Dagur - 26.08.1995, Qupperneq 9
Laugardagur 26. ágúst 1995 - DAGUR - 9
Golfklúbbur Akureyrar 60 ára
Inga Magnúsdóttir, til vinstri á myndinni varð Akureyrarmcistari í kvennaflokki tíu sinnum, við hlið hennar standa
Andrea Asgrímsdóttir og Björn Axelsson sem bæði hafa borið þann titil.
Tveir góðir. Magnús Guðmundsson var óumdeilanlega besti kylflngur
landsins á fyrri hluta sjöunda áratugarins og Björgvin Þorsteinsson sem ein-
okaði kcppnina í karlaflokki tveimur áratugum síðar.
Landsmót:
Akureyringar með
18 meistaratitla
- þar af Magnús Guðmundsson og
Björgvin Þorsteinsson með ellefu titla
Magnús Guðmundssun og
Björgvin Þorsteinsson hafa
haldið merki GA hátt á lofti
enda voru þessir afreksmenn
injög sigursælir. Samtals
hrepptu þeir íslandsmeistaratit-
ilinn ellefu sinnum.
Björgvin getur státað af sex ís-
landsmeistaratitlum í karlaflokki.
Sem krakki fór hann að venja
komur sínar á völlinn í Þórunnar-
stræti ásamt félögum sínum. Hann
vann sinn fyrsta íslandsmeistara-
titil 1971, þá átján ára og fimm í
viðbót áttu eftir að fylgja í kjölfar-
ið á árunum 1973- 1977.
Magnús Guðmundsson varð
fimmfaldur Islandsmeistari í
karlaflokki. Fyrsti titillinn kom
1958 og síðan var hann ósigraður
á landsmótunum 1963-1966 eða
þangað til hann flutti af landi brott
1967.
Alls hafa Akureyringar átján
sinnurn orðið Islandsmeistarar í
karlaflokki í golfi en þeir eru; Sig-
tryggur Júlíusson (1946), Jón Eg-
ilsson (1949), Birgir Sigurðsson
(1952), Hermann Ingimarsson
(1955), Gunnar Sólnes (1961 og
1967) og Sigurpáll Geir Sveinsson
(1994).
Stutt ágrip af sögu GA
■ Helsti hvatamaðurinn að stofnun
GA var Gunnar Schram, símstjóri og
gegndi hann starfi formanns fyrstu
níu árin.
■ Starfi klúbbsins má skipta í þrjú
æviskeið:
1. Á Gleráreyrum 1935-46
2. Á nýræktarvelli við Þórunnar-
stræti 1946-70
3. Á Jaðarsvelli 1971-
■ Fyrsti golfvöllurinn var lítil leigu-
spilda á Gleráreyrum, ekki fjarri því
sem Slippstöðin er nú. Hann var að-
eins sex holur og þurfti að slá kúluna
þrisvar yfir Glerá í hverjum hring.
Hann var aðeins 1050 metra langur.
■ Fyrstu ársgjöldin voru krónur 20
fyrir einstaklinga en 30 krónur fyrir
hjón.
■ Fyrstir til að fara holu í höggi
voru þeir Gunnar Hallgrímsson
tannlæknir og Sigtryggur Júlíusson
árið 1944 á Glerárvellinum.
■ Fyrsta Akureyrarmótið var haldið
árið 1938 og þá sigraði formaðurinn
GunnarG. Schrant.
■ Annar golfvöllurinn, við Þórunn-
arstræti, var keyptur fyrir forgöngu
Helga Skúlasonar og kostaði rúm-
lega 55 þúsund krónur.
■ Fyrsta Islándsmótið sem haldið
var í golfi á Akureyri var 1946 og
sigraði þá heimamaðurinn Sigtrygg-
ur Júlíusson.
■ Fyrsti þjálfarinn, Waliy Arnesen
kom til starfa níu dögum eftir stofn-
un klúbbsins. Kennslan fór að mestu
fram bæði úti og ittni þvt rok og
rigning var ríkjandi í bænum þessar
fyrstu golfvikur.
■ Fyrsta keppnisför íslenskra kylf-
inga til útlanda var farin árið 1946 til
Svíþjóðar og Dannterkur. Af átta
keppendum voru tveir úr GA, þeir
Gunnar Hallgrímsson og Jörgen
Kirkegaard.
■ Fyrsta keppnisför landsliðsins var
til Skotlands árið 1958 og var helm-
ingur keppenda frá GA, þeir Magnús
Guðmundsson og Hermann
Ingimarsson.
■ Þann 17. september 1966 tók
Helgi Skúlason fyrstu skóflustung-
una að Jaðri.
■ Formaður á þeim merku tímamót-
um var Páll Halldórsson. Nýr for-
maður 1967, Frímann Gunnlaugsson
dreif áfram alla undirbúningsvinnu
sem var undir stjóm Magnúsar Guð-
mundssonar og Sigtryggs Júlíusson-
ar.
■ Nýi völlurinn að Jaðri var form-
lega vígður þann 29. ágúst 1970 með
heillaóskum og upphafshöggi Gunn-
ars Schram. Ráðist var í viðbygg-
ingu við íbúðarhúsið að Jaðri, undir
stjóm Gísla Braga Hjartarsonar.
■ Árið 1975 var haldið landsmót á
Akureyri og vegleg 40 ára afmælis-
hátíð.
