Dagur


Dagur - 15.03.1995, Qupperneq 11

Dagur - 15.03.1995, Qupperneq 11
Miðvikudagur 15. mars 1995 - DAGUR -11 Dr. Steingrímur Jónsson dósent við Háskólann á Akureyri Háskólinn á Akureyri hefur ákveðió að dr. Steingrímur Jóns- son starfi sem dósent við háskól- ann frá 1. mars 1995. Dómnefnd sem háskólinn skipaði og í áttu sæti dr. Þór Jakobsson, Veður- stofu Islands (form.), prófessor Jón Olafsson, Háskóla Islands, og dr. Svend-Aage Malmberg, Haf- rannsóknastofnun, var sammála um að Steingrímur væri hæfur til að gegna starfi dósents. Jafnframt því að gegna starfi dósents við Háskólann á Akureyri er Steingrímur útibússtjóri Haf- rannsóknastofnunar á Akureyri. Starfsskyldur Steingríms sem dós- ents fara eftir ákvæðum samstarfs- samnings Hafrannsóknastofnunar og Háskólans á Akureyri. I frétt frá Háskólanum á Akur- eyri segir orðrétt: „Steingrímur lauk cand. scient. MINNINO námi í hafeðlisfræði frá Kaup- mannahafnarháskóla 1985. Loka- ritgerð hans fjallaði um strand- strauma við strendur Jótlands. Hann lauk doktorsprófi í hafeðlis- fræði 1990 við Háskólann í Berg- en. Doktorsritgerðin fjallar um gerð og drifkrafta hringrásar í noróurhöfum, (Norður Græn- landshafi, Islandshafi og Noregs- hafi), bæði á stórkvarða og milli- kvarða, með sérstöku tilliti til hringrásar í Framsundi, milli Svalbarða og Grænlands. Að loknu námi starfaði hann við Haf- rannsóknastofnunina í Reykjavík um eins árs skeið á vegum Vís- indaráðs og rannsakaði þá upp- runa ferskvatns í Islandshafi og áhrif sveiflna í því á lóðrétt blöndunarskilyrði í hafinu. I mars 1991 var útibú Hafrannsókna- stofnunar á Akureyri formlega opnað og tók Steingrímur þá við útibússtjórastarfínu en því fylgdi einnig starfsskylda við Háskólann á Akureyri, þar sem hann hefur kennt undirstöðuatriði í haffræöi við sjávarútvegsdeild. Steingrím- ur er verkefnisstjóri fjölfaglegs vistfræðiverkefnis sem er sam- starfsverkefni Hafrannsóknastofn- unarinnar, Háskólans á Akureyri og Rannsóknastofnunar fiskiðn- aðarins. Urvinnsla gagna frá þessu verkefni stendur enn yfír. Einnig vinnur Steingrímur að rannsóknum á áhrifum veðurfars á hafstrauma og sjógerðir við Is- land. Hann hefur gert grein fyrir rannsóknum sínum í ýmsum er- lendum vísindatímaritum. Stein- grímur starfar sem faglegur ritari nefndar á vegum Norrænu ráð- herranefndarinnar um mengun andrúmslofts og sjávar. Þá situr hann einnig fyrir Islands hönd í stjómunamefnd MAST-áætlunar Evrópusambandsins um hafrann- sóknir.“ Agust Bjamason Fæddur 25. nóvember 1917 - Dáinn 8. mars 1995 Ágúst Bjamason lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 8. mars síðastliðinn. Hann verður jarðsett- ur frá Dalvíkurkirkju í dag, 15. mars. Ágúst var fæddur að Kirkjubæ í Hróarstungum. Þar mun móðir hans, Júlíana Kristmundsdóttir, hafa verið í vinnumennsku, en faðir hans var Bjarni Jónsson. Hann hafði ekki afskipti af upp- cldi Ágústs enda var Júlíana kom- in með son sinn, tæplega ársgaml- an, til Grímseyjar þar sem honum var í fyrstu komið í fóstur til ætt- ingja hennar. Afskipti og tengsl okkar fjölskyldu við