Dagur - 16.09.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 5
Menntasmiðja kvenna á Akureyri:
Engin próf eru í Mcnntasmiðjunni og konurnar fá engin ákveðin réttindi cn námið getur verið stökkpailur í annað
nám, starf eða einfaidlega skilað sér í bættri líðan. Myndir: BG
svo eitthvað sé nefnt.
Dr. Björg Bjamadóttir, sálfræð-
ingur, er nýráðin verkefnisfreyja
Menntasmiðjunnar og segir hún
að reynt sé að koma til móts við
þarfir hverrar og einnar konu ann-
ars vegar og hópsins hins vegar og
reynt að tengja námsþætti í eina
heild. Ákveðin fög eru fyrirfram
sett inn á stundaskrá en konumar
hafa einnig tækifæri til að koma
með óskir um hvaða efni verði
tekin fyrir. Engin próf eru í
Menntasmiðjunni og konurnar fá
Dr. Björg Bjarnadóttir (sitjandi),
nýráðin verkefnisfreyja Mennta-
smiðjunnar og Pálína Asgeirsdóttir,
fráfarandi verkefnisfreyja. Pálína
mun áfram vera í hálfri stöðu sem
kennari og einnig mun María Olafs-
dóttir Grenó kenna við Mennta-
smiðjuna.
engin ákveðin réttindi en námið
getur verið stökkpallur í annað
nám, starf eða einlaldlega skilað
sér í bættri líðan.
Mikið þróunarstarf
Menntasmiðjan er að vinna
ákveðið þróunarstarf og var hún
m.a. valin af Menntamálaráðu-
neytinu sem framlag íslands til
samnorræna verkefnisins Voks
Nær, sem vinnur að því að finna
nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu.
Einnig er Björg í samstarfi við
fulltrúa á Vinnumiðlun í Reykja-
vík um að tengjast inn á svokall-
aða Leonardoáætlun en það er
áætlun á vegum Evrópusambands-
ins sem hefur með fullorðins-
fræðslu að gera. Rannsóknarþjón-
usta Háskóla íslands kemur líka
við sögu í þessu samstarfi og segir
Björg að í nóvember komi tii með
að skýrast hvort mögulegt sé að
taka þátt í þessari áætlun.
Auk dagskólans, þar sem eru
eingöngu konur, mun Akureyrar-
bær einnig nýta sér húsnæði
Menntasmiðjunnar til að halda þar
kvöldnámskeið sem áður hafa ver-
ið haldin hér og þar í bænum.
Björg segir að samstarf sé milli
Menntasmiðjunnar og Ragnhildar
Vigfúsdóttur, jafnréttis- og
fræðslufulltrúa, um að efla full-
orðinsfræðslu á vegum bæjarins
og hefst fyrsta kvöldnámskeiðið 9.
október.
Björg segir ennfremur að hug-
myndir séu uppi um að bjóða upp
á námskeið fyrir karla án launaðr-
ar atvinnu en það velti á fjárveit-
ingum hvort sú hugmynd verði að
veruleika. AI
Annað starfsár að hefjast
Annað starfsár Menntasmiðju
kvenna á Akureyri er hafið en þar
stunda nám um 20 konur á öllum
aldri sem eru án launaðrar at-
vinnu. Námið er þeim að kostnað-
arlausu og hefur verið viðurkennt
af atvinnuleysistryggingasjóði
sem kjarnanám. I náminu er lögð
áhersla á heildstætt nám sem getur
orðið sterkur grunnur að ýmsum
störfum, frekara námi og/eða dag-
legu, virku lífi.
Hugmyndin af Menntasmiðj-
unni er fengin frá svokölluðum
„kvennaháskólum“, sem starf-
ræktir hafa verið á Norðurlöndum
og víðar, en þeir byggja á sömu
hugmyndafræði og lýðháskólar.
