Dagur - 20.05.1995, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTIN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON,(lþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRIMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Ferðabjónustan
og ríkisvaldið
„Með reglulegu millibili horfir ferðaþjónustan upp á
skyndiákvarðanir stjórnvalda um framlög til ferðamála.
Þá tekst stundum að töfra fram milljónir eða milljóna-
tugi til átaksverkefna. Slíkar fjárveitingar eru ekki og
verða aldrei neitt til að byggja á. Samkvæmt lögum á
ákveðinn filuti tekna Fríhafnarinnar í Keflavík að renna
til Ferðamálaráðs. Þessum lögum hefur aldrei verið
framfylgt. Það stingur því í stúf að heyra þingmenn og
fleiri tala fjálglega um ferðaþjónustu sem vaxtarbrodd í
atvinnulífi þjóðarinnar. Þar er lítið samhengi milli orðs
og æðis.“
Þetta skrifar reyndur maður úr ferðaþjónustunni, Jón-
as Hvannberg hótelstjóri Hótels Sögu, í nýjasta tölu-
blaði Viðskiptablaðsins. Þetta eru umhugsunarverð orð
og því miður eru þau rétt. Það hefur verið alveg furðu-
leg árátta stjórnmálamanna að segja í tækifærisræðum
að hinn eða þessi atvinnuvegurinn muni bjarga þjóðinni
en á sama tíma er fótunum kippt undan þessum sömu
atvinnuvegum með fáránlegri skattlagningu. Ríkisvaldið
vissi á sínum tíma þegar það ákvað að setja virðisauka-
skatt á gistingu í landinu að það myndi hafa alvarlegar
afleiðingar í för með sér. Það vöruðu allir við þessari
leið. Samt sem áður var gistingunni gert að innheimta
virðisaukaskatt, verðið hækkaði auðvitað en til þess að
sprengja það ekki upp úr öllu valdi brugðu sumir gisti-
staðir á það ráð að taka á sig hluta af kostnaðinum. Nið-
urstaðan úr þessu reikningsdæmi var tap fyrir alla aðila.
Það er hlutverk ríkisvaldsins á hverjum tíma að skapa
starfsgreinum vinveitt rekstrarumhverfi. Ríkisvaldið á
ekki að vinna gegn atvinnulífinu með heimskulegri
skattlagningu.
Ferðaþjónustan hefur vissulega burði til þess að efl-
ast gífurlega á næstu árum og afar mikilvægt er að það
takist, vegna þess einfaldlega að þetta er vinnuaflsfrek
atvinnugrein og margfeldisáhrif hennar eru umtalsverð.
Þetta er atvinnugrein sem skiptir máli úti um allt land,
um það vitnar sem dæmi hinn mikli fjöldi bænda sem
hefur hætt í hefðbundnum búskap og hellt sér út í
ferðaþjónustuna.
I UPPAHALDI
W að er Alfreð Schiöth, dýra-
lœknir og heilbrigðisfuÚtrúi
■ R tyá Heilbrigðiseftirliti Eyja-
I I fjarðar, sem er í Uppáhaldi
Dags að þessu sinni. Alfreö
A er Siglfirðingur, en fluttist í
Ystafell í Köldukinn barn að aldri.
Alfreð gekk í Metmtaskólann á Ak-
ureyri en fór síðan til Norcgs til
náms í dýralœkningum. Þegar
dvölinni í Noregi lauk starfaði Al-
freð sem heilbrigóisfulltrúi á
Húsavík í fjögur ár en árið 1990
fluttist hann til Akureyrar og tók
við stöðu heilbrigðisfulltrúa í
Evjafirði. Eiginkona Alfreðs er
Ólöf Elfa Leifsdóttir, iðjuþjálfi á
Kristnesspítala, en Ólöf er Slcag-
firðingur frá Keldudal í Hegra-
nesi. Þau hjónin ciga tvö börti
Kristínu Helgu 8 ára og Axcl Aage
7 ára, fjölskyldan býr í Kristnesi.
Sem heilbrigðisfulltrúi hefurAl-
freð eftirlit með ýmsu sem tengist
umhverfismálum, hollustu, heil-
brigði og mengunarvörnum. Starf-
inu fylgir efiirlit með vatnsbólum,
fiórgun spilliefha, sorpförgun,
skolpmálum, allri matvœlafratn-
leiðslu á innanlandsmarkað og fyr-
irtœkjum sem má œtla að geti vald-
ið mengun svo dcemi scu tekin.
