Dagur - 11.07.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 11. júlí 1995
Efnt var til gönguferðar og sagði leiðsögumaöur frá ýmsu markverðu varðandi verslunarsögu Hvammstanga. Myndir: óþh
Öldruð hjón gerðu sér ferð á verslunarafmælið á Farmal dráttarvél. Á móti
þeim tók Sigurður Davíðsson kaupmaður.
100 ára verslunarafmæJi
fagnað á Hvammstanga
Síðastliðinn laugardag fögnuðu
Hvammstangabúar 100 ára versl-
unarafmæli Hvammstanga. Af því
tilefni var efnt til fjölbreyttrar
dagskrár.
Efnt var til útimarkaðar við fé-
lagsheimilið þar sem jafnt ungir
sem aldnir gátu fundið eitthvað
Leikfélagsfólk á Hvammstanga flutti dagskrána „Við búðarborðið - annáll
verslunarmanna“ í félagsheimilinu.
GLÆSIBÆJARHREPPUR
Skógarhlíð, Glæsibæjarhreppi
Útboð
Glæsibæjarhreppur óskar eftir tilboðum í gatna-
gerð, lagningu frárennslislagna, gerð rotþróar og
siturlagna fyrir Skógarhlíð, Glæsibæjarhreppi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur um 600 m3
Fylling um 600 m3
Lagnir um 1040 m
Brunnar 19 stk.
Rotþró 12 m3
Verkinu skal að fullu lokió 15. september nk.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðiskrifstofu Sigurð-
ar Thoroddsen hf., Glerárgötu 30, Akureyri, frá og með
þriðjudeginum 11. júlí nk. gegn skilatryggingu kr.
5000,-
Tilboð skulu hafa borist Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen, Glerárgötu 30, Akureyri, eigi síðar en miðviku-
daginn 19. júlí 1995 kl. 11.00 fh„ og verða þau opnuð
þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Oddviti Glæsibæjarhrepps.
Fjölmargir lögðu leið sína í þetta
hús, en þar er Gallerí Bardúsa og
athyglisverö verslunarminjasýning
sem þeir sem eiga leið um Hvamms-
◄ tanga ættu ekki að láta fram
hjá sér fara.
við sitt hæfi. Meðal annars voru á
boðstólum ullarpeysur, sælgæti,
hákarl, sigin grásleppa, brauð,
tertur, blóm og margt fleira. Ekki
var annað að sjá en viðskiptin
væru blómleg og í sumum versl-
unarbásunum seldust vörurnar
upp.
Boðið var upp á stuttan göngu-
túr um Hvammstanga þar sem
leiðsögumaður greindi göngufólki
frá ýmsu markverðu úr verslunar-
sögu Hvammstanga. Þá lögðu
margir leið sína í krambúð Sigurð-
ar Davíðssonar, kaupmanns, með-
al annars komu hjón úr sveitinni í
kaupstaðarferð og tók Sigurður
sérstaklega vel á móti þeim.
Þá var kaffisala í félagsheimil-
inu og hápunktur dagsins var sýn-
ingin „Við búðarborðið - annáll
verslunarmanna“ þar sem rifjuð
voru upp ýmis eftirminnileg atvik
úr verslunarsögu Hvammstanga.
Húsfyllir var í félagsheimilinu á Hvammstanga, þar sem flutt var dagskráin
„Við búðarborðiö - annáll verslunarmanna“.
Mikil aðsókn var að þessari dag-
skrá.
Að kvöldi laugardagsins var
síðan slegið upp svokölluðu eðal-
balli í félagsheimilinu þar sem
ungir sem aldnir dönsuðu við
harmonikuundirspil.
Töluvert margir lögðu leið sína
til Hvammstanga á laugardaginn
til þess að taka þátt í hátíðarhöld-
unum sem óhætt er að segja að
hafi í heildina tekist vel. Veðrið
hefði að vísu mátt vera ívið betra,
en eins og allir vita er ekki á vísan
að róa í þeim efnum. óþh
Akureyri:
Gílitrutt í Gilinu
Búið er að opna nýja búð í Gilinu
sem heitir Gilitrutt. í búðinni er
hægt að kaupa ýmsar heimaunnar
handverksvörur s.s. föt, kort úr
endurunnum pappír og ýmislegt
smádót.
Saumastofan HAB á Árskógs-
strönd, Hagar hendur í Eyjafjarðar-
sveit, Prjónastofan Sif í Olafsfirði
og Bára Höskuldsdóttir, sem sést
hér á myndinni, standa saman að
rekstri búðarinnar sem er opin 10-
18 alla virka daga. Þess má geta að
HAB-saumastofa hefur nú flutt
starfsemi sína úr húsnæði á L-Ár-
skógssandi að Melbrún 2, lyar sem
Sparisjóður Svarfdæla á Arskógs-
strönd er til húsa. AI/Mynd:B.G.