Dagur - 10.04.1995, Blaðsíða 9

Dagur - 10.04.1995, Blaðsíða 9
Mánudagur 10. mars - DAGUR - 9 ÍÞRÓTTIR SÆVAR HREIÐARSSON Boöganga: „Við erum alsælir" - sagði Kristján Hauksson eftir sigur Ólafsfiröinga fsfírðingar mættu vígreifír til boðgöngunnar á föstudag eftir glæsilegan árangur daginn áður þegar Gísli Einar Árnason, ísa- firði, sigraði Daníel Jakobsson, Ólafsfírði, með glæsibrag í 15 km göngu með frjálsri aðferð. Nú var það 3x10 km sem gengn- ir voru og Ólafsfírðingar voru ákveðnir í að tapa ekki aftur fyrir erkifjendunum í gögunni. Þegar upp var staðið var sigur Ólafsfírðinga öruggur eftir að hafa haft forustu allan tímann. „Við erum alsælir enda er þetta fyrsta gullió til Ólafsfiróinga í boðgöngu síðan 1984 og það var kominn tími til. Ég var búinn að lenda fjórum sinnum í öðru sæti,“ sagói Kristján Hauksson, göngu- maóur úr sigursveitinni. Kristján gekk afburða vel fyrir Ólafsfirðinga strax á fyrsta spretti, þar sem gengið var með hefð- bundinni aöferð, og tók forystu. „Ég tók fyrsta sprctt á móti Einari og við gengum saman þar til það voru um 3 km eftir. Þá náói ég að hrista hann aðeins af mér,“ sagði Kristján. Við fyrstu skiptingu, eft' ir 10 km, hafði hann 19 sekúndna forskot á Isfirðinginn Einar Ólafs- son, fulltrúa A-sveitar heima- manna. Kristján gekk á 31,45 mínútu en Einar á 32,04 mínútum. Þriðji var Þóroddur Ingvarsson fyrir A-sveit Akureyrar sem gekk á 33,24 mínútum. Ólafur Björnsson tók við fyrir Ólafsfirðinga á öðrum spretti, með frjálsri aðferð, og var með heima- manninn Hlyn Guömundsson á hælunum allan tímann og forskot norðanmanna var komið upp í 29 sekúndur við aðra skiptingu. Ólaf- ur fór sprettinn á 31,17 mín. en Hlynur á 31,27 mín. Gísli Haróar- son, sem sigraói piltallokkinn daginn áður, tók við hjá Akureyr- ingum og gekk mjög greitt, 10 km á 31.21 mínútu. Lokaspretturinn var hafínn og Daníel Jakobsson tók við af Einari fyrir Ólafsfirðinga en Gísli Einar Árnason fékk það hlutskipti að reyna að saxa á forskotið fyrir heimamenn. Daníel var staðráðinn í að gefa Gísla ekki annan mögu- leika á sigri eftir ófarirnar í göngunni daginn áóur og skilaði besta tímanum þennan daginn, 26,50 mínútum. Enn jókst forskot- ið og þegar upp var staðið kom hann í mark 1,36 mínútum á und- an Gísla Einari, sem gekk á 27,57 mínútum. Samtals tók það Ólafs- firóinga 89,52 mínútur að ganga þessa 30 km en Isfírðingar notuðu til þess 91,28 mínútu. Þriðja sprettinn hjá Akureyringum gekk Haukur Eiríksson og skilaði hann sínu hlutverki vel, gekk á 29,28 mínútum. A-sveit Akureyringa kom í mark á samanlögðum tíma 94,13 mínútum á meðan B-sveit Akurcyringa kom fjórða í mark á 108,17 sekúndum. B-sveit Akurcyringa var skemmtilega upp byggð. Þar voru feðgar saman í svcit og inun það vera fyrsta sinn sem það gerist. Jóhannes Kárason gekk fyrsta sprettinn á 40,25 mínútum og Kári sonur hans tók við. Hann fór vegalcngdina á 33,33 mínútum áóur en hann eftirlét Helga bróður sínum að klára gönguna. Helgi var sterkur fyrri hlutann en missti nið- ur hraðann síðari hlutann og end- aði á 34,19 mínútum. Daníel Jakobsson tók síðasta sprettinn fyrir Ólafsfirðinga í boðgöngunni og tryggði sinni