Dagur


Dagur - 10.04.1995, Qupperneq 4

Dagur - 10.04.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Mánudagur 10. apríl 1995 LEIPARI--------------------- Ovissa um stjómarmymdun ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRETTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Fullkomin óvissa ríkir um myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir alþingiskosningarnar sl. laugardag. Nokkrir mögu- leikai eru vissulega uppi á borðinu en enginn er öðrum fremur líklegri. Það liggur auðvitað alveg Ijóst fyrir að núverandi stjómarflokkar, Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur, munu ræðast við til að byrja með, enda halda þeir þing- meirihluta sínum þó hann sé tæpur. En meirihluti er það engu að síður og enginn skyldi afskrifa að þessir flokkar nái saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Það er að vísu deginum ljósara að sú stjórn verður ekki mynduð án þess að ágreiningsatriðum sem sett hafa mark sitt á samstarf flokkanna á síðasta kjörtímabili verði ýtt út af borðinu með nákvæmu orðalagi 1 stjórnarsáttmála. Slík ríkisstjórn er andvana fædd nema með samkomulagi í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum og Evrópumál- um. Orð Þorsteins Pálssonar í garð Alþýðuflokksins fyrir kosningar voru ekki tilviljun og það skyldi enginn haída að hann sé einn á þessari skoðun í Sjáífstæðisflokknum. Það er því augljóst mál að ef Davíð og Jóni Baldvin á að takast að berja saman stjórnarsáttmála þurfa þeir að semja sig lið fyrir lið í gegnum ágreiningsefnin og það gæti orðið þrautin þyngri í ljósi ágreinings flokkanna í ákveðnum undirstöðumálaflokkum á liðnu kjörtímabili. Ef Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur ná ekki saman um að framlengja líf ríkisstjórnar þessara flokka er ekki líklegt, eins og sumir vilja álíta, að Davíð biðli til Kvennalistakvenna og fái þær inn til þess að styrkja meirahluta rfldsstjórnar. Það gerir formaður Sjálfstæðis- flokksins ekki nema að ná fyrst málefnalegu samkomu- lagi við Alþýðuflokkinn. En hvað er þá í spilunum? Því er erfitt að svara en ekki ólfldegur möguleiki í stöðunni væri þá tveggja- flokkastjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Framsóknarflokkur styrkti stöðu sína verulega í þessum kosningum og hann er nú búinn að tryggja sér þá stöðu á suðvesturhorninu að vera næststærsti flokkurinn. Þar með hefur Halldóri Ásgrímssyni tekist það ætlunarverk sitt að tryggja stöðu Framsóknarflokksins í þéttbýlinu. Það leikur enginn vafi á því að Framsókn er sigurvegari þessara kosninga, sigur formannsins, Halldórs Ásgríms- sonar, er umtalsverður. Ef horft er til málefna er tiltölulega stutt á milli Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta gildir um Evr- ópumálin, sjávarútvegsmál og landbúnað svo eitthvað sé nefnt. Það er þó ekki þar með sagt að samstarf þess- ara flokka sé borðleggjandi. Það kann nefnilega að tor- velda rfldsstjóraarsamstarf miklu fremur en hitt hversu mikið Framsóknarflokkur hefur styrkt stöðu sína gagn- vart Sjálfstæðisflokkunum. Þegar á allt er litið er ólíklegt að rfldsstjórnarkapall- inn gangi upp á alveg næstu dögum. Mikil óvissa rfldr um rfldsstjórnarmyndun eftir kosningarnar sl. laugar- dag. Opið bréf til hótelstjórnar KEA Alltaf er gaman að koma til Akur- eyrar og þegar veðrið skartar sínu fegursta verður tign fjallanna ógleymanleg. Eg var svo heppin að fá tækifæri til að komast til Akureyr- ar á helgarpakka KEA og Flugleiða. Það er sennilega fátt hollara stress- uðum borgarbúa aó sunnan en að komast í burtu nokkra daga, hitta yndislegt fólk, njóta norólenskrar