■ Vt'gður var átján holu golfvöllur
22. ágúst árið 1981 og sló Hafliði
Guðmundsson fyrsta höggið.
■ Árið 1985 var félagsheimilið tek-
ið í notkun, haldið landsmót og af-
mælishóf.
■ Enskur golíkennari, David Barn-
well, hóf störf hjá GA 15. apríl
1986. Hann hefur unnið ómetanlegt
uppbyggingarstarf fyrir unga kylf-
inga og segja má að einkenni síðustu
ára séu framsókn nemenda hans.
■ Árið 1986, var í fyrsta sittn haldið
hér alþjóðlegt mót - Arctic open.
■ Árið 1988 varð Inga Magnúsdóttir
Akureyrarmeistari kvenna, tíunda
árið í röð.
■ Fyrsti kvennameistari GA var
Karólína Guðmundsdóttir 1973 og
1974.
■ Árið 1989 var gerður lítill bráða-
birgðavöllur, suður við Melgerðis-
mela, stundum nefndur „Villa park.“
Hann var gerður sökum mikilla snjó-
þrengsla í bænum þetta vor.
■ Árið 1992 hélt hinn heimskunni
kylfingur, Jack Nicklaus, sýningu
við Jaðar.
■ Árið 1995 vann Björgvin Þor-
steinsson það einstæða afrek að
keppa 32. skiptið í röð á lslandsmóti.
- HS
Dátinn var skotinn niður
Fyrsta klúbbhúsið sem Gollklúbbur-
inn eignaðist var aðeins 3X5 fer-
metrar að stærð. Það kom við sögu í
síðari heimsstyrjöldinni þar sem
einn hermaður var skotinn niður.
Breskur dáti gægðist framhjá húsinu
til að virða fyrir sér leikinn og kaup-
maður nokkur sem var að leik hæfði
hann með golfkúlu og hné hann nið-
ur. Hann hresstist þó brátt og næstu
vikurnar fékk hann góða og ódýra
þjónustu í Versluninni Esju, svo
góða að hann taldi þetta golfliögg
kaupmannsins í Esju hafa verið sitt
stóra „lucky strike.“
Góðar gjafír á afmælinu
Gollklúbbi Akureyrar bárust góðar
gjafir á afmælinu. Fjölskylda Ragn-
ars Steinbergssonar, fyrrverandi for-
manns færði klúbbnum fagran
veggskjöld í minningu lians, með
þökkum fyrir þær mörgu ánægju-
stundir sem hann átti í stjórnarstörf-
um og keppni á vegum klúbbsins.
Þá fékk klúbburinn að gjöf golfsett
frá Sverri Ragnars. Settið var eitt af
þeim fyrstu sem bárust til Akureyr-
ar.
Tölurnar 9 og 18
Tölumar 9 og 18 eru nátengdar
golfíþróttinni enda eru vellir yfir-
leitt með níu eða átján holur. Þessar
tölur tengjast einnig sögu GA á
margan hátt. Upphafsárið, 1935 hef-
ur þversummuna 18. Fyrsti formað-
ur klúbbsins sat í níu ár og Helgi
Skúlason, sá næsti eftir í sama
árafjölda og sömu er að segja um
Frímann Gunnlaugsson sem nú
gegnir stöðu framkvæmdastjóra hjá
Golfsambandinu. Þá kom fyrsti
þjálfarinn til klúbbsins, níu dögum
eftir stofnun hans.
Karólína Guðmundsdóttir:
Gunnar Schram.
Golfið er eilífðarglíma,
en óskaplega skemmtilegt
Ragnar Steinbergsson.
„Það var mikið búið að suða í mér
að læra þetta, en þá var ég ennþá að
keppa á skíðum og fannst lítið
„fútt“ í því að læra golf. Svo kom
annað á daginn þegar ég fór að
glíma við þetta. Golfið er eilífðar-
glíma, en óskaplega skemmtilegt,“
segir Karólína Guðmundsdóttir,
fyrrum íslandsmeistari á skíðum og
fyrsti Akureyrarmeistarinn í
kvennallokki.
Karólína segir að fyrstu kynni sín
af golfinu hafi verið 1971 en hún hafi
síðan byrjað að spila fyrir alvöru
næstu ár á eftir. „Við vorum aðeins
fjórar eða fimm konumar sem spiluð-
um golf, en ég fann aldrei annað en
vinsamlegt hugarfar í okkar garð.
Karólína Guðmundsdóttir.
Sjálfsagt hefur ekki öllum körlunum
litist á þetta; hvað við værum að flækj-
ast þama, en konum hefur fjölgað
mikið frá því að ég steig mín fyrstu
spor á golfvellinum.“
Karólína segist leika mikið golf og
eftirvæntingin fyrir að komast út á
golfvöll hafi ekkert breyst frá því fyrir
rúmum tveimur áratugum þegar hún
fyrst byrjaði að slá hvíta boltann. En er
einhver munur á golfinu þá og nú?
„Eg mundi segja að andinn sé
öðruvísi. Það er allt orðið miklu frjáls-
legra og léttara yftr öllu. Margir karl-
amir tóku þetta fullalvarlega og þegar
unglingamir voru að byrja niður á
gamla velli voru þeir stundum reknir
heim; sagt að vera ekki að flækjast
fyrir.“