Dagur


Dagur - 26.08.1995, Qupperneq 13

Dagur - 26.08.1995, Qupperneq 13
Laugardagur 26. ágúst 1995 - DAGUR - 13 POPP MACNÚS CEIR CUÐMUNDSSON FRÆGÐARDRAUGUR VAKINN UPP Eitt af því sem einkennt hefur breska popp- og rokktónlist a.m.k. á seinni árum og jafnframt gert það heillandi, eru hinar ýmsu bylgjur, straumar og stefnur, sem komið hafa og hnigið á vissum tímaskeiðum. Má segja aó árin um og eftir 1980 séu einna mest áber- andi í þessum efnum, en á því tímabili var sköpunargleðin og gróskan gríðarlcg. Nýrómantíkin með sveitir á boró vió Depcche Mode, OMD, Human League og Ultravox í fylkingarbrjósti og Nýja breska þungarokksbylgjan með Iron Maiden, Judas Priest o.fl. fremstar í flokki, eru tvö ólík dæmi um tónlistarstefnur sem risu upp til hæstu hæða á þessu tíma- bili og þriðja dæmið er svo hið svokallaóa „nýpopp“, melódískt og léttleikandi gítarpopp, sem hljómsveitir á borð við Heaven 17, Haircut 100, ABC og síðast en ekki síst Orange Juice. 12 ára hlé Orange Juice náði töluverðum vinsældum og komst m.a. í innsta hring, þáttinn fræga Top Of The Pops, með lagið Rip it up árió 1983 m.a. Þetta var árið 1983 og þótti framtíð hljómsveitarinnar vera björt. En aðeins um tveimur árum seinna var hún hins vegar öll og má raunar segja að fyrir utan Haircut 100 hafi örlög hinna ný- poppssveitanna orðið svipuó. Nú á þessu ári, 1995, tólf árum eftir að Orange Juice voru síðast í sviðs- ljósinu, hefur söngvari þessarar skoskættuðu sveitar, Edwyn Coll- ins, allt í einu eins og hendi hafi verið veifað, slegið í gegn svo um munar. Lagið hans A Girl Like You hefur á undanfömum vikum verið eitt það vinsælasta í Bret- landi, smáskífan meö því selst í yfir 200.000 eintökum og víðar, m.a.s. hérlendis, hefur það cinnig slegið rækilega í gegn. Platan meó laginu, Gorgeous George, hefur svo selst vel, eða í yfir 200.000 eintökum á aðeins um mánuði frá því hún kom út. Ekki sóst eftir frægðinni En þótt frægðarljóminn leiki nú aftur um Edwyn Collins með þessum sérstæða hætti, virðist honum ekki hafa verið svo mjög umhugað að ná fyrri athygli. Hef- ur hann lítið borist á þau tíu ár sem liðin eru frá því Orange Juice hætti. Hann hefur að vísu ekki hætt í tónlistinni, gefið út tvær aðrar einherjaplötur, en þær fóru ekki hátt og voru „óháðar“ útgáfur í smáu sniði. Gorgeous er líka gef- in út á litlu merki, en meiri pen- ingum og tíma í hana eytt, sem nú hefur margborgað sig þrátt fyrir að Collins hafi samt ekki búist við því. Segir hann að sitt viðhorf hafi aldrei verió í þá átt að vcrða popp- stjarna. Þess vegna hafi hann kos- ið aó gefa út hjá litlum merkjum í stað stærri, sem hann heföi átt kost á. „Eg met sköpunarfrelsi mitt meira heldur en frægð, ríki- dæmi og frama,“ segir Collins í nýlegu viðtali og vísar til hremm- inga George Michael, sem nú hafa reyndar fyrir skömmu tekið enda, máli sínu til stuðnings. (Michael var sem kunnugt er í fjötrum vegna deilna við risaútgáfuna Sony og gat sig hvergi hrært vegna samningsákvæða). Collins horfir þó samt upp á það að „frægðardraugurinn" vaknar nú upp að nýju, en án skilyrða auk þess sem ágóðinn er nú að lang- mestu hans eigin. Viðurkennir hann það fúslega að það sé ekki slæm tilfinning. Edwyn Collins. Hefur búið með konu og barni í eins herbergis íbúð síðustu ár, en nú blasir við frægð og frami að nýju. NÝR HUÓMUR, NÝ HETJA Hér annars staðar á síðunni í um- fjöllun um Edwyn Collins er að- eins getið um þær tónlistarbylgjur sem sterklega hafa sett svip sinn á breskt tónlistarlíf, ekki hvað síst á síðari árum. Þetta á meðal annars vel við í danspoppinu en það hef- ur tekið á sig ýmsar myndir í Bretlandi. Techno ot Trip hop eru líklega þær tvær