Dagur - 16.09.1995, Page 2

Dagur - 16.09.1995, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1995 FRÉTTIR í vikunni hófst sauðfjárslátrun í Sláturhúsi KEA og benda fyrstu tölur til þess að meðalvigt verði lægri en í fyrra. Mynd: BG lömb en í fyrra Bátar í Grímsey: Sækja austur á Mánáreyjahrygg Garðar Ólason, útgerðarmaður í Grímsey, segir að nokkur reyt- ingur hafi verið í síðustu viku hjá þeim bátum sem hafa verið á línu en það hafi dregið úr því. Því valdi kannski að nú er mest- ur straumur við eyjuna. Þegar best var voru bátarnir að fá tvö tonn eftir daginn en mjög tregt á færum sem flestir bátarnir eru á. Bátarnir hafa verið allt í kringum Grímsey en línubátarnir hafa verið að sækja austur á Mán- áreyjahrygg og allt austur undir Rauðunúpa. Hjá fiskverkuninni Sigurbjörn sf. hefur ekki alltaf verið nægjanlegt hráefni til vinnslu en nýstofnaður fiskmark- aður á vegum Fiskmarkaðar Dal- víkur, sem er í fiskverkunarhúsi KEA, dregur nokkuð til sín en Sigurbjörn sf. er með fasta báta í viðskiptum og hefur ekki keypt af markaðnum. Bátarnir hafa verið að fá ágætis verð á fiskmarkaðnum en kaup- endur eru aðallega frá Dalvík og Hrísey og nokkuð af ufsa hefur G. Ben hf. á Árskógsströnd keypt. Uppistaða aflans er þó þorskur, en einn og einn bátur er þó að fá ufsa með því að draga dorg á eftir sér gegnum torfumar. GG Stjórn og trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Austur-Hún- vetninga samþykkti á fundi 5. september sl. að skora á félags- málaráðherra, Pál Pétursson, að flýta svo sem kostur er aðgerð- um varðandi skuldastöðu heim- ilanna í landinu. Fundurinn taldi að stór hluti þess fólks sem komið er í greiðsluþrot hafi átt við langvarandi atvinnuleysi að stríða eða vinnur á lágmarks- töxtum aðila vinnumarkaðarins. Fundurinn telur ástand til sveita einnig mjög alvarlegt vegna síendurtekinnar framleiðsluskerð- ingar á undanförnum árum. Fé- lagsmálaráðherra er hvattur til að Léttari Útlit er fyrir heldur lægri meðal- vigt á dilkum í haust heldur en í fyrra, en þess ber að geta að þá var fé í vænni kantinum. Þetta er þó nokkuð misjafnt eftir kanna lagasetningu um lágmarks- laun eða kauptryggingu eins og það heitir í nýgerðum kjarasamn- ingi rfkisins við prófessora við Háskóla íslands. Fundurinn skoraði einnig á for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, og landbúnaðarráðherra, Guðmund Bjamason, að láta fara fram úttekt á hvaða áhrif tillögur Bændasam- takanna á stórfelldri fækkun sauð- fjár getur haft á atvinnumál lands- manna en með hugmyndum Bændasamtakanna og ríkisstjórn- arinnar er atvinnuástandi á lands- byggðinni víða stefnt í voða. Skorað var á forystu Verka- mannasambandsins að leggja fyrir þing sambandsins í næsta mánuði sveitum og dæmi um að fé komi jafnvel vænna af fjalli en á síð- asta ári. Heilt yfir virðast lömb þó vera minni nú en í fyrra. Óli Valdimarsson, sláturhús- vandaðar tillögur varðandi skulda- stöðu heimilanna og þar mætti t.d. leggja áherslu á hækkun skattleys- ismarka og lágmarkslauna og að ríkisvaldið leggði aukið fjármagn til atvinnuuppbyggingar á þeim stöðum þar sem atvinnuástandið er verst. Þeim útgjöldum mætti t.d. mæta með hátekju- og stór- eignaskatti; uppstokkun á skatta- kerfinu; þjóðarátaki til útrýmingar svartri atvinnnustarfsemi; útrým- ingar á æviráðningum og frysta allar