Dagur - 09.06.1995, Blaðsíða 9
MANNLI F
Föstudagur 9. júní 1995 - DAGUR - 9
Fannar, sumarstrákur í Gerði, Ásta Björgvinsdóttir, Steinunn
Eggertsdóttir, Guðrún Jónasdóttir, húsfrcyja í Gerði, Björn
Pálsson, bóndi í Flögu og sonur afmælisbarnsins og Guðjón
Steindórsson, útibússtjóri íslandsbanka og verðandi hestamað-
ur, ræða saman í sólskáianum í Bug. Myndir: KK
Jóhann Jóhannsson, þjónustustjóri í íslandsbanka, ræðir við
Sigurð Aðalsteinsson, framkvæmdastjóra Flugfclags Norður-
lands, í veislunni heima í Bug. Einnig eru á myndinni, Hclena
Dejak, kona Sigurðar og framkvæmdastjóri Ferðaskrifstof-
unnar Nonna, og Ólafur Skaftason, bóndi í Gerði í Hörgárdal.
Jónas Þorsteinsson, skipstjóri, kona hans Matthea Kristjáns-
dóttir, bróðir hennar Snorri Kristjánsson, bakari, og Ólafur
Halldórsson, læknir, spjalla saman í Smiðjunni.
Páll Arason áttræður
Ferðamálafrömuðirnir Páll Arason, framkvæmdastjóri í Bug, og Kjartan
Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu íslands hf., ræða málin í Smiðjunni en
Kjartan brá sér norður og heiðraði Pál með nærveru sinni á afmælisdaginn.
Páll Arason, framkvæmdastjóri í
Bug í Hörgárdal, fagnaöi áttræö-
isafmæli sínu í hópi góðra vina
og kunningja sl. föstudag. Páll,
sem er nú enginn venjulegur
maöur, lét ekki duga að vera aö-
eins með eina veislu, heldur
hafði þær tvær. Fyrr um daginn
var gestum boöiö í Smiöjuna en
um kvöldið var opið hús heima í
Bug. Fjölmargir gestir heiðruðu
Pál með nærveru sinni og bárust
honum margar góðar gjafir og
heillaóskaskeyti á þessum tíma-
mótum.
Páll Arason er landsþekktur
maður og mikil lífskúnstner.
Hann er frumkvöðull í ferða-
þjónustu hér á landi, bæði hvað
varðar ferðalög hérlendis og er-
lendis. Páll byggði sér snoturt
hús í Hörgárdalnum fyrir u.þ.b.
Herdís Jónsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson og Liija
Hjaltadóttir spiluðu „dinnermúsík“ í upphafi veislunn-
ar.
Söngclsk fjölskylda tekur lagið. A myndinni eru Aðal-
björg og Lúðvík Áskelsbörn, systkini Jóns Hlöðvers.
Fjær eru foreldrar þeirra, Áskell Jónsson og Sigurbjörg
Hlöðversdóttir.
Hálfrar aldar aímælí
Vcitingarnar voru fjölbreyttar og glæsilegar. Hér má sjá nokkra gcsti fá sér
á diskana.
Mikið var um dýrðir þegar Jón
Hlöðver Askelsson, tónskáld á
Akureyri, fagnaði hálfrar aldar
afmæli sínu í góðra vina hópi í
Alþýðuhúsinu á Akureyri á
hvítasunnudag. Veitingarnar, í
mat og drykk, voru glæsilegar
og skemmtidagskráin var löng
og. fjölbreytt. Að sjálfsögðu
setti tónlistin mark sitt á veisl-
una, enda vel við hæft því tón-
listin er aldrei langt undan þeg-
ar tónlistin er annars vegar.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar í afmælisveislu Jóns
Hlöðvers.
Myndir og texti: óþh
Tveir hressir á góðri stundu, Steingrímur St. Th. Sigurðsson, listmálari, lét
sig ekki vanta í afmælisveislu Páls og mætti bæði í Smiðjuna og heim í Bug.
10 árum síðan og hann býr þar eins og hann segir oft sjálfur,
mestan hluta ársins. Þrátt fyrir „hver hefur það betra en ég?“
háan aldur, er kallinn eldhress og KK
Afmælisbarnið, Jón Hlöðver Áskelsson, og eiginkona hans, Sæbjörg Jóns-
dóttir, lyfta glösum.
Páll Skúlason, heimspekingur, átti
líka 50 ára afmæli á hvítasunnudag.
Þeir Jón Hlöðver eru fæddir mcð
nokkura klukkustunda millibili og svo
skcmmtilega vill til að þeir hafa verið
hinir mestu perluvinir frá fæðingu.
Sigurður Hallmarsson á Húsavík
var mættur á svæðið og stjórnaði
fjöldasöng.