Dagur


Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 5

Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 5
Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 5 Menntasmiðja kvenna á Akureyri: Engin próf eru í Mcnntasmiðjunni og konurnar fá engin ákveðin réttindi cn námið getur verið stökkpailur í annað nám, starf eða einfaidlega skilað sér í bættri líðan. Myndir: BG svo eitthvað sé nefnt. Dr. Björg Bjamadóttir, sálfræð- ingur, er nýráðin verkefnisfreyja Menntasmiðjunnar og segir hún að reynt sé að koma til móts við þarfir hverrar og einnar konu ann- ars vegar og hópsins hins vegar og reynt að tengja námsþætti í eina heild. Ákveðin fög eru fyrirfram sett inn á stundaskrá en konumar hafa einnig tækifæri til að koma með óskir um hvaða efni verði tekin fyrir. Engin próf eru í Menntasmiðjunni og konurnar fá Dr. Björg Bjarnadóttir (sitjandi), nýráðin verkefnisfreyja Mennta- smiðjunnar og Pálína Asgeirsdóttir, fráfarandi verkefnisfreyja. Pálína mun áfram vera í hálfri stöðu sem kennari og einnig mun María Olafs- dóttir Grenó kenna við Mennta- smiðjuna. engin ákveðin réttindi en námið getur verið stökkpallur í annað nám, starf eða einlaldlega skilað sér í bættri líðan. Mikið þróunarstarf Menntasmiðjan er að vinna ákveðið þróunarstarf og var hún m.a. valin af Menntamálaráðu- neytinu sem framlag íslands til samnorræna verkefnisins Voks Nær, sem vinnur að því að finna nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu. Einnig er Björg í samstarfi við fulltrúa á Vinnumiðlun í Reykja- vík um að tengjast inn á svokall- aða Leonardoáætlun en það er áætlun á vegum Evrópusambands- ins sem hefur með fullorðins- fræðslu að gera. Rannsóknarþjón- usta Háskóla íslands kemur líka við sögu í þessu samstarfi og segir Björg að í nóvember komi tii með að skýrast hvort mögulegt sé að taka þátt í þessari áætlun. Auk dagskólans, þar sem eru eingöngu konur, mun Akureyrar- bær einnig nýta sér húsnæði Menntasmiðjunnar til að halda þar kvöldnámskeið sem áður hafa ver- ið haldin hér og þar í bænum. Björg segir að samstarf sé milli Menntasmiðjunnar og Ragnhildar Vigfúsdóttur, jafnréttis- og fræðslufulltrúa, um að efla full- orðinsfræðslu á vegum bæjarins og hefst fyrsta kvöldnámskeiðið 9. október. Björg segir ennfremur að hug- myndir séu uppi um að bjóða upp á námskeið fyrir karla án launaðr- ar atvinnu en það velti á fjárveit- ingum hvort sú hugmynd verði að veruleika. AI Annað starfsár að hefjast Annað starfsár Menntasmiðju kvenna á Akureyri er hafið en þar stunda nám um 20 konur á öllum aldri sem eru án launaðrar at- vinnu. Námið er þeim að kostnað- arlausu og hefur verið viðurkennt af atvinnuleysistryggingasjóði sem kjarnanám. I náminu er lögð áhersla á heildstætt nám sem getur orðið sterkur grunnur að ýmsum störfum, frekara námi og/eða dag- legu, virku lífi. Hugmyndin af Menntasmiðj- unni er fengin frá svokölluðum „kvennaháskólum“, sem starf- ræktir hafa verið á Norðurlöndum og víðar, en þeir byggja á sömu hugmyndafræði og lýðháskólar. Náminu er í raun ætlað að auka hæfni til að takast á við lífið og er lögð áhersla á ólíka námsþætti eins og