Dagur - 09.06.1995, Side 7
KVIKMYNDIR
Föstudagur 9. júní 1995 - DAGUR - 7
Kvikmyndaunnendur á Norðurlandi þurfa ekki að leggjast í dvala þó komið sé
sumar. Framundan eru viðburðankir mánuðir á hvíta tjaldinu og hjá Borgarbíói á
Akureyri hefur nú þegar verið samið um íslandsfrumsýningar á nokkrum stór-
myndum í kvikmyndaheiminum. Sú fyrsta þeirra er nú þegar komin á tjaldið en
það er þriðja Die Hard myndin með hasarleikaranum Bruce Willis. Meðfylgjandi er
stuttlega lýst þeim myndum sem samið hefur verið um og áætluðum frumsýningar-
dögum.
Þessu til viðbótar segir Jóhann Norðfjörð hjá Borgarbíói að með haustinu verði
tekin til sýninga nýjasta mynd Tom Hanks, Appollo 13. Þar er um að ræða mynd
sem byggð er á bók eftir geimfarann James A. Lowell og fjallar hún um þrjá geim-
fara sem festast úti í geimnum. Samningar standa einnig yfir um frumsýningar á
Congo, sem er nýjasta afsprengi Michael Crichton, höfundar Jurassic Park. Hún er
væntanleg til sýninga í Háskólabíói í næsta mánuði. Þá er fylgst með nýjustu mynd
Mel Gibson, Braveheart, sem frumsýnd var á dögunum í Bandaríkjunum. JÓH
16. júní:
Muríels Wedding
Gene Hackman og Densel Washington fara meö aöalhlutverkið í Crimson
Tide.
1. september:
Crímson líde
Kvikmyndin „Fjögur brúðkaup og
jarðarför" náði hjörtum kvik-
myndaunnenda víða um heim á
síðasta ári og í ár er komin fram
mynd sem fjallar um ekki óskylda
hugmynd. Þar er á ferðinni ástr-
ölsk mynd um gleðibrúðurina
Muriel sem leikkonan Toni Coll-
ette leikur. Leikkonan þurfti að
Ieggja mikið á sig til að fá hlut-
verkið því myndin fjallar um feit-
lagna konu sem bíður í sínum
draumaheimi eftir að drauma-
prinsinn birtist fyrirvaralítið. Þeg-
ar Muriel er búin að fá nóg af bið-
inni ákveður hún að rífa sig upp úr
heimi glansmyndabæklinganna og
draumum sínum um að hún verði
einhvern tímann eins og dans-
drottningin í ABBA-laginu Danc-
ing Queen. Muriel er hálfgerður
villingur og forfallinn ABBA-að-
dáandi og þegar henni fer að leið-
ast biðin eftir draumaprinsinum
fer hún sjálf af stað og hefur leit-
ina. Leikkonan Toni Colette fitaði
Toni Collette þurfti aö fitna um
meira en 20 kíló til að fá hlutverk
áströlsku galsastelpunnar og
ABBA-aödáandans Muriel. Og á
endanum breyttist hún í hina glæsi-
legustu brúöi.
sig um rúmlega 20 kíló fyrir
myndatökuna og þau kíló fengu
svo að fjúka aftur.
Höfundur og leikstjóri myndar-
innar er P.J. Hogan en hugmynd-
ina að henni fékk hann eftir að
hafa setið dagpart á kaffihúsi í
Sidney, gengt brúðarkjólaleigu
þar sem hann sá konur fara inn og
breytast á einu augnabliki í hinar
glæsilegustu brúðir. Hugmyndin
um að gera mynd um líf feitlögnu
stúlkunnar Muriel var ekki auð-
seld hjá kvikmyndaframleiðend-
um en svo fór að franskir peninga-
menn fjármögnuðu myndina. Það
tók líka tíma sinn að fá félagana
úr ABBA, Björn og Benny, til að
selja leyfi til að nota ABBA-tón-
list í myndina en eftir að P.J. Hog-
an hafði sent þeim fax svo vikum
skipti létu þeir til leiðast.
Muriels Wedding slóg í gegn í
Astralíu og í kvikmyndahúsum í
Bandaríkjunum hefur aðsóknin
farið vaxandi. Reiknað er með að
sama verði uppi á teningnum í
Evrópu á næstu mánuðum.
Gene Hackman og Densel Wash-
ington eru aðalleikendur í nýjustu
mynd Tony Scott, Crimson Tide.
Hún segir frá bandarískum kafbáti
sem sendur er af stað vegna upp-
reisnar í hinum fyrrum Sovétríkj-
um. Þegar kemur svo í ljós að
óvinakafbátur býr sig undir að
skjóta kjarnorkusprengju á þá leit-
ar skipstjórinn til yfírvalda eftir
því hvernig svara skuli. En fjar-
skiptatækin eru í ólagi og skip-
stjórinn ákveður að gjalda skuli
auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.
