Dagur - 02.09.1995, Blaðsíða 20

Dagur - 02.09.1995, Blaðsíða 20
Akureyri, laugardagur 2. september 1995 FIMMFALDUR 1. VINNINGUR Landsleikurinn okkar! 1. vinningur stefnir í 20 milljónir króna HELGARVEÐRIÐ Veðurstofan spáir breytilegri eða norðaustlægri átt á land- inu um helgina sem víðast hvar verður mjög hæg. Létt- skýjað verður um mest allt land en þó lítilsháttar súld við norðaustur- og austurströnd- ina. Hiti 8-14 stig þegar best lætur en hætt við næturfrosti, einkum í innsveitum norðan- lands. Kartöflugrösin gætu því farið að falla hvað úr hverju. lógað til útflutnings Forslátrun dilka hjá Slátur- húsi Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík hefst þriðjudaginn 5. sept. og stendur til fimmtudags- ins 7. sept. Reiknað er með að lógað verði um 2700 lömbum og er bændum gefinn kostur á að losa sig þannig strax við lömb sem hætt er við að felld yrðu í fituflokk síðar. Að þessu sinni er áætlað að slátra um 34 þúsund dilkum úr héraði og um 4 þúsund af full- orðnu fé. Hefðbundin slátrun hefst 12. sept. Að þessu sinni er reiknað með að slátrun standi til 27. okt. eða lengur en venja er til. Orsökin er sú að Páll Amar reiknar með að húsinu berist um 10-11 þúsund dilkar frá býlum utan héraðsins, til slátrunar og síðan útflutnings kjötsins. Sláturhúsið hefur leyfi til útflutnings á markað í Evrópu og Bandaríkjunum. Dilkamir koma úr Oxarfirði, Vopnafirði, Jökuldal, Héraði, Eyjafirði og Skagafirði. „Það þarf að bæta við töluvert mörgum starfsmönnum hjá Kjöt- iðjunni eftir sláturtíðina, kannski 8-10 manns,“ sagði Páll Arnar. „Ég er hóflega bjartsýnn varðandi útflutninginn. Miðað við það sem við höfum verið að flytja út og þær áætlanir sem eru í gangi er hægt að vera hóflega bjartsýnn. Það er þó ekkert í hendi varðandi útflutninginn og hlutirnir geta breyst á einni nóttu. Við verðum að sýna þolinmæði og sjá hvað kemur út úr þessu en menn em að vinna að sölumálunum á fullu. Ég treysti þeim til að sinna sínu verki.“ IM Allt fyrir garðinn í Perlunni við Q KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565 ^ Fóðurverksmiðjan Laxá hf. rekin með 3,9 milljóna króna hagnaði: Utflutningur verksmiðjunnar hefur fjórfaldast milli ára Velta fóðurverksmiðjunnar Laxár hf. á Akureyri var á síðasta rekstrarári um 300 millj- ónir króna og jókst um liðlega 100 milljónir milli ára. Aðal- ástæða þessarar miklu veltu- aukningar er veruleg aukning í útflutningi, sérstaklega til Skretting í Noregi. Útflutning- urinn er nú aðallega til þriggja landa en var aðeins til Noregs framan af, og stöðugt ijölgar fyrirspurnum og beiðnum um kaup á þurrfóðri og þá um meira magn en hægt er að sinna. Uppgjörsár Laxár hf. er frá 1. júní 1994 til 31. maí 1995. aukning á útflutningi og hefur fjórfaldast milli ára. Á þessu rekstrarári stefnir einnig í tölu- verða aukningu en nú er unnið all- an sólarhringinn alla daga vikunn- ar og því er framleiðsluaukning- unni takmörk sett. Framleiðslan nam um 7 þúsund tonnum á árinu og hefur þrefaldast á sl. þremur árum, eða úr 2.500 tonnum. Frá því að verksmiðjan tók til starfa hefur ekki verið meira að gera við fóðurframleiðsluna en segja má að nú standi vertíðin sem hæst, með haustinu dregur úr eftirspurn þeg- ar slátrun í fiskeldisstöðvunum verður langt komin. Auk þess dregur kólnandi tíð með hausti úr fóðurþröfinni. Fyrstu þrjá mánuði þessa rekstrarárs, þ.e. júní, júlí og ágúst er um tvöföldun á sölu að ræða. Veruleg aukning er í fiskeldi í öllum nágrannalöndunum en nán- ast engin hérlendis og því má gera ráð fyrir áframhaldi á þessum mikla útflutningi Laxár hf. GG Hagnaður af reglulegri starf- semi var 12 milljónir króna, fyrir skatta 6 milljónir króna en 3,9 milljónir króna að teknu tilliti til tekju-, eignarskatts og fjármagns- gjalda auk niðurfærslu viðskipta- krafna og annarra óreglulegra liða. Laun og launatengd gjöld námu 29,3 milljónum króna en fastir starfsmenn eru um 10 talsins, en á launaskrá komu allt að 20 manns. Guðmundur Stefánsson fram- kvæmdastjóri segir að á árinu hafi söluaukningin verið 69%, lítils- háttar innanlands en um 300% Sláturhús KÞ á Húsavík: Utanhéraðsdilkum Nú er að noífl uekifxnð! - Leikur einn! Flugfélag Norðurlands: Reykjavík- Kulusuk á vetraráætlun - Keflavíkurflugiö aflagt Vetraráætlun Flugfélags Norðurlands tekur gildi mánudaginn 4. september. Að sögn Sigurðar Aðalsteins- sonar, framkvæmdastjóra flugfélagsins, verður vetrar- áætlunin í aðalatriðum eins og fyrri vetraráætlanir að undanskyldum tveimur veigamiklum breytingum. Ekki verður að flogið frá Ak- ureyri til Keflavíkur og síðan mun félagið heíja áætlunar- fiug milli Reykjavíkur og Kulusuk í Grænlandi. Sigurður segir þetta ekki lýrsta í skipti sem hætt er að fljúga til Keflavíkur yfir vetur- inn og sé ástæðan sú að eftir- spumin er of lítil en flug þang- að verður aftur á áætlun næsla sumar. Áætlunarflugið milli Reykjavíkur og Kulusuk verð- ur 1-2 í viku í vetur og er þetta í fyrsta sinn scm FN sér um áætlunarflug til Kulusuk. f sumar var félagið hinsvegar með leiguflug til Kulusuk frá Akureyri og segir Sigurður að þær ferðir hafi gengið nokkuð vel og líklegt að boðið verði upp á sams konar ferðir aftur næsta sumar. AI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.