Dagur - 11.07.1995, Blaðsíða 9

Dagur - 11.07.1995, Blaðsíða 9
IÞROTTIR Þriðjudagur 11. júlí 1995 - DAGUR - 9 / SÆVAR HREIÐARSSON Sundmeistaramót íslands: Atta verðlaun Oðins Sundmeistaramót íslands var haldið í sundlauginni í Laugar- dal í Reykjavík um helgina. Tvö íslandsmet féllu á mótinu, sem fram fór í fremur misjöfnu verðri. Árangurinn var líka sam- kvæmt því og hefur oft verið betri. Sundfólk úr Óðni á Akureyri kom heim með alls átta verðlaun og samkvæmt venju voru þar á ferð þremenningarnir Ómar Þ. Árnason, Baldur Már Helgason og Þorgerður Benediktsdóttir. Hæst ber sigur Ómars í 100 m flugsundi á tímanum 1:00,56 eftir harða keppni við Davíð F. Þórunnarson. Þá varð Ómar þriðji í 50 m og 100 skriðsundi á tímunum 25,73 sek. og 56,24 sek. Baldur vann til þrennra brons- verðlauna. Hann synti 400 m fjór- sund á 5:14,86, 200 m baksund á Ómar Árnason sigraði með glæsibrag í lOOm flugsundi 2:29,29 og 100 m baksund á 200 m fjórsundi á 2:39,71 og 1:08,67. Þorgerður varð önnur í þriðja í 400 m fjórsundi á 5:38,03. Golf - opna Coca-Cola mótinu: Spennandi keppni Það var skemmtileg keppni í opna Coca-Cola mótinu í golfi, sem Golfklúbbur Akureyrar hélt að Jaðri um helgina. Keppt var bæði laugardag og sunnudag í veðurblíðunni og bar fyrir glæsi- Iegu golfi. Keppnin var jöfn og spennandi og skemmtilegust í karlaflokki þar sem eitt til tvö högg skildu efstu menn að. I karlaflokki án forgjafar var það Þorleifur Karlsson sem sigr- aði. Hann lék á 72 höggum fyrri daginn og 73 síðari daginn og því samtals á 145 höggum. Sigurður H. Ringsted lék á 74 höggum fyrri daginn en vann sig síðan upp síð- ari daginn og lék á 72. Hann end- aði því einu höggi á eftir Þorleifi, samtals á 146 höggum. Jafnir í þriðja til fimmta sæti urðu Magnús Karlsson, Jón Steindór Árnason og Davíð Georg Barnwell. Allir léku þeir á 151 höggi samtals og þurfti því bráðabana til að skera úr um þriðja sætið. Þar hafði Jón Stein- dór sigur á 18 holu. Með forgjöf var keppnin ekki síður jöfn hjá körlunum. Páll Páls- son hafði þó sigur á 133 höggum nettó en Magnús Karlsson kom næstur með 135 högg nettó. Þriðji varð Sigurður H. Ringsted á 136 höggum. í kvennaflokki án forgjafar sigraði Árný L. Ámadóttir úr GSS á 169 höggum og átti þá tíu högg í næstu stúlku, Kristínu Elsu Er- lendsdóttur úr GA, sem lék á 179 höggum. Þriðja varð Halla B. Er- lendsdóttir úr GSS á 187 höggum. Með forgjöf var það hins vegar Halla B. sem sigraði á 137 högg- um nettó en Anna Freyja Eðvarðs- dóttir, GA, varð önnur á 139 högg- um nettó. Hildur Símonardóttir varð þriðja á 144 höggum nettó. í unglingaflokki var það Gunn- laugur Erlendsson, GSS, sem sigr- aði án forgjafar á 148 höggum en heimapilturinn Finnur Bessi Sig- urðsson varð annar á 165 höggum. Viðar Haraldsson, einnig