Dagur - 29.06.1995, Side 10

Dagur - 29.06.1995, Side 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 29. júní 1995 ÍÞRÓTTIR SÆVAR HREIÐARSSON Knattspyrna - 3. deild karla: Volsungar i2. sætið - lögðu Þrótt á Neskaupstað 1-0 Völsungur gerði góða ferð til Neskaupstaðar á þriðjudag, þar sem leikið var gegn heimamönn- um í liði Þróttar. Völsungar snéru heim með öll stigin eftir 1:0 sigur og eru nú komnir upp fyrir Dalvíkinga og í 2. sæti 3. deildar með 13 stig. Spilað var á gamla malarvellin- um í Neskaupstað. Völlurinn er lítill og þetta var dæmigerður mal- arleikur þar sem baráttan var gíf- urleg og knattspyrnan ekki upp á marga fiska. Heimamenn voru meira með boltann og sköpuðu sér fleiri færi í leiknum, sérstaklega í fyrri hálf- leik, en eftir hlé var meiri barátta í Völsungsliðinu og þeir tóku völd- in þegar líða tók á leikinn. Sigur- markið skoraði Guðni Rúnar Helgason utarlega úr teignum þegar um hálftími var liðinn af síðari hálfleik. Aðeins þremur mínútum síðar sauð upp úr á veli- inum. Slakur dómari leiksins sýndi Ásmundi Arnarssyni, Völs- ungi, gult spjald og í kjölfarið það rauða þar sem Ásmundur lét í Ijós óánægju sfna með dóminn. Sig- urður Lárusson, þjálfari Völsungs, og Arnar Guðlaugsson, aðstoðar- maður hans, fengu einnig rautt spjald fyrir að mótmæla dómnum. Heimamenn gerðu örvæntinga- fulla tilraun til að skora og voru nærri því í eitt skiptið en Ásgeir Baldurs bjargaði glæsilega á síð- ustu stundu. Besti maður vallarins var Ás- geir Baldurs, sem stóð sig mjög vel í vörninni hjá Völsungum. Þá var Björgvin Björgvinsson örugg- ur í markinu og varði oft vel. Knattspyrna - Mjólkurbikarkeppni KSI: Leiftur og Fyikir mætast í kvöld - yngra 115 Þórs á Skaganum Það verða stórleikir í 16-liða úrsiitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í kvöld. í' Ólafsfiröi tekur Leiftur á móti Fylki og má bú- ast við fjörugum Ieik enda eiga heimamenn 'harma að hefna eftir að hafa verið slegnir út af Fylki tvisvar á síðustu þremur árum. Lið Þórs, skipað leik- mönnum 23 ára og yngri, leik- ur á Akranési, gegn U23 ára liðiÍA. Fyrir þremur árum sigraði Fylkir 5:2 í Ólafsfirði í 16-liða úrslitum og aftur lágu Leifturs- menn í því í fyrra þegar Fylkir sigraði 2:0, aftur í 16-liða úrslit- um. Nú eru Ólafsfirðingar stór- huga og ætla ekki að láta söguna endurtaka sig. Á Akranesi verða ungu og efnilegu strákarnir í Þór í eldlfn- unni en liðið stóð sig mjög vel gegn HK í síðustu viku. IA er einnig með sterkt lið enda mikil knattpsymuhefð á Akranesi og virðist alltaf nægt úrval að góð- um leikmönnum. Það kemur sennilega til með að há Þórsur- um hvað hópurinn er lítill en þeir eru þó til alls líklegir. Aðrir leikir í kvöld eru: FH- Grindavfk, Stjaman-KR og Val- ur-Þróttur Reykjavík. Gunnar Már Másson verður í eldlínunni metí Leiftursmönnum í kvöld þegar Fylkismenn koma í hcimsókn. Frjálsar íþróttir: Goð þatttaka i viða- vangshlaupum HSÞ Guðni Rúnar Helgason var hetja Völsunga þegar hann skoraði sigurmarkið á