Dagur - 09.06.1995, Page 16
Akureyri, föstudagur 9. júní 1995
Tónar hafsins
í Smiðjunni ásamt ljúffengum
og nýstárlegum eftirréttum
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiii
Húsavíkurbær:
Hver má vinna -
Bæjarráði Húsavíkur hefur
borist erindi frá Sigurði Jóns-
syni, pípulagningameistara, þar
sem óskað er eftir upplýsingum
um hvernig verktakar voru vald-
ir að framkvæmdum við Leik-
skólann í Bjarnahúsi. Bæjarráð
fól bæjarstjóra að svara Sigurði
en á bæjarstjórnarfundi sl.
þriðjudag varð erindið kveikja að
þó nokkrum umræðum.
Jón Ásberg Salómonsson (A)
taldi starfsmenn bæjarins stunda
að ráða einstaklinga með ekkert á
bak við sig til vinnu, eins og það
væri yfirlýst stefna bæjarins að
verkstæði ættu ekki að geta þrifist.
„Eg mundi fagna því mjög ef
bæjarstjórn setti reglur um hverja
megi ráða í vinnu og hverja ekki,
svo það þurfi ekki að nudda
starfsmönnum upp úr því að þeir
velji starfsmenn eftir annarlegum
sjónarmiðum,“ sagði Einar Njáls-
son, bæjarstjóri, í samtali við Dag.
IM
Gróðurangatt, sumar og sól!
Mynd: Robyn
Viðurkenningar fyrir reyklausar bekkjardeildir:
Krakkar á Norðurlandi
standa sig vel
Baldvin Þorsteinsson EA við
bryggju í Reykjavík:
Löndun höfst af
fullum krafti í gær
*
Igær var unnið af fullum krafti
Samkvæmt upplýsingum frá
Krabbameinsfélaginu og
Tóbaksvarnanefnd voru samtals
247 bekkjardeildir í 8., 9. og 10.
bekk á landinu reyklausar á ný-
liðnum vetri. Að þessu sinni
voru flestir reyklausir bekkir í
Reykjavík, 62 að tölu, en 43 á
Norðausturlandi, 37 á Reykja-
Ólafsfjörður:
Sr. Sigríður
sett í embætti
Næstkomandi sunnudag mun
séra Birgir Snæbjörnsson,
prófasturinn í EyjaQarðarpró-
fastdæmi, setja séra Sigríði
Guðmarsdóttur inn í embætti
sóknarprests í Ólafsfjarðar-
prestakalli. Innsetningin verður
í sjómannadagsguðsþjónustu í
Ólafsfjarðarkirkju sem hefst kl.
10.30.
Séra Sigríður Guðmarsdóttir
hóf störf í Olafsfirði 1. júní sl. og
er flutt í prestakallið ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Séra Svavar Alfreð Jónsson,
sem verið hefur sóknarprestur ÓI-
afsfirðinga undanfarin ár, hverfur
til nýrra starfa, en hann hefur eins
og fram hefur komið verið ráðinn
héraðsprestur, og mun hann hafa
aðsetur á Akureyri. óþh
nesi, 35 á Austurlandi, 21 á
Vesturlandi, 19 á Vestfjörðum,
17 á Suðurlandi og 13 á Norð-
vesturlandi.
Heitið var verðlaunum fyrir
reyklausa 8. og 9. bekki. Dregið
var um verðlaunin og þau send
skólunum sem í hlut áttu. Fimm 8.
bekkir fengu áletraða háskólaboli
á alla í bekknum. Meðal þeirra var
8d í Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Sex 9. bekkir fengu „Söguatlas"
fyrir hvem nemanda og voru þrír
á Norðausturlandi; 9 bekkur Ár-
skógarskóla, 9. bekkur Dalvíkur-
skóla og 9. bekkur Hafralækjar-
skóla.
Jafnframt var dregið um verð-
laun til tuttugu einstaklinga í 9.
bekk og fjörutíu í 10. bekk sem
höfðu lýst yfír því að þeir neyttu
ekki tóbaks. Ekki var skilyrði að
bekkur þeirra hefði reynst reyk-
laus. Verðlaunin voru úttekt fyrir
25 þúsund krónur í versluninni
Útilífi, skíðanámskeið í Kerlingar-
fjöllum, vasareiknir (Casio fx-
9700 GE), bækurnar íslenska al-
fræðiorðabókin, íslensk orðabók,
Lífsmyndir skálds og íslensk
kvæði og áletraðir háskólabolir.
Fimm 9. bekkingar á Norðaust-
urlandi fengu verðlaun. Það voru
þau Árný Elva Ásgeirsdóttir Síðu-
skóla, Elísa Rún Heimisdóttir
Borgarhólsskóla, Hilmar Krist-
jánsson Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar, Skafti Rúnar Þorsteinsson Dal-
víkurskóla og Trausti Sigurgeirs-
son Glerárskóla og hlutu þau „ís-
lensk kvæði“.
Þrír 10. bekkingar í umdæminu
fengu verðlaun: Ama B. Halldórs-
dóttir Síðuskóla fékk „íslenska
orðabók", Kristrún S. Hjartardóttir
Síðuskóla „Lífsmyndir skálds" og
Árni Hermannsson Stórutjarna-
skóla háskólabol. óþh
Lvið löndun úr togara Sam-
herja hf., Baldvini Þorsteinssyni
EA, við Vogabakka í Reykjavík.
