Dagur - 29.06.1995, Side 3
Fimmtudagur 29. júní 1995 - DAGUR - 3
FRETTIR
Hugmyndir um sölu á Rafveitu Sauöárkróks:
Akvörðun verði borin undir bæiarbúa
- segir Hilmir Jóhannesson, formaöur veitustjórnar og bæjarfulltrúi K-lista
Tillaga framsóknarmanna í bæj-
arstjóm Sauðárkróks um að
bærinn selji Rafveitu Sauðar-
króks svo lækka megi skuldir
bæjarins hefur fengið misjöfn
viðbrögð og ljóst að ekki eru all-
ir jafn hrifnir af hugmyndinni.
Einn af þeim sem ekki líst á
þetta er Hilmir Jóhannesson,
bæjarfulltrúi af K-lista óháðra,
en hann er í meirihluta ásamt
Sjálfstæðisflokki og Alþýðu-
flokki og jafnframt formaður
veitustjórnar.
Hann segir ýmis rök fyrir því
að Rafveitan verði ekki seld og
líst til að mynda ekki á þá hug-
mynd að RARIK verði boðin Raf-
veita Sauðárkróks til kaups. „Þessi
tillaga er sorglega barnaleg að því
leyti, að ef þú ætlar að selja ein-
hvem hlut þá byrjarðu ekki á að
setja í blöðin að þú ætlir að selja
einhverjum ákveðnum hann. Ef
við ætíum að selja samkvæmt
þessu hávísindalega framboðs- og
eftirspurnarkerfi, þá eigum við að
bjóða hlutinn út og selja síðan
hæstbjóðenda,“ sagði Hilmir.
Hann segir ljóst að miðað vió
taxta Rafveitu Sauðárkróks og
RARIK muni Sauðkrækingar
þurfa að borga umtalsvert meira
sé rafmagnið keypt af RARIK, þar
sem taxtar RARIK séu hærri.
Hilmir segir það afar flókið
Lágheiðin
opnuð, lokuð og
opnuðá ný
Dagur skýrði frá því í gær að
Lágheiðin hefði verið opnuð á
þriðjudag. Ekki var liðinn sólar-
hringur er henni var lokað aftur.
Umferð var hleypt á heiðina
skömmu eftir hádegi á þriðjudag,
en ekki voru liðnir nema um tólf
tímar þegar aftur þurfti að loka
heiöinni. Mála- og vatnavextir
voru þeir að fyrr í sumar voru
heilmikil flóð í Þvergili, Ólafs-
fjarðarmegin og fór þá sundur
vegurinn. Vegagerðarmenn veittu
vatninu framhjá til bráðabirgða,
þar sem of miklar framkvæmdir
þurfti til að hægt væri að gera við
veginn til frambúðar.
„Þeir luku vió verkið í gær
(þriðjudag) og umferð var hleypt á
heiðina. Svo fór bara framhjá-
hlaupið okkar fina seint um kvöld-
ið og vegurinn í sundur. Þetta var
heldur stutt gaman þama á Lág-
heióinni,“ sagói Einar Brynjólfs-
son hjá Vegagerðinni á Akureyri.
Góðar fréttir eru þær að við-
gerð er lokið á ný og umferð leyfi-
leg um heiðina, ökutækjum allt að
fjögurra tonna þungum. shv
Nöfn feðganna
sem létust í
bílslysinu
Feðgamir sem létust í hinu
hörmulega bílslysi á Sval-
barðsströnd sl. mánudags-
kvöld hétu Auðunn Ingi Haf-
steinsson, 37 ára, fæddur 27.
október 1957, og Oddur Auð-
unsson, 6 ára, fæddur 24.
febrúar 1989. Þeir voru til
heimilis að Narfastöðum í
Skagafirði. óþh
mál, bæði efnahagslega og tilfinn-
ingalega, að selja Rafveituna. Að-
ur en slíkt sé gert verði aó fara
fram löng og ítarleg umræða.
„Meö fullri virðingu fyrir bæjar-
stjóm held ég að það jaóri við að
vera einræóishneigðir ef sjö menn
í bæjarstjóm taki einir þessa
ákvörðun. Eg vil segja að svona
dramatíska ákvörðun verði að taka
á þeim nótum að bera hana undir
atkvæði bæjarbúa, eða beinlínis
verði látið reyna á hana í bæjar-
stjómarkosningum," sagði Hilmir
og bætti við að hann hafi dregið
málið fram í síðustu bæjarstjóm-
arkosningum, en þá hafi enginn
viljað koma með þau rök á móti
að það ætti að selja Rafveituna.
„Ef meirihluti bæjarstjórnar tekur
þá ákvörun aö ræða þetta í alvöru
þá mun ég leggja dæmið þannig
upp aö við berum þetta undir eig-
endur fyrirtækisins, sem eru bæj-
arbúar.“
HÐfl|Stiaasif0Gl 04*
flCQ 0Q0« «0000081
Djass á Café
Karolínu í
kvöld
Eitt af því sem naut mikillar
aðsóknar á Listasumri ’94
var djassklúbbur sem Lista-
sumar stóð fyrir i samvinnu
við Gafé Karolínu. Hann var
á hverju fimmtudagskvöldi í
Deiglunni og er ætlunin að
halda uppteknum hætti í
sumar. Auk djass verður boð-
ið upp á dagskrár með t.d.
söngleikatónlist, gömlum
dægurlögum, Kurt Will o.fl.
