Dagur - 16.09.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1995
FRÉTTIR
í vikunni hófst sauðfjárslátrun í Sláturhúsi KEA og benda fyrstu tölur til þess að meðalvigt verði lægri en í fyrra.
Mynd: BG
lömb en í fyrra
Bátar í Grímsey:
Sækja austur á
Mánáreyjahrygg
Garðar Ólason, útgerðarmaður í
Grímsey, segir að nokkur reyt-
ingur hafi verið í síðustu viku
hjá þeim bátum sem hafa verið á
línu en það hafi dregið úr því.
Því valdi kannski að nú er mest-
ur straumur við eyjuna.
Þegar best var voru bátarnir að
fá tvö tonn eftir daginn en mjög
tregt á færum sem flestir bátarnir
eru á. Bátarnir hafa verið allt í
kringum Grímsey en línubátarnir
hafa verið að sækja austur á Mán-
áreyjahrygg og allt austur undir
Rauðunúpa. Hjá fiskverkuninni
Sigurbjörn sf. hefur ekki alltaf
verið nægjanlegt hráefni til
vinnslu en nýstofnaður fiskmark-
aður á vegum Fiskmarkaðar Dal-
víkur, sem er í fiskverkunarhúsi
KEA, dregur nokkuð til sín en
Sigurbjörn sf. er með fasta báta í
viðskiptum og hefur ekki keypt af
markaðnum.
Bátarnir hafa verið að fá ágætis
verð á fiskmarkaðnum en kaup-
endur eru aðallega frá Dalvík og
Hrísey og nokkuð af ufsa hefur G.
Ben hf. á Árskógsströnd keypt.
Uppistaða aflans er þó þorskur, en
einn og einn bátur er þó að fá ufsa
með því að draga dorg á eftir sér
gegnum torfumar. GG
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélags Austur-Hún-
vetninga samþykkti á fundi 5.
september sl. að skora á félags-
málaráðherra, Pál Pétursson, að
flýta svo sem kostur er aðgerð-
um varðandi skuldastöðu heim-
ilanna í landinu. Fundurinn
taldi að stór hluti þess fólks sem
komið er í greiðsluþrot hafi átt
við langvarandi atvinnuleysi að
stríða eða vinnur á lágmarks-
töxtum aðila vinnumarkaðarins.
Fundurinn telur ástand til
sveita einnig mjög alvarlegt vegna
síendurtekinnar framleiðsluskerð-
ingar á undanförnum árum. Fé-
lagsmálaráðherra er hvattur til að
Léttari
Útlit er fyrir heldur lægri meðal-
vigt á dilkum í haust heldur en í
fyrra, en þess ber að geta að þá
var fé í vænni kantinum. Þetta
er þó nokkuð misjafnt eftir
kanna lagasetningu um lágmarks-
laun eða kauptryggingu eins og
það heitir í nýgerðum kjarasamn-
ingi rfkisins við prófessora við
Háskóla íslands.
Fundurinn skoraði einnig á for-
sætisráðherra, Davíð Oddsson, og
landbúnaðarráðherra, Guðmund
Bjamason, að láta fara fram úttekt
á hvaða áhrif tillögur Bændasam-
takanna á stórfelldri fækkun sauð-
fjár getur haft á atvinnumál lands-
manna en með hugmyndum
Bændasamtakanna og ríkisstjórn-
arinnar er atvinnuástandi á lands-
byggðinni víða stefnt í voða.
Skorað var á forystu Verka-
mannasambandsins að leggja fyrir
þing sambandsins í næsta mánuði
sveitum og dæmi um að fé komi
jafnvel vænna af fjalli en á síð-
asta ári. Heilt yfir virðast lömb
þó vera minni nú en í fyrra.
Óli Valdimarsson, sláturhús-
vandaðar tillögur varðandi skulda-
stöðu heimilanna og þar mætti t.d.
leggja áherslu á hækkun skattleys-
ismarka og lágmarkslauna og að
ríkisvaldið leggði aukið fjármagn
til atvinnuuppbyggingar á þeim
stöðum þar sem atvinnuástandið
er verst. Þeim útgjöldum mætti
t.d. mæta með hátekju- og stór-
eignaskatti; uppstokkun á skatta-
kerfinu; þjóðarátaki til útrýmingar
svartri atvinnnustarfsemi; útrým-
ingar á æviráðningum og frysta
allar launahækkanir til þeirra sem
hafa yfir 150 þúsund krónur í
mánaðarlaun og endurskoða óeðli-
leg réttindi opinberra starfsmanna
og starfshlunnindi, sbr. mál Ólafs
Þórðarsonar fyrrv. alþingismanns.