Gústa, eins og hann var jafnan kallaður, hefj- ast þegar afí, Jakob Helgason, og vinur hans og síðar mágur, Óli Bjamason, ganga í það, þá ung- lingar, að fá nýtt fóstur fyrir Gústa og hann flytur, þá á fímmta ári, til Ingu Jóhannesdóttur langömmu minnar. Þegar Gústi er oróinn 15 ára, en þá hafði hann víðar dvalió en hjá Ingu, kemur hann til afa og ömmu, Jakobs og Svanfríðar, sem þá eru ung hjón. Síðan er hann með þeim og veróur þannig einn af okkar fjölskyldu. Barnahópur afa og ömmu varð nokkuð stór og fyrirferðarmikill; fimm syni eignuðust þau og tvær dætur. Gústi tók þátt í lífsbaráttu fjölskyldunnar í Grímsey sem einn af þeim, sótti sjó eða vann við annað sem til féll. Fjölskyldan var samhent og dugleg og komst vel af. Eftir fráfall elsta sonar afa og ömmu, Williards, tók fjöl- skyldan sig upp og flutti til Dal- víkur árið 1947, keypti húsið Garða, nú Hafnarbraut 25, og kom sér þar fyrir. Gústi var þá um þrí- tugt og eftirlifandi böm þeirra hjóna, Helgi, Óli, Elín, Guðrún, Matthías og Ottó, á unglingsaldri eða aó nálgast fullorðinsár. I Görðum var síðan miðstöð fjöl- skyldunnar næstu áratugina og þar hlutum við mörg gott veganesti sem hefur enst okkur fram á þenn- an dag. Bræóurnir hófu búskap „á loftinu" hver á fætur öórum og mörg bamabarna ömmu og afa stigu þar sín fyrstu skref. Mörg okkar hinna vistuðumst þar einnig um skemmri eða lengri tíma. Allt- af var nóg pláss hjá afa og ömmu og alltaf var Gústi nálægur sem einn af þeim fullorðnu sem skipti sér af, sem lét sig varóa hvað maður var að gera eða hvemig manni gekk. Hann var bamavinur og þess nutum við sem ólumst upp í Görðum. Hann gaf sér tíma til að spila við okkur, sýna okkur spilagaldra og margskonar svindl sem hann hafói séð framið í er- lendum höfnum. Og oft var hann sá eini sem var aflögufær með smá pening þegar mikið lá við. Gústi stundaði sjómennsku stóran hluta æfí sinnar, vann ann- ars það sem til féll í landi. Á 6. og 7. áratugnum var hann viðloðandi Hafnarfjarðartogarana sem sigldu þá gjaman með aflann. Þannig varð Gústi einskonar gluggi okkar krakkanna að útlöndum og tákn um ýmsan munað sem á þeim tíma var ekki fluttur til landsins eftir öórum leiðum en með togur- um sem voru að koma úr siglingu. Hann átti líka oft mikla peninga þegar hann var í landi, lifði þá gjaman hratt og veitti á báða bóga. Síðar var hann lengst með Matta á Snæfelli EA og síðustu ár sín á vinnumarkaði vann hann í Blika hjá Otta og Matta þar sem hann gat aólagað vinnutíma og verkefni að breyttum aðstæðum sínum vegna aldurs eða annars. Já, hann Gústi lifði stundum hratt og fíæktist þá í ýmsan fé- lagsskap. En karl bjargaðist úr öll- um slíkunt leiðöngrum. Góðglað- ur rifjaði hann gjaman upp árin í Grímsey og söng þá gjaman brag- inn um þá sem reru á Félaganum, en það var bragur um útgerð Gústa og fleiri á þeim báti. Þegar þannig lá á honum voru líka kon- umar í fjölskyldunni allar systur hans eða diddur, fyrst mamma og Gunna, síðar eiginkonur bræór- anna og loks vorum við stelpumar hver af annarri teknar í „diddu- tölu“ jafnharöan og við uróum fullorðnar. Það