Dagur - 29.06.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 29.06.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 29. júní 1995 FRETTIR ■£í ífKs.í,'1,/í; / I A*. s [!1 R I 'flölrn 29. júní til 2. júlí 'flllláfll Frönsk smábrauö 500 g kr. 95,- Vínber, græn kr. 198,- kg Perur kr. 68,- kg Daim skafís 1 ltr kr. 249,- Kims skrúfur m/papriku 65 g kr. 79,- Kims skrúfur m/salti 65 g kr. 79,- Coca Cola 2 ltr x 6 kr. 698,- Svínarif kr. 325,- kg •' Silhouettes Ultra kr.189,- Silhouettes Ultra normal kr. 189,- 1 kr. 500,- Þegar jþú verslar ódýrt MHSHÉSii Raufarhöfn: Atlanúpi ogSlétta- núpi fagnaö með sigl- ingu og kaffisamsæti íbúum Raufarhafnarhrepps var sl. sunnudag boðið til kaffisam- sætis af útgerðarfélaginu Jökli hf. en þá lágu í höfn þeir tveir bátar sem Atlanúpur hf., útgerð sem stofnuð var í kringum kaupin á bátunum en er í eigu Jökuls hf., festi kaup á í vetur en þeir voru að koma úr mikilli „skveringu“ í Slippstöðinni hf. í Reykjavík. Áður hafði gestum verið boðið að skoða bátana og síðan í siglingu með þeim. Þetta eru Ásgeir Guðmunds- son, 214 lesta bátur, sem keyptur var frá Hornafirði og heitir nú Atlanúpur ÞH-270, en hann fer á rækjufrystingu eftir breytingar sem fólust m.a. í niðursetningu á vinnslubúnaði, upptekt á aðal- og Ijósavél, málun o.fl. en hann var áður á línu. Hinn er Gústi í Papey, 138 lesta bátur, sem einnig var keyptur frá Hornafirði en heitir nú Sléttanúpur ÞH-272 og fer hann einnig á rækjuveiðar en ísar afl- ann, sem unninn verður hjá rækju- verksmiðjunni Geflu hf. á Kópa- skeri. Sjómannaverkfallið hafði engin áhrif á starfsemi frystihússins á Raufarhöfn. Þangað hefur borist karfi af færeyskum togurum sem hafa stundað veiðar á Reykjanes- hrygg og eins hafa smábátarnir aflað ágætlega og þessir tveir þættir hafa tryggt hráefnisöflun- ina. Umræður um sameiningu út- BDffBÐaflfflDBl Eltj BCD flaB* •QQOpafil Fimmtudagur 29. júní. Söngvaka - Tónlistarmennirnir Rósa Krist- ín Baldursdóttir og Þórarinn Hjartarson tlytja íslensk sðnglög í kirkju Minjasafns- ins. Miðað er við að erlendir ferðamenn geti notið dagskrárinnar og verður hún flutt tvisvarí viku kl. 21.00. Aðgangur kr. 600,- Klúbbur Listasumars og Karólínu í Deigl- unni frá kl. 22. Sigurður Flosason og fé- lagar leika djass. Aðgangur ókeypís. Föstudagur 30. júní Glugginn - Jónas Viðar Sveinsson sýnir myndlist við Vöruhús KEA. Útiskákmót á vegum Skákfélags Akureyrar. Göngugötunni kl. 16.00. Tónleikar danska kórsins Vocalerne undir stjórn Mogens Hellmer Petersen. Glerárkirkju kl. 20.30. Uppboð í ketilhúsinu. Boðið upp verkið Minningar eftir illan (llluga Eysteinsson), til styrktar ferðasjóði fatlaðra. Kl. 20.30. Myndirnar verða til sýnis kl. 18-20. Laugardagur 1. júlí Ustasafnið á Akureyri opnar sýningu á lágmyndum eftir Jón Gunnar Árnason og einnig sýningu á teikningum og grafikverkum eftir Jan Knapp. Lofthrœddi Örninn hann Örvar - Gestaleikur frá Þjóðleikhúsinu fyrir börn i Deiglunnikl. 11.00 og 17.00. Aðgangur kr. 600. gerðarfyrirtækisins Jökuls hf., Fiskiðju Raufarhafnar hf. og rækjuverksmiðjunnar Geflu hf. á Kópaskeri hafa legið niðri síðan í vetur en helsti kostur sameiningar var talinn vera sá að eitt öflugra fyrirtæki fengi meiri slagkraft, innri skipulagning á störfum, sam- nýting á skrifstofu og meiri sér- hæfing á starfsfólki yrði mun auð- veldari. Viss andstaða hefur verið gegn þessari sameiningu af hálfu minnihlutaeigenda í Geflu hf., m.a. að sameiningin mundi auka líkur á því að