Heilbrigðisfulltrúar eru faglegir
ráðgjafar sveitarfclaganna og
jafnframt eftirlitsaðilar sem fylgjst
með því að reglum um þessi mál sé
fram fylgt, en vegm aðildar ís-
lands uð EES eru ýmsar nýjar
reglur að taka gildi á þessu sviði.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Villibráó."
Uppálialdsdrykkur?
„Vatn, en ég slæ ekki hendinni á
móti bjór á góðu kvöldi.“
Alfrcð Schiöth.
Hvaða Mjómsveitltónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Tina Tumer.“
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Schiötharamir í torfærunni, Þórir
og Helgi.“
Hvað horfir þá mest á í sjónvarpi?
„Fréttir og fræðsluefni.“
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
„Dabba.“
Hver er að þínu mati fegursti staður
á Islandi?
„Kinnarfjöll, þaó er eins og aó fara í
kirkju að ganga upp í Kinnarfjöll
einu sinni á vetri.“
Hvaða heimilisstöiffinnst þér
skemmtilegust/leiðinlegust?
„Það er nú leiðinlegast aó þvo upp
en ég er góður á ryksugunni og stolt-
ur af því hvað ég cr snöggur að
hespa því verki af.“
Stundar þú einhverja markvissa
hreyfingu eða líkamsrœkt?
JÉg hleyp, ég reyni að hlaupa svona
3-5 sinnum í viku oftast unt 5 km.“
Ert þú t einhvetjum klúbb eða fé-
lagasamtökum?
„Eg er gjaldkeri Dýralæknafélags ís-
lands, Heilbrigðisfulltrúafélags ís-
lands og Ræktunarfélags Kinnarfells
svo er ég í ferðaklúbbnum 4x4 cn
þar er ég ekki gjaldkeri.“
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
„Morgunblaðið og lcs Dag í vinn-
unni. Svo kaupi ég norska dýralækna-
ritið og önnur erlend fagtímarit,“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Jeppar á fjöllum og einn reyfari."
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
aðflytja búferlum?
„Á Norðurlandi, ég er mikill Noró-
lendingur í mér, eða í Noregi."
Hvaða hlut eðafasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mund-
ir?
,Jörð, og ég yrói afar stoltur ef þaó
væri kirkjujörð."
Hvemig vilt þú helst verja frístund-
um þínum?
„í ferðalög innanlands með fjöl-
skyldunni, jeppaferðir bæói að vetri
og sumri. Eg stunda cngar svaðilfar-
ir, dagsferðir mcó fjölskyldunni cru
skemmtilegastar."
Hvernigjeppa áttu?
„Gamlan og góðan Blazer af stærri
geröinni, árgerð 1976“
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Leysa af Ármann Gunnarsson, hér-
aðsdýralækni í Austur-Eyjafjaróar-
umdæmi. Ég verð scm sagt á dýra-
læknavaktinni.“ ÍCU
BAKÞANKAR
KRI5TINN C. JÓHANN5SON
Um mikilvægi þess að vera á réttum
stað með rétta hæfileika á réttum tíma
og helst með pólska gaflhreyfingu
Það hefur sjaldan komið betur í
ljós í seinni tíð en föstudaginn
þann 13nda maí s.l. hve þaó háir
okkur íslendingum oft á örlaga-
stundum hve okkur er ótamt að
greina rétt hvaða liðsafnaður á við
á hverjum stað þegar verja á eða
helst auka hróður lands og þjóðar.
Þennan tiltekna þrettánda sáust
dæmi þessa. Á eyjunni grænu var
Bo með sitt lið og þegar grannt
var skoðað kom í ljós að leikurinn
hjá þeim var aldeilis frábær.
Skyndisóknir Bos og línusend-
ingar að maður tali ekki um gafl-
hreyfingamar voru vel útfærðar.