GG
Anton Haraldsson og Pétur
Guðjónsson eru efstir eftir fyrri
umferð í Startmóti Sjóvá-Al-
mennra, fyrsta móti vetrarins á
vegum Bridgefélags Akureyrar.
Alls mætti 21 par til leiks og
hafa þeir félagar Anton og Pétur
hlotið samtals 273 stig.
Jafnir í öðru til þriðja sæti eru
Hermann Huijbens og Jón Sverr-
@ HELGARVEÐRIÐ
Veðurstofan spáir vaxandi
suðaustan- og sunnanátt á
landinu í dag. Hiti verður á bil-
inu 11-17 stig, hlýjast norðan-
lands og á Norðurlandi verður
jafnframt þurrt að mestu. Á
sunnudag er útlit fyrir svipað-
an hita en nokkuð stífa suð-
vestan átt með rigningu víða
um land. Á mánudag gæti
hinsvegar farið að kólna og er
spáð 5-11 stiga hita.
stjóri KEA, sagði fyrstu tölur
benda til að meðalvigt gæti orðið
um kílói lægri en í fyrra. Þá var
hún um 16 kg en Óli sagðist búast
við að hún yrði um 15 kg nú, eða
jafnvel lægri. Hann sagðist geta
sagt betur til um þetta eftir helg-
ina, þegar fé verður komið frá
fleiri stöðum og stöðum þar sem
er mikil sauðfjárrækt.
Páll Gústaf Arnar, sláturhús-
stjóri KÞ á Húsavík, hafði sömu
sögu að segja. Þar hefur sláturtíð
staðið lengur og tölur því mark-
tækari. Á fimmtudagskvöld var
búið að slátra 7.100 fjár og var
meðalvigtin 14,5 kg. í fyrrahaust
var hún 15,6 kg. Hjá KÞ er slátrað
um 1.400 fjár á hverjum degi. Alls
gera áætlanir ráð fyrir að 49 þús-
und fjár verði slátrað á Húsavfk en
þar af er um 11 þúsund frá öðrum
svæðum, kjöt sem fara á í útflutn-
ing. Hver sú tala endanlega verður
sagði Páll Gústaf erfitt að spá um
nú. Það færi m.a. eftir meðal-
þyngd og einnig hversu mikið
greiðslumark verður umfram hjá
bændum.
Hjá sláturhúsi KS hófst slátur-
tíð sl. miðvikudag. Fyrstu tölur
benda til að vænleiki fjár sé svip-
aður og í fyrra, þó fé sé reyndar
mjög misjafnt. HA
isson og Sveinn Torfi Pálsson og
Örlygur Örlygsson, með 244 stig.
Soffía Guðmundsdóttir og Haukur
Grettisson er í fjórða sæti með
243 stig og Grettir Frímannsson
og Hörður Blöndal f fimmta sæti
með 237 stig.
Seinni umferð mótsins fer fram
nk. þriðjudagskvöld í Hamri og
hefst spilamennskan kl. 19.30. KK
Skákfélag Akureyrar:
15 mínútna mót
á sunnudag
Næsta mót hjá Skákfélagi Akur-
eyrar verður á sunnudag en þá fer
fram 15 mínútna mót kl. 14. Aðal-
fundur félagsins verður svo hald-
inn í Skákheimilinu fimmtudaginn
21. september og hefst kl. 20. Þar
verða venjuleg aðalfundarstörf og
veitingar á eftir. Að fundi loknum
grípa svo aðalfundargestir í tafl-
mennina. JÓH
Dalvík:
Bæjarmála-
punktar
■ Fulltrúar frá Hestamannafé-
laginu Hring mættu á fund
bæjarráðs nýlega og lögðu
fram framkvæmdaáætlun til að
ljúka frágangi utanhúss í
Hringsholti. Um er að ræða
250 metra hringvöll með mal-
arfyllingu í miðju vallarins og
beinum brautum sem eru hon-
um tengdar. Gerði 20x40 m á
milli brauta á hringvelli og
skeiðbraut austan við hringvöll
ca. 310 metra löng. Bæjarráð
samþykkli að fela bæjarstjóra
að ganga til samninga við
Hestamannafélagið til þriggja
ára.
