Dagur - 19.07.1995, Page 11

Dagur - 19.07.1995, Page 11
IÞROTTIR Miðvikudagur 19. júlí 1995 - DAGUR - 11 SÆVAR HREIÐARSSON Þórsarar stefna á annað sætið Það verður stórleikur í kvöld á Akureyrarvelli þegar að Þórsar- ar taka á móti Fylkismönnum, sem nú eru í öðru sæti 2. deild- ar. Þórsarar eru í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir Fylkis- mönnum. Þórsarar eiga mögu- leika á að komast í annað sæti deildarinnar með sigri í kvöld. í gær tók dómstóll KSÍ fyrir Drengjalandslið íslands í knatt- spyrnu, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, tekur þátt í Norð- urlandamóti í Svíþjóð 2.-6. ágúst n.k. Nú hefur verið valinn sex- tán manna hópur til að keppa fyrir íslands hönd og eru þrír efnilegir knattspyrnumenn úr Akureyrarliðunum KA og Þór í hópnum. Þetta eru þeir Þorleifur Árna- son og Jóhann Hermannsson úr KA og Jóhann Þórhallsson úr Þór. Þorleifur er reyndar Dalvíkingur og spilaði sinn fyrsta deildarleik með KA gegn Skallagrími í síð- ustu viku og stóð sig vel. Þorleifur var í drengjalandsliðinu í fyrra- sumar en nafnarnir Jóhann Her- mannsson og Þórhallsson koma nýir inn í hópinn í sumar. kæru Stjörnunnar vegna leiks hennar gegn Þrótti þann 2. júlí sl., en þeim leik lyktaði með 4-2 sigri Þróttara. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að óhjákvæmi- legt væri að túlka ákvæði 4.4.1. í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót þannig að „með öllu sé óheimilt að nota í kappleik leikmann, þjálf- ara eða forystumann í leikbanni, Jóhann Hermannsson er einn þriggja Akureyringa í drengja- landsliðinu. enda er hvergi að finna heimild fyrir því, að leikbann skuli tak- markast við tiltekna þátttöku í leiknum, svo sem varnaraðili vill meina.“ I þessu ljósi dæmdi dóm- stóll KSI í gær Stjörnunni sigur í leiknum gegn Þrótti 3-0 2. júlí sl. og það þýðir að fyrir leikina í kvöld er Stjarnan á toppnum með 19 stig. Fylkir er í öðru sæti með 16 stig og Þór í því þriðja með 15 stig. Skallagrímur er í fjórða sæti og KA hefur lyft sér upp í fimmta sæti. Síðan koma Þróttarar með 11 stig í sjötta sæti. Þetta þýðir með öðrum orðum að Þórsarar geta ekki komist á topp deildarinnar með sigri í kvöld, hins vegar geta þeir skotist upp fyrir Fylkismenn í annað sætið með því að leggja þá að velli í kvöld. „Við munum leggja allt í sölurnar og ætlum okkur sigur í þessum leik. Síðan verðum við bara bíða og sjá hver úrslitin í hinum leiknum verða,“ sagði Þórir Áskelsson, fyrirliði Þórs, í samtali við Dag. Akureyringar geta búist við fjörugum leik þar sem Þórsarar virðast búnir að finna réttu leiðina í netið og hafa skorað grimmt að undanförnu. „Við erum búnir að skora þrjú til fjögur mörk í leik að undanförnu en á móti kemur að við höfum fengið óþarflega mörg mörk á okkur. Við höfum þó skor- að fleiri en andstæðingurinn og það er það sem gildir,“ sagði Þórir. Radovan Cvijanovic cr farinn aö koma boltanum í netið og það gefur Þórsurum aukna