gestrisni og láta stjana við sig af yndislegu starfsfólki, geta skroppið upp í fjall og út í Kjamaskóg, kíkt á menninguna og notið lífsins. Ásamt nokkrum öðrum fór ég í kynningarferð til Akureyrar á dög- unum til þess að sjá og heyra á hvem hátt Akureyringar taka á leik- skólamálum sínum og sérstaklega þeirri þjónustu sem snýr að bömum meó sérþarfir. Móttaka og skipu- lagning var öll til fyrirmyndar og það verð ég að segja að margt getum við af Akureyringum lært í upp- byggingu og fjárveitingu sem fer í þennan þjónustulið. Leikskólar eru vel búnir og vel mannaðir og við dáðumst að hversu faglega sterkir leikskólastjóramir, sem við heim- sóttum, eru. Það er greinilegt aó Ak- ureyringar gera sér grein fyrir að bömin eru framtíð okkar og hlúa að þeim í samræmi vió þaö. Við vorum svo heppnar að fá himneska blíðu í þessu vetrarríki, sem Norðurland er búið að vera í vetur, og til að leyfa okkur að njóta þess var keyrt með okkur inn í Kjamaskóg, stolt bæjarbúa, þar sem kyrrðin og fegurðin eru slík að manni tckst að gleyma böli heims- ins. Nóg er af matsölustöðum, sem henta buddu hvers og eins og alls staóar er fólk með þessa hispurs- lausu kurteisu framkomu sem mér finnst alltaf einkenna Norðlendinga öðrum Islendingum fremur. Menningin blómstrar í bænum og okkur tókst aö komast á leiksýningu hjá LA - Djöflaeyjuna -, stórkostlega uppfærslu sem hvert stórleikhús á höfuðborgarsvæóinu gæti verið stolt af. í Listagilinu sáum við athyglis- verða myndlistarsýningu og skoðuð- um aödáunarvert framtak norð- lenskra kvenna í margs kyns list- sköpun. Allur aðbúnaður og þjónusta á KEA er til fyrirmyndar. Þar er allt smekklegt, vandað og virðulegt. Það er fátt notalegra en aó láta dekra við sig. Að þurfa hvorki að hugsa um tiltekt eða matarundirbúning í nokkra daga er sá mesti lúxus sem útivinnandi heimilisstarfskraftur get- ur hugsað sér. Eftir að hafa rölt um bæinn, kíkt inn á Pollinn þar sem púlsinn var tekinn á handboltastemmningunni var farið heim á KEA. Þá rekum við augun í það að þama er í boði nætur- sjónvarp, já, ekki gerir hann það endasleppt við okkur lúxusinn og fleiri en ein rás. Á rás 2 er boðið upp á erótík - ja, fyrir öllu er hugsað, meira að segja hægt að horfa á er- ótíska mynd - en bíddu við, það var nú heldur betur ekki þannig. Þegar betur var að gáð reyndist þetta vera sú tegund mynda sem alls staðar eru á bannlista vegna þess að þær eru svo langt, langt fyrir neðan allt vel- sæmi og þvílíkur rangsnúningur á öllu sem kallast ástaratlot eða ástar- leikir að öllu fólki sem talist getur eólilega hugsandi hlýtur að ofbjóða, og þeir sem gerast sekir um að dreifa slíku efni á myndbandaleigum verða að sæta viðurlögum. Þess vegna langar mig að spyrja hótel- stjóm KEA: Hvemig stendur á því að hótel eins og KEA býður upp^á slíkt með því að ýta á einn takka? Eg veit að á hótelum erlendis er hægt að kaupa slíka rás inn á herbergin, ef einhver er náttúraður fyrir slíkt, og það er þó þrepi skárra en þetta. Mig langar líka að spyrja hótelstjómina: Hefur veriö gerð könnun meðal gesta um hvort þeim finnist að slík rás eigi að vera í boði? Mér var hugsað til þeirra gesta sem voru á hótelinu á sama tíma og ég, þar var t.d. forsætisráðherra okk- ar, þar var fólk frá Félagsmálaráði Hólmfríður Árnadóttir. Ég veit að á hótelum erlendis er hægt að kaupa slíka rás inn á herbergin, ef einhver er náttúraður fyrir slíkt, og það er þó þrepi skárra en þetta. Reykjavíkur, þar var starfsfólk og makar virts fyrirtækis í Reykjavík, þar var fjölskyldufólk með böm og unglinga að fara á skíði, þar var hóp- ur eldri kennara og fleira venjulegt, eðlilegt