úr GA, varð þriðji á 167 höggum. Finnur Bessi fór með sigurinn með for- gjöf og var á 125 nettó en Gunn- Páll Pálsson sigraði með forgjöf í karlaflokki laugur varð þar annar á 130 nettó. Baldvin Ö. Harðarson úr GA varð þriðji á 133 höggum. Það var gaman að fylgjast með keppninni á Pollinum við Akureyri um helg- ina og tilþrifin voru oft glæsileg. Myndir: BG Siglingar: Opna íslands- mótið á Akureyri Opið íslandsmót í siglingum fór fram á Pollinum við Akureyri á föstudag og laugardag. Það var Nökkvi á Akureyri sem hélt mót- ið en heimamönnum gekk ekki eins vel og vonast hafði verið til. Það voru félagar í Brokey úr Reykjavík og Ymi frá Kópavogi sem hirtu öll verðlaunin á mót- inu. Síðast héldu Nökkvamenn slíkt mót fyrir fjórum árum og nú vonast þeir til að geta fengið eitt stórmót á ári til Akureyrar. Mótið var ekki eins öflugt og það hefði getað verið ef allir bestu menn landsins hefðu getað mætt til leiks. Það vantaði nokkra góða siglara sem em staddir erlendis um þessar mundir. Til dæmis eru tíu strákar staddir í Þýskalandi að sigla þriggja mastra skútu og Jens Gíslason, einn sterkasti siglari Nökkva, er staddur f Finnlandi þar sem hann keppir með fínnsku liði á stórri skútu. AIIs var 21 þátttakandi sem mætti til leiks. Rótgróin félög voru í baráttunni um verðlaun og í opn- um flokki sigraði Magnús Guð- mundsson úr Ými með 6 stig en annar kom Kristján Oddsson úr Brokey með 8 stig. Þriðji varð Davíð Hafstein úr Brokey með 20,1 stig. f A flokki Optimist var það Hafsteinn Geirsson úr Brokey sem sigraði með 3 stig, Ólafur Víðir Ölafsson, Ými varð annar með 6 stig og Sveinn Benedikts- son, Brokey, varð þriðji með 22,8 stig. í B flokki Optimist varð Mart- in Swift, Brokey, með 3 stig, Nökkvi Gunnarsson, Brokey, varð annar og Karl Garðarsson, Brokey, varð þriðji. Vindurinn var helst til of lítill fyrir keppendur. Sunnanátt var ríkjandi en þegar hafgolan blés að norðan má segja að átök vindanna hafi sett mark sitt á mótið. Eitt sinn kom það fyrir að norðanáttin var sterkari og varð það til þess að nokkrir bátar ultu þegar vindurinn kom öfugu megin í seglin. Þessi ungi keppandi viröist ekki al- veg vera meö hugann viö mótið og geispar hér ógurlega. Mývatnsmarþon 95: Glæsilegt og vel heppnað hlaup Fyrsta Mývatnsmaraþonið fór fram á sunnudaginn. Þátttöku- fjöldi fór fram úr björtustu von- um manna og ekki var verra að veðrið lék við hlaupara. Hlaupið var hringinn í kringum Mývatn í heilu maraþoni auk þess sem hlaupnir voru 10 km og 3 km. Hlaupið var réttsælis um vatnið og hlaupið hófst við bæinn Garð og komið var í mark við Skútu- staði. Allir sem luku hlaupinu fengu verðlaun auk þess sem fjöl- margir aukavinningar voru í boði. Sigurvegarar í heila maraþoninu hlutu ferð til Grænlands í verð- laun. Úrslit