Dagur


Dagur - 10.04.1995, Qupperneq 16

Dagur - 10.04.1995, Qupperneq 16
Verður þessi gœðastimpill á nýju innréttingunurn og hurðunum þínum? Trésmiðjan filfo • Óseyri lo • 603 ftkureyri Sími 96 12977 • Fax 96 12978 Ríkisstjórnarbollaleggingar: Þori ekki að fullyrða um vilja krata - segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins, sagðist í gær ekki geta svarað því hvort ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks sitji áfram næsta kjörtímabil. Fyrsta skref sé að þingflokkar beggja flokka hittist og ráði ráð- um sínum. Þingflokksfundur Al- þýðuflokksins er boðaður kl. 10 fyrir hádegi í dag en sjálfstæðis- menn hittast á fundi kl. 17. „Til þess að meta stöðuna þurfa þingflokkarnir að hittast, það þarf að koma í Ijós hver vilji þingflokkanna er og hvernig menn skilgreina þau mál sem þarf að útkljá ef halda á áfram.“ Þorsteinn Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, lét svo um mælt í kosningabaráttunni að dýpsta gjá- in væri á milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Jón Baldvin er ekki sammála þessu. „Þorsteinn Pálsson lætur þessi orö falla nokk- uð sár í kosningabaráttu. Það sem hann verður að horfast í augu við er aó það var mikill ágreiningur um þá fiskvciðistjórnarstefnu sem hann hefur framfylgt, ekki bara við Alþýðuflokkinn heldur einnig innan hans eigin flokks. Það var slegið á frest að útkljá end- urskoðun tollalögjafar í framhaldi af GATT og það þarf aó ljúka því. Að því er varðar Þorstein Pálsson þá hefur verió ágreiningur af hans hálfu um stefnuna í úthafsveiði- málum. Hvort þessi ágreiningur við Þorstein bæði innan Sjálfstæð- isflokksins og utan hans hefur ein- hver áhrif á það aó torvelda hugs- anlegt samstarf, það er mál Sjálf- stæðisflokksins." Meturðu það svo að áframhaldandi samstarf við Sjálf- stœðisflokkinn sé efst á óskalista krata? „Eg þori ekkert um þaö að full- yrða á þessari stundu." - Sr. Hjálmar Jónsson, nýkjör- inn þingmaður Sjálfstœðisflokks á Norðurlandi vestra, segir að ef af áframhaldandi samstarfi við Al- þýðuflokkinn geti orðið, þá verði málefnasamningur að vera traust- ari og útfœrsla einstakra mála að vera nákvœmari en í Viðey forð- um. Ertu sammála þessum orðum sr. Hjálmars? Guðmundur Bjarnason, varaformaður Framsóknarflokksins: Eg er afar ánægður með niðurstöðu flokksins í heild og útkoman í sumum kjör- dæmum er afar góð. Varðandi úrslitin á Norð- urlandi eystra, þá vorum við þar að glíma við að eitt þingsæti fluttist úr kjördæminu. Þá vor- um við með síðasta mann inn og því var vitað að það yrði mjög erfitt að halda áfram þremur. Eins áttum við möguleika á jöfnunarsæti en því miður gekk hvorugt upp,“ sagði Guðmund- ur Bjarnason, efsti maður Fram- sóknar á Norðurlandi eystra og varaformaður flokksins. Framsóknarflokkurinn verður tvímælalaust að teljast sigurvegari kosninganna, bætir við sig 4,4% á landsvísu og tveimur þingmönn- um. Þá tclst það til tíðinda að flokkurinn er orðinn sá næst stærsti í tveimur stærstu kjördæm- unum, Reykjavík og Reykjanesi og vinnur þingsæti á báóum stöð; um. Glæsilegastur er sigurinn I Reykjancskjördæmi þar sem flokkurinn bætir við sig 7,1%. Guðmundur var spuróur um út- komu flokksins í hans kjördæmi. „Við fáum núna 2,5% aukningu í viðbót við góða kosninu áöur og í heidina er ég því ánægður þó ég sakni þess mjög að hafa ekki Jó- hannes Geir á þingi og tel að kjör- dæmið missi mikils við það. Ég vil hins vegar þakka öllum sem hjálpuðu okkur og unnu fyrir okk- ur í þessum kosningum.“ Varðandi úrslitin að öðru leyti í kjördæminu sagöi Guðmundur ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn væri að gera nokkuð góða kosn- ingu. „Ég tel að annars vegar mcgi rekja það til lélegrar kosn- ingar síðast. Hins vegar hcfur ráð- herra samgöngumála einn ráð- herra haft peninga til að ausa út meðan aðrir ráöherrar hafa þurft að spara og verið duglegur að halda blaðamannafundi og klippa á borða og láta á því bera eins og það væru hans eigin verk, sem eru auðvitað verk Alþingis og fjár- veitingavaldsins. Utkoma Þjóð- vaka kom mér hins vegar ekki á óvart.