sveit sigur. Hann fagnaði síðan aftur sigri í 30 km göngunni í gær. Skíðaganga - hefðbundin aðferð: sigraði lengri gönguna - heimafólk sigraði í kvenna- og piltaflokki Daníel Daníel Jakobsson sigraði í 30 km göngu með hefðbundinni að- ferð í gær og tryggði sér þar með sigur í göngutvíkeppni. Sigurinn var sætur fyrir Daníel eftir að hafa tapað fyrir ísfirðingnum í gærmorgun fór fram annað mótið í móthrinunni Icelandair Cup í svigi. ísfirðingurinn Arnór Gunnarsson sigraði Hauk Arn- órsson með góðri seinni ferð en Matjaz Stare frá Slóveníu varð þriðji. f kvennaflokki sigraði Trine Bakke frá Noregi og Sig- ríður Þorláksdóttir og Hallfríður Hilmarsdóttir frá Akureyri komu næstar. Haukur Arnórsson hafði for- ustu eftir fyrri ferð cn Arnór náði Gísla Einari Árnasyni t göngunni á fímmtudag. Auður Ebenesardóttir sigraði í 7,5 km göngu kvenna og Hlynur Guð- mundsson sigraði í 15 km göngu pilta 17-19 ára, en Auður og að vinna hana upp með góðri keyrslu í scinni fcrð og átti 12 hundruðustu úr sekúndu í forskot þegar upp var staóið. Kristinn Björnsson og Vilhelm Þorsteins- son náðu ckki að ljúka keppni. í kvennaflokki sigraði Trine Bakke frá Noregi með yfirburðum og átti sex sekúndur í næsta keppinaut. Ásta Haldórsdóttir datt úr lcik og sömu sögu er að segja af Brynju og Hildi Þorsteinsdætr- um. Hlynur eru bæði frá ísafirði. Nokkuð glöggar línur voru í karlagöngunni í gær. Daníel gekk rösklega og var nokkuð öruggur með sigurinn. Hann var 19 sek- úndurn á undan næsta manni, Ein- ari Ólafssyni frá Isafirði, eftir l'yrsta hring og eltir það jókst for- ustan jafnt og þétt. Daníel konr í mark á 1.29.17. Einar Ólafsson var annar í rásröðinni en Daníel númer fimm og hann komst ekki franiúr Einari fyrr cn um miðjan síðasta hring af fjórum. Einar end- aði á tímanum 1.31.01 og tryggði sér bikarmeistaratitil með þessum árangri eftir mikla baráttu við Ak: ureyringinn Hauk Eiríksson. I þriðja sæti í gær var Gísli Einar frá Isafírði og Haukur Eiríksson varð fjórði. Kristján Hauksson frá Ólafsfírði blandaði sér í baráttuna framan af en hætti keppni eftir tvo hringi. Auður sigraði Svövu I kvennaflokki, 16 ára og cldri, voru gengnir 7,5 km. Þar sigraði Auður Ebenesardóttir á 28 mínút- um og 9 sekúndum en Svava Jónsdóttir frá Ólafsfirði náði ekki að fylgja eftir góðri göngu á fimmtudag. Hún kom í mark á 30 mínútum og Sl^sekúndu. Auður er tíu árum eldri og hafði einfaldlega meiri kraft í þessa göngu. Svava virtist ekki ná sér upp og senni- lega þreytt eftir öll mót vetrarins. Þriðja varð Helga Margrét Malm- quist frá Akureyri á 31,59 mínút- um. Hlynur sterkur á heimaslóðum I piltaflokki 17-19 ára voru gengnir 15 krn og þar sigraði heimamaðurinn Hlynur Guð- mundsson nokkuð örugglega. Hefðbundna gangan er hans sterk- asta hlið og hann kom í mark á 48,26 mínútum. Amar Pálsson, einnig frá ísafirói, varð annar á 49,34 mínútum og Gísli Harðar- son frá Akureyri varð þriðji á 53,10 mínútum. Gísli vann með frjálsri aðferð á fimmtudag en náði sér cngan veginn á strik í gær og gat ekki ógnað ísfíróingunum. Úrslit ICELANDAIR CUP: Laugurdagur: Svig karla: 1. Amór Gunnarsson ísl 1.38.00 2. Matjaz Stare Sló 