möguleika. Nú er Árni Þór Árnason kom- inn til heilsu á ný eftir að hafa meiðst gegn KR-ingum á dögun- um og verður fróðlegt að sjá hvort hann kemst í liðið á ný. Þá er Birgir Karlsson búinn að ná sér af veikindum og tilbúinn í slaginn en á móti kemur að Eiður Pálmason og Guðmundur Hákonarson, tveir af efnilegri leikmönnum Þórsara, eru meiddir. Aðrir leikir í kvöld eru: Þrótt- ur-Víkingur, Skallagrímur-Stjarn- an og HK-Víðir. ÍR og KA léku í gær og verður sagt frá leiknum í blaðinu á morgun. Knattspyrna - 4. deild karla: KS langefst Leikið var í c-riðli 4. deildar fyrir og um helgina og komu úrslitín lítið á óvart KS er með afgerandi forystu í riðl- inum með fúllt hús stiga eftir sjö leiki en Tindastóll er í öðru sæti með 16 stíg. SM fékk Hvöt í heimsókn á fimmtudaginn og tapaði 1:8. Ásgeir Valgarðsson var í bana- stuði og skoraði glæsilega þrennu. Eitt markið kom með hjólhestaspyrnu og annað af um 30 metra færi í stöngina og inn. Hörður Guðbjörnsson skoraði einnig þrennu og Gísli Torfi Gunnarsson var með tvö mörk. Magnús Skarphéðinsson skoraði fyrir SM. Tindastóll sigraði Þrym nokkuð auðveldlega á Sauðár- króki 10:0. Gunnar Gestsson skoraði tvö mörk og þeir Sveinn Sverrisson, Helgi Már Þórðarson, Smári Eiríksson, Guðbrandur Guðbrandsson, Stefán Pétursson, Orri Hreins- son, Grétar Karlsson og Ingi Þór Rúnarsson eitt hver. KS sigraði Neista 4:0 á Hofsósi þar sem Mark þjálfari Duffield skoraði tvö möric. Ha- seta „Mitsa" Miralem skoraði eitt og Baldur Benónýsson eitt. Knattspyrna - drengjalandslið: Þrír frá Akureyri Sumarmót Kraftlyftingasambands íslands: Fimm Islandsmet fellu Ingimundur Ingimundarsun er sterkur sem uxi og var stigahæstur á mótinu í samanlögðu. Hann sigraði í hinum feiknarsterka 100 kg flokki. Sumarmót Kraftlyftingasam- bands íslands var haldið þann 8. júlí í íþróttahöllinni á Akureyri. Fjórtán keppendur mættu til leiks og mótið var hið glæsilegasta en framkvæmdaraðili var Kraftlyft- ingafélag Akureyrar. Árangur á mótinu var góður og fimm ný ís- landsmet litu dagsins ljós. Fimm ungir drengir voru að keppa í fyrsta skipti og ber að óska þeim til hamingju með góðan ár- angur. Reyndar var einn þeirra óheppinn og féll úr í bekkpressu en það er mjög eðlilegt þegar menn eru að keppa í fyrsta skipti. Eftirfarandi eru úrslit og árang- ur keppenda í hverjum flokki og á eftir nöfnunum kemur hnébeygja, þá bekkpressa, réttstöðulyfta og samanlagt. 60 kg flokkur: Ólafur Ottósson 110 - 90 - 150,5 = 350 Bjarki Pétursson 105 - 75 - 110 = 290 Ólafur og Bjarki koma frá Akra- nesi og voru að keppa í fyrsta skipti enda aðeins 16 ára gamlir. Ólafur setti tvö íslandsmet drengja. Það fyrra var í bekkpressu þegar hann tók 90 kg og Gunnar Ólafsson er einn sá efnileg- asti í kraftlyftingunum í dag enda tröll að burðum. bætti gamla metið um 10 kg. Seinna metið var í réttstöðulyftu og þar sem hann bætti gamalt met Jóns Guð- mundssonar um hálft kg. 75 kg flokkur: Aðalsteinn Jóhannsson 160 -110 - 190 = 460 Egill Valsson 155 (féll úr keppni) Aðalsteinn og Egill eru einnig frá Akranesi og voru að keppa á sínu fyrsta móti. Árangur Aðalsteins er mjög athyglisverður en Egill var óheppinn og féll úr í bekkpressu. 