Fótavinna öll til fyrirmyndar og
langskot. Vamarleikur Stefáns og
Eyva og annnarra liðsmanna þétt-
ur og hreyfanlegur og peysutog
ekki til lýta. Þeir spiluðu vömina
framarlega og hleyptu miklu lífi í
leikinn. I sókninni vom þeir helst
til ákafir og skotnýting þeirra að-
eins 31%, einkum vom vítaskotin
illa nýtt. Hins vegar komu þeir oft
skemmtilega inn úr homunum
enda hungraði þá í sigur og að
klára hlutina. Ekki spuming. Hinu
er svo ekki að leyna að dómaram-
ir voru dálítið hikandi oft og tíð-
um og áttu sinn þátt í að slæva
móralinn hjá liðinu. Að öllu sam-
anlögðu er þetta án efa sterkasta
landslið sem við höfum átt. Vant-
aði bara boltann.
Hér heima var svo annað
landslið að ctja kappi vió Sviss-
lendinga. Mér er kunnugt um aó
það lið hefur sérlega falleg hljóð.
Það er einkum prýðilegt á lágu
tónunum og í hægum takti þar
sem skýrleiki í mótun hljómanna
og tærleiki einkennir flutning liðs-
ins. Þetta sannaðist í þessum til-
tekna leik. Vantaði bara lagið.
Það kemur því til álita hvort
liðin voru ekki á röngum stað í
rangri keppni einmitt þennan dag
og er þá ekki í fyrsta skipti sem
okkur brestur yfirvegun þegar
keppnislið em valin.
Nærtækt er fyrir okkur Akur-
eyringa að finna dæmi um svodd-
an ranga liðsskipan. Fyrir síóustu
bæjarstjómarkosningar hér
dreymir mig til þess að Þórsarar,
einkum knattspymudeildin gerði
kröfur til aukinna áhrifa í bæjar-
stjóminni. Það er kunnara en frá
þurfi að segja að gengi þeirra í
knattspymu er ekkert sérstakt svo
ekki sé meira sagt svo til álita
hlýtur að koma hvort þeir geri
ekki eitthvað annað betur.
Bæjarstjómarmeirihlutinn hins
vegar ætlaói að stjóma bænum
svoleiðis að atvinnuleysi yrði út-
rýmt. „Atvinnumálin hafa algjör-
an forgang“ heyrðist býsna oft í
kosningabaráttunni og vegna þess
við læmm aldrei af reynslunni fór
sem fór. Atvinnuleysi hefur síðan
heldur aukist en hitt og annað eftir
því.
Ætli það hafi því ekki hvarfláð
að fleirum en frú Guóbjörgu að
hollara væri öllum aó bæjarstjóm-
in sneri sér að því sem hún kann
t.d. knattspymu en Þórsarar taki
við bæjarstjóminni þar sem
knattspyma er greinilega ekki
þeirra fag.
Við getum rakið rniklu fleiri
slík dæmi og er augljósasta dæm-
ið nýja ríkisstjómin okkar. Ég
held að vísu hún dygði skammt í
Evrovision keppni, held hún hafi
ekki svoleiðis hljóð og því síóur
hún búi yfír þeim gaflhreyfingum
sem fleytti henni áfram í hand-
bolta og er þó aldrei að vita.
Mér fínnst t.d. endilega þegar
ég horfi á hana, þ.e. ríkisstjómina,
en einkum þegar ég hlusta á hana
að hluti af henni ætti að vera vest-
ur á Melum og stjóma bændasam-
tökunum og ég held hinn hlutinn
sé kjörinn til forystu í Bílgreina-
sambandinu eða Húseigendafé-
laginu. Ég vil þó ekki ganga jafn
langt og málgagn Alþýóuflokks-
ins, Morgunblaðið, í gagnrýni
minni á þetta góða fólk. Er reynd-
ar rannsóknarefni hvort Morgun-
blaðsliðió er ckki í vitlausri
keppni, ætti sennilega að vera að
keppa á miðunum kringum landið
á krókaleyfisbátum eða á karfa-
miðum á Reykjaneshrygg, utan
kvóta að sjálfsögðu.
Sona eru dæmin endalaus um
fólk á rangri hillu út um allt, og
afleiðingamar samkvæmt því.
Sumir eru á þessari vitlausu hillu
án þess að vita það en aðrir kjöm-
ir þangað.
Góð regla er til um það hvem-
ig við ættum að bera okkur til
þegar við göngum að kjörborði
t.d. að velja okkur lið til að
stjóma okkur og er reglan ein-
hvem veginn svoleiðis að viö not-
um höfuðið þegar við ákveðum
hvað við ætlum aó kjósa og
stöndum í fætuma á meðan. Ekki
öfugt.
Þessi regla er oftar en ekki
þverbrotin.