“ Hann taldi of snemmt að velta fyrir sér hvað muni gerast varð- andi ríkisstjórnarmyndun. „Kosn- ingaúrslitin eru mjög flókin. Þau gefa stjóminni meirihlutann en mér finnst vera komin veruleg þreyta í samstarfið og ekki ólík- legt að á því geti orðið einhver breyting. Þeir eiga auðvitað völ á því að taka Kvennalistann upp í til sín ef þeir telja það til bóta, þó ég sé ekki aó gera því skóna. Mynstur svokallaðra félags- hyggjuflokka er mjög flókið og samstarf þeirra verður auóvitað ekki nema Alþýðuflokkurinn eigi aóild aö því. Én fyrst verður að koma í ljós hvað verður úr núver- andi stjómarsamstarfi áður en aðrir möguleikar opnast, sem ég tel reyndar mjög æskilegt,“ sagði Guðmundur. Framsóknarflokkur- inn heldur þingflokksfund í dag og án efa verður hugsanlega ríkis- stjómaraóild flokksins þar á dag- skrá. HA Margir möguleikar í stöðunni - segir Geir H. Haarde, formaður þingflokks sjálfstæðismanna Geir H. Ha- arde, for- maður þing- flokks Sjálfstæð- isflokksins, segir útkomu flokks- ins í kosningun- um sl. laugar- dag betri en hann hafi átt von á og hann telur yfirgnæf- O VEÐRIÐ Vestan og norðvestan kaldi og skúrir veróa um allt Norð- urland fram eftir degi í dag og hlýnandi veður en síðan léttir til með sunnan golu eða kalda og vaxandi suðaustan átt. Á þriðjudag veróur komin stíf norðvestanátt með élja- gangi um allt Norðurland, og hiti 0-6 stig. Til allrar lukku léttir aftur til á miðvikudag. andi líkur á að Sjálfstæðisflokk- urinn verði í næstu ríkisstjórn. Þingflokkur sjálfstæðismanna kemur saman til fundar kl. 17 í dag og mctur stöóu mála. Geir vill litlu unt það spá hvort líklcgt sé að áframhaldandi samstarf vió Al- þýðuflokkinn sé líklegasta niður- staóan í stöðunni. „Ég geri ráð fyrir að formenn llokkanna ræði saman en ég á ckki von á því að þetta samstarf haldi áfrant ööru vísi en gerður verði nýr stjórnarsáttmáli. En formlega þarf ckki að gera nýjan stjórnarsáttmála og því er engin tímapressa á málinu," sagói Geir H. Haarde. - Mcturðu það svo að sjálf- stœðismenn og kratar nái niður- stöðu í helstu ágreiningsmálum flokkanna á síðasta kjörtímabili? „Ég get ekki metið það aó svo komnu máli. Við tökum þessu ró- lega og sjáum til hvernig málin þróast. Þaó eru ntargir aðrir möguleikar í stöðunni." óþh Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, tók fyrstu skóflustungu að kvíar- stæði nýrrar flotkvíar Akureyrarhafnar sl. föstudag og naut aðstoðar stór- virkrar gröfu við verkið. Mynd: Robyn „Já, ég er alveg sammála þessu,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson. óþh Svanfríöur Jónasdóttir: Mun áfram sinna trúnaðar- störfum fyrir bæjarfélagið Svanfríður Jónasdóttir, ný- kjörinn alþingismaður Þjóð- vaka í Norðurlandskjördæmi eystra, er jafnframt forseti bæj- arstjórnar Dalvíkur og hún sagði í samtali við Dag að hún myndi áfram sinna trúnaðar- störfum sínum á Dalvík. „Ég mun áfram eiga lögheimili á Dalvík og það gerir það að verk- unt að ég get sinnt þeint trúnaðar- störfum sem ég hef tekið að mér fyrir bæjarfélagió og það hef ég hugsað ntér aó gera. Ég hef þegar rætt þetta við ntína félaga og minn bæjarstjóra, þannig að þetta er mál sem búið er að vera til skoðunar. Það eru mörg fordæmi fyrir því að fulltrúar í sveitastjórnum eru kjörnir á Alþingi og þeir sinna hvoru tveggja.“ Svanfríður er oddviti I-listans á Dalvík, sem er samfylkingarfram- boð þar og fékk tvo ntenn í síð- ustu sveitarstjórnarkosningum. I- listinn er í meirihlutasamstarfi nteð Framsóknarflokknum og eru Svanfríður og Bjarni Gunnarsson, fulltrúar I-listans í bæjarstjórn. „Ég vil endilega standa við þann trúnað sem mér hefur verið falinn af bæjarbúum og held aó ég geti rétt eins og aðrir sinnt því þannig að vel sé. Og það er kost- urinn við þetta þingmannsstarf að það er beinlínis gert ráð fyrir því að maður feróist heim til sín,“ sagði Svanfríður. KK Húsavík: Hlutafjár- kaupí FH rædd við ÍS Fulltrúar frá íslenskum sjáv- arafurðum og stjórnarmenn Fiskiðjusamlags Húsavíkur héldu vinnufund á Húsavík sl. fimmtudag varðandi hugsanleg hlutabréfakaup ÍS í FH. Stjórn Fiskiðjusamlagsins hef- ur fengið heimild til að auka hlutafé fyrirtækisins um 200 ntillj- ónir og hefur ákveðið að nýta sér helming heimildarinnar og auka hlutaféð unt 100 ntilljónir. Húsa- víkurbær hefur ckki tekið ákvörð- un um hvort forkaupsréttur að hlutafé verður nýttur, en bærinn og Kaupfélag Þingeyinga eiga 80% hlut í FH. Einar Njálsson, bæjarstjóri, sagði aó ekki væri hægt að tíma- setja hvenær niðurstaða fengist á viðræðum við IS en hann vonaði að það yrði sem fyrst. 1M

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.