launahækkanir til þeirra sem hafa yfir 150 þúsund krónur í mánaðarlaun og endurskoða óeðli- leg réttindi opinberra starfsmanna og starfshlunnindi, sbr. mál Ólafs Þórðarsonar fyrrv. alþingismanns. GG Anton Haraldsson og Pétur Guðjónsson eru efstir eftir fyrri umferð í Startmóti Sjóvá-Al- mennra, fyrsta móti vetrarins á vegum Bridgefélags Akureyrar. Alls mætti 21 par til leiks og hafa þeir félagar Anton og Pétur hlotið samtals 273 stig. Jafnir í öðru til þriðja sæti eru Hermann Huijbens og Jón Sverr- @ HELGARVEÐRIÐ Veðurstofan spáir vaxandi suðaustan- og sunnanátt á landinu í dag. Hiti verður á bil- inu 11-17 stig, hlýjast norðan- lands og á Norðurlandi verður jafnframt þurrt að mestu. Á sunnudag er útlit fyrir svipað- an hita en nokkuð stífa suð- vestan átt með rigningu víða um land. Á mánudag gæti hinsvegar farið að kólna og er spáð 5-11 stiga hita. stjóri KEA, sagði fyrstu tölur benda til að meðalvigt gæti orðið um kílói lægri en í fyrra. Þá var hún um 16 kg en Óli sagðist búast við að hún yrði um 15 kg nú, eða jafnvel lægri. Hann sagðist geta sagt betur til um þetta eftir helg- ina, þegar fé verður komið frá fleiri stöðum og stöðum þar sem er mikil sauðfjárrækt. Páll Gústaf Arnar, sláturhús- stjóri KÞ á Húsavík, hafði sömu sögu að segja. Þar hefur sláturtíð staðið lengur og tölur því mark- tækari. Á fimmtudagskvöld var búið að slátra 7.100 fjár og var meðalvigtin 14,5 kg. í fyrrahaust var hún 15,6 kg. Hjá KÞ er slátrað um 1.400 fjár á hverjum degi. Alls gera áætlanir ráð fyrir að 49 þús- und fjár verði slátrað á Húsavfk en þar af er um 11 þúsund frá öðrum svæðum, kjöt sem fara á í útflutn- ing. Hver sú tala endanlega verður sagði Páll Gústaf erfitt að spá um nú. Það færi m.a. eftir meðal- þyngd og einnig hversu mikið greiðslumark verður umfram hjá bændum. Hjá sláturhúsi KS hófst slátur- tíð sl. miðvikudag. Fyrstu tölur benda til að vænleiki fjár sé svip- aður og í fyrra, þó fé sé reyndar mjög misjafnt. HA isson og Sveinn Torfi Pálsson og Örlygur Örlygsson, með 244 stig. Soffía Guðmundsdóttir og Haukur Grettisson er í fjórða sæti með 243 stig og Grettir Frímannsson og Hörður Blöndal f fimmta sæti með 237 stig. Seinni umferð mótsins fer fram nk. þriðjudagskvöld í Hamri og hefst spilamennskan kl. 19.30. KK Skákfélag Akureyrar: 15 mínútna mót á sunnudag Næsta mót hjá Skákfélagi Akur- eyrar verður á sunnudag en þá fer fram 15 mínútna mót kl. 14. Aðal- fundur félagsins verður svo hald- inn í Skákheimilinu fimmtudaginn 21. september og hefst kl. 20. Þar verða venjuleg aðalfundarstörf og veitingar á eftir. Að fundi loknum grípa svo aðalfundargestir í tafl- mennina. JÓH Dalvík: Bæjarmála- punktar ■ Fulltrúar frá Hestamannafé- laginu Hring mættu á fund bæjarráðs nýlega og lögðu fram framkvæmdaáætlun til að ljúka frágangi utanhúss í Hringsholti. Um er að ræða 250 metra hringvöll með mal- arfyllingu í miðju vallarins og beinum brautum sem eru hon- um tengdar. Gerði 20x40 m á milli brauta á hringvelli og skeiðbraut austan við hringvöll ca. 310 metra löng. Bæjarráð samþykkli að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Hestamannafélagið til þriggja ára. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá leikskólastjóra Krílakots, þar sem farið er fram á að Dal- víkurbær greiði tvo tíma á dag á móti ríkinu til að ráða starfs- mann í 50% starf árdegis frá 1. oktöber nk. Bæjarráð sam- þykkti erindið og vísaði málinu til endurskoðunar fjárhagsáætl- unar. ■ Á fundi byggðasafnsnefndar gerði safnvörður grein fyrir að- sókn í sumar. Gestir eru 2.786 það sem af er árinu, sem er nokkur aukning frá síðasta ári. Hlutur erlendra ferðamanna- hópa hefur jafnframt aukist. Formaður byggðasafnsnefndar hefur lýst vilja sínum til að koma á samvinnu við tóm- stundafélögin á Dalvík. Þ.e. skíðafélag, hestamannafélag, golfklúbbinn, Sæluhúsið og fleiri lil að efla þjónustu við ferðamenn og ef til vill fitja upp á einhverskonar Dalvíkur- leik. ■ Á fundi ferðamálanefndar nýlega kynnti Kolbeinn Sigur- björnsson samstarfssamning Héraðsnefndar Eyjafjarðar, Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og Rannsóknastofnunar Há- skólans á Akureyri, um verk- efnið „Stefnumótun í atvinnu- uppbyggingu á Eyjafjarðar- svæðinu“. Hann upplýsti einnig að hann hefði verið skipaður hópstjóri á sviði ferðamála en það er einn þátt- urinn í þessu verkefni. Hinir þættirnir eru atvinnu-, félags-, mennta- og menningarmál. ■ Ferðamálanefnd ræddi um bæjarskilti á fundinum en sú staða hcfur komið upp að S.V.F.Í. á Dalvík hefur verið að vinna að gerð skiltis. Ákveðið var að ræða við full- trúa S.V.F.Í. en allir eru sam- mála um að drífa skiltið upp fyrir veturinn. É Húsnæðisnefnd telur engar forsendur fyrir því að sækja um lánsloforð vegna bygginga í félagslega kerfinu á árinu 1996. Húsnæðisfulltrúa var fal- ið að senda Húsnæðisstofnun skýrslu um stöðu mála í kerf- inu í bænum. ■ Á fundi umhverfismála- nefndar fyrr í surnar, var rætt um flutning á tjaldsvæði og nýja staðsetningu þess. Nefnd- in leggur til að nú þegar verði hugað að fiutningi tjaldstæðis og því fundinn endanleg stað- setning. Nefndin leggur til að sérstaklega verði skoðað svæð- ið sunnan og ofan sundlaugar og hins vegar svæðið þar sem gömlu kartöflugarðarnir voru norður við Brimnesá. ■ Þá hefur umhverfisnefnd lagt til að fundinn verði fram- tíðarstaður fyrir hjólhýsi í landi bæjarins og bendir hún á land Ytra Holts ofan gróðrarreits í því sambandi. VERKALÝÐSFÉLAGIÐ öpfí EINING Fulltrúakjör Samkvæmt lögum Verkalýðsfélagsins Einingar fara kosningar fulltrúa félagsins á 24. þing Alþýðu- sambands Norðurlands og 18. þing Verkamanna- sambands íslands fram að viðhafðri allsherjarat- kvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð A.S.I. um slíkar kosningar. Félagið hefur rétt til að senda 40 fulltrúa á þing Al- þýðusambands Norðurlands, sem haldið verður að III- ugastöðum í Fnjóskadal dagana 6. og 7. október nk. Á þing Verkamannasambands íslands, sem haldið verður að Hótel Loftleiðum í Reykjavík dagana 24.-27. október nk., hefur félagið rétt á að senda 20 fulltrúa. Framboðslistum til beggja þessara þinga, þar sem til- greind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framan- skráð og jafn marga til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12 á hádegi föstudaginn 22. september nk. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 full- gildra félagsmanna. Akureyri, 14. september 1995. Verkalýðsfélagið Eining. ^ Verkalýðsfélag Austur-Húnvetninga: Astand til sveita alvaríegt - vegna síendurtekinnar framleiðsluskerðingar Startmót Sjóvá-Almennra: Anton og Pétur efstir

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.