Dagur - 09.06.1995, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 9. júní 1995
FRÉTTIR
Hróðný Lund og Þórhildur Kjartansdóttir tilbúnar að ganga í sjóinn.
Myndir: IM
Húsavík:
Ungir björgunarsveit-
armenn æfa köfun
Ríkisendurskoöun gerir athugasemdir við meðferð
fjármuna hjá Brunamálastofnun:
Stjórnin segir að öllum
líkindum af sér í dag
- ástæðan eru langvarandi samstarfsörðugleikar
við brunamálastjóra
Gríðarlegur áhugi á björgunar-
sveitarstarfl er hjá ungliðum í
Björgunarsveitinni Garðari á
Húsavík. Um helgina var haldið
grunnnámskeið í köfun og þar
æfðu sig 12 ungir og efnilegir
kafarar.
Auk liðsmanna Garðars sóttu
námskeiðið tveir björgunarsveitar-
menn frá Dalvík og einn frá
Grenivík. Fyrst var búnaðurinn
prufaður í Sundlaug Húsavíkur en
síðan var haldió í fjöruna sunnan
Suðurgarðs og kíkt í sjóinn. Unga
fólkinu fannst fínt aö prufa þessa
grein og strákamir fá ekki lengur
að sitja einir að slíkum æfíntýrum
því tvær ungar Garðarskonur,
Hróðný Lund og Þórhildur Kjart-
ansdóttir, tóku virkan þátt í nám-
skeiðinu. IM
Um nokkurn tíma hafa staðið
deilur milli stjórnar Brunamála-
stofnunar ríkisins og bruna-
málastjóra og verulegir sam-
starfsörðugleikar verið milli
þessara aðila. í dag er fundur
hjá stjórn Brunamálastofnunar
og er búist við að þar muni öll
stjórnin segja af sér, þar sem
hún treystir sér ekki til að starfa
áfram meðan núverandi bruna-
málastjóri er við völd og taka
ábyrgð á hans verkum. Valið
standi m.ö.o. milli brunamála-
stjóra og stjórnar og ef félags-
málaráðherra ætli ekki að
hreyfa við brunamálastjóra
muni stjómin segja af sér. Raun-
ar hefur Hulda Finnbogadóttir,
formaður stjórnarinnar, þegar
ákveðið að segja af sér. Einnig er
talið sennilegt að skólanefnd
Brunamálaskólans segi af sér af
sömu ástæðu.
í lok síðasta árs ritaði stjóm
Brunamálastofnunar félagsmála-
ráðherra bréf þar sem hún telur sig
ekki geta framfylgt lagalegum
skyldum sínum við eftirlit með
fjárreiðum stofnunarinnar sökum
samstarfsörðugleika við bruna-
málastjóra. í bréfí stjómarinnar
segir einnig að af þessum sökum
hafi ekki verið hægt að sannreyna
óstaðfestan grun um fjarmála-
óreiðu. Félagsmálaráóherra fól
Ríkisendurskoðun að kanna mál-
ið, sem skilaði skýrslu sinni á
dögunum.
Ríkisendurskoðun segir í niður-
stöðum sínuni að ágreiningur milli
stjómar og brunamálastjóra snúist
annars vegar um framlagningu
bókhaldsupplýsinga á stjómar-
fundum og eftirlitsskyldu og
ábyrgð stjómar. Hins vegar snýst
deilan um Brunamaálskólann.
Ríkisendurskoóun telur að ágrein-
ingur stjómar Brunamaálstofnunar
og brunamálastjóra standi rekstri
stofnunarinnar fyrir þrifum og
brýnt sé að leysa hann. Að mati
Ríkisendurskoðunar er ástæða
deilna um Brunamálaskólann m.a.
til komin vegna ósamræmis í lög-
um um Brunamálastofnun ríkisins
og reglugeró um Brunamálaskól-
ann. Þá er tekið fram að í lögum
um brunamál er ekki að finna ná-
kvæma skilgreiningu á hlutverki
og störfum stjómar stofnunarinnar
og brunamálastjóra. Bergsteinn
Gizurarson, brunamálastjóri, hefur
lýst því yfir að hann sé tiltölulega
ánægður með niðurstöður Ríkis-
endurskoðunar.
Það er sá kafli skýrslunnar sem
fjallar um fjármálalega stjómun
Brunamálastofnunar sem vekur
hvaó mesta athygli, en þar koma
fram athugasemdir á það hvemig
haldið hefur verið á málum og far-
ið með almannafé. Þaó er ekki síst
af þeim sökum sem stjómin segist
ekki treysta sér til áframhaldandi
setu. í stjórn Brunamálastofnunar
sitja fimm aóilar. Formaður er til-
nefndur af félagsmálaráðuneyti,
en einnig tilnefnir Landssamband
slökkvilismanna, Samband ísl.
tryggingafélaga, Samband ísl.