■ Bæjarráði hefur borist erindi
frá leikskólastjóra Krílakots,
þar sem farið er fram á að Dal-
víkurbær greiði tvo tíma á dag
á móti ríkinu til að ráða starfs-
mann í 50% starf árdegis frá 1.
oktöber nk. Bæjarráð sam-
þykkti erindið og vísaði málinu
til endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar.
■ Á fundi byggðasafnsnefndar
gerði safnvörður grein fyrir að-
sókn í sumar. Gestir eru 2.786
það sem af er árinu, sem er
nokkur aukning frá síðasta ári.
Hlutur erlendra ferðamanna-
hópa hefur jafnframt aukist.
Formaður byggðasafnsnefndar
hefur lýst vilja sínum til að
koma á samvinnu við tóm-
stundafélögin á Dalvík. Þ.e.
skíðafélag, hestamannafélag,
golfklúbbinn, Sæluhúsið og
fleiri lil að efla þjónustu við
ferðamenn og ef til vill fitja
upp á einhverskonar Dalvíkur-
leik.
■ Á fundi ferðamálanefndar
nýlega kynnti Kolbeinn Sigur-
björnsson samstarfssamning
Héraðsnefndar Eyjafjarðar,
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
og Rannsóknastofnunar Há-
skólans á Akureyri, um verk-
efnið „Stefnumótun í atvinnu-
uppbyggingu á Eyjafjarðar-
svæðinu“. Hann upplýsti
einnig að hann hefði verið
skipaður hópstjóri á sviði
ferðamála en það er einn þátt-
urinn í þessu verkefni. Hinir
þættirnir eru atvinnu-, félags-,
mennta- og menningarmál.
■ Ferðamálanefnd ræddi um
bæjarskilti á fundinum en sú
staða hcfur komið upp að
S.V.F.Í. á Dalvík hefur verið
að vinna að gerð skiltis.
Ákveðið var að ræða við full-
trúa S.V.F.Í. en allir eru sam-
mála um að drífa skiltið upp
fyrir veturinn.
É Húsnæðisnefnd telur engar
forsendur fyrir því að sækja
um lánsloforð vegna bygginga
í félagslega kerfinu á árinu
1996. Húsnæðisfulltrúa var fal-
ið að senda Húsnæðisstofnun
skýrslu um stöðu mála í kerf-
inu í bænum.
■ Á fundi umhverfismála-
nefndar fyrr í surnar, var rætt
um flutning á tjaldsvæði og
nýja staðsetningu þess. Nefnd-
in leggur til að nú þegar verði
hugað að fiutningi tjaldstæðis
og því fundinn endanleg stað-
setning. Nefndin leggur til að
sérstaklega verði skoðað svæð-
ið sunnan og ofan sundlaugar
og hins vegar svæðið þar sem
gömlu kartöflugarðarnir voru
norður við Brimnesá.
■ Þá hefur umhverfisnefnd
lagt til að fundinn verði fram-
tíðarstaður fyrir hjólhýsi í landi
bæjarins og bendir hún á land
Ytra Holts ofan gróðrarreits í
því sambandi.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
öpfí EINING
Fulltrúakjör
Samkvæmt lögum Verkalýðsfélagsins Einingar
fara kosningar fulltrúa félagsins á 24. þing Alþýðu-
sambands Norðurlands og 18. þing Verkamanna-
sambands íslands fram að viðhafðri allsherjarat-
kvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð A.S.I. um
slíkar kosningar.
Félagið hefur rétt til að senda 40 fulltrúa á þing Al-
þýðusambands Norðurlands, sem haldið verður að III-
ugastöðum í Fnjóskadal dagana 6. og 7. október nk.
Á þing Verkamannasambands íslands, sem haldið
verður að Hótel Loftleiðum í Reykjavík dagana 24.-27.
október nk., hefur félagið rétt á að senda 20 fulltrúa.
Framboðslistum til beggja þessara þinga, þar sem til-
greind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framan-
skráð og jafn marga til vara, ber að skila á skrifstofu
félagsins að Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl.
12 á hádegi föstudaginn 22. september nk.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 full-
gildra félagsmanna.
Akureyri, 14. september 1995.
Verkalýðsfélagið Eining.
^ Verkalýðsfélag Austur-Húnvetninga:
Astand til sveita alvaríegt
- vegna síendurtekinnar framleiðsluskerðingar
Startmót Sjóvá-Almennra:
Anton og Pétur efstir