var merkileg stað- festing á nýrri stöðu í fjölskyld- unni. Og fyrir allar þessar systur sínar og fjölskyldur þeirra var hann jafnan tilbúinn að snúast eða verða að einhverju gagni. „Ó Gústi, ekki veit ég hvemig ég færi aö án þín“, var stundum viókvæð- ið í Görðum og hjá ömmu, ekki síst eftir að afa naut ekki við leng- ur. Þannig launaði hann fóstrió með trúnaði og liðsinni eftir því sem þurfti og við átti. Lengst af var Gústi ókvæntur, en um 1980 kynntist hann konu, Sigurást Kristjánsdóttur, sem hann gekk í hjónaband með. Þeirra samvista naut hann ekki lengi því hún lést nokkrum árum síðar. Gústi eignaðist ekki böm, utan þau sem hann eignaðist í gegnum fjölskyldutengsl. Hann eignaðist hinsvegar nafna sem varð honum kærari en önnur böm sem hann hafði afskipti af um æfina og upp- spretta mikillar ánægju nú síðustu árin þegar hann var fluttur að Dal- bæ, heimili aldraðra hér á Dalvík. Gústi var andlega hress allt til hins síðasta og á Dalbæ var hann lífið og sálin í hópi heimilisfólks sem nú saknar vinar og félaga í stað. Fjölskyldan, sem hann tengdist svo ungur, saknar góðs bróður og vinar og minnist með hlýju allra stundanna sem varið var saman við störf eða leik, í blíðu og stríðu. Svanfríður Inga Jónasdóttir. Tvær leiðir eru hentugar til þess að verja ungbarn í bíl Látiö barnið annaöhvort liggja í bílstól fyrir ungbörn eöa barnavagni sem festur er meö beltum. UMFERÐAR RÁO Billy Graham samkomur verða í Glerárkirkju á fimmtudags,- föstudags- og laugardagskvöld og hefjast þær kl. 20.30. A samkomunum verður varpað á skerm útsending- um frá samkomum í Puerto Rico þar sem Billy Graham prédikar og (oekkt tónlistar- fólk flytur tónlist. Vilt þú heyra fagn- aðarerindið? Allir eru hjartanlega velkomnir. Bókasafns- fræðingur Háskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða bóka- safnsfræðing í hálft starf. Starfið felur í sér skráningu gagna á bókasafni háskól- ans auk upplýsinga- og notendaþjónustu. Launakjör fara eftir samningi Félags háskólakennara á Akureyri. Skriflegar umsóknir, með ítarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil, sendist fyrir 5. apríl nk. til yfir- bókavarðar, Háskólanum á Akureyri, Þingvallastræti 23, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar um starfið veitir yfirbókavörður í síma 96- 30905. »• Miðvikudagstilboö Kjötfars 328 kr. kg-áður 408 kr. kg Beikonfars 352 kr. kg - áður 430 kr. kg Paprikufars 352 kr. kg ■ áður 430 kr. kg Saltkjötfars 352 kr. kg - áður 430 kr. kg Svikinn héri 352 kr. kg - áður 430 kr. kg Fimmtudagstilboð Nautagullach 699 kr. kg ■ áður 969 kr. kg Föstudagstilboð Nýir lambahryggir 645 kr. kg - áður 781 kr. kg Vikutilboð Frá Nýja Bautabúrinu: Londonlamb 763 kr. kg - áður 1008 kr. kg Frá Einarsbakarii: Eplaterta 299 kr. - áður 453 kr. Frá Kristjánsbakaríi: Möndluterta 249 kr. ■ áður 313 kr. B.K. kleinur 89 kr. • áður 105 kr. jKynningar og tilboð fimmtud. og föstud. Frá Matur og Mörk: Pizzur 259 kr. 12“ og hrásalat Frá Karii K: „Capri‘‘ Cider SÍMI 12933 - FAX: 12936

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.