Dagur - 08.04.1995, Page 18
18 - DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1995
4 ----- 'JT'r
Kaffíhlaðborð
alla sunnudaga
Lindin við Leiruveg
sími 21440.
5 --------------.__________J
ÚTBOÐ
GLERÁRGATA 26 EHF (hlutafélag í eigu Akur-
eyrarbæjar og Lífeyrissjóðs Norðurlands) óskar
hér meó eftir tilboðum í innanhússfrágang í Gler-
árgötu 26, Akureyri.
Helstu verkþættir eru:
Uppsetning milliveggja, innréttingasmíði, frágangur
gólfa og lofta, og hita,- hreinlætis- og raflagnir.
Útboósgögn verða afhent á Teiknistofunni FORM,
Kaupangi v/Mýrarveg, 600 Akureyri, sími 96-26099, frá
og með mánudeginum 10. apríl til og með 12. apríl
1995, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11.00 þriðju-
daginn 25. apríl 1995 og verða þau þá opnuð að við-
stöddum bjóðendum sem þess óska.
GLERÁRGATA 26 EHF.
Jafnar greiðslur
Óverðtryggð lán
til allt að 5 ára með jöfnum greiðslum
allan lánstímann!
íslandsbanki vill stuöla aö stööugleika í fjármálum heimilanna og býöur nú nýjan
lánamöguleika. Óverötryggö lán til allt aö S ára meö jöfnum greiöslum allan lánstímann.
Leitaöu upplýsinga í nœsta útibúi bankans.
ÍSLANDSBANKI
- í takt viö nýja tíma!
*Um er aö rœöa jafngreiöslulán. Creiöslubyröi þessara lána veröur jöfn út lánstímann á meöan vextir breytast ekki.
Aðalfundur Sjálfs-
bjargar á Akureyri:
Mótmælir
lítilli hækk-
unbóta
almanna-
trygginga
Aðalfundur Sjálfsbjargar, félags
fatlaóra á Akureyri og nágrenni,
haldinn fimmtudaginn 6. apríl
1995, mótmælir harðlega setningu
reglugeröar Sighvats Björgvins-
sonar heilbrigðisráöherra, nr 184
17/3 1995, um hækkun bóta al-
mannatrygginga um aðeins 4,8%,
því með útgáfu hennar eru þver-
brotin ákvæði 86. gr. almanna-
tryggingalaga sem kveóa á um að
bætur hækki í samræmi við breyt-
ingar sem verða á vikukaupi.
Samningur almennu stéttarfé-
laganna, sem miðað er við, kvað á
um hækkun mánaðarlauna um
2.700 kr., auk þess sem hækka
skyldi þau laun um kr. 100 fyrir
hverjar 4.000 kr. sem taxtinn væri
lægri en kr. 84.000.
Fjórir bótaflokkar trygging-
anna, grunnlífeyrir, tekjutrygging,
heimilisuppbót og sérstök heimil-
isuppbót voru í febrúar 48.028 kr.
og áttu því að hækka samkvæmt
lögunum um 2.700 kr., auk 900
kr. af láglaunauppbótinni, eða
samtals kr. 3.600.
Reglugerðin skilar aðeins kr.
2.306 og hirðir því ríkisstjórnin
kr. 394 af launataxtahækkuninni
og alla láglaunahækkunina eða
samtals kr. 1.294 og er þaó 36%
þeirrar hækkunar sem falla átti í
hlut lífcyrisþega.
Aðalfundurinn beinir þeirn ein-
dregnu tilmælum til stjóma Ör-
yrkjabandalagsins og Sjálfsbjarg-
ar, landssambands fatlaðra, að þær
nú þegar kæri mál þetta til um-
boðsmanns Alþingis, sem brot
framkvæmdavaldsins á skilyrtum
ákvæðum löggjafans varðandi
tryggingarmál lífeyrisþega.
Fréttatilkynning.
Halldórsmót BA:
Þrjár sveitir
jafnar
Þegar aóeins fjórar umferðir af
ellefu eru eftir í Halldórsmóti
Bridgefélags Akureyrar, eru þrjár
sveitir efstar og jafnar með 122
stig. Þetta eru sveitir Grettis Frí-
mannssonar, Sigurbjörns Haralds-
sonar og Páls Pálssonar.
Sveit Byltingar er í fjórða sæti
með 98 stig og sveit Gylfa Páls-
sonar í því fimmta með 97 stig.
Það verður því hart barist þegar
fjórar síðustu umferðirnar verða
spilaðar en það verður þó ekki
fyrren þriðjudaginn 18. apríl nk.
Næsta þriðjudag verður spiluð
önnur umferð í Akureyrarmótinu í
Einmenningi, sem jafnframt er
firmakeppni félagsins og eru
keppendur beðnir að mæta tíman-
lega til skráningar. KK
Hátíðar- og kynn-
ingarfundur
AA-samtakanna
Hátíðar- og kynningarfundur AA-
samtakanna á Akureyri verður
haldinn á föstudaginn langa, 14.
apríl nk. kl. 21.00 í Borgarbíói.
Eftir fundinn verður boðið til
kaffisamsætis í Húsi aldraðra.
Allir hjartanlega velkomnir.
AA á Akureyri.