I kvöld leikur kvartett skip-
aður þeim Sigurði Flosasyni á
saxofón, Gunnari Gunnarssyni
píanó, Jóni Rafnssýni kontra-
bassa og Pétri Grétarssyni á
trommur.
Sigurður Flosason er einn
af fremstu saxofónleikurum
þjóðarinnar og hefur leikið
með mörgum þekktum djass-
istum. Allir meðlimir kvar-
tettsins eru vel þekktir hljóð-
færaleikarar og þá ckki aðeins
á sviði djasstónlistar heldur
hafa þcir einnig leikið m.a.
popp, kirkjutónlist og klass-
íska tónlist með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Jón
og Sigurður eru báðir deildar-
stjórar í alþýðutónlistardeild-
um hvor I sínum landshluta.
Pétur Grétarsson hefur ckki
áður spilað djass í Deiglunni
en hann hefur eins og hinir
komið víða viö í heimi tónlist-
arinnar.
Deiglan verður opnuð kl. 22
og er aðgangur ókeypis.
Söngvaka.Tónlistarmenn-
imir Rósa Kristín Baldursdótt-
ir og Þórarinn Hjartarson flytja
íslensk sönglög í kirkju Minja-
safnsins. Miðað er við að er-
lendir ferðamenn geti notið
dagskrárinnar og verður hún
flutt tvisvar í viku kl. 21. Að-
gangur kr. 600.
Að hans sögn eru allir fylgjandi
því aó lækka skuldir, en spuming-
in sé hvemig það sé gert. Þegar
skuldir Sauðárkróksbæjar eru
skoðaðar verói Iíka að taka með í
reikninginn aó þær eru allar taldar
fram í bæjarreikningunum og sýn-
ast því hærri en ella í samanburði
Rækjuvlnnslan Dögun hf. á Sauðárkróki:
Fyrirhuguð bygging
nýrrar frystigeymslu
og móttöku
Fyrirhugað er að byggja nýja
frystigeymslu og mótttöku við
Rækjuvinnsluna Dögun hf. á
Sauðárkróki og er stefiit að því
að hefja byggingarfram-
kvæmdir í sumar svo taka
megi stækkunina í notkun fyr-
ir vetrarvertíð á rækjunni
1995/1996. Þessi viðbót þýðir
ekki sömu hlutfallsaukningu í
afkastagetu verksmiðjunnar,
en þessar framkvæmdir eru
orðnar mjög aðkallandi.
Fyrir dymm stendur að bjóða
verkiö út og verður væntanlega
gengið frá því í þessari viku.
Vinnsla er hafin að nýju í verk-
smiðjunni eftir sjómannaverkfall
og hafa bátarnir aflað sæmilega
en rækjan er þó fremur smá.
Bátamir hafa aðallega sótt á
Skagafjarðardýpi og austur á
Bakkaflóa- og Héröaðsflóadýpi.
Rækjan sem fengist hefur fyrir
austan er fremur smá, eóa 300
stk. eða meira í kg, en stærri fyr-
ir Norðurlandi, eða 150-200
stk/kg, sem teljast verður all-
þokkalegt. Áður en verkfallið
skall á var rækjan mjög góð, en
cðliiega verða nokkrar sveiflur í
stærð og gæðum rækjunnar frá
viku til viku. GG
vió sum önnur bæjarfélög. „í
rauninni er ég afskaplega glaður
yfir þessari tillögu framsóknar-
manna því þeir eru að draga fram
hvað við erum í raun og veru rík.
Maður er auðvitað alltaf þakklátur
þeim sem hælir manni, jafnvel þó
þaó séu framsóknarmenn,“ sagði
Hilmir Jóhannesson. HA
Nataðar
tölvur
Eigum nokkrar
386 tölvur
ti! sölu
T#LVUTÆKI
Furuvöllum 5 • Akureyrl
Sími 462 6100
k______________A
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
1977-2.fi. 10.09.95 -10.09.96 kr. 1.132.545,60
1978-2.fl. 10.09.95 -10.09.96 kr. 723,521,80
1979-2.fl. 15.09.95 -15.09.96 kr. 471.684,80
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1985-1.fl.A 10.07.95 - 10.01.96 kr. 68.812,30
1985-1.fl.B 10.07.95 - 10.01.96 kr. 33.817,00**
1986-l.fl.A 3 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 47.431,40
1986-l.fl.A 4 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 54,138,00
1986-l.fl.A 6 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 56.555,10
1986-1.fl.B 10.07.95 - 10.01.96 kr. 24.941,30**
1986-2.fi.A 4 ár 01.07.95 -01.01.96 kr. 44.582,70
1986-2.fl.A 6 ár 01.07.95 -01.01.96 kr. 46.484,00
1987-1.fl.A 2 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 37.127,10
1987-1.fl.A 4 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 37.127,10
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. júní 1995
SEÐLABANKIÍSLANDS