Fólksfjölgun á
Skagaströnd
Talsverð fólksfjölgun hefur orð-
ið á Skagaströnd á tuttugu ára
tímabili, frá 1975-1994.
I nýútkomnu fréttabréfí Höfða-
hrepps er greint l'rá því að fjölgað
hafi um rúm 13,2% á Skagaströnd
á síóustu tuttugu árum. Ibúar 1975
voru 605 en voru í lok ársins 1994
orðnir 685. Flestir skráðir íbúar á
þessu tímabili voru á árunum
1985 og 1988, um 700. shv
sveitarfélaga og Brunatæknifélag
Islands fulltrúa í stjómina. Er
jaíhvel búist við að þessir aðilar
muni ekki tilnefna fulltrúa í nýja
stjóm á næstunni. HA
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fund bæjarráðs í gær kom
hita- og vatnsveitustjóri og bæj-
arlögmaður og ræddu við bæjar-
ráó um útleigu á jörðinni Reykj-
um I í Fnjóskadal. Bæjarráð
samþykkti að leggja til að sagt
verði upp leigusamningi við
Guðmund Hafsteinsson um
jörðina Reyki I, dags. 23. mai
1991, í samræmi við ákvæði
ábúöarlaga.
■ Félagsmálstjóri gerði grein
fyrir umsóknum um verkefni í
sambandi við reynslusveitarfé-
lög, viðræðum, sem fram hafa
farið um verkefnin við ráðuneyt-
in og stöðu þeirra mála.
■ Lagt var fram bréf frá Ey-
þingi, dags. 7. júní sl., og fylgdi
því skýrsla um sorphreinsun og
sorpeyðingu á Norðurlandi
eystra, scm Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsen hefur unnið.
Jafnframt er boðað til kynning-
arfundar uni skýrsluna fyrir
sveitarstjómarmenn á Hótel
KEA mánudaginn 12. júní kl.
16.30.
■ Bæjarráð samþykkti að fallast
á aó afskrifaöar verðí skuldir
sem ekki fengust greiddar við
nauðungarsölu á þrcmur félags-
legum kaupleiguíbúðum, sam-
tals að upphæð kr. 1.933.951.
■ Lögð var fram til kynningar
skýrsla (drög), sem Anette
Wolthers og Valgerður Bjama-
dóttir hafa tekið saman eftir
fyrstu viðræður við bæjarráðs-
menn, sviðsstjóra og starfsmenn
á stjómsýslu- og fjármálasviði í
tengslum vió vericefnið AUÐ-
UR, nám í starfi hjá Akureyrar-
bæ. Valgerður Bjamadóttir kom
á fundinn og ræddi skýrsluna
við bæjarráð.
■ Með bréfi, dags. 10. maí sl„
frá Jóhanni T. Sigurðssyni,
Fjólugötu 8, er leitað eftir styrk
frá Akureyrarbæ til greiðslu
kostnaðar við þátttöku í Olymp-
íuleikum í cðlisfræði, sem fram
eiga að fara í Canberra í Ástralíu
í júlímánuði nk.
Bæjarráð samþykkti að
styrkja bréfritara um kr. 30 þús-
und.
■ Bæjarráð samþykkti að heim-
ila bæjarstjóra að sclja hlutabréf
Framkvæmdasjóðs í Skinnaiön-
aði hf. fyrir allt að kr. 5 milljón-
ir að nafnverði. Jafnframt lýsir
bæjarráð því yfir að stefnt verði
að því að selja allan eignarhluta
bæjarins í félaginu fyrir lok
kjörtímabilsins.
■ Forseti bæjarstjómar lagði
fram á bæjarráðsfundinum gjafir
sem Akureyrarbæ vom afhentar
í kvöldvcrðarboði bæjarstjómar
I tilefni af 100 ára afmæli Hjálp-
ræðishersins á íslandi, ásamt
bréfi með kveðjum frá Clyde-
bank District Council í Skot-
landi, en þaðan var lúðrasvcit,
sem kom hingað í tilefni afmæl-
isins.
STÓRSVEITIN
SALSA
PICANTE
ÁSAMT SÖNGKONUNNI
BERGLINDI
BJÖRK
I SUÐRÆNNI SVEIFLU
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 10. JÚNÍ
HÓTEL
KEA
Sími 462 2200
LETTIR
mtUREYRI
Firmakeppni
Léttis verður á Hlíðarholtsvelli laugar-
daginn 10. júní og hefst hl. 13.30.
Keppt verður í þremur flokkum:
Barna- og unglingaflokki, kvennaflokki
og karlaflokki.
Á keppnisstað verða seldar veitingar:
Pylsur, gosdrykkir og sælgæti.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Óvæntar verðlaunaveitingar.
Hver fær óvænta-bikarinn?
Gimilegt kaffililaðborð
í Skeifunni, félagsheimili Léttis, í Breiðholti,
að keppni lokinni.
Firmakeppnisnefnd Léttis.