Dagur - 20.05.1995, Síða 5
Laugardagur 20. maí 1995 - DAGUR - 5
íris Halla Sigurðardóttir.
Fyrsta námsárí í Mennta-
smiðju kvenna að ljúka
- framtíðin ótrygg
Um síðustu helgi var opið hús í
Menntasmiðju kvenna á Akur-
eyri. Nú er lyrsta starfsvetri
Menntasmiðjunnar að ljúka en
þar hafa tveir hópar kvenna ver-
ið við nám í vetur, annar fyrir
áramót og hinn eftir áramót.
Konurnar dvelja í Menntasmiðj-
unni frá því klukkan 9-15 alla
virka daga og takast á við ýmis-
konar verkefhi. Námsefnið er
fjölþætt og uppbyggjandi og nýt-
ist konunum bæði persónulega,
sem aukinn sjálfsstyrkur og sem
almenn færni og þekking á ýms-
um sviðum. Framtíð þess starfs
sem hefur verið mótað í Mennta-
smiðjunni er mjög ótrygg, þar
sem ekki hefur fengist nægilegt
fjármagn til áframhaldandi starf-
semi.
Iris Halla Sigurðardóttir er ein
þeirra kvenna sem hafa verið í
Menntasmiðjunni síðustu mánuð-
ina, hún féllst á að segja okkur frá
vistinni þar.
Iris er fædd og uppalin á Akur-
eyri og býr þar. Hún hætti námi að
loknu einu ári í framhaldsskóla og
hefur verið meira og minna heima-
vinnandi í átta ár.
„Eg hef verið alveg heimavinn-
andi í fimm ár en í þessum hópi hér
í Menntasmiðjunni eru bæði konur
sem hafa verið atvinnulausar og
konur sem hafa verið heimavinn-
andi. Ég geri mér það ljóst núna að
ég var orðin býsna einangruð heima
Eitt af því scm kennt er í Mennta-
smiðjunni er prjón en þessa fallegu
peysu prjónaði Anna Fía eingöngu
úr afgöngum.
með þrjú lítil böm þó ég hafi ekki
tekið sérstaklega eftir því á meðan
ég var í þeirri stöðu.“
- Finnst þér þú hafa haft gott af
vistinni í Menntasmiðjunni?
„Já, mjög, þetta hefur verið ákaf-
lega þroskandi tími sem hefur skipt
sköpum fyrir mig sem persónu. Ég
hef öðlast meiri sjálfsstyrk og þaó
skilar sér einfaldlega í meiri lífs-
gleði, hver einasti dagur er miklu
skemmtilegri nú en áður.
Meðal námsgreinanna hér er
sjálfsstyrking og tjáning. Við höf-
Það var sannarlcga tekið vel á móti
gestum í Menntasmiðjunni, margt
skemmtiiegt að sjá og gómsætar
veitingar á boðstóium.
um líka verið í bókfærslu, ensku, ís-
lensku og fleiri greinum svo sem
myndlist og prjóni.
Þaö var stórkostlegt að fara í
gegnum sjálfsstyrkinguna og tján-
inguna. Ég er nú ekki nema 162 cm
á hæð en eftir að hafa setið í tíma í
þessum fögum þá finnst mér ég
vera að minnsta kosti 190 cm!
Svo hefur þetta verið mjög
skemmtilegur vetur, þetta eru svo
skemmtilegar konur hér í Mennta-
smiðjunni. Við erum ólíkar á marg-
an hátt en náum samt ótrúlega vel
saman. Það hefur verið lærdómsríkt
að kynnast öllum þessum konum.
Við höfum speglað okkur í reynslu
hvorrar annarrar og lært af því. Fyr-
ir mig hefur þessi vetur verið ein-
stakt ævintýri og ég vona svo sann-
arlega að það fáist fjármagn til að
halda þessu starfí áfram.“
- Hefur dvölin í Menntasmiðj-
unni vakið áhuga þinn á að fara í
frekara nám?
„Já, tvímælalaust. Núna langar
mig að fara í skóla en mig hefur
ekki iangað til þess síðan í bama-
skóla,“ sagði íris Halla. KLJ
^ Sigyn Frímann er ein þcirra
^ kvenna sem dreif sig í Mennta-
smiðju kvcnna í vetur en hún hefur
verið án atvinnu síðan fyrirtækið
sem hún starfaði hjá lagði upp laup-
ana. Sigyn sat síðast á skólabckk í
Húsmæðraskólanum á Isafírði á ár-
unum 1953-1954. Hún sagði að vist-
in í Mcnntasmiðjunni hcfði í senn
verið skemmtileg og krefjandi og að
hún hefði tvímælalaust hafl mjög
gott af þessum mánuðum í smiðj-
unni.
íbúð óskast
Háskólinn á Akureyri leitar að 4
herbergja íbúð til leigu frá 1. eða
15. júlí nk. fyrir nýjan starfsmann.
Nánari upplýsingar gefur Edda Kristjánsdóttir í síma
30901.
Lögmannshlíðarsókn
Aðalsafnaðar-
fundur
Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í Glerár-
kirkju miðvikudaginn 24. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
S íþróttamiðstöð Glerárskóla \
\ Sund - Sund - Sund :
Sundnámskeiðin í Glerárlaug
hefjast þriðjud. 6. júní!
Skráning og allar upplýsingar
i verða í síma: 21539.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Styrkir til framhalds-
náms í dönsku
Danska menntamálaráðuneytið veitir á skólaárinu
1995-96 íslenskum dönskukennurum 3 styrki til fram-
haldsnáms eða rannsókna við háskóla í Danmörku.
Styrkirnir verða veittir:
I.Starfandi dönskukennurum í grunn- og framhalds-
skólum, sem lokið hafa að minnsta kosti BA prófi í
dönsku eða BEd prófi með dönsku sem valgrein.
2. Háskólastúdentum sem lokið hafa því námi sem til-
greint er í lið 1. hér að framan og vilja búa sig undir
dönskukennslu með frekara námi.
Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavistar í há-
skólastofnunum í Danmörku, en danska menntamála-
ráðuneytið mun að einhverju leyti geta haft milligöngu
um að útvega styrkþegum skólavist. Fái styrkþegi ekki
skólavist skólaárið 1995/96 er honum heimilt að nota
styrkinn á skólaárinu 1996/1997.
Hver styrkur er að upphæð 50.000 danskar krónur, og
skal notaður til að greiða ferðakostnað, uppihald og
annan kostnað í Danmörku.
Umsóknir um styrkina fyrir skólaárið 1995/96 sendist
fyrir 12. júní 1995 til:
Dansk-islandsk Fond
Skt. Annæplads 5
DK-1250 Köbenhavn K
Umsóknunum skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám
og störf umsækjenda.
Jafnframt skal gerð grein fyrir fyrirhuguðu námi eða
rannsóknum.
Nánari upplýsingar veitir formaður Dansk-islandsk
Fond:
Professor Hans Bekker-Nielsen
Odense Universitet
Center for Nordiske Studier
Sími (0045) 6615 8600