Náminu er í raun ætlað að auka
hæfni til að takast á við lífið og er
lögð áhersla á ólíka námsþætti
eins og t.d. tungumál, tölvunotkun
og bókhald og einnig tjáningu,
líkamsrækt, sjálfstyrkingu og jóga
Furðuleikhúsið frumsýnir á Akureyri:
Tvíhöfða geimstrákur
í heimsólm á jörðinni
- í barnaleikritinu Bétveir
Leikfélag Akureyrar hefur efnt til
samstarfs við þrjú leikhús um að
sýna barnasýningar í Samkomu-
húsinu á leikárinu og í dag klukk-
an 15:00 frumsýnir Furðuleikhús-
ið nýtt verk á Akureyri, Bétveir,
sem er byggt á samnefndri bók
Sigrúnar Eldjám. Tvær sýningar
verða í dag, sú seinni klukkan
17:00 og á morgun verða sýningar
klukkan 13:00 og 15:00.
Bétveir fjallar um tvíhöfða
geimstrák sem kemur til jarðarinn-
ar til að kynnast nokkru sem er
ekki til á stjömunni hans. Hann
hittir lítinn strák sem heitir Áki og
systkini hans, þau Búa og Lóu.
Þau aðstoða hann við að kynnast
því sem geimstrákurinn leitar að,
sem eru bækur. Áður en hann fer
til baka til stjörnunnar sinnar hefur
hann lært að lesa og búa til bækur.
Leikstjóri sýningarinnar er Jón
St. Kristjánsson, tónlist er eftir
Valgeir Skagfjörð og leikmynd og
búninga gerir Helga Rún. Hlut-
verkin í leikritinu eru í höndum
fimm leikara: Gunnars Gunn-
steinssonar, Margrétar Kr. Péturs-
dóttur, Ólafar Sverrisdóttur, Egg-
erts Kaaber og Katrínar Þorkels-
dóttur.
Kunnuleg andlit
Gunnar og Margréti ættu margir
Akureyringar að kannast við en
bæði hafa leikið í Samkomuhús-
inu áður. Gunnar útskrifaðist úr
leiklistarskólanum vorið 1993 en
hann er fæddur og uppalinn á Ak-
ureyri. Áður en hann fór í Leik-
listarskólann lék hann nokkrum
sinnum með Leikfélagi Akureyr-
ar, m.a. í Atómstöðinni, þar sem
hann fór með hlutverk yngri sonar
þingmannsins. Nú er hinsvegar
nokkuð um liðið síðan hann stóð
síðast á fjölum Samkomuhússins.
Hvemig skyldi það leggjast í hann
að leika aftur á Akureyri? „Æðis-
lega vel,“ segir hann og hlakkar
mikið til.
Gunnar leikur þrjú hlutverk í
sýningunni: Búa, rithöfund og afa.
Hann segir að sýningin sé mjög
falleg og myndræn og telur hana
hina bestu skemmtun.
Margrét leikur annan helming-
inn af geimstráknum Bétveimur.
„Við erum tvær sem leikum Bétvo
því hann er með tvö höfuð, fjórar
lappir og fjórar hendur. Það geng-
ur ágætlega að hreyfa sig en það
er ansi heitt að vera í búningnum,"
segir hún.
Margrét tekur undir með Gunn-
ari að um skemmtilegt leikrit sé
að ræða. „Það er mikið fjör. Við
erum með músík sem Valgeir
Skagfjörð samdi og hún er mjög
hress.“ Margrét hefur leikið
nokkmm sinnum með Leikfélagi
Akureyrar, lék m.a. í Pilt og
stúlku og Fiðlaranum á þakinu.
Einnig tók hún þátt í barnaleikrit-
unum Línu og Emil í Kattholti.
En fyrir hvað gamla krakka
ætli leikritið Bétveir sé? „Ég
hugsa að þetta leikrit höfði vel til
krakka á aldrinum þriggja til tíu
ára en yngri krakkar geta líka haft
gaman af. Litli strákurinn minn er
tveggja ára og honum þykir þetta
ofsa skemmtilegt,“ segir Margrét.
AI
Geimstrákurinn Bétvcir kemur til
jarðarinna að lcita að hlut sem er
ekki til á stjörnunni hans. Þessi
hlutur cr þannig að það eru mörg
blöð föst saman á cinni hliðinni og
það eru tákn og merki á blöðunum
og stundum myndir! Hvað ætli
þetta sé?