í hlaupunum urðu sem hér segir: 3 kni Stúlkur 12 ára ogyngri 1. Valgerður Árnadóttir, 17,22 2. Soffía Kristín Björnsdóttir, 17,23 3. Ingib. L. Guðmundsdóttir, 17,33 Stúlkur 13 til 17 ára 1. Hildur Bergsdóttir, 12,38 2. Birna Hallgrímsdóttir, 13,55 3. Hrund Jörundsdóttir, 16,30 Konur 18 til 39 ára 1. María Friðgerður Rúriksdóttir, 17,03 2. Dorit Schultes, 18,16 3. Björg Árnadóttir, 19,02 Konur 40 til 49 ára 1. Áslaug Jóhanna Guðjónsdóttir, 16,08 2. Hulda Finnlaugsdóttir, 17,59 3. Þóranna Þórðardóttir, 19,04 Konur 50 til 59 ára 1. Geirþrúður Sigurðardóttir, 18,17 2. Sólveig Illugadóttir, 19,35 3. Ingib. S. Guðmundsdóttir, 22,24 Konur 60 ára og eldri 1. Gerður Benediktsdóttir, 37,31 Piltar 12 ára og yngri 1. Óli Jóhann Friðriksson, 14,16 2. Gísli Gunnar Pétursson, 15,44 3. Guðmundur Helgi Friðriksson, 16,19 Piltar 13 til 17ára 1. Atli Stefánsson, 12,23 2. Hilmar Kristjánsson, 12,39 3. Sigurður H. Hallgrímsson, 12,50 Karlar 18 til 39 ára 1. Einar Jónsson, 14,41 2. Yngvi Ragnar Kristjánsson, 14,41 3. Kristján Þórarinn Davíðsson, 23,04 Karlar 40 til 49 ára 1. Friðrik L. Jóhannesson, 13,49 2. Árni Vésteinsson, 17,24 3. Markús Einarsson, 18,13 Karlar 50 til 59 ára 1. Reynir Rósantsson, 24,03 Karlar 60 ára og eldri 1. Jón Kristjánsson, 23,10 2. Óli Kristjánsson, 28,05 3. Sverrir Tryggvason, 10 km 37,51 Stúlkur 17 ára og yngri 1. Guðrún Helgadóttir, 47,50 Konur 18 til 39 ára 1. Erna Margrét Bergsdóttir, 44,37 2. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, 45,29 3. Margrét Inga Bjarnadóttir, 49,18 Konur 40 til 49 ára 1. Helga Björnsdóttir, 43,05 2. Gyða Sigurlaug Haraldsdóttir, 47,58 3. María Þórarinsdóttir, 53,04 Konur 50 ára og eldri 1. Hildur Bergþórsdóttir, 58,21 2. Hilda Torfadóttir, 70,46 Piltar 17 ára ogyngri 1. Stefáns Jakobsson, 41,33 2. Árni Gunnar Gunnarsson, 44,34 3. Ólafur H. Kristjánsson, 51,53 Karlar 18 til 39 ára 1. Finnur Friðriksson, 35,48 2. Torfi Helgi Leifsson, 38,03 3. Konráð Stefán Gunnarsson, 38,20 Karlar 40 til 49 ára 1. Kristján Gunnarsson, 43,55 2. Kristján E. Ingvason, 46,14 3. Áslaugur Haddsson, 46,20 Karlar 50 ára og eldri 1. Einar Janus Kristjánsson, 46,46 2. Bergur Felixson, 48,59 3. Birkir Fanndal Haraldsson, 51,52 Maraþon Úrslit í aldursflokkum Konur 1. Jóhanna Arnórsdóttir, 4,16,58 Karlar 1. Ágúst Kvaran, 3,29,44 2. Guðjón E. Ólafsson, 3,35,32 3. Pétur Ingi Frantzson, 3,36,40 Sveitakeppni 10 km 1. Vargarnir, 1,53,59 Finnur Friðriksson, 35,48 Konráð Stefán Gunnarsson, 38,20 Karl Ásgrímur Halldórsson, 39,51 2. Strútarnir, 2,11,18 Helga Björnsdóttir, 43,05 Yngvi Kjartansson, 43,36 Erna Margrét Bergsdóttir, 44,37 3. Bjargvættir 2, 2,13,47 Leonard Birgisson, 42,29 Karl Friðrik Jónsson, 45,04 Lúðvík Áskelsson, 46,14 Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.