Togarinn kom í vikunni til hafn-
ar með fullfermi af úthafskarfa
af Reykjaneshrygg. Aflinn var
um 460 tonn af frosnum fiski,
eftir 28 daga túr og aflaverð-
mætið um 58 milljónir króna.
Félagar úr Verkamannafélag-
inu Dagsbrún og Sjómannafélagi
Reykjavíkur, komu í veg fyrir
löndun úr togaranum í fyrradag en
síðan gerðu fulltrúar Samherja og
verkamanna, samkomulag um að
ekkert yrði landað úr togaranum
þann daginn nema svolítið af fiski
á millidekki. í gær var svo unnið
við löndun úr skipinu og er reikn-
að með að þeirri vinnu ljúki í dag.
Baldvin Þorsteinsson EA, var
leigður til Færeyja fyrir verkfall
sjómanna og var þeirri fram-
kvæmd mótmælt með þeim rökum
að verið væri að fremja verkfalls-
brot. Togarinn mun liggja við
bryggju í Reykjavík fram yfir sjó-
mannadag en Arngrímur Brynj-
ólfsson, skipstjóri, reiknaði með
að síðan yrði haldið á Reykjanes-
hrygg á ný.
Aðspurður um veiðar í Smug-
unni, sagði Arngrímur að enn væri
allt opið í þeim efnum. „Maður
UA býður almenningi
til skemmtisiglingar
- opnuö sýning í íþróttahöilinni á morgun á umbúðum um fiskafurðir
hélt að það yrði búið að semja um
veiðar á svæðinu en þar sem ekki
varð af því, verður séð til með
hvemig veiði fer af stað þar þegar
þar að kemur. Við komumst bara
á þetta Smugusvæði og það er
ekkert rosalega spennandi í sjálfu
sér og það er hægt að fara illa út
úr því að fara þangað, enda langt
að fara. Þetta er mjög lítið svæði
og skipin nánast í einni línu. Mér
finnst þetta ekki fiskilegt svæði og
það er mun meira spennandi að
fara á Bjamareyjarsvæðið,“ sagði
Arngrímur. KK
Bankamenn
sömdu
I^fyrrinótt skrifuðu bankamenn
undir nýjan kjarasamning við
viðsemjendur sína. Samningur-
inn felur í sér um 8% launa-
hækkun á samningstímanum,
sem er til Ioka næsta árs og er
um að ræða prósentuhækkanir
en ekki krónutöluhækkanir.
Samningurinn verður væntan-
lega borinn undir atkvæði félags-
manna í Sambandi íslenskra
bankamanna í næstu viku, en hann
var lagður undir formannafund í
gær. Þetta er annar kjarasamning-
urinn sem samninganefnd SIB
undirritar á árinu, því félagsmenn
felldu í allsherjaratkvæðagreiðslu
með tveimur þriðju hluta atkvæða
samning sem undirritaður var 5.
maí sl. HA
r innanhúss- "*
Nú er sumarið komið, eng-
inn vafi, og í stórum dráttum
verður óbreytt veður eitt-
hvað fram eftir næstu viku á
Norðuriandi eða eins langt
og augað eygir, ef svo má
að orði komast. Því ætti
snjóa loks að leysa á lág-
lendi og vorverkin að geta
hafist af krafti í sveitum
landsins. Sem sagt léttskýj-
að og 15-20 stiga hiti.
Amorgun, Iaugardag, kl. 15
býður Útgerðarfélag Akur-
eyringa hf. Akureyringum og
nærsveitafólki til skemmtisigling-
ar um Eyjafjörð. Þetta gerir ÚA í
tilefni af 50 ára afmæli félagsins.
Lagt verður af stað frá athafna-
svæði ÚA og verður siglt um
Eyjafjörð á einum til tveimur tog-
urum félagsins í rúma klukku-
stund. Þeir sem hyggjast fara í
skemmtisiglinguna eru beðnir að
mæta niður á bryggju kl. 14.30 á
morgun. Nauðsynlegt er að börn
verði í fylgd með fullorðnum.
Afmælis ÚA verður minnst á
annan hátt á morgun, laugardag,
en kl. 13 verður opnuð í Iþrótta-
höllinni, efri hæð, sýning á hinum
ýmsu umbúðum sem fiskafurðir,
framleiddar undir merkjum Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
dótturfyrirtækja hennar, eru seldar
í út um allan heim.
Sýningin var fyrst sett upp í
tengslum við aðalfund SH á dög-
unum og vakti þá verðskuldaða at-
hygli. Forráðamenn ÚA leituðu
eftir því að fá sýninguna norður í
tengslum við 50 ára afmæli fé-
lagsins, enda er félagið einn
stærsti framleiðandinn innan SH.
Sýndar verða hinar ýmsu um-
búðir fyrir smásölu, mötuneyti,
veitingahús og heimsendingar-
þjónustu en frystihús víða á land-
inu leggja til fisk í þessar umbúð-
ir, þar á meðal ÚA. Einnig verða
sýndar umbúðir utan um afurðir
sem unnar eru í verksmiðjum
Coldwater Seafood Corporation
Ltd. í Bandaríkjunum og Icelandic
Freezing Plants Ltd. í Bretlandi,
svo dæmi séu tekin. Einnig gefst
gestum kostur á að sjá kynningar-
mynd um Útgerðarfélag Akureyr-
inga og þiggja kaffisopa.
Eins og áður segir verður sýn-
ingin opnuð kl. 13 á morgun og
hún verður opin til kl. 17. Athygli
skal vakin á því að sýningin verð-
ur aðeins opin þennan eina dag.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. óþh
málning
10 lítrar
kr. 4.640,
0
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565