Dagur - 15.03.1995, Page 15
IÞROTTIR
Miðvikudagur 15. mars 1995 - DAGUR -15
SÆVAR HREIÐARSSON
Handknattleikur:
Bætist vel í kassann
- undirbúningur fyrir úrsiitin kominn á fullt
Það ríkti hátíðarstemmning hjá
KA-mönnum á mánudagskvöld-
ið þegar handknattleikslið fé-
lagsins tryggði sér sæti í úrslit-
um íslandsmótsins, þar sem
mótheijarnir verða þeir sömu og
í úrslitum bikarkeppninnar,
Valsmenn. Það Iið sem fyrr sigr-
ar í þremur viðureignum hamp-
ar meistaratitlinum og það gæti
því þurft fimm Ieiki til að skera
úr um sigur.
Fyrsti leikurinn verður laugar-
daginn 18. mars að Hlíðarenda en
Valsmenn koma í KA-heimilið
þriðjudaginn 21. mars. Aftur verð-
ur leikið í Reykjavík fimmtudag-
inn 23. mars og KA-heimilinu
laugardaginn 25. mars. Ef fimmta
leikinn þarf til að skera úr um úr-
slit verður hann í Reykjavík
þriðjudaginn 28. mars. Ekki er
endanlega búið að ákveða leik-
tíma en allar líkur á að leikimir
hefjist kl. 16.30 laugardagana en
20.30 í miðri viku.
„Þaó verður ábyggilega kjaft-
fullt á báðum stöðum,“ sagði Þor-
valdur Þorvaldsson, formaður
handknattleiksdeildar KA, í sam-
tali við Dag. Handknattleiksdeild-
in stendur nú í undirbúningi fyrir
leikina og það er að mörgu að
huga. „Menn eru orðnir nokkuð
skólaðir í þessu. Við fengum
smjörþefmn af þessu á móti Vík-
ingum og þá var mikill fjöldi
sjálfboðaliða, sem voru tilbúnir til
aó hjálpa til. Það verður mikið um
að vera og við ætlum kannski að
vera meó einhver skemmtiatriði
fyrir leik og í hálfleik til aó stytta
aðeins tímann, því fólk mætir ör-
ugglega í húsið klukkutíma fyrir
leik. Við ætlum að gera þetta eins
skemmtilegt og mögulegt er þann-
ig að þetta verði góð fjölskyldu-
skemmtun,“ sagði Þorvaldur.
Formaðurinn vildi ekki gefa
upp hvað marga leiki hans menn
þyrftu til að vinna titilinn. „Gjald-
kerinn vonar að þetta verði sem
flestir leikir en ég veit áð leik-
mennimir vilja hafa þá sem fæsta
og vera búnir að vinna titilinn sem
fyrst,“ sagði Þorvaldur og hann
viðurkenndi að þrátt fyrir að vel
hefði bæst í peningakassann að
undanfömu væri enn pláss fyrir
meira.
KA-menn voru glaðbeittir þegar þeir komu til Akureyrar seint á mánudags-
kvöld eftir sigurleikinn i Víkinni. Nokkrir dyggir stuðningsmenn voru mætt-
ir til að taka á móti liðinu og hér sést Patrekur Jóhannesson bregða á leik
með ungum aðdáanda. Mynd: sh
Skíði - Fjarðargangan:
Heimamenn sigruðu í öllu
Fjarðargangan, önnur í röðinni
íslandsgangna 1995, fór fram í
Ólafsfirði á laugardaginn. Geng-
ið var í erfiðu færi, suðvestan él
og skafrenningur en keppendur
Körfuknattleikur:
Veröur Hrannar
Hólm áfram
með Þórsara?
létu það ekki á sig fá. Heima-
menn sigruðu í öllum flokkum
og Kristján Hauksson sigraði
með yfírburðum í flokki karla
17-34 ára.
Heimamaðurinn Kristján hafði
talsverða yfirburði í flokki 17-34
ára karla þar sem hann gekk 20 km
á 57.58 mínútum. Haldur Her-
mannsson frá Reykjavík kom
næstur á 1.01.56 mín. og Gísli
Harðarson frá Akureyri varð þriðji
á 1.02.24 mín. Fjórði varð Tryggvi
Sigurðsson frá Olafsfirði á 1.03.33
mín. en hann sigraði einmitt í
fyrstu íslandsgöngunni, Bláfjalla-
göngunni, um síðustu helgi.