7. júlí:
While you where sleeping
Hér er á ferðinni rómantísk
gamanmynd um stúlku sem
bjargar lífi draumaprinsins síns.
Hún fylgir honum á spítalann og
þar er fjölskyldu hans sagt fyrir
mistök að hún sé kærastan hans.
Þegar hún hittir svo bróður hans
verða þau ástfangin og þá fara
málin að flækjast. Með aðalhlut-
verk í þessari mynd fara þau
Sandra Bullock (Speed) og Bill
Pullman (Malice) og Jack War-
den. Leikstjóri myndarinnar er
John Turteltaub.
Þríðja Die Hard
hasarmyndin
komin
Enn á ný berst Bruce
Willis viö skúrka í stór-
borgunum, nú í þriöju
◄ Die Hard mynd-
inni.
Þriðja myndin af hinum geysivin-
sælu Die Hard hasarmyndum er
komin til sýn-
inga í Borg-
arbíói og
hjá Sambíó-
unum. Sem
fyrr fer
Bruce Willis
með aðal-
hlutverkið, en
einnig fara
með
stór hlutverk þeir Samuel L. Jack-
son og Jeremy Irons. Að þessu
sinni fer hasarinn fram í verslun-
armiðstöð í New York, þar sem
búið er að koma fyrir sprengju og
að sjálfsögðu er Iögreglumaðurinn
John McClane settur í málið.
Þessi mynd þykir ekki gefa
hinum fyrri neitt eftir þó hér sé á
ferðinni sjálfstætt framhald. Hrað-
inn, spennan og skemmtilegheitin
eru til staðar. Myndinni er leik-
stýrt af John McTiernan en
hann leikstýrði einnig fyrstu
Die Hard myndinni. Die
Hard with a Vengance hef-
ur nú slegið í gegn í henni
Ameríku því hún rakaði
inn yfir 20 milljónum
dollara á fyrstu þremur
sýningardögunum þar.
28. júní:
Batman forever
Batman er enn á ný kominn á
hvíta tjaldið. Val Kilmer er í hlut-
verki leðurblökumannsins en kær-
ustuna leikur Nicole Kidman. Ný-
ir skúrkar sjást einnig í myndinni
en þá leika m.a. Tommy Lee Jon-
es og stórstimið Jim Carrey, sem
hefur slegið rækilega í gegn í
kvikmyndaheiminum, sérstaklega
með myndunum Mask og Dumb
& Dumber. Þá er ótalin hálpar-
hellan Kris O’Donnel. Leikstjóri
þessarar nýju Batman-myndar er
Joel Schumacher en hann gerði
einnig Flatliners og Lost Boys.
Jim Carrev leikur gátumanninn í
Batman-myndinni nýju og þykir k
enn einu sinni sýna snilldarleik. r
11. ágúst:
Bad
Boys
Bad Boys rauk upp vinsældar-
listana í Bandaríkjunum á dög-
unum en hún er spennumynd
með þá Martin Lawrence og
Will Smith í aðalhlutverkum.
Félagarnir leika í myndinni
lögreglumenn sem leita glæpa-
manna er rændu heróíni úr
birgðageymslum stjórnvalda.
Á meðan þeir leita að ræningj-
unum eru ræningjarnir að leita
að þeim. Bad Boys þykir
spennumynd af bestu gerð, ein
af þeim sem áhorfendur sitja
sem fastast yfir.
Akureyri:
Blómabúð
Akureyrar
opnuðí
gær
Síðdegis í gær var opnuð ný
blóma- og gjafavöruverslun á Ak-
ureyri.
Umrædd búð er til húsa á
fyrstu hæð Hafnarstræti 88 og
nefnist Blómabúð Akureyrar. Eig-
endur hennar eru hjónin Sigmund-
ur Einarsson og Guðbjörg Inga
Jósefsdóttir.
Verslunin verður opin kl. 10-21
alla daga. óþh
Val Kilmer í hinum 20 kílóa Bat-
man búningi.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Stmi 462 6900
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjáifum
sem hér segir:
Tjarnarlundur 4h, Akureyri, þingl.
eig. Sigurlína Snorradóttir, gerðar-
beiðandi Akurliljan, 13. júní 1995
kl. 10.00.
Þverá í Skíðadal, Svarfaðardals-
hreppi, þingl. eig. Ingvi Eiríksson,
gerðarbeiðandi Stofnlánadeild
landbúnaðarins, 13. júní 1995 kl.
14.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
8. júní 1995.