Dagur - 08.04.1995, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 ■ SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1600 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Gengid að kjörborðí
Kosningabaráttunni er lokið og landsmenn ganga að
kjörborðinu í dag til þess að gera upp sinn hug.
Þetta hefur verið stutt en nokkuð snörp kosninga-
barátta. Veðrið hefur sett strik í reikninginn, ekki síst í
Norðurlandskjördæmi eystra og vestra. Fyrir vikið hafa
flokkarnir komið skilaboðum til kjósenda fyrst og
fremst í gegnum fjölmiðla. Hlutur þeirra í kosningabar-
áttunni er stærri en nokkru sinni áður. Þeir hafa sinnt
þeirri lýðræðislegu skyldu sinni að gefa flokkunum
tækifæri til að koma skilaboðum sínum til kjósenda.
Það hefur ekki farið fram hjá lesendum Dags að blaðið
hefur verið afar virkur miðill fyrir þessar kosningar og
allir flokkar hafa nýtt sér blaðið til þess að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri. Þetta undirstrikar betur en
margt annað gildi Dags sem öflugs norðlensks frétta-
blaðs sem er óháð stjórnmálaflokkunum.
Auglýsingar hafa verið mjög áberandi í þessum
kosningaslag. Um gildi þeirra verða menn víst seint
sammála, en greinilegt er að flokkarnir hafa trú á að
þetta sé leið til þess að koma skilaboðum til kjósenda.
Um það er ekkert nema gott að segja ef auglýsingarn-
ar fara ekki út fyrir öll skynsemismörk og sem betur fer
verður ekki séð að það hafi gerst.
Skoðanakannanir hafa líka verið fleiri fyrir þessar al-
þingiskosningar en nokkru sinni áður. Síðustu dagana
hefur niðurstöðum kannanana verið dælt yfir lands-
menn upp á hvern einasta dag og þykir mörgum nóg
um. Það er með skoðanakannanir eins og svo margt
annað að íslendingar virðast ekki geta kunnað sér hóf.
Þetta flóð kannana er orðið yfirgengilegt og mættu for-
svarsmenn stærstu fjölmiðlanna staldra við og spyrja
sig þeirrar spurningar hvaða tilgangi svo margar kann-
anir þjóni.
Það hefur borið á nokkru áhugaleysi almennings
gagnvart alþingiskosningunum í dag, það er ákveðin
kosningaþreyta í fólki. Ef til vill er því um að kenna að
síðla árs 1993 greiddu landsmenn atkvæði um samein-
ingu sveitarfélaga og fyrir tæpu ári síðan voru sveitar-
stj órnarkosningar.
Þessi kosningaþreyta má hins vegar ekki verða til
þess að fólk sitji heima í dag. Dagur skorar á kjósendur
að fara á kjörstað og nýta sér þann dýrmæta rétt að
hafa eitthvað um það að segja hvaða fulltrúar sitja á
Alþingi íslendinga næstu fjögur árin.
I UPPAHALDI
„Brosa út að eyrum“
dag opnar Gréta
IBerg sýningu í
Listhúsinu Þingi
á Akureyri. Sýn-
ingin nefnist,
Ljóð Davíðs Stef-
ánssonar í myndverkum.
Gréta erfœdd á Akureyri
og hefur búið þar síðustu
ár. Hún er hjúkrunar-
frœðingur og myndlistar-
kona og starfar á Dvalar-
heimilinu Hlíð. Eigin-
maður hennar, Stefán
Kristjánsson, starfar í
Slippstöðinni. Þau hjónin
eiga jjögur börn. Gréta
hélt einkasýningu árið
1969 í Valbjörk á Akur-
eyri og hefur tekið þátt í
samsýningum Myndhóps-
ins á Akureyri. Nú sýnir
hún tuttugu verk, pastel-,
olíu- og rauðkrítarmynd-
ir, sem eru allar byggðar á
Ijóðum skáldsins frá
Fagraskógi. „Ég er búin
að eiga þennan draum í
mörg ár enda hafa Ijóð
Davíðs alla tíð höfðað
sterkt til mín. Sýningin er
list aflist, draumar sem
rœtast,“ sagði Gréta.
H vaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Grænmeti og grjón.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Þjónusta cnglanna eftir Joy
Snell, hún er algjört hugarkon-
fekt.“
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
„Steingeit.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Sinfóníhljómsveit Norðurlands,
Diddú og Egill Ólafsson."
Hvaða myndlistarmaður er í mestum
metum hjá þér?
„Einar Jónsson.“
Uppáhaldsleikari?
„Barbara Streisand."
Um hvað liugsarþú mest?
„Heimspeki og ást.“
Gréta Berg.
Uppáhaldsdrykkur?
„Kaffi. Ég get ekki hætt að
drekka það en vatn er samt best.“
Hvaða heimilisstörffinnst þér
skemmtilegust?
„Að þvo og gera hreint í glaða
sólskini."
Stundar þú einhverja markvissa
hreyfmgu eða líkamsrœkt?
„Ég dansa á stofugólfinu.“
Ert þú í einhverjum kliíbb eða fé-
lagasamtökum?
„Skemmtilegum og uppbyggj-
andi kaffiklúbb sem er leshring-
M
Hver er að þínu matifegursli staður
á íslandi?
„Þegar sálin hrífst inn í algjcymi
andartaksins, ótal staóir, ísland
er allt fagurt."
Hvað vildirðu helst verða efþú
mœttir velja upp á nýtt?
„Leikari, söngkona, ballctdansari
og listmálari.“
Hvaða hlut eðafasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mund-
ir?
„Comby Camp tjaldvagn, til að
fcrðast um landið og má!a.“
Hvernig vilt þú helst verja frístund-
um þínum?
„Vcrða barn meó bömunum rnín-
um.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirþú? Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Dag, Samhjálp og Heimili og „Brosa út aó eyrum í Listhúsinu
skóla.“ Þing> frá þrjú til níu.“ KLJ
BAKÞANKAR
KRISTINN C. JÓHANNSSON
Um umbúðalaust Bragakaffi á flugi
og slettur í mannlífinu
Barnabörn frú Guóbjargar búa í útlöndum.
Það er erilsamt. Hún er þess vegna oft í há-
loftum. Til þess notar hún helst flugvélar. Ég
er einatt með sem ekki er heldur næðisamt.
Mér hefur alltaf gengið illa aó líta á flug-
vélar sem samgöngutæki og er reyndar allt-
af jafn hissa þegar ég lendi heilu og höldnu.
En ekki kemur þetta málinu vió nema
vegna þess aó eitt sinn var frú Guóbjörg að
ferðast svona með mig og viö komin alla
leið til Reykjavíkur á heimleió. Var nú aó
hefjast síðasti áfanginn með flugvél til Akur-
eyrar og þrátt fyrir vantrú mína á þessum
ferðamáta ætlaði ég að láta slag standa rétt
einu sinni.
Það hafði verið rysjótt veður dagana á
undan var okkur sagt og hreitur þess enn í
lofti.
Ég var nú reirður niður í sætið og skorð-
aður með Mogga fyrir framan mig svo aó
allt virtist nú óttalaust tilsýndar og síðan
vorum við komin á loft.
Er nú allt tíðindalaust um stund eða
þangað til elskuleg flugfreyja býður upp á
kaffi og vegna þess ég var kominn alla leið
frá Mið-Evrópu þennan sama dag og farið
að förlast nokkuð þáði ég þessar höfóing-
legu veitingar og hefói þó betur látið ógert.