tegundir dans- poppsins sem hvað mest eru áber- andi og vinsælastar nú, en sú þriðja, sem kallast „Jungle“, virð- ist þetta sumarið ætla að bætast í hópinn. Er þaó eins og nafnið gef- ur til kynna, taktur frumskógarins eða eitthvað í þá áttina sem ein- kennir þennan nýja arm danstón- listarinnar og eru ásláttarhljóðfæri og bassi þar víst áberandi. Líkt og plata Aphex Twin, Selected Am- blend Works Vol 1 markaði tíma- mót fyrir Techno og Maxinquaye með Tricky fyrir Trip hop, þykir nú ein nýútkomin plata vera að gera það sama fyrir Jungletónlist- ina. Nefnist hún Timeless með ná- unga sem nefnir sig Goldie. Raun- ar er hrifningin á Goldie og plötunni hans svo mikil að menn hafa kallað hann „Jimi Hendrix frumskógarins", hvorki meira né minna. Væntanlega er þessi plata því kærkomin fyrir æsta aðdáend- ur ferskrar popptónlistar. Goldic þykir vera snillingur í sinni grein. Óskar Guönason gefur út plötu í Ástralíu og það með góðri Bahaitrú. „FRÓM KVEDJA" ÚR FJARLÆGÐ Að undanfömu hefur plata sem nefnist Wishing Well vakið talsverða athygli og verið spiluð nokkuð á íslenskum út- varpsstöðvum. Þaó sem vekur ekki hvaó síst athygli við plötuna er að á bak við hana stendur íslendingur búsettur hinum megin á jarðarkringlunni, þ.e.a.s. í Ástralíu og er platan unnin að mestu þar. Nefnist þessi maður Óskar Guónason og hefur eftir því scm næst verður komist búið þarna í Eyjaálfu um nokkurra ára skeiö. Semur Óskar að meginhluta tónlist og texta plötunnar, sem samtals telur 10 lög, er upptöku- maóur, útgefandi og tckur þátt í útsetn- ingum og útlitshönnun hennar. Það er svo heldur betur í frásögur færandi að sér til fulltingis við upptökustjóm o.fl. hefur Óskar engan annan en burtflutta Akureyringinn Geir Gunnarsson, sem fluttist af landi brott á síðasta ári og setti á stol'n hljóðver í Ástralíu. Fleiri nafnkunnugir menn hér norðan heiða koma einnig við sögu á plötunni, þeir Pálmi Gunnarsson og Kristján Edel- stein, í laginu There was a time. Texta með Óskari scmur síðan Ingólfur Steinsson, en aðrir sem aðstoða Óskar á plötunni eru erlendir. Þar á meðal söngvari sem kallast The Phantom, sem setur sterkan svip á þessa léttpoppuðu plötu, sem líka hefur tilbrigði við Reggae, blús og sveiflu í bland. Punktar • Ef það skyldi hafa farið fram- hjá einhverjum, þá hefur nýr söngvari gengið til liðs við Millj- ónamæringana í stað Páls Óskars Hjálmtýssonar. Nunio Miguel heitir hann sá og er þessa dagana að syngja aðalhlutverkið í söng- leiknum Jósep í Reykjavík sem jafnframt cr sá hinn fyrst sem Andrew Lloyd Webber samdi. Verkmenntaskólinn færói ein- mitt þennan söngleik upp síðasta vetur, ef ég man rétt. • Tvær af stærstu sveitum Se- attlerokksins, Soundgarden og Alice In Chains, eru nú báðar komnar vel af stað með vinnu á nýjum plötum. Um þessa helgi er Soundgarden að spila á Read- inghátíðinni, en flýgur svo heim til Seattle til að hefja upptökur af fullum krafti. Alice In Chains er hins vegar komin vel á veg með að klára upptökur og hafa a.m.k. tíu lög fyrir plötuna verið tekin upp. Hefur hún ekki ennþá verið sídrð, en búist er við að hún komi út nú einhvem tímann í haust. Eru sterkar sögusagnir á kreiki um að þetta verði svana- söngur sveitarinnar, en Layne Staley og aðrir meðlimir hafa í æ ríkara mæli snúið sér að öðrum verkum. • Nýja plata Blur, The Great Escape, er nú væntanleg innan skamms. Lokar hún hringnum í þríleik þessarar vinsælu bresku poppsveitar um áhrifavalda sína frá sjöunda áratugnum, sem hingað til hefur gengið glæsilega upp. Kom þar fyrst Modem life Is Rubbish, þá Parklife og nú The Great Escape. Blur. Hringurlnn að lokast.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.