í flokki 35-49 ára sigraði
Haukur Sigurðsson frá Ólafsfirói
á 1.05.51 mín. og Jón Konráðsson
kunni einnig vel við sig á heima-
slóðum og gekk á 1.09.00 mín.
Þórhallur Asmundsson frá Sauðár-
króki kom þriðji í mark á 1.10.35
mín og Kristinn Asmundsson frá
Ólafsfirði varð fjórði á 1.28.43
mín.
I flokki 50 ára og eldri sigraði
Bjöm Þór Ólafsson frá Ólafsfirði
á 1.05.25 mín. og Þorlákur Sig-
urðsson frá Akureyri varð annar á
1.10.47 mín. Þriðji kom Stefán
Jónasson, Akureyri, á 1.12.51
mín. og Rúnar Sigmundsson, ná-
granni hans frá Akureyri, kom á
hæla honum á 1.13.12 mín.
í 10 km göngu í opnum flokki
karla sigraði Ami Gunnar Gunn-
arsson frá Ólafsfirði á 40.44 mín.
og annar heimamaður, Ragnar
Freyr Pálsson, varð annar á 43.56
mín. Reykvíkingurinn Hreggviður
Jónsson varð þriðji á 54.46 mín.
og Ólafsfirðingurinn Svavar B.
Magnússon fjórði á 55.48 mín. í
opnum kvennaflokki sigraði hin
efnilega Svava Jónsdóttir frá Ól-
afsfirði á 46.29 mín. en næst
henni kom Helga Malmquist frá
Akureyri á 49.06 mín.
Aðalfundur KA:
Þátttöku Þórs í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik tfmabilið 1994-
1995 Iauk á sunnudagskvöldið
þegar Þórsarar töpuðu fyrir
Keflvíkingum öðru sinni í 8-liða
úrslitum. Þrátt fyrir að vera
fallnir úr leik dylst engum að ár-
angur Þórs var mjög góður í vet-
ur og þvert á allar spár „fróðra“
manna.
Keflvíkingurinn Hrannar Hólm
hefur þjálfað Þórsara undanfarin
tvö ár en er á enda samnings og
ekki komið á hreint hvort hann
verður með liðið næsta vetur.
„Það skýrist á næstu dögum og
vikum. Það var allt sett í biðstöðu
meðan við vorum enn aó leika en
nú erum við komnir í frí og við
munum ræða þessi mál á næstu
dögum,“ sagði Hrannar í samtali
við Dag. Síðasta sumar gekk ann-
ar Keflvíkingur, Kristinn Friðriks-
son, til liðs við liðið og Hrannar
sagði töluvert góðar líkur á að
hann verði áfram.
Aðspurður sagðist Hrannar
leggja áherslu á að fá nýja leik-
menn til að styrkja liðið ef hann
verður áfram. „Já, ég held að við
verðum að vera pínulítið sterkari.
Það er kannski meira metnaðar-
hugsun í mér heldur en einhver
liðshugsun," sagði Hrannar.
Alfreö Gíslason sæmdur
silfurmerki félagsins
- Sigmundur Þórisson endurkjörinn formaður
Aðalfundur KA var haldinn
fimmtudaginn 9. mars sl. Auk
venjulegra aðalfundastarfa voru
m.a. umræður um starf For-
eldrafélagsins, vallarmál og að-
stöðu knattspyrnumanna, Qár-
mál einstakra deilda og auglýs-
ingamál í KA-heimilinu.
Alfreð Gíslason, leikmaður og
þjálfari meistaraflokks í hand-
knattleik, var sæmdur silfurmerki
félagsins fyrir frábæran árangur,
en félagið hefur nú tryggt sér sæti
í úrslitum um Islandsmeistaratitil-
inn og er Bikarmeistari.
Sigmundur Þórisson var endur-
kjörinn formaður KA; aðrir í
stjóm Björgólfur Jóhannsson,
Bragi Sigurósson, Einar Jóhanns-
son, Geir A. Guðsteinsson, Ingi-
björg Ragnarsdóttir og Rafn
Sveinsson og í varastjóm Ámi
Pálsson, Guðrún Jóhannesdóttir
og Hermann Haraldsson. GG