löndunarskyldan á Ekki hefur tekist að ráða i allar auglýstar kennarastöður á Norð- urlandi en ástandið er þó þokka- legt og horfurnar svipaðar og undanfarin ár. „Við vitum að það vantar enn kennara í einstaka skóla en þegar á heildina er litið er staðan þokka- leg. Reyndar rann út umsóknar- frestur um nokkrar stöður á sunnudag og við vitum ekki hvað kemur upp úr þeim potti,“ sagði Guðmundur Þór Ásmundsson, skrifstofustjóri á Fræðsluskrif- stofu Norðurlands eystra, en er þó frekar bjartsýnn á að vel gangi að manna þær stöður sem eftir eru. „Það gengur einna verst á Norð- austurhorninu að fá kennara til starfa en best á Akureyri og næsta nágrenni," sagði Guðmundur. Á Fræðsluskrifstofu Norður- lands vestra eru umsóknir enn að berast í hús og því erfitt að fá heildarmynd af því hver staðan er. Guðmundur Ingi Leifsson sagði að umsóknirnar hafi ekki komið í gusum en þó hægt og bítandi og þetta sé ósköp svipað og venju- lega. „Ég er ekki enn búinn að sjá almennilega hvað er komið í höfn því skólastjórar sjá nú alfarið um ráðningar og senda mér svo til Hafísinn heldur á undanhaldi: Næst landi um 30 sjómílur frá Straumnesi Landhelgisgæslan fór í ískönn- unarflug sl. mánudag út af Vest- fjörðum og Norðvesturlandi og reyndist ísjaðarinn vera næst landi um 30 sjómflur norðvestur af Straumnesi. ísjaðarinn var svo enn fjær landi út af Vestfjörðum; um 50 sjómílur norðvestur af Barða og 72 sjómílur vestnorðvestur af Blakk. Þéttleiki hafíssjaðarins var víðast 7- 9/10. Hætta á því að sigl- ingaleiðin fyrir Horn teppist vegna hafíss eða hafíssreks er því mun minni en hún var í byrjun júnímánaðar. GG innfjarðarrækjunni úr Öxarfirði hyrfi að einhverju leyti frá Kópa- skeri til Raufarhafnar. Vegna þessarar andstöðu hefur verið reynt að finna leiðir til sam- einingar fyrirtækjanna sem allir gætu sætt sig við, en sú umræða hefur reyndar Iegið niðri að und- anförnu. Jökull hf. á 63% hlut í Geflu hf. á móti aðilum í Öxar- fjarðarhreppi; Raufarhafnarhrepp- ur á 90% í Jökli hf.; Jökull hf. á síðan 60% hlut í Fiskiðju Raufar- hafnar hf. á móti 40% hlut Raufar- hafnarhrepps. GG staðfestingar." Guðmundur sagði að nokkur samdráttur hafi orðið í skólum á Norðurlandi vestra und- anfarin ár því nemendum hafi fækkað. Það sé samt alltaf einhver hreyfíng á kennurum, sérstaklega í bæjunum en það sé sjaldgæfara að kennarastöður séu auglýstar í sveitaskólunum. AI Dalvík: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur, samkvæmt tillögu bæjarstjóra, mælt með að Jóhann I. Magnússon, aðal- bókari, verði ráðinn í starf bæj- arritara til eins árs. ■ Bæjarráð hefur, samkvæmt tillögu bæjarstjóra, mælt með að Kristján Þorvaldsson verði ráðinn í starf aðalbókara. Um starfið sóttu auk Kristjáns Gunnar Alfreð Jensen, Jón Þórisson, Sigurður Ámason og Þórður Guðbjörnsson. ■ Bæjarráð hefur samþykkt er- indi Sjóferða hf. um 500 þús- und króna styrk úr Atvinnuþró- unarsjóði til markaðsátaks. ■ Bæjarstjóra hefur verið falið að ganga til samninga við for- ráðamenn Þernunnar, Ás- vídeós, ílex og Töru um kaup á hluta af húsinu Hafnarbraut 7. ■ Félagsmálanefnd hefur veitt Hólmfríði G. Jónsdóttur, Reynihólum 6, og Ingibjörgu Maríu Ingvadóttur, Dalbraut 14, dagmóðurleyfi til bráða- birgða í eitt ár. ■ Stjóm Dalbæjar hefur veitt Lilju Vilhjálmsdóttur, hjúkrun- arfræðingi, launalaust leyfi frá störfum í eitt ár frá 1. septem- ber nk. Kennararáðningar á Norðurlandi: Þokkalegt ástand

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.