Neskaupsstað og kom Húsvíkingum upp fyrir Dalvíkinga í stigatöflunni. Knattspyrna - Mjólkurbikarkeppni KSÍ: Frestað í Eyjum Leik „eldra“ liðs Þórs gegn ÍBV í Vestmannaeyjum var frestað í gær þar sem ekki var hægt að fljúga til Eyja. Þetta er annar leikurinn á tveimur dögum sem hefur verið frestað í Eyjum vegna þoku en á þriðjudags- kvöld átti kvennalið IBA að leika þar í 1. deild kvenna. Leikur ÍBV og Þórs verður leikinn í kvöld ef flugveður verð- ur skaplegt og hefst Ieikurinn kl. 20.00 eins og aðrir leikir í kvöld. Leikur ÍBA og ÍBV í kvennaflokki var settur á annað kvöld. Víðavangshlaupum HSÞ í ár er lokið og var þátttakan mjög góð í hlaupunum að þessu sinni. í fyrsta hlaupinu á Grenivík hlupu 120, í öðru hlaupinu í Mývatnssveit hlupu 148 og í þriöja hlaupinu í Vaglaskógi voru 176 þátttakendur. Alls tóku 260 manns þátt í hlaupinu að þessu sinni og er það tölu- verð aukning frá síðustu árum. Urslit í einstaklingskeppninni voru eftirfarandi: 10 ára og yngri: 1. Friðgeir Bergsteinsson, Völ. 28 stig 2. Jón H. Jóhannsson, Völ. 25 stig 3. Asgeir Logi Ólafsson, Rey. 22 stig 1. Heiða B. Pétursdóttir, Mag. 30 stig 2. Hafdís Sigurðardóttir, Bja. 22 stig 3. Rakel Hinriksdóttir, Efl. 21 stig 11-12 ára: 1. Þorsteinn Björnsson, Mag. 30 stig 2. Jóhann S. Björnsson, Mag. 26 stig 3. Haraldur Gíslason, Gei. 16 stig 1. Soffía Kr. Björnsdóttir, Mýv. 29 stig 2. Alma Þorsteinsdóttir, Mag. 25 stig 3. Hildigunnur Sigvarðsd., Völ. 18 stig 13-14 ára: 1. Andri Rúnarsson, Rey. 25 stig 2. Árni R. Garðarsson, Rey. 23 stig 3. Kristján Júlíusson, Völ. 20 stig 1. Hulda Sigmarsdóttir, Völ. 29 stig 2. Sigríður D. Þórólfsd., Rey. 25 stig 3. Heiðrún Sigurðardóttir, Bja. 22 stig 15-18 ára: 1. Stefán Jakobsson, Eil. 30 stig 2. Eyþór Rúnarsson, Rey. 27 stig 3. Ólafur H. Kristjánsson, Mýv. 24 stig 1. Erna D. Þorvaldsdóttir, Völ. 30 stig Skotfimi: Knattspyrna - 2. deíld kvenna: Tindastóll sigraði Dalvík Kvennaliö Tindastóls og Dal- víkinga mættust í b-riðli 2. deildar kvenna á Sauðár- króki á þriðjudag. Tindastóll sigraði í leiknum, 4:2, og eins og tölurnar bera með sér var leikurinn fjörugur. Mörk heimaliðsins skoruðu þær Kristjana Jónsdóttir, sem skoraði tvö niörk, og Heba Guðmundsdóttir og Sigríður Hjálmarsdóttir settu eitt hvor. Sunna Björk Bragadóttir var á skotskónum og skoraði bæði mörk Dalvíkur. Tvö mót í Olafsfirði Um síðustu helgi fóru fram tvö mót í flugskífuskotfimi í Ólafs- firði. Það fyrra var svokallað Miðnæturmót en þá hófu skytt- urnar að skjóta um kl. 10.00 á föstudagskvöldið og mótinu lauk rúmum fjórum tímum síð- ar þegar keppendur höfðu notið miðnætursólarinnar. Síðara mótið var á sunnudag og þar var bæði keppt í einstaklings- og liðakeppni. Keppnin á föstudagskvöld var skemmtileg og þar voru mættir auk Ólafsfirðinga kappar frá Keflavík, Blönduósi og Reykja- vík. Þetta var 75 dúfu mót og sig- urvegari varð Víglundur Jónsson úr SR en hann náði samtals 65 dúfum. Ævar Sveinsson, SR, hitti 62 dúfur og Hreimur Garðarson, SÍH, varð