82,5 kg flokkur: Kári Elíson 172 - 195 - 290 = 657,5 Arnar Gunnarsson 100 - 160 - 220 = 480 Kári Elíson byrjaði að lyfta og keppa árið 1970 og eru mótin sem hann hefur keppt á líklegast komin yf- ir 100. í dag er hann í toppformi og hlýtur það að teljast góður vitnisburð- ur fyrir þessa íþróttagrein og afsanna það að hættulegt sé að stunda Kraft- lyftingar. Kári setti íslandsmet- í bekk- pressu þar sem hann bætti sitt eigið met um 10 kg. Amar setti íslandsmet unglinga í bekkpressu þegar hann tók 160 kg en gamla metið var 155,5 kg. 90 kg flokkur: Már Óskarsson 272,5 -142,5 - 255 = 670 Már er bróðir Skúla Óskarssonar, hins kunna kraftlyftingamanns. Már átti góðan dag og er að bæta sig jafnt og þétt í öllum greinum. 100 kg flokkur: Ingimundur Ingimundarson 310- 192,5-272,5 = 777,5 Alfreð Bjömsson 290 -180-260 = 730 Vilhjálmur Hauksson 220-190 - 270 = 680 Björgúlfur Stefánsson 260 - 200 (féll úr keppni) 100 kg flokkurinn var skemmtileg- ur enda mannaður af fríðum flokki sterkra manna. Ingimundur átti glæsi- legan dag og bætti sinn persónulega árangur um tæp 40 kg og bar sigur úr býtum. Alfreð Bjömsson, formaður Kraftlyftingasambands íslands, er bú- inn að lyfta síðan elstu menn muna en hefur aldrei litið betur út og er enn að bæta sinn persónulega árangur. Vil- hjálmur reyndi við íslandsmet í bekk- pressu en mistókst mjög naumlega með 210 kg. Björgúlfur lenti á slæm- um degi og féll úr í réttstöðulyftu. 110 kg flokkur: Völundur Þorbjömsson 65 - 190 - 65 = 320 Völundur er frá Húsavík en hann er nú í lokaundirbúningi fyrir HM unglinga. Hann tók því létt á í hné- beygju og réttstöðulyftu. 125 kg flokkur: Magnús Magnússon 150 -120 -190 = 460 Magnús var að keppa á sínu fyrsta móti og setti tvö íslandsmet drengja. Það fyrra í bekkpressu er hann tók 120 kg og það seinna er í samanlögðu en það bætti hann um 35 kg. +125 kg flokkur: Gunnar Ólafsson 330 - 215 - 280 = 825 Gunnar er án efa einn efnilegasti kraftlyftingamaður íslands og verður gaman að sjá hvað hann mun gera í náinni framtíð. Veittir voru bikarar fyrir stiga- hæstu menn í hnébeygju, bekk- pressu, réttstöðulyftu og saman- lagt. Ingimundur Ingimundarsson var efstur með 175,5 stig í hné- beygjunni, Kári Elíson með 125,5 í bekkpressu og hann var einnig efstur í réttstöðunni með 186,8 stig. Þrír stigahæstu menn mótsins f samanlögðu voru Ingimundur Ingimundarson með 440,0 stig, Kári Elíson með 423,5 stig og Gunnar Ólafsson með 421,8 stig. RF Bæjar- skiltið! Lifandi auglýsing sem hittir beint í mark. Ódýrari en þig grunar. Uppl. í símum 462 1848 og 461 2080 Kári Elíson er síungur enda hefur hann keppt í kraftlyftingum í 25 ár og er enn í fremstu röð.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.