Dagur - 19.07.1995, Síða 1
„Við sleppum fæst ár þannig að
ekki verði einhver áföll og þessar
snöggu leysingar í vor gerðu sums
staðar talsverðan usla, mjög mik-
inn hjá einstaka mönnum. Fyrir
utan þessa vatnsskaða held ég að
þetta komi þokkalega út, en það er
allt miklu seinna á ferðinni en í
venjulegum árum,“ sagði Árni.
Hann sagi erfitt að segja hvort
þaó tjón sem hlaust af vatnavöxt-
unum verði varanlegt, en væntan-
lega komi fuglamir aftur næsta ár
þó þeir hafi misst hreiður sín nú,
en auðvitað komi ekki ungar úr
þeim hreiörum sem fóru forgörð-
um.
„Það gengur vel aö selja dún-
inn núna og verðió hefur verið á
uppleið þannig aó staðan er út af
fyrir sig góð.“ Ámi sagist telja að
yfir 400 jarðir á landinu öllu séu
með eitthvert æðarvarp og tals-
verður fjöldi manna sem hefur af
þessu umtalsverðar tekjur, allt upp
í að hafa nánast sitt lifibraut af
dúntekju. Utflutningsverðmæti
dúns hefur verið á bilinu 70-140
milljónir og var um 100 milljónir
á síóasta ári en eins og Árni benti
á er tiltölulega minni kostnaóur af
þessu en mörgu öðru sem skapar
útflutningstekjur. HA
arfélagi Eyjafjarðar, sem staðið
hefur að undirbúningi handverks-
hátíðarinnar, segir það gert sam-
kvæmt óskum gesta á fyrri hand-
verkshátíðunum tveimur að fjölga
sýningardögum. Opið verður milli
kl. 16 og 20 fimmtudaginn 10.
ágúst, milli kl. 13 og 20 næstu tvo
daga og 13 og 18 á lokadcginum,
sunnudaginn 13. ágúst.
Aðspuró segir Elín að margir af
fyrri sýnendum komi með sína
framleiðslu en einnig hafi margir
nýir slegist í hópinn, þar á meóal
svokallaður Þingborgarhópur á
Suðurlandi, sem talinn er einn
þróaðasti handverkshópur lands-
ins.
í tengslum við sýninguna munu
verða sýnd gömul vinnubrögð í
handverki og sagði Elín að þeir
sem áhuga hafa á að sýna slíkt
geti sett sig í samband við for-
svarsmenn sýningarinnar. Þá
verða á útisvæði sölubásar fyrir
matvæli og loks má nefna stórt
veitingatjald sem sett verður upp.
Einnig verður prjóna- og spuna-
keppni meðan á sýningunni stend-
ur en þátttakendur þurfa að til-
kynna sig með fyrirvara til aó-
standenda sýningarinnar. JOH
Botnlaust að gera hjá Laxá hf.:
Unnið allan solarhringinn
sex daga vikunnar
Ohætt er að segja að þessa
dagana sé botnlaust að gera
hjá fóðurverksmiðjunni Laxá hf.
á Akureyri. Unnið er allan sólar-
hringinn sex daga vikunnar og
eru starfsmenn nú tuttugu, en
voru áður átta.
Einar Sveinn Olafsson, verk-
smiðjustjóri, segir að helsta skýr-
ingin á þessari miklu vinnu sé
samningur við norska fyrirtækið
Skretting sem muni tryggja fyrir-
tækinu mikla vinnu langt fram á
haust. Einar Sveinn segir að
„sprenging“ sé í fiskeldinu í Nor-
egi og það sama sé uppi á teningn-
um í Kanada.
„Eins og við sjáum fram á
haustið höfum við þörf fyrir alla
þessa starfsmenn. Við vinnum all-
an sólarhringinn sex daga vikunn-
ar. Það er nýtt fyrir okkur, við
höfóum aldrei áður framleitt
meira en allan sólarhringinn fimm
daga vikunnar,“ sagói Einar
Sveinn Ólafsson.
óþh
Það hefur verið botnlaust að gera hjá starfsmönnum Laxár hf. að undan-
fórnu. í gær var verið að skipa út um 400 tonnum af fóðri upp í samning við
Skretting í Noregi. Mynd: BG.
Mikill áhugi er á sýningu
handverksfólks í ágúst,
þeirri þriðju sem haldin er að
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.
Fullbókað er í sýningarsalinn,
alls 72 sýningarbása en sýnend-
ur eru miklu mun fleiri því í
sumum básanna er um að ræða
sýningar heilla handverkshópa.
Sýningin hefst síðdegis fimmtu-
daginn 10. ágúst og stendur í
fjóra daga.
Elín Antonsdóttir hjá Iðnþróun-
Minni sjúkrahús á landsbyggðinni:
Spurning hvort þau
munu lifa eða deyja
- segir Jón Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Siglufirði
Flatur niðurskurður í heil-
brigðiskerfinu hefúr komið
hart niður á litlum sjúkrahúsum
sem veita lífsnauðsynlega þjón-
ustu og geta ekki lokað neinum
deildum. Boðaður er þriggja
milljarða niðurskurður til við-
bótar og segir Jón Sigurbjörns-
son, framkvæmdastjóri sjúkra-
hússins á Siglufirði, að stefnan í
kerfinu sé að breyta litlu sjúkra-
húsunum í hjúkrunarheimili,
sem ekki munu veita neina sér-
fræðiþjónustu og þá sé voðinn
vís.
„Möguleikar lítilla sjúkrahúsa
til aö draga saman í rekstri eru
litlir. Þetta er bráóaþjónusta sem
við erum að veita á þessum stöð-
Æðarvarp
tókst
víðast vel
- einstaka jaröir uröu
þó fyrir verulegum
áföllum vegna flóöa
✓
Ihinum miklu vatnavöxtum
sem urðu í vor, sérstaklega
norðan- og austanlands, varð
æðarvarp víða fyrir talsverðum
skakkaföllum. f heildina tekið
tókst æðarvarp hins vegar nokk-
uð vel að þessu sinni, að sögn
Árna Snæbjörnssonar, hlunn-
indaráðunautar.
um og henni verðum við að
viðhalda. Flatur niðurskurður
kemur því mun harðar niður á
okkur en stóru sjúkrahúsunum
sem geta einfaldlega lokað deild-
um, þó það sé í sjálfu sér ekki gott
heldur. Flest litlu sjúkrahúsanna
hafa náð botninum, þaó er ekki
hægt að komast neðar.“
Jón segir að sjúkrahúsið á
Siglufirði hafi síðasta ár verió rek-
ið með 2,3 milljóna króna halla,
og það er í fyrsta skipti í átta ár
sem tap er á rekstrinum. Hann
segir að sparnaður hafi náðst hing-
að til með hagræðingu og endur-
skipulagningu en nú sé komið út í
enda; ekki verði hægt að spara
meira nema með því að hætta að
veita einhverja lífsnauösynlega
þjónustu. Þrátt fyrir að kröfur um
þjónustu og álag hafi aukist und-
anfarin ár hefur ekki verió hægt
að bæta við neinu starfsfólki.
Talsverð fjárhæó bættist við út-
gjöld á þessu ári þar sem sjúkra-
húsin fá ekki nema tíu mánaða
bætur frá ríkinu vegna nýs kjara-
samnings hjúkrunarfræðinga og
þurfa því að standa straum af
kostnaóinum síðustu tvo mánuð-
ina, og nemur hann um þaö bil
hálfri milljón fyrir sjúkrahúsið á
Siglufirði.
„Það hryllilegasta er að það er
boðað að sjúkrahúsin héma í
kring, Húsavík, Sauðárkrókur og
Blönduós eigi einungis að vera
hjúkrunarheimili, sem þýðir að
þau munu ekki veita neina sér-
fræðiþjónustu og hér á Siglufirði
sætum við bara eftir með öldrun-
ardeildina. Fólk myndi þurfa að
sækja lífsnauðsynlega þjónustu
langa leið og það liggur í augum
uppi að illa getur farió ef ekki
næst í hana nógu fljótt. Þetta er
líka spuming um það hvort menn
fái að búa þar sem þeir vilja, eða
hvort þcir eru tilneyddir að flytja á
mölina.“
Jón sagði aö hann og starfs-
bræður hans innan heilbrigðisgeir-
ans vilji sinna skyldum sínum,
sem væri að .veita. lífsnauðsynlega
þjónustu og hann bjóst við að það
yrði látið sverfa til stáls í október-
nóvember um það hvort litlu
sjúkrahúsin á landsbyggðinni ættu
að lifa eða deyja, og þaö væri eng-
um blöðum um þaó að fletta að
landsbyggðarmenn vildu halda
sínu. shv
Akureyri:
Fyrirhuguö
bygging á
íbúöum
fyrir fatlaða
Húsnæðisnefnd Akureyrar
hefur borist beiðni frá
Landssamtökunum Þroska-
hjálp um að nefndin gerist
framkvæmdaraðili að bygg-
ingu íbúða fyrir samtökin.
Svæðisskrifstofa fatlaðra
fór þess á leit við Landssam-
tökin að þau sæktu um lán í
byggingasjóð verkamanna til
byggingu leiguíbúða fyrir fatl-
aða á Akureyri, en skrifstofan
hefur ekki tök á aö sækja um
slík lán þar sem hún er opinber
stofnun. Lánið var veitt en
samtökin sjá sér ekki fært aó
fjarstýra byggingaframkvæmd-
um og því hefur húsnæðis-
nefnd verið beðin um að gerast
framkvæmdaraóili að umrædd-
um byggingum.
Bæjarráð hefur tekið já-
kvætt í aó nefndin taki verk-
el'nið að sér, en telur ekki eðli-
legt að Akureyrarbær taki á sig
ábyrgð á kostnaói umfram við-
miðunarmörk. Bæjarráð hefur
falið forstöðumanni húsnæðis-
nefndar að ganga til viðræðna
við Landssamtökin og gera
drög að samningi, en niður-
stöðu er ekki að vænta fyrr en í
ágúst. shv
Handverkshátíð á Hrafnagili í ágúst:
Fullbókað í alla 72
sýningarbásana
Skandia
Ijfandi samkeppm
w - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 * Sími 461 2222
Akureyri, miðvikudagur 19. júlí 1995
136. tölublað