þriðji með 61 dúfu. Á sunnudag var keppnin enn meira spennandi og þar fór Reynir Reynisson úr SK á kostum. Hann skaut sig upp í meistaraflokk á móti í Olafsfirði á síðasta ári og kann greinilega mjög vel við sig þar. Reynir setti vallarmet á sunnudaginn þegar hann skaut 24 af 25 dúfum en skotvöllurinn í Ól- afsfirði er sennilega einn af fáum völlum á landinu þar sem aldrei hefur verið klárað með „fullu húsi“ þ.e. skotið 25 af 25 dúfum. Reynir sigraði á sunnudaginn eftir bráðabana við Víglund. Báðir enduðu þeir með 65 af fyrstu 75 dúfunum og voru síðan aftur jafnir með 20 dúfur af 25 í úrslitum. Það kom því til bráðabana og þar hafði Reynir betur. Þriðji varð Ævar Sveinsson með samtals 83 dúfur af 100 alls. Keppt var í flokkum, en Reynir var eini meistaraflokksmaðurinn á mótinu og vann því sinn flokk. Víglundur sigraði í 1. flokki en í 2. flokki var það Árni Hrólfur Helgason frá Akureyri sem hafði sigur. Gísli Ólafsson, félagi hans úr SA, varð annar. í þriðja flokki sigraði heimamaðurinn Dagur Guðmundsson og annar heima- maður, Gunnar Gunnarsson, varð annar. Athygli vakti að ein kona tók þátt í mótinu en það var Dóm- hildur Árnadóttir úr SR og varð hún þriðja í 3. flokki. Samhliða einstaklingskeppn- inni var keppt í liðakeppni og þar voru Reykvíkingar efstir. A-sveit þeirra var með 185 dúfur samtals en Akureyringar, sem mættu til keppni á sunnudag, komu næstir með 185 stig. A-sveit Ólafsfirð- inga kom næst með 139 stig. 2. Guðrún Helgadóttir, Völ. 27 stig 3. Jóna Árný Sigurðard., Völ. 23 stig 19-30 ára: 1. Unnsteinn Tryggvason, Rey. 30 stig 2. Ingólfur V. Ingólfsson, Efl. 26 stig 3. Sverrir Guðmundsson, Efl. 9 stig 31 árs og eldri: 1. Jóhann Gestsson, Mýv. 28 stig 2. Kristján E. Yngvason, Mýv. 27 stig 3. Haraldur Bóasson, Efl. 23 stig 1. Freydís A. Arngrímsd., Efl. 30 stig 2. Signður Karlsdóttir, Bja. 26 stig 3. Gréta Ásgeirsdóttir, EH. 19 stig Verðlaun verða afhent á Sumar- leikum HSÞ að Laugum laugardag- inn 1. júlí n.k. Ákveðið hefur verið að veita sérstök heiðursverðlaun til eista karls og konu sem þátt tóku í hlaup- unum og eru það ÓIi Kristjánsson úr Mývetningi (fæddur 1920) og Svanhildur Þorgilsdóttir úr Bjarma (fædd 1939), sem hljóta þau. Auk einstaklingskeppninnar er þetta einnig stigakeppni milli fé- laga. Reiknað er út hlutfall þátttak- enda miðað við fjölda félagsmanna. Stigahæsta félagið hlýtur veglegan farandbikar. Úrslit úr víðavangshlaupunum þremur: 1. Reykhverfungur 48,6% 36 einst. 38 einst. 11 einst. 35 einst. 52 einst. 24 einst. 13 einst. 15 einst. 36 einst. 2. Efling 3. Tjörnesingur 4. Bjarmi 5. Magni 6. Mývetningur 7. Geisli 8. Eilífur 9. Völsungur 24,6% 22,0% 16,2% 13,2% 10,0% 9,5% 5,4% 2,8% Flestir þátttakendur alls miðað við félagatölu voru frá Reykhverf- ungi eða 36 manns og er það 75% félagsmanna. Næst kom Efling með 38 manns eða 35,5% félags- manna, síðan Bjarmi með 35 manns eða 31% félagsmanna og Magni með 52 eða 28,6% félags- manna.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.