Dagur - 08.04.1995, Page 8

Dagur - 08.04.1995, Page 8
3 - DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1995 Óperutónleikar á Akureyri 12. apríl nk. JHakka til að syngja fyrir mitt heimafólk - segir JCristjánJóhannsson, sem hefur ekki sungið ájlkureyri í ellefu ár „Blessaður vertu, ég hef það fínt. Hér er farið að vora, bændur bera mykju á tún og menn ganga um með þvottaklemmu á nefinu. Þetta er allt eins og það á að vera,“ sagði Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, þegar Dagur hringdi í hann til Ítalíu á dögunum. Aldrei verið í svona góðu formi „Líklega hef ég aldrei verið í svona góðu formi. Ég er í mjög góðu jafnvægi, búinn að ná fullkomnum tökum á sjálfum mér, baeði sálarlega og Iíkamlega,“ segir Kristján m.a. í viðtalinu. Kristján kom til landsins sl. fimmtudag. „Eg veró í tvo daga í upptökum í Reykjavík með Karla- kór Reykjavíkur. Eg ætla að syngja nokkur lög meó þeim, auk þess sem ég syng tvö lög einn og dúett meö Kristni Sigmundssyni. Síðan fylgist ég auðvitað mcö kosningununr á laugardag (í dag - innsk. blaðam.) og veró andlegur stuóningsmaður tengdamóöur minnar (Rannveigar Guðmunds- dóttur, félagsmálaráðherra - inn- skot blaðam.). Eg ætla síóan að koma noróur á sunnudag og l'ara í fermingarvcislu bróöurdóttur minnar (Völu Hauksdóttur Jó- hannssonar - innskot blaðarn.). Við hellum okkur svo í ælingar 10. og 11. apríl." - Þaú verður þá skanmmr tími sem þið hafið til œfinga? „Fyrir atvinnufólk er þctta al- veg nógu langur tími og hljóm- svcitin verður cfiaust búin að und- irbúa sig vel fyrir tónleikana?" Ljóðrœnir tónkikar - Hvað geturðu sagt niér um efn- isskrá þessara tónleika? „Fyrir mig cr þetta prógram nokkuö óvcnjulcgt. Það er í lýrískari kantinum. Eg hef ekki sungið svona lýrik í mörg ár. En ástæóan fyrir þessu verkefnavali er að hluta sú að Diddú er Ijóð- rænn söngvari. Við syngjum m.a. gullkorn úr La Boheme og La Traviata, sem er mjög ljóðræn músík. Fyrir mig er það mjög gott að fást líka við þessa tegund af tónlist, komast um stund frá dram- anu. Þaó er mjög góð hvíld fyrir röddina. Ég held að þessir tónleikar séu vel upp settir og hafl góðan heild- arsvip. Eg er þess fullviss að þetta prógram á eftir að falla áheyrend- um vel í geð.“ - Þú hcfur ekki sungið áður með Diddú? „Nei. Við höfum komið fram í sitt hvoru lagi vió sama tækifæri, en þetta er í fyrsta skipti sem við syngjum saman. Diddú er sá ís- lenskur söngvari sem ég hef mest samband við, hún heimsækir okk- ur gjarnan þegar hún er stödd hér á Ítalíu, og vió þekkjumst því vel. Diddú hefur rétta hugarfariö til þess sem hún er að gera, hún er agaður og fágaóur söngvari." Söng síðast 1984 á Akureyri - Ef við rifjum það aðeins upp, hvað er langt síðan þú söngst síð- ast á Akureyri? „Mér sýnist það vera ein ellefu ár. Ég held ég muni það rétt aó ég hall ekki sungið heima á Akurcyri síóan 1984. Þessir tónleikar hafa vcrið í bígerð í ein fjögur ár, en þetta tókst að lokum og það er mjög vel að þeim staðið. Eg hlakka afar mikið til að syngja fyrir mitt heimafólk. í gegnum tíðina hafa Akureyringar og norðlenskir áheyrendur aldrei brugóist mér. Ég hef alltaf reynt að gera mitt allra besta á Akureyri sem annars staöar og stundum hcfur mér tckist vel upp.“ Á ferð og flugi - Ef við víkjum að öðru. Hvað hefurðu verið að fást við að und- anförnu? „Ég hef vcrið víða, til dæntis í Chicagoóperunni og á Metropolit- an. Einnig hef ég sungió í II Tro- vatore í Vínaróperunni og Ríkis- ópcrunni í Munchcn." - Er þessi þeytingur ckki þreyt- andi? „Nei, ég held aó það hljóti að vera meira þrcytandi að sitja í tíu tíma á dag eins og þú gerir! Við fjölskyldan gerðum samkomulag fyrir tíu áruni síðan um að við hittumst ekki sjaldnar en hálfs- mánaðarlega. Við þetta hefur hundraó prósent verió staðiö." - Hefurðu verið að syngja ein- hver ný hlutverk? „Já, ég er þessa dagana að æfa Oþello sem ég mun spreyta mig fyrst á 1996 hérna í Bologna á Italíu. Ég vinn þetta með þekktum þýskurn hljómsveitarstjóra og óperustjóra í Berlín sem heitir Tieleman. Einnig verð ég að vinna með Chung, heimsfrægum kóreönskum stjómanda, að uppfærslu á óper- unni Samson og Dahlila eftir Saint Saens í Hamborg á næsta