1.42.78 3. Jóhann H. Hafstein ísl 1.44.61 4. Valur Traustason Isl 1.44.90 5. Ingvi Geir Ómarsson ísl 1.45.42 6. Gauti Sigurpálsson ísl 1.49.50 Svig kvenna: l.GimleTrudeNor 1.19.63 2. Ásta Halldórsdóttir ísl 1.20.44 3. Trine Bakke Nor 1.20.57 4. Sigriður Þorláksdóttir ísl 1.26.75 5. Hallfrióur Hilmarsd. ísl 1.32.83 6. Kristín H. Hálfdánard. ísl 1.36.67 Sunnudagur: Svig kvenna: 1. Trine Bakke Nor 1.23.34 2. Sigríóur Þorláksdóttir ísl 1.29.53 3. Hallfríöur Hilmarsd. ísl 1.33.17 4. Hrefna Óladóttir Ísl 1.40.56 5. Kristín H. Hálfdánard. ísl 1.41.36 6. Sigríður Flosadóttir ísl. 1.42.01 Svig karla: 1. Ámór Gunnarsson ísl 1.28.27 2. Haukur Amórsson ísl 1.28,39 3. Matjaz Stare Sló 1.30.80 4. Uros Pavlovicic Sló 1.30.89 5. Aslak Ottar, Nor 1:32,67 6. Gunnlaugur Magnúss. Isl 1.33.65 Icelandair Cup - svig: Arnór sigraði -Kristinn og Vilhelm féllu úr leik ^ Handknattleikur: KA Islandsmeistari í 4. flokki karla Strákarnir í 4. flokki KA tryggðu sér íslandsmeistaratitil í sínum aldursflokki með sigri á ÍR-ingum í úrslitaleik í gær. Sig- urinn var öruggur, 15:9 eftir að KA. hafði yfír í hálfleik 9:2. Á laugardag keppti KA í und- anúrslitum Islandsmótsins gegn KR og sigruðu þar í spennandi leik 14:13. Þeir mættu því gal- vaskir til úrslitaleiks gegn há- vöxnunt IR- ingum sem voru með líkamlegra sterkara lið en KA- strákar voru mun teknískari og liprari. IR hel’ur ekki tapaó mörg- um leikjum í vetur og yfirburðir KA komu því nokkuð á óvart en það var fyrst og fremst mjög sterkur vamarleikur sem skóp sig- urinn. Mörk KA í úrslitaleiknum skoruðu þeir Heimir Árnason og Þórir Sigmundssón, sem gerðu fimm mörk hvor. Kári Jónsson skoraði tvö og Jónatan Magnús- son, Jóhannes Jónsson og Anton Þórarinsson eitt mark hver. I fyrra voru sömu strákar í fjórða flokki og þá töpuöu KA- strákar úrslitaleik fyrir KR. Fram- farirnar virðast því vera meiri hjá KA undir stjórn Jóhannesar Bjarnasonar. Fjallað verður um sigurinn og mynd af Islandsmcisturunum verður birt á morgun. t HM-getraun Dags eg HM '95 miðasölu 27 dagar fram að HM Ein af þátttökuþjóðunum í D-riðli heimsmeistaramótsins á Akureyri er þekktari af öðru en handknattleik. ( ) Kaffiframleiðslu. ( ) Bílaframleiðslu. ( ) ísbjörnum. Krossið við rétt svar og sendið seSilinn til: Dagur - HM-getraun, Strandgata 31, 600 Akureyri, ÁAinv/iL'iinnninn 1 O nnrí v/ornnr rironÍn nr róftnm niicruim K/oir mi^nr Winlr Símanúmer HM '95 miðasölu: 96-12999 Miðvikudaginn 19. apríl verður dregið úr rétlum lausnum fyrir dagana 10., 11., 12. og 13 apríl og nöfn vinnings- hafa birt í blaðinu á sumardaginn fyrsta, 20. apríl. Vinningshafi hvers dags fær að launum HM-bol og minja- gripi vegna HM '95. Auk þess verða lausnarmiðar 10., 11., 12. og 13. april settir í pott og úr honum dregnir Sendandi: tveir miðar. Hinir heppnu fá hvor um sig aðgöngumiða einn leikdag (þrjá leikij í D- riðli HM '95 á Akureyri. Þátttakendur geta sent lausnarseðla i umslagi fyrir hvern dag en einnig er heimilt að senda lausnarseðla fyrir þessa fjóra daga í einu umslagi. Það skal ítrekað að fjórði útdráttur verður miðvikudaginn 19. april. Sími:

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.