á
heiðarlegan hátt og stjóm Málms
hyggst ræða við þá um það.
Eg ætla þeim ekki það að þeir
álíti þetta góða þróun, en við höf-
um alltaf óttast það að svona
hundakúnstir yrðu gerðar, en í
þessu máli liggur þetta óvenju skýrt
fyrir. Við gætum mðst fram og lát-
ið öllum illum látum því þetta er
fullkomið siðleysi, en höfum tekið
þá stefnu að vinna okkar heima-
vinnu í tengslum við það að koma
reglu á þessa hluti til framtíðar svo
þetta verði ekki viðurkennd vinnu-
brögð,“ segir Ingólfur Sverrisson,
framkvæmdastjóri MÁLMS.
„Það bárust engin innlend til-
boð í smíðina en þeir á Akureyri
vilja eitthvaó skipta sér meira af
þessu og það er ekkert orðið
ákveðið að tekið verði einhverju
norsku tilboðanna sem voru fimm
talsins. Þessi umræða á innan-
landsmarkaðnum truflar okkur að-
eins. Það verður að láta vissan
tíma líða og sjá til í hvaða horf
þetta fer. Eg get því engu svarað
um hvaða tilboði veröur tekið eða
hvenær, þvi málið verður að taka
sinn tíma,“ sagði Ármann Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri
Ingimundar hf. GG
|-------------I
Innanhúss-
mólning
vatnsbílunum að. Fólk þarf því að
hugsa um þessi atriði við aðstæður
eins og nú eru,“ sagði Tómas Búi.
Því betur hefur ekki verið um
brunaútkölla að ræða í sveitir í ná-
grenni Akureyrar en Tómas Búi
viðurkennir að fátt yrði til ráða ef
eldur kæmi upp á stöðum eins og
þeim sem búið hafa við mestu
snjóalögin aó undanfömu. „Nei,
þá yrði fátt til ráða og því er mikið
atriði að menn fari varlega. Að-
stæðumar eru erfiðar," sagði
Tómas Búi. JOH
10 lítrar
kr. 4.640.-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími23565