fólk og ég hugsaði: Er verið aó bjóða upp á þessa rás fyrir okkur? Mig langar líka að spyrja hótel- stjómina: Hver er tilgangurinn með slíkri rás? Hvers konar gesti hafði hótelstjómin í huga þegar hún ákvað að bjóða upp á slíka rás? Állt upplýst fólk veit aö sterk tengsl em milli ofbeldis og of mikils gláps á ofbeldismyndir. Hvað með tengsl milli klámmynda og kynferð- isáreitni á börn, sifjaspella og slíks? Bemm við sem búum í þessu landi ekki ábyrgð á hvað boðið er upp á í þjóðfélaginu? Ég gat ekki að mér gert, þegar ég var búin að láta mér ofbjóða um stund og búin að slökkva að ég fór aó hugsa um hvort lásinn á hurðinni væri nú ekki ömgglega nógu sterkur og ég fór að hugleiða hvort maður- inn sem ég mætti á ganginum fyrr um kvöldið hefði nú ekki verið eitt- hvað undarlegur í hátt og að mér læddist tortryggni og allt í einu leió mér ekki eins vel og mér hafði liðið á þessu annars yndislega hóteli. Ég vona að hótelstjórnin verði búin að sjá sóma sinn í að fjarlægja þessa rás næst þegar ég kem til Ak- ureyrar. Hólmfríður Árnadóttir, Hafnarfirði. Myndlistarkonan Anna G. Torfadóttir á Akureyri sýnir í Þýskalandi: Hefur fengið boð unt þriðju einkasýninguna Biesenfisch" ist dieser kolorierte Linolschnitt der islandischen ííerffnna G Tortadottir betitelt. Foto: Jaep A Jicctpllune in der Apotheke Ellenberg Linolschnitte aus Island ___. IflHbK ,,nH XTnh,j-»pi«;trápp.E. Rika. PPELN (ja). Undanfarnar vik- ur hafa verk myndlistarkon- unnar Önnu G. Torfadóttur verið til sýnis í Þýska- landi. Upphaflega fékk hún boð um cinkasýningu í Anna G. Torfa- Kappeln-Ellen- dóttir. berg. í framhaldi Mynd: Halldór' af því var henni boðið að sýna sömu verk í menningarmiðstöðinni í Tarp og stendur sú sýning yfir til 24. apr- íl nk. Fyrir nokkrum dögum fékk hún síðan boð um að sýna á þriðja staðnum, Súderbrarub, en allt eru ^ Fjölmörg þýsk blöð hafa farið ^ lofsamlegum orðum um sýningu Önnu og hér má sjá úrklippu úr einu þeirra. Hér má sjá eina af myndunum sem cru til sýnis í Þýskalandi. Á henni má sjá Þór vera að veiða Miðgarðs- orminn. þetta einkasýningar. Sýningarnar hafa hlotið afar góða dóma og um- sagnir birst í fjölda þýskra blaða. Anna G. Torfadóttir býr í Aðal- stræti 63 á Akureyri þar sem hún er einnig með grafíkverkstæði. Á þessum sýningum eru það 15 smámyndir sem vakið hafa hrifningu Þjóðverja. Hluti þessara mynda hefur verið sýndur hér á landi en rúman helming þeirra vann Anna sérstaklega fyrir fyrstu sýninguna ytra, í Kappeln- Ellenberg. Þar er um að ræða hóp sem hefur það fyrir reglu aó kynna erlenda listamenn og mun þaó hafa verið kennari Onnu í Myndlista- og hand- íðaskólanum, Rikardur Valtingojer, sem benti á hana. I janúar sýndi ein- mitt Ragnheiður Jónsdóttir graflk- myndir sínar á sama stað. Myndefnin á sýningu Onnu eru úr norrænni goðafræði og myndir byggð- ar á íslenskum handritalýsingum. Myndimar eru unnar sem dúkristur, síóan þrykktar á ætipappír og vatnslit- aðar. Sagðist Anna ekki vita til þess að fleiri hér á landi væru að vinna myndir meó þessum hætti. Hún sagist að vonum vera ánægð með þær góðu viótökur sem sýningar hennar hafa hlotið í Þýskalandi en norræna goða- fræóin virðist vera Þjóóverjum hug- leikin. Síðasta einkasýning Önnu var á Hjalteyri sl. sumar og fyrir rúmu ári síðan var hún með einkasýningu í Portinu í Hafnarflrói. Auk fleiri einka- og samsýninga hérlendis má geta þess aó hún hefur unnið fjölmörg verkefni fyrir leikfélög og skóla bæði sunnan og norðan heiða, t.d. fyrir Leikfélag Akureyrar, Islensku óperuna og Borg- arleikhúsið. HA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.