t.d. tungumál, tölvunotkun og bókhald og einnig tjáningu, líkamsrækt, sjálfstyrkingu og jóga Furðuleikhúsið frumsýnir á Akureyri: Tvíhöfða geimstrákur í heimsólm á jörðinni - í barnaleikritinu Bétveir Leikfélag Akureyrar hefur efnt til samstarfs við þrjú leikhús um að sýna barnasýningar í Samkomu- húsinu á leikárinu og í dag klukk- an 15:00 frumsýnir Furðuleikhús- ið nýtt verk á Akureyri, Bétveir, sem er byggt á samnefndri bók Sigrúnar Eldjám. Tvær sýningar verða í dag, sú seinni klukkan 17:00 og á morgun verða sýningar klukkan 13:00 og 15:00. Bétveir fjallar um tvíhöfða geimstrák sem kemur til jarðarinn- ar til að kynnast nokkru sem er ekki til á stjömunni hans. Hann hittir lítinn strák sem heitir Áki og systkini hans, þau Búa og Lóu. Þau aðstoða hann við að kynnast því sem geimstrákurinn leitar að, sem eru bækur. Áður en hann fer til baka til stjörnunnar sinnar hefur hann lært að lesa og búa til bækur. Leikstjóri sýningarinnar er Jón St. Kristjánsson, tónlist er eftir Valgeir Skagfjörð og leikmynd og búninga gerir Helga Rún. Hlut- verkin í leikritinu eru í höndum fimm leikara: Gunnars Gunn- steinssonar, Margrétar Kr. Péturs- dóttur, Ólafar Sverrisdóttur, Egg- erts Kaaber og Katrínar Þorkels- dóttur. Kunnuleg andlit Gunnar og Margréti ættu margir Akureyringar að kannast við en bæði hafa leikið í Samkomuhús- inu áður. Gunnar útskrifaðist úr leiklistarskólanum vorið 1993 en hann er fæddur og uppalinn á Ak- ureyri. Áður en hann fór í Leik- listarskólann lék hann nokkrum sinnum með Leikfélagi Akureyr- ar, m.a. í Atómstöðinni, þar sem hann fór með hlutverk yngri sonar þingmannsins. Nú er hinsvegar nokkuð um liðið síðan hann stóð síðast á fjölum Samkomuhússins. Hvemig skyldi það leggjast í hann að leika aftur á Akureyri? „Æðis- lega vel,“ segir hann og hlakkar mikið til. Gunnar leikur þrjú hlutverk í sýningunni: Búa, rithöfund og afa. Hann segir að sýningin sé mjög falleg og myndræn og telur hana hina bestu skemmtun. Margrét leikur annan helming- inn af geimstráknum Bétveimur. „Við erum tvær sem leikum Bétvo því hann er með tvö höfuð, fjórar lappir og fjórar hendur. Það geng- ur ágætlega að hreyfa sig en það er ansi heitt að vera í búningnum," segir hún. Margrét tekur undir með Gunn- ari að um skemmtilegt leikrit sé að ræða. „Það er mikið fjör. Við erum með músík sem Valgeir Skagfjörð samdi og hún er mjög hress.“ Margrét hefur leikið nokkmm sinnum með Leikfélagi Akureyrar, lék m.a. í Pilt og stúlku og Fiðlaranum á þakinu. Einnig tók hún þátt í barnaleikrit- unum Línu og Emil í Kattholti. En fyrir hvað gamla krakka ætli leikritið Bétveir sé? „Ég hugsa að þetta leikrit höfði vel til krakka á aldrinum þriggja til tíu ára en yngri krakkar geta líka haft gaman af. Litli strákurinn minn er tveggja ára og honum þykir þetta ofsa skemmtilegt,“ segir Margrét. AI Geimstrákurinn Bétvcir kemur til jarðarinna að lcita að hlut sem er ekki til á stjörnunni hans. Þessi hlutur cr þannig að það eru mörg blöð föst saman á cinni hliðinni og það eru tákn og merki á blöðunum og stundum myndir! Hvað ætli þetta sé?

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.