ári. Bæði eru þessi hlutverk ný fyrir mér. Síðan var ég að Ijúka við vinnslu tveggja hljómdiska. Ann- ars vegar er þar urn að ræða hcild- arupptöku á Aida, á vegum Nax- os, og hins vegar kom út á dögun- um í Þýskalandi hljómdiskur með m.a. aríum el'tir Puccini og Verdi sem ég söng í fyrra í Þýskalandi. Þcssi diskur kemur út á vcgum Sony. Ég er mjög ánægður með þessa diska, þó sérstaklega upptökuna á Aida. Upptökustjórnandinn var hreint l'rábær, einhver mesti fag- maður sem ég hcf unnið með á þessu sviði. Upptakan fór fram á Bretlandseyjum, að hluta til í London og Dublin á Irlandi. Söngvararnir eru frá mörgum löndurn, kórinn er írskur og sömu- leiðis sinfóníuhljómsveitin. Ég vil líka nefna að á næstunni syng ég inn á tvo nýja geisladiska á vegum Naxos. Annars vegar syng ég tenórhlutverkið í upp- færslu á óperunni La Forza del Destino eftir Verdi. Upptaka á þessum diski fer fram hér á Italíu í september í haust. A næsta ári tek ég þátt í upp- töku óperunnar Turandot eftir Puccini fyrir Naxos og fer hún fram á Englandi." - Hlutur þinn í plötuupptökuni hefur greinilega verið að aukast? „Já, það hcfur farið skriða af stað, sem bendir til þess að ég sé orðinn þekktara nafn og þetta er kærkomið tækifæri fyrir mig til þess að ná eyrum fólks á götunni, tónlistaráhugafólks sem ekki sæk- ir óperuhúsin. Þetta er mikilvægt atriði.“ Bókaður til 1998 - Þegar ég hringdi í þig á dögun- uni varstu upptekinn í viðtali við blaðamann frá þeirri heimsþekktu fréttastofu AP (Associatet Press). Ertu inikið ífjölmiðlaviðtölum? Já, þetta hangir allt á sömu spýtunni, fjölmiðlaumfjöllunin er að aukast líka. Þcssi blaðakona frá AP, sem skrifar um menningar- mál, hafði séð mig á Metropolitan og vildi fá að fræðast frekar um mig." - Hvað vilja erlendir blaða- menn fá að vita? „Þeir spyrja mikið um Iand og þjóð; stöðu landsins, atvinnuvegi, veðráttu og þjóðarkarakter. Blaða- menn tala gjaman um okkur sem Skandinava, en ég hef reynt að bera á móti því. Þeir undrast það mjög að við, þessi litla þjóð, skul- um eiga marga frambærilega lista- menn og þeir missa andlitió þegar maður segir þeim að í Reykjavík, 100 þúsund manna samfélagi, séu þrjú „professional" leikhús og fullt sé á hverja sýningu eða því sem næst.“ - Hvað ertu bókaður langt fram í tímann? „Ég hef verið að reyna aö minnka bókanirnar til þess aó fá meira rými, en mér sýnist ég engu að síður vera bókaður þrjú ár fram í tímann. Ég er þessa dagana að skipulcggja leikárið 1998-1999.“ - Annast þú sjálfur þessa skipulagningu? „Vió gerum þetta í sameiningu, ég, frúin og umboðsmaðurinn minn. Ég get í þessu sambandi sagt þér frá uppákomu sem ég bíð mjög spenntur eftir. A næsta ári mun ég syngja Turandot eftir Puccini í Flórens undir stjórn þess fræga Zubin Metha, sem m.a. stjómaði á konsertinum fræga vestur í Banda^ ríkjunum meö tenórunum þrem. I tengslum við þessa uppfærslu t Flórens er ætlunin að gera mynd- band og síðan munum við fara með sýninguna til Kína og Hong Kong. Þaö er ný reynsla fyrir mig. Ég hef sungió austur í Japan en aldrei áður í Kína.“ í toppformi - í hvernig fornti ertu uni þessar ntundir? „Ég er í alveg rosalega góðu formi. Líklega hef ég aldrei verið í svona góðu formi. Ég er í mjög góðu jafnvægi, búinn að ná full- komnum tökum á sjálfum mér, bæði sálarlega og líkamlega. Þar að leiðandi get ég fullyrt aó ég hafi aldrei verió í betra formi." - Ertu þá á hátindiferilsins? „Já, ég myndi segja það. Ég ætla að vera næstu fimmtán árin í toppformi og láta sem allra mest og best af mér leióa. Eftir það fer ég að draga bensíngjöfina aðeins upp á við.“ - Þarftu að hugsa inikið uni að halda þér í góðu líkamlegu fornii? „Já, ég geri það. Ég fitnaöi reyndar hclvíti mikið í fyrra og hitteðfyrra, var latur að hreyfa mig. Ég söng að vísu um 80 sýn- ingar á ári þannig að það gafst ekki mikill tími til annars en að syngja, borða og sofa. Núna hef ég fækkað sýningunum talsvert mikið og jafnframt drifið mig í líkamsræktina. Ég er um 10 kíló- um léttari en ég var i l'yrra og al- veg ferlega sætur. Það segir konan mín að minnsta kosti," sagði stór- söngvarinn Kristjan Jóhannsson aö lokum. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.