Sit ég nú býsna mannalegur með plast-
baukinn og dreypi á með hæfilegu millibili
en drykkurinn snarpheitur. Þá bregður svo
vió aó rósemi flugsins var ekki meir. Fór nú
flugvélin aó hegða sér eins og hún væri á
holóttum malarvegi sem átti þó ekki að
vera, síðan uróu stórar gjótur á vegi okkar
og þar næst fórum við að detta mislangt í
einu og ég lyftist í sætinu svo strengdist á
beltunum og hélt mér dauðahaldi í plast-
baukinn flugfreyjunaut og reyndi að hemja
innihaldið og tókst lengi vel. Svo kom að
því aó flugvélin féll óvenju langt og snöggt
og þegar mér veróur litið á kaffistampinn
minn sé ég mér til skelfingar að kaffið fylgir
okkur ekki eftir í dýfunni heldur tekur flugið
umbúóalaust og er nú með sjálfstæðar flug-
æfingar yfir höfðum okkar. Nú stoppum við,
ég og tómur bollinn snöggt eftir langvarandi
nióursveiflu og kyrrist nú flugið.
Nú bíó ég með bollann í útréttri hendi og
þess albúinn að taka við molakaffinu þegar
því þóknaðist að skila sér aftur. En þegar
þaó hóf flugið sýndist mér þetta vera Braga
kaffi úr grænu pökkunum, það hafði svo-
leiðis flugstíl. Og nú ákveóur það að lenda
og ég rétti upp baukinn. Það var fánýt að-
gerð enda sneri ekki dropi af því aftur til
fyrri heimkynna sinna.
Þannig stóð á fyrir mér á þessu ferðalagi
að ég var klæddur frakka miklum að flatar-
máli og var hvítur í upphafi þessa ferða-
lags. En svo kemur kaffið í gáleysislegum
slettum yfir frakkann minn hvíta og í andlitið
á mér og sumt meira að segja yfir frú Guó-
björgu, sem drekkur þó aldrei kaffi hvað þá
hún noti það útvortis. Þegar allt kaffið var
nú lent var ég blesóttur, frakkinn minn mó-
sóttur en frú Guðbjörg bíldótt og líkaði öll-
um illa hlutskipti sitt.
Nú vildi flugfreyjan afsaka þessar ærsla-
fengnu kaffiveitingar og jafnvel aó bæta
tjónið, gott ef hún bauðst ekki til að þvo okk-
ur í framan báðum og frakkann í höndunum.
Viö afþökkuðum þetta allt og töldum
okkur fullfær um að koma okkur í samt lag
aftur og í eðlilega liti ef við bara kæmumst
að öóru leyti ósködduð heim og það geró-
um við eftir margítrekaðar afsökunarbeiðnir
og blessunaróskir og von um við kæmum
sem fyrst aftur að fljúga og kaffi með.
Þetta var saga um slettur sem menn
verða fyrir alls óvænt og ekki alltaf verð-
skuldað en eru svoleióis að menn eru al-
deilis varnarlausir gegn þeim.
Nú er liðinn aódragandi alþingiskosn-
inga og margir orðnir slettóttir eftir atgang-
inn vegna þess að aldrei ganga gusurnar
hærra né víðar en þá og sletturnar veróa
ekki eins auðþvegnar og úr yfirhöfninni
minni forðum enda þeim ekki beint að
klæðnaói manna heldur æru þeirra og heió-
arleika.
Er nú mál að linni enda nóg slett.
Nú göngum við glaðbeitt í kjörklefann að
teikna þetta afdrifaríka ex og vonum svo
hið besta hver fyrir sig. Enda þótt misjafn
sé tilgangurinn sem fyrir oss vakir með ex-
inu ætlum við öll að kjósa þaó sem við álít-
um þjóðinni heilladrýgst.
Vonandi mást svo sletturnar af með tím-
anum og allir orðnir hvítþvegnir þegar næsti
slagur hefst.
Svona er þetta nú í stjórnmálunum og
jafnvel líka í persónulegum viðskiptum
manna á meða! og verður sennilega alltaf
og undur þarf handlagna menn til aó kom-
ast úr ferðalaginu án þess að fá á sig ágjöf
frá samferðafólkinu eða að svo laus við
veðrabrigði verói ferðin aó maður fái ekki
ýmislegt umbúðalaust yfir sig þegar flugið
daprast.
Kr. G. Jóh.
(Höfundur er fyrrverandi kartöflubóndi)