Dagur - 19.07.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 19. júlí 1995
FRÉTTIR
Bæjarstjórn Akureyrar:
Skiptar skoðanir um úthlutun lóða
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær spunnust nokkrar um-
ræður vegna úthlutunar bygg-
inganefndar á lóðum við Hörpu-
lund og Hindarlund á Akureyri.
Eins og fram hefur komið voru
umsóknir mun fleiri en lóðir sem
stóðu til boða og þurfti því að
hafna mörgum umsækjendum.
Raunar er ár og dagur síðan
slíkt hefúr gerst á Akureyri.
Á fundi bæjarráðs þann 29.
júní mætti formaóur bygginga-
nefndar, Hákon Hákonarson, til
viðræðu um úthlutunarreglur lóða
hjá Akureyrarbæ. Á fundinum
kom fram bókun frá bæjarráðs-
mönnum minnihlutans, Sigríði
Stefánsdóttur og Birni Jósef Am-
viöarsyni, þar sem fram kemur að
þau eru ekki sátt við þær skýring-
ar sem fram komu hjá formanni
bygginganefndar og skýróu þau
afstöðu sína á bæjarstjórnarfundi í
gær.
Sigríður sagði þaó alltaf við-
kvæmt þegar gera þyrfti upp á
milli fólks eins og í þessu tilfelli
og fólk ætti rétt á að vita eftir
hverju væri farið. Hún rakti þær
skýringar sem fram komu á fundi
bygginganefndar þann 29. júní,
sex dögum eftir að bygginganefnd
afgreiddi umsóknimar, þar sem
fram kemur við hvað var stuðst
við úthlutunina. Þau atriði voru að
lóóum sé úthlutað til einstaklinga,
umsækjandi sé að minnka við sig
húsnæði og tekið var tillit til eldri
umsókna og synjana um lóðaum-
sóknir.
Sigríður gerði ekki athugasemd
við fyrsta atriðið en hins vegar við
hin tvö seinni. Hún sagði umhugs-
unarvert af hverju þeir sem eru að
minnka við sig ættu að hafa ein-
hvem forgang og ekki síður væri
vafasamt að taka tillit til eldri um-
sókna þar sem við úthlutanir und-
anfarið hefur ekki þurft að hafna
umsóknum og ein neitunin sem
tekin var inn í dæmið var frá árinu
1977, eða 18 ára gömul.
Undir þetta tók Björn Jósef
Arnviðarson og sagði bygginga-
nefnd ekki hafa tiltekió fjóröa at-
riðið í fundargerð sinni 29. júní,
sem formaður bygginganefndar
hefði sagt bæjarráði að tekió hafi
verið tillit til, þ.e. blöndun starfs-
stétta. Bjöm Jósef sagðist telja að
mistök hafi verið gerö við úthlut-
unina og svo virtist sem sem regl-
umar sem bygginganefnd segðist
hafa farið eftir hafi annað hvort
verið búnar til eftirá eóa hafi ekki
verið kynntar umsækjendum fyrir-
fram. Varðandi það atriði að taka
tillit til þeirra sem eru að minnka
við sig, sagði Bjöm Jósef að þær
eignir sem erfiðast væri aó selja í
dag væru þær stóru. Afleióingar
þessa skilyrðis væru því að endur-
sölueignir sem kæmu á markað frá
þeim sem fengu úthlutað í nýja
hverfmu væru af þeirri gerð sem
erfiðast væri að selja og fólk gæti
því setið upp með þær. Bæði
Bjöm Jósef og Sigríður Stefáns-
dóttir lýstu þeirri skoðun sinni að
eðlilegasti framgangsmátinn í
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%^
%*
%*
V*
V*
%^
%*
%/*
%*
%^
%^
%^
%*
%*
%*
%^
%*
%/*■
V*
%*
%*
%*
%^
V*
%<*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%^
%^
%^
%^
%^
%^
%A
Hótel KEA
Föstudags
jass
Þórir Baldursson
ásamt Jóni Rafnssyni
í léttri sveiflu frá kl. 10-01.
Enginn aðgangseyrir.
♦
Laugardagskvöld
Danssveitin
ásamt Evu Ásrúnu
og Stebba í Lúdó
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti
kl. 23.30.
Miðaverð aðeins kr. 700.
sími 462 2200
%*
%*
%*
%/*■
%*
%*
%*
%*
%*
%^
%*
%*
%/*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%*
%^
%/*
%*
%*
%*
%^
%*
%*
%*
%*
%*
%^
%*
%*■
%^
%*
%^
%^
w*
%*
%/*
%^
svona tilfellum væri aó setja skýr-
ar reglur eða ramma og draga síð-
an úr hópi þeirra sem falla innan
rammans.
Gísli Bragi Hjartarson og fleiri
tóku til máls og svöruðu þessari
gagnrýni. Gísli Bragi hefur ein-
mitt manna mest barist fyrir því
að bærinn byði upp á lóðir á um-
ræddum staó. Hann sagðist hafa
óttast að eiga ekki eftir að sitja í
bæjarstjóm þann dag sem neita
þyrfti umsækjendum um lóðir í
bænum, eins og nú hefði reynst
nauösynlegt. Það væri spuming
hvort fráfarandi meirihluti hefói
einfaldlega boðið upp á lóðir sem
fólk vildi byggja á. Núverandi
meirihluti hefði hins vegar í
hyggju að halda áfram á þessari
braut, þ.e. halda áfram bjóða upp
á eftirsóttar byggingalóðir þannig
að allir geti fengið lóðir þar sem
þeir vilja og ekki þurfi að vera
með einhverjar reglur um hverir fá
og hverjir ekki. HA
Litliogstóri
Eyjafjarðarferjan Sæfari sýnist ekki mjög stór á þessari mynd í samanburði við skemtiferðaskipið Maxím
Gorkí, en þó er það langt frá því að vera í hópi stærstu skemmtiferðaskipa. Þessi mynd var tekin á Pollinum á
Akureyri í gær. óþh/Mynd: bg
Gítarhátíð á Akureyri hefst í dag:
Tónleikar Timo Korhonen í kvöld
Gítarhátíð hefst á Akureyri í
dag, miðvikudaginn 19. júlí og
stendur hún til nk. sunnudags.
Eins og á fyrri hátíðum koma
margir snjallir gítaristar til Ak-
ureyrar og ber þar hæst nöfn
finnska gítarleikarans Timo
Korhonen og hollenska Fla-
mencogítaristans Eric Vaarzon
Morel. Einnig koma fram að
þessu sinni Sverrir Guðjónsson
kontratenór, Einar Einarsson
gítarleikari og Kristinn Árnason
gítarleikari að ógleymdum nem-
endum sem mæta á gítarnám-
skeið sem efnt verður til á hátíð-
inni.
Gítarhátíðin veróur sett í Akur-
eyrarkirkju í kvöld kl. 20.30 og að
formlegri setningu lokinni spilar
finnski gítarsnillingurinn Timo
Timo Korhonen.
Korhonen á tón-
leikum. Á efnis-
skránni eru verk
eftir Leo Brou-
wér, Luis de Mi-
lán, Leo Brou-
wer, Jouni
Kaipainen, Olli
Koskelin og M.
Llobet.
Timo Kor-
honen hélt sína fyrstu einleikstón-
leika aðeins 14 ára gamall. Hann
stundaði nám við Sibelíusar Aka-
demínuna og einnig við Tónlistar-
akademíuna í Basel í Sviss hjá
Oscar Ghiglia, sem var gestur gít-
arhátíðar á Akureyri á síðasta ári.
Korhonen er yngsti gítarleikarinn
sem unnið hefur gítarkeppnina í
Múnchen. Hann var einnig fyrsti
evrópski gítarleikarinn til að sigra
Latnesk-amerísku gítarkeppnina í
Havana 1986.
Timo Korhonen er orðinn vel
þekktur í heimi gítartónlistarinnar.
Hann hefur hljóðritað fyrir Ond-
ine útgáfuna og diskur sem hann
gaf út árið 1989 var valinn besti
diskur ársins af gagnrýnendum
finnsku útvarpsstöðvanna.
Eins og áður segir verður gítar-
hátíðin sett formlega í kvöld og að
henni lokinni hefjast tónleikar
Korhonen. Annað kvöld verða
tónleikar þeirra Einars Einarsson-
ar gítarleikara og Sverris Guð-
jónssonar kontratenórs, á föstu-
dagskvöldið verður Kristinn Áma-
son gítarleikari með tónleika,
nemendatónleikar verða á laugar-
daginn og gítarhátíðinni lýkur
með tónleikum Eric Vaarzon
Morel á sunnudag. óþh
Hálendisvegir:
Fært úr Eyjafirði í Lauga-
fell og á Sprengisand
Vegagerð ríkisins heimilaði í gær
umferð upp úr Eyjafirði inn í
Laugafell og á Sprengisand. Þessi
leið er ein af síðustu hálendisveg-
unum sem verða færir en leiðin er
aðeins fær jeppum og betur bún-
um bflum.
Jón Haukur Sigurbjömsson,
rekstrarstjóri Vegagerðar ríkisins á
Akureyri, segir að starfsmenn
Vegagerðarinnar hafi verið á Eyja-
fjarðardal síðustu vikuna við lag-
færingar á veginum en hann var
nokkuð illa farinn eftir veturinn.
Bæði þurfti að moka snjó og gera
við skemmdir sem orðið höfðu í
vatnavöxtunum í vor. Sérstaklega
var vegurinn illa leikinn neðantil á
dalnum. Vegagerðarmenn gistu í
fyrrinótt í Laugafelli en héldu í gær
áfram lagfæringum á leiðinni. Jafn-
framt því að opna leiðina í Lauga-
fell hefur leiðin frá Laugafelli og
austur á Sprengisandsleið verið
opnuð. Þar var tiltölulega lítill
snjór en á stöku stað þurfti að lag-
færa þar sem mnnið hafði úr vegin-
um í leysingum.
Flestar leiðir á svæði Vegagerð-
arinnar á Akureyri eru að veröa
færar en þó er enn ófært í Fjörður
og verður líkast til fram til mánaða-
móta. Bæði er enn mikill snjór á
veginum, auk heldur sem brú hefur
gefið sig undan snjóþunga. JÓH
Grímseyjarsund SKI:
Frestað vegna kulda
Grímseyjarsundi skíðamanna,
sem sagt var frá í blaðinu í gær,
hefur verið frestað fram í ágúst.
Samkvæmt upplýsingum Skíða-
sambands íslands er ástæðan sú
hversu kalt er á Norðurlandi
þessa dagana.
Ætlunin var að leggja upp frá
Ólafsfirði kl. 20 í kvöld og synda
norður fyrir Heimskautsbaug. Jafn-
framt átti að hefjast fjársöfnun til
stuðnings íslensku skíðafólki,
skíðafélögunum og SKÍ. Nú er
ráðgert að fresta sundinu og söfn-
uninni